Alþýðublaðið - 04.05.1985, Qupperneq 2
Laugardagur 4. maí 1985
l-SUNNUDAGSLEIÐARI'
Sumarkoman
Það er komið vor. Sumarið er á næsta leiti. Og
enda þótt árstíðaskil séu stundum óljós mjög
hér Norður í Atlantshafi og glöggan og afdrátt-
arlausan mun sé ekki að finna á vetri, vori,
sumri og hausti hvað veöurfarið varðar, þáfinn-
ur fólk altént fyrir þeim birtuauka sem kemur
meó hækkandi sól, vori og gróanda.
Og viö íslendingar kunnum að meta vorið.
Eftir langt tímabil, myrkurs, kulda, ófærðar og
alls þess sem íslenskum fipnbulvetri fylgir, þá
tekur sálartötriö rækilega við sér, þegar hlýna
tekur I veðri, gróður fer að láta á sér kræla og
vorboðans — lóunnar — verður vart.
Ekki þar fyrir, að veturinn að þessu sinni, hef-
urverið landsmönnum mildari en oft áður. Það
breytir þó ekkj þeirri staðreynd, að vetur er vet-
ur, dimman og drunginn sem þeirri árstíð fylgir
eru ævinlega til staðar, enda þótt veðrabrigði
kunni að vera breytileg frá einu ári til annars.
Því hefur verið haldið fram, að hið langa
ttmabil rökkurs hérlendis frarpkalli þau skap^
gerðareinkenni íslendinga, að þeir séu öllu
jöfnu, þungbúnir, seinteknir og húmorslausir.
Vissulega eru alhæfingar af þessu tagi var-
hugaverðar; tæþast er gerlegt eða verjandi að
gera heilli þjóð upp tiltekna skapgerð eða^t-
ferlisvenjur. Svo margt er sinnið sem skinnið.
Hinu verður þó ekki á móti mæit, að ákveðnar
samskiptavenjur, ákveðið mannlffsmynstur
verður til hjá hinum ýmsu þjóðum. Hvernig
þær venjur verða til er ekki auðvelt að segja til
um. Þar geta komiö inn I þættir eins og stjórn-
arfar, efnahagsástand og annað fleira. Og veðr-
ið er ekki lítill örlagaþáttur I þeim efnum. Veðr-
ið spinnur verulegan hlut I samskiptavef og —
venjum fólks. Kuldi og myrkur gera það að verk-
um að fólk heidursig innandyraáeigin heimil-
um; félagsleg samskipti verða minni en ella. En
þegarsólin gægist fram með birtu og yl ereins
og fjötrum sé létt af mannskepnunni; bros
gægjast fram, fólk gefur sér tíma til að stpldra
við á götum úti og spjalia við náungann; fólk
verður jákvæðara og opnara gagnvart umhverfi
sínu og samborgurum.
Vorkoman er langþráður gleðigjafi. Henni
fagna íslendingar nú sem fyrr á tfmum. En
hringrás hins eilifa tíma heldur áfram; það
kemur vetur á ný. í llfinu er ekkert varanlegt.
Síst af öllu veðrið. Og árstfðir koma og fara.
Þess vegna verður fólki að lærast að njóta
augnabliksins; veratil og lifa Iffinu lifandi með-
an tækifærin gefast. Enginn veit sína ævi fyrr
en öll er. Fögnum því sumri og sól meö gleði f
hjarta og notum til hins ftrasta þau tækifæri
sem birta sumarsólarinnar gefur.
Sumarið staldrar stutt við. En er á meðan er.
Lærum að njóta þeirra lifsins gæðaer náttúran
af örlæti miðlar.
—GÁS.
Mótmœlt 1
firðinga hf. Segir Fulltrúaráðið að
hér sé ómaklega að mönnum vegið,
hið rétta sé, að formaður Hlífar
hefði sagt að hann persónulega
myndi ekki beita sér fyrir því að
fólk keypti bréf og sé á þessu veru-
legur munur. „Forystumenn verka-
lýðsfélaganna óska Ú.H. besta
gengis í hlutafjársöfnun og hverj-
um þeim aðgerðum er mega verða
til þess að fyrirtækið fari hið bráð-
asta í gang”. Itreka verkalýðsfélögin
áskorun sína um að viðræður verði
teknar upp um virka atvinnumála-
nefnd sem hafi það að markmiði að
móta atvinnustefnu Hafnarfjarðar
á þann veg, að slys á borð við þaö.
sem nú er orðið varðandi B.U.H.
endurtaki sig ekki.
