Alþýðublaðið - 30.01.1985, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. janúar 1985
3
Völva Alþýðublaðsins:
Ráðherrum
fiðlgað í 20!
„Eg spái rigningu þann 17.
júní og náttúruhamförum við
Blöndu einhvern tímann á árinu, en
þegar ég rýndi í framtíðina á árinu
1985 þá eiginlega yfirskyggðu stór-
kostlcgar hræringar á stjórnar-
heimilinu allt saman,“ sagði Völva
Alþýðublaðsins þegar hún var beð-
in um spá fyrir árið 1985.
Hvað mun þá gerast svona svaka-
legt á stjórnarheimilinu? Völvan
sagði að fljótlega yrðu margir og
strangir fundir haídnir hjá ríkis-
stjórninni og þingflokkum stjórn-
arflokkanna. Fljótlega eftir lands-
fund Sjálfstæðisflokksins, sem
verður mikill persónulegur sigur
fyrir formanninn, þá munu stjórn-
arflokkarnir taka af skarið og leysa
310 vistmenn
á Grund
Vfrrlit um vistmenn á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund og
Dvalarheimilinu Ási/Asbyrgi,
Hveragerði.
Á árinu 1984 komu á Grund 50
konur og 49 karlar, samtals 99, 20
konur fóru og 15 karlar samtals 35.
Fjörutíu og fjórar konur létust og
24 karlar samtals 68 manns.
í ársbyrjun 1985 eru á heimilinu
225 konur og 85 karlar, samtals 310
vistmenn.
í Ás/Ásbyrgi komu árið 1984 33
konur og 31 karl samtals 64,20 kon-
ur fóru og 28 karlar samtals 48.
Tveir karlar létust.
í ársbyrjun 1985 eru í Ási/Ásbyrgi
77 konur og 83 karlar, samtals 160
vistmenn.
Orlofskonur
Hvað er orlof húsmæðra? Ótrú-
lega margir spyrja þess enn í dag,
þrátt fyrir að 30. maí nk. verða liðin
25 ár frá setningu laga um orlof
húsmæðra. Svarið er í stuttu máli:
hvíld og hressing — andleg og lik-
amleg — fyrir húsmæður á öllum
aldri og hefur „sérhver kona, sem
veitir eða hefur veitt heimili for-.
stöðu á rétt á að sækja um orlof“.
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykja-
vík hefur verið með starfsemi sína í
heimavistarskólum víða um land,
síðustu tvö sumur að Hvanneyri í
Borgarfirði. Um 60 konur dvelja
þar í eina viku i senn í sex til sjö
sín innanflokksmál með róttækum
stjórnkerfisbreytingum. Þær munu
fela í sér fjölgun ráðherra úr 10 í 20
og verða þá allir ánægðir, þeir sent
háværastir höfðu verið og óánægð-
astir með sinn hlut.
Völvan sagði að eftir mikla ein-
beitingu hefði hún getað séð fyrir
sér hinn nýja ráðherralista stjórnar-
flokkanna. Með því að sundur-
greina núverandi ráðuneyti og
stofna ný ráðuneyti munu ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins verða alls 12,
en Framsóknarflokksins 8. Ráö-
herralistinn var á þá leið, að fram-
sóknarmenn stilla upp Steingrími
Hermannssyni sem forsætisráð-
herra, Jóni Helgasyni sem dóms-
málaráðherra, Halldóri Ásgríms-
syni sem sjávarútvegsráðherra,
Alexander Stefánssyni sem félags-
málaráðherra, en auk þeirra verða
ráðherrar eftirfarandi menn: Ólaf-
ur Þ. Þórðarson verður viðskipta-
málaráðherra (bankamálin út),
Stefán Valgeirsson landbúnaðar-
ráðherra, Páll Pétursson orkumála-
ráðherra og Ingvar Gíslason menn-
ingarmálaráðherra.
Ráðherralisti Sjálfstæðisflokks-
ins verður á þessa leið: Albert verð-
ur áfram fjármálaráðherra, Sverrir
Hermannsson iðnaðarrráðherra,
Matthías Bjarnason heilbrigðisráð-
herra, Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra, en Matthías
Á. Mathiesen verður sérstakur
bankamálaráðherra. Stofnað verð-
ur sérstakt varnarmálaráðuneyti og
þangað flyst Geir Hallgrímsson, en
Þorsteinn Pálssoii fær langþráðan
stól og verður utanríkisráðherra.
