Alþýðublaðið - 02.07.1986, Síða 7
Miðvikudagur 2. júli 1986
7
stjórn fara með landbúnaöarráðu-
neytið. Má því ekki fullyrða að
Framsóknarflokkurinn eigi stóran
þátt í því hvernig ástandið er i land-
búnaðarmálum í dag?
— Vissulega er það rétt að hann
ber ábyrgð á landbúnaðarmálum.
Það er hins vegar ekki rétt að hann
hafi alltaf farið með landbúnaðar-
mál þegar hann hefur verið í stjórn.
Hann gerði það ekki á árunum
1980—83. Svo má ekki gleyma við-
reisnartímabilinu þegar 12 ár liðu
og Framsóknarflokkurinn var í
stjórnarandstöðu, þá voru teknar
ákvarðanir sem hafa haft afleiðing-
ar allt til dagsins í dag. Framsókn-
arflokkurinn hefur átt mikinn þátt
í að byggja upp íslenskan landbún-
að, en aðstæður hafa breyst svo gíf-
urlega mikið á síðustu árum. Nú er
það ekki lengur framleiðslugetan
sem takmarkar möguleikana held-
ur eru það markaðirnir. Áður og
allt fram undir síðasta áratug þá var
allt kapp lagt á að framleiða sem
mest, skapa verðmæti bæði fyrir er-
lenda og innlenda markaði, þar sem
ekki voru erfiðleikar að selja og til-
Það er ómetanlegt
gagn sem Rann-
sóknarstofnun
landbúnaðarins
hefur unnið ís-
lenskum landbún-
aði.
tölulega hagstætt verð fékkst í út-
flutningi miðað við verðið í dag.
Menn voru farnir að vara við
þessari þróun fyrir alllöngu. Var
ekki horft fram hjá því?
— Jú, þaðer rétt aðþað var bent
á að þarna kynni svona að fara.
Ákvörðun um útflutningsbætur og
verðtryggingu voru teknar af ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins. Ákvörðun þeirrar
ríkisstjórnar hefur haft mjög mikil
áhrif á þróunina í landbúnaðinum
fram á þennan dag.
Búnaðarfélagið er sá aðili sem er
ráðgefandi í landbúnaðarmálum og
hefur kannski meiri stefnumark-
andi áhrif en almenningur gerir sér
grein fyrir. Hefðu þeir aðilar ekki
átt að sporna við þessari þróun
fyrr?
— Búnaðarfélagið annast leið-
beiningarþjónustu í landbúnaði.
Þeir hafa lagt kapp á að gera land-
búnaðarframleiðsluna sem hag-
kvæmasta á hverjum tíma miðað
við aðstæður. Hins vegar hef ég lát-
ið það í ljós að nauðsyn væri á öfl-
Æskilegt aö vera
ekki að fella dóma
áöur en niðurstöð-
ur liggja fyrir.
ugum hagfræðilegum leiðbeining-
um. Að því hefur verið unnið og má
nefna í því sambandi að á síðasta
ári var öllum bændum gefinn kost-
ur á hagfræðilegri úttekt á búrekstri
sínum. Einnig hefur verið unnið að
því að koma upp tölvuvæðingu hjá
Búnaðarfélaginu þar sem það gæti
tekið í bókhald allan búrekstur
bænda. Þá gætu bændur fengið
upplýsingar um stöðu sína jafnóð-
um, jafnframt að ráðunautarnir
leiðbeindu bændum um það sem
betur mætti fara.
Þú hefur varað bændur við sam-
keppni, hvaö áttu við?
— Þar á ég við að fjárfestingar
sem lagt er út í, en ekki hægt að
nýta, séu vegna harðrar samkeppni
einstaklingnum og þjóðfélaginu of
dýrar. Þú minntist hér í upphafi á
Hafskipsmálið. Því var haldið fram
/framtíðinni verður gróskan í Laugardal eitthvað þessu lík.
á sínum tíma að samkeppni sparaði
þjóðfélaginu miklar upphæðir. Nú
eru allir sammála um það að enda-
lokin þar verða þjóðfélaginu dýr.