Á aðalfundinum var Grétar Þor-
leifsson kjörinn formaður Fulltrúa-
ráðsins og Sigurður T. Sigurðsson
varaformaður.
Réttarstaða 1
tímanum geta risið upp mikil
vandamál við sambúðarslit þegar
aðeins annar aðilinn er skráður eig-
andi fasteigna. í hæstaréttardóm-
um má sjá að oft hefur verið farin
sú leið, til að draga úr mesta órétt-
Iætinu, að dæma konunni þóknun
fyrir störf hennar í þágu heimilis-
ins. Það liggur þó í augum uppi, ef
eignamyndun hefur verið mikil á
sambúðartímanum, að slík þóknun
getur verið hverfandi í samanburði
við eignirnar. Hin síðari ár hefur þó
niðurstaða dómstóla um slit óvígðr-
ar sambúðar í auknum mæli verið
sú til að koma í veg fyrir ósann-
gjarna niðurstöðu, að farið er að
dæma um hlutdeild í eignamyndun
á sambúðartímanum eða viður-
kenna sameign aðila. Með þeirri
stefnubreytingu er að nokkru leyti
tekið tillit til framlags beggja til
eignamyndunar sem orðið hefur á
sambúðartímanum. Ljóst er þó að
dómstólaleiðin er bæði erfið, dýr
og oft seinvirk. Það getur því tekið
nokkur ár að fá niðurstöðu um
fjárskipti við slit á óvígðri sambúð.
Með þeirri Ieið, sem hér er lögð til í
þessu frumvarpi — að skiptarétti
verði heimilt að skipta búi sambúð-
arfólks, — yrði komið í veg fyrir
löng og erfið málaferli fyrir al-
mennum dómstólum"
Sameiginlegt 1
framboð virka sem raunverulegur
og öflugur valkostur gegn borgar-
stjórnarmeirihluta Sjálfstæðis-
flokksins og kasta fyrir róða þeim
Vegna þeirrar umræðu, sem nú á
sér stað í þjóðfélaginu um full-
vinnslu sjávarafurða, vill aðalfund-
ur Sölustofnunar lagmetis vekja at-
áróðri sjálfstæðismanna, að vinstri
flokkarnir geti ekki stjórnað borg-
inni í sameiningu vegna innri óein-
ingar og samstöðuleysis. Glund-
roðakenning íhaldsins yrði þannig
dauð og ómerk.
I félagshyggjuflokkunum eru
skoðanir um ágæti þessara hug-
mynda að vonum skiptar, en ítar-
legar umræður hafa ekki farið fram
innan flokkanna um þessi mál, eftir
því sem Alþýðublaðið kemst næst.
Flestir munu þó sammála um, að
ástæða sé til að skoða hugmyndir af
þessu tagi, þótt þær geti virst
óraunhæfar við fyrstu sín. Ýmsir
erfiðleikar eru á framkvæmd og
áhugi að vonum mismikill á ein-
staklingum í flokkunum fjórum.
Málfundafélag félagshyggju-
fólks hefur afráðið að hleypa af
stokkunum umræðu um þessi mál
og verður opinn fundur haldinn að
Hótel Hofi þann 7. maí næstkom-
andi, næsta þriðjudag kl. 20.30.
Þar munu einstaklingar frá félags-
hyggjuflokkunum ræða þessi mál
vítt og breitt og almennar umræður
fara fram.
hygli á, að lagmetisiðnaðurinn hef-
ur þá sérstöðu, að innan hans er
einungis um að ræða fullvinnslu
sjávarafla sem tilbúinnar neytenda-
vöru.
Ýmsir möguleikar eru enn ekki
fullnýttir og enn fleiri ókannaðir.
Aðalfundur SL beinir því til
stjórnvalda, að þau geri tafarlaust
ráðstafanir til að búa þannig að lag-
metisiðnaðinum að aðstaða hans til
samkeppni á erlendum mörkuðum
verði hin sama og keppinautarnir
búa við.