Friðrik Sophusson varaformaður
hittast á Sögu
hópum þannig, að um 400 konur
njóta að jafnaði orlofs á vegum
nefndarinnar ár hvert.
í tilefni af 25 ára afmæli laga um
orlof húsmæðra mun orlofsnefnd-
in kynna starfsemi sína á kvöld-
vöku að Hótel Sögu, Súlnasal,
fimmtudaginn 3). janúar nk. Margt
verður sér til gamans gert eins og
venja er á orlofsvökum, s. s. kvæða-
lestur, samtalsþáttur, einsöngur,
danssýning að ógleymdum söng og
hljóðfæraleik.
Orlofskonur! Mætiö allar og rifjið
upp gömul kynni úr orlofsdvöl. —
Kvöldvakan er öllum opin.
fær lika stól og það nýjan, því hann
verður sérstakur innanríkisráð-
herra. Auk þessara verður Birgir
ísleifur Gunnarsson umhverfis-
málaráðherra, Salome Þorkelsdótt-
tr trygginganrálaráðherra, Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson kirkju-
málaráðherra og Ellert B. Schratn
fellst á að sættast með því að hann
verður gerður að samgöngumála-
ráðherra.
Auðvitað mun þessi umbreyting
valda fjaðrafoki, en stjómarflokk-
arnir munu verjast hatrammlega og
geta bent á fordæmi um fjölgun
ráðuneyta og aðrar breytingar, auk
þess sem samfélagið gerist æ flókn-
ara og allt saman verður kryddað
með fjölskrúðugu tali um vald-
dreifingu og lýðræði. Raunveruleg
ástæða þessara breytinga verður þó
ákafur ótti vegna fylgistaps stjórn-
arflokkanna og svo að nauðsynlegt
reynist að friða óánægjuhópana
með einhverju móti. Hvað þá þing-
menn varðar sem ekki hafa komist
á þennan ráðherralista mun það
gilda, að hver þeirra um sig verður
vararáðherra í einhverju ráðuneyt-
anna.
Auk þessara breytinga sá völvan
Harmsaga 4
Eitt þeirra var yfirlýsing Halldórs
Blöndal um að það væri brot á sam-
starfssamningnum ef félags-
málaráðherra framfylgdi þeirri
áætlun sinni að veita Búseta íbúð-
arlán.
Á fundi sem haldinn var nýiega á
Gauk á Stöng, skýrði Haraldur
Ólafsson, fyrsti þingmaður Fram-
sóknar í Reykjavík, frá því að á
döfinni væru 4—5 mál, sem öll
gætu sprengt ríkisstjórnina.
Davíðssálmur
Síðasta dæmid er að finna í ræðu
sem Davíð Oddsson hélt á aðal-
fundi Sjálfstæðisfélaganna og tal-
aði hann enga tæpitungu. Hann er
skiljanlega ekkert ánægður með
gang mála, enda stutt til borgar-
stjórnarkosninga, og hann getur átt
á hættu að missa borgina vegna ó-
ánægju í Sjálfstatðisflokknum.
Eftir að Davíð hafði skýrt frá
óheilindum þeirra framsóknar-
manna, rægði hann jafnvel forsæt-
isráðherra. Sagði hann ganga fram
fyrir skjöldu í hlutverki stjórnar-
andstöðu og að málgagn forsætis-
ráðherra NT væri yfirfullt af ó-
smekklegum dylgjum í garð sjálf-
stæðismanna. Eg legg á það
áherslu, sagði borgarstjóri, að ég er
ekki að mæla fyrir stjórnarslitum,
en á hinn bóginn verður ekki við
það ástand búið, sent verið hefur
undanfarið. Það er tími til kominn
að Framsóknarflokkurinn hætti að
leika tveimur skjöldum. Þessi ræða
Daviðs var upphafið að kosninga-
baráttunni í Reykjavík.
Vandamál framundan
Þetta allt gæti verið aðhláturs-
efni og vatn á myllu stjórnarand-
stæðinga, ef ekki væru mikil
vandamál framundan, sem taka
verður föstum tökum.