Það er þetta sem ég er að reyna að
vara við. Við verðum að skipuleggja
landbúnaðinn þannig að sú fjár-
festing sem við leggjum í komi að
fullum notum.
Ertu að koma á rússnesku eða
pólsku fyrirkomulagi á landbúnað-
inn?
— Ég er sjálfur bóndi og á ekki
aðra ósk heitari fyrir sjálfan mig en
þá, að ég gæti hagað mínum bú-
rekstri eins og mér þætti skynsam-
legast og heppilegast fyrir sjálfan
mig. Vitanlega óska ég ekki eftir því
fyrir aðra að koma á öðrum að-
stæðum. Því tel ég að það sé æski-
legt að vera sem mest laus við höml-
ur. Við þessar takmörkuðu mark-
aðsaðstæður er þetta algjörlega
óhjákvæmilegt og nauðsynlegt fyr-
ir bóndann að hafa einhverja trygg-
ingu fyrir sinni afkomu.
Það er verið að
reyna að gera
framleiðsluna eins
hagkvæma og
kostur er.
Lítur þú á þessa framleiðslu-
stjórnun sem skammtímalausn?
— Ég vona að sú tíð komi að af-
koman geti farið batnandi hjá
bændum án þess að það séu einhver
fyrirmæli um það hvað hver og einn
á að gera.
Gengi 10 6.'8i
SUZUKI SWIFT
Sparneytnasti bíll sem fluttur er
til landsins fæst nú stærri og
rúmbetri og auk þess með
sjáifskiptingu.
S0LUUMB0Ð:
Bílaverkstæfti Guðvarðar Elíss., Drangahraun 2
220 Hatnarfjörður - 91/52310
Bílaumboð Stefnis hf., Austurvegur 56-58
800 Selfoss-99/1332-1626
Ragnar Imsland, Miðtún 7
780 Höfn Hornaf. - 97/8249-8222
Bitreiðaverkst. Lykill
740 Reyðarfjörður - 97/4199-4399
Bilaverkst. Jóns Þorgrímss., Garðarsbraut 62-64
640 Húsavík- 96/41515
Blasalan hf., Strandgata 53
600 Akureyri - 96/21666
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 685100
Brynjar Pálsson, Hólmagrund 19
550 Sauðárkróki - 95/5950-5317
Dalverk, Vesturbraut 18
370 Búðardal-93/4191
Bílasala Vesturlands, Borgarbraut 56
310 Borgarnes - 93/7577
Ólafur G. Ólafsson, Suðurgata 62
300 Akranes - 93/1135-2000
Kaupfélag Húnvetninga
540 Blönduósi- 95/4198
SUZUKI CARRY
Nýr og enn betur
búinn sendibfll frá Suzuki,
með alla kosti fyrirrennara
síns og marga að auki.
SUZUKI CARRY 1000
sendibíll kr. 373.000.-
SUZUKI CARRY1000
háþekjusendibíll kr. 385.000.-
SUZUKI FOX
Sterkbyggður og sparneytinn.
Þrautreyndur við íslenskar aðstæður.
SUZUKI FOX SJ410 jeppi 4gíra kr. 380.000.-
SUZUKI FOX SJ413 háþekju-
jeppi 5 gíra kr. 468.000.-
SUZUKI FOX SJ410 pickup 4gíra kr. 420.000.-
SUZUKI FOX SJ413 pickup 5gíra kr. 465.000.-
SUZUKI SWIFT GL 3dr. beinskiptur kr. 299.000.-
SUZUKI SWIFT GL 3 dr. sjálfskiptur kr. 329.000.-
SUZUKI SWIFT GL 5 dr. beinskiptur kr. 322.000.-
SUZUKI SWIFT GL 5 dr. sjálfskiptur kr. 348.000.-
SUZUKISWIFT sendibíll kr. 345.000.-
sux^fu® tW
to*11^sérflokki
SUZUKI - Margfaldur
íslandsmeistari í sparakstri
SUZUKI