í þessum tilgangi skorar aðal-
fundur SL á stjórnvöld að beita sér
fyrir eftirfarandi:
a) Unnið verði að niðurfellingu
verndartolla á EBE-mörkuð-
um og í Bandaríkjunum, en
dæmi eru um að greiða þurfi
lOVo toll af íslensku lagmeti til
EBE-landa á sama tíma og lag-
meti frá EBE-löndum er flutt
inn til íslands án tolla.
b) Afurðalánum verði breytt í það
horf að fjármagnskostnaður
íslenskra lagmetisverksmiðja
verði sambærilegur og hjá
keppinautum okkar í Evrópu.
c) íslenskum lagmetisiðjum er
höfuðnauðsyn að stöðugleika
verði komið á í íslenskum efna-
hagsmálum, eigi þær að geta
staðist hina hörðu samkeppni á
erlendum mörkuðum. Því
skorar fundurinn á stjórnvöld
að treysta stöðu íslensks efna-
hagslífs og tryggja þannig
starfsemi atvinnuveganna í
landinu.
Útboð
Tilboð óskast I prentun kennslubóka fyrir Námsgagnastofn-
un. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7,
Reykjavik.
Tilboð verða opnuð á sama staö kl. 11:00 f.h. 15. mai n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Boraartúni 7. sin S.344
Kaupfélagsstjóra vantar
Kaupfélag ísfirðinga óskar að ráða kaupfélags-
stjóratil félagsins. Umsóknir sendist til kaupfé-
lagsstjórans fyrir 25. maí n.k.
Kaupfélag ísfirðinga
Austurvegi 2
400 ísafirði
Laus staða
Bændaskólinn á Hólum óskar að ráða kennara I
almennum búfræðigreinum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir
25. mal n.k.
Landbúnaðarráðuneytið,
30. apríl 1985.
Stjórnvöld geri lagmetis-
iðnað samkeppnishæfan
ÆL'X
; * Wb
■-
Nýkjörin stjórn S.L.: Fremri röð frá vinstri: Böðvar Sveinbjarnarson,
Kristján Jonsson Rafn A. Sigurðsson formaður, Þorsteinn Jónsson vara-
formaður og Einar Sigurjónsson. Aftari röð f.v.: Theódór S. Halldórsson
framkv.stjóriS.L., Gunnar Skaptason, Jón Kristjánsson, Jon Guðl. Magn-
ússon, Magnús Tryggvason og Stefán Melsteð.
Aðalfundur Sölustofnunar lagmetis
Útflutningur tvö-
faldast á $ árum
Aðalfundur Sölustofnunar lag-
metis var haldinn í Reykjavík 19.
apríl sl. og sátu hann fulltrúar að-
ildarverksmiðja víðsvegar af land-
inu.
Rafn A. Sigurðsson, formaður
stjórnar SL, og Theódór S. Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri SL,
gerðu grein fyrir skýrslu stjórnar og
reikningum, sem voru lagðir fram.
Þráinn Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins og dr. Grímur
Valdimarsson, forstjóri Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins,
fluttu erindi um sölu- og markaðs-
mál og rannsóknir og vöruþróun í
þágu lagmetisiðnaðarins.
Útflutningur á vegum Sölustofn-
unar lagmetis á árinu 1984 jókst frá
árinu áður. Út voru flutt tæplega
3000 nettó tonn, sem var um 9%
aukning frá árinu 1983, og er verð-
mætishækkunin 26% frá fyrra ári í
ísl. krónum.
Heiidarútflutningur ársins 1984
er sá mesti, sem verið hefur frá upp-
hafi SL. Árið 1977 flutti SL út 1300
nettó tonn og hefur útflutningurinn
því rúmlega tvöfaldast síðan.
Helsu tegundir, sem voru fluttar
út voru rækja, gaffalbitar, kippers
(léttreykt síldarflök), kavíar og
þorskalifur.
Stærstu viðskiptalöndin eru
Efnahagsbandalagslöndin, Sovét-
ríkin og Bandaríkin.
Á fundinum voru eftirtaldir
menn kjörnir í stjórn SL:
Aðalmenn: Kristján Jónsson,
Rafn A. Sigurðsson, Þorsteinn
Jónsson, Einar Sigurjónsson,
Böðvar Sveinbjarnarson. Vara-
menn: Magnús Tryggvason, Jón
Kristjánsson, Gunnar Skaptason,
Jón Guðlaugur Magnússon, Stefán
Melsted.
FÉLAGSSTARF
ALt?ÝÐUFLOKKSINS
Alþýöuflokkskonur
Fundur starfshópa um skattamál verður haldinn f fé-
lagsmiðstööinni þriðjudaginn 7. maf kl. 20.
Mætum allar
Hópstjórar