Stjórnin fékk mikinn meðbyr í
fyrstu, þareð menn töldu að hún
væri að taka efnahagsvandann
föstum tökum. Þessi trú manna
hefur því miður brugðist og ef
ekki á að koðna hér allt niður með
fylgjandi atvinnuleysi, verður að
koma ný stjórn, sem getur komið
með raunhæfar tillögur, sem
tryggja mannsæmandi lif hér á
landi. Stjórnarflokkarnir ættu
því að sjá sóma sinn í því að segja
af sér og Iáta öðrum eftir að koma
efnahagsmálunum í höfn.
okkar fyrir að margar nefndir yrðu
settar á laggirnar til að endurskoða
hitt og þetta. Taldi hún einsýnt t. d.
að Eyjólfur Konráð Jónsson yrði
formaður nefndar er ætti að endur-
skoða lög um samkeppni og við-
skiptahætti, að Eggert Haukdal
yrði formaður nefndar til að endur-
skoða stöðu íslenskra hrossakaupa-
mála, að Páll Pétursson yrði for-
maður nefndar til að endurskoða
kjördæmaskipanina. Skipuð verð-
ur nefnd til að endurskoða íslenska
aðalverktaka og rnunu manna hana
þeir Thor Thprs forstjóri, Erlendur
Einarsson SÍS og fleiri. Tómas
Árnason og Stefán Valgeirsson
mun halda áfrarn að endurskoða
Framkvæmdastofnunina ásamt
Agli Jónssyni, Sverri Hermanns-
syni og Pálma Jónssyni. Skipuð
verður nefnd til að endurskoða
olíudreifinguna og rnunu manna
hana Vilhjálmur Jónsson, forstjóri
ESSO, Þórður Ásgeirsson forstjóri
OLÍS, lndriði Pálsson forstjóri
SHELL, Geir Hallgrímsson og
Erlendur Einarsson. Þá er loks að
geta nefndar sem stofnuð verður til
að endurskoða milliliðakerfið i
landbúnaði, en auk landbúnaðar-
ráðherra munu hana skipa þeir Ingi
Tryggvason, Gunnar Guðbjarts-
son, Egill Jónsson og Pálmi Jóns-
son.
„Fram eftir árinu verða allir
ánægðir og ríkisstjórnarfundir
mjög fjörugir. En síðar koma svo
kosningar og þá mun koma í ljós að
ráðherrasetur flestra þessara
nranna mun reynast í styttra lagiþ
sagði Völvan og gat þess í lokin að
sennilega kæmi Suðurlandsskjálft-
inn ekki þetta árið.
Raykjalundur 40 ára
Föstudaginn 1. febrúar nk. bjóðum viö vinum og vel-
unnurum Reykjalundar í heimsókn í tilefni 40 ára af-
mælis stofnunarinnar.
Kl. 14.00 hefst stutt afmælisdagskrá í samkomusal, en
að henni lokinni verðaallardeildirog vinnustaðiropnir
til kl. 17.00 og gefst gestum þá tækifæri til að kynnast
margháttaðri starfsemi Reykjalundarásviði endurhæf-
ingar og iðnaðar.
Vinnuheimili S.Í.B.S. að Reykjalundi
Mosfellssveit.
Sjúkrahúsið á Húsavík.
Sjúkraliðar takið eftir
Óskum eftirað ráðasjúkraliða í sumarafleysingar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333 eða á kvöldin í síma 96-41774.
Sjúkrahúsið á Húsavík.
Hjúkrunarfræðingar
takið eftir
Hjúkrunardeildarstjóri óskast sem fyrst einnig
hjúkrunarfræðingar.
Skurðstofuhjúkrunarfræóingur óskast frá 1. júlí
1985 til 1. sept. 1986. Upplýsingarveitirhjúkrunar-
forstjóri í síma 96-41333 eða á kvöldin í síma
96-41774.
FELAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Alþýðuflokksfólk
Garðabæjar
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Garðabæjar verður
haldinn fimmtudaginn 31. janúar kl. 20.30 að Goðatúni
2.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Árshátíð
Hafnarfirði og Garðabæ
Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði og
Garðabæ verður haldin laugardaginn 2. febrúar
næstkomandi og hefst klukkan 19.30.
Mikil stemmning. — Mætum öll.
Nánar síðar.
Nefndin.