Alþýðublaðið - 02.07.1986, Qupperneq 11
Miðvikudagur 2. júlí 1986
11
Jóhannes Kristjánsson, bóndi á Höfðabrekku, formaður Landssambands ^
Bændur búi við sömu kjör
og aðrar útflutningsgreinar
Á Stéttasambandsfundi bænda á
Hvanneyri kom fram tillaga frá
Landssambandi sauðfjárbænda
um að gerð yrði athugun á því hvort
möguleiki væri á að lækka kjötverð
með hagræðingu í rekstri í huga.
Þegar haft er í huga að Stéttar$am-
band bænda er hagsmunafélag
bænda voru viðbrögðin vægast sagt
undarleg. Samkvæmt heimildum
blaðamanns Alþýðublaðsins stóð
til að víta formann Landssambands
sauðfjárbænda persónulega fyrir
að bera þessa tillögu upp.
Alþýðublaðið hafði samband við
Jóhannes Kristjánsson frá Höfða-
brekku í Mýrdal, formann Lands-
samtaka sauðfjárbænda og innti
hann nánari um þetta mál.
Jóhannes sagði að Landssamtök
sauðfjárbænda hefði samið tillögu
sem fól í sér að athugaðir yrðu allir
möguleikar á því að lækka sauð-
fjárafurðir í verði. Hann taldi að
þær undirtektir sem tillagan fékk
hafi byggst á misskilningi m.a.
vegna fyrirsagnar í einu dagblað-
anna. Þegar þeir sömdu þessa til-
lögu voru þeir með samninga á
vinnumarkaði í huga. í því sam-
bandi skulu menn muna að land-
búnaðurinn borgar u.m.þ.b. 28% í
tolla og ýmis gjöld.
„Hugmyndin var að kostnaður
lækkaði með því að: 1) Milliliðar
lækkuðu sinn kostnað með hag-
ræðingu í rekstri. 2) Á móti fengju
bændur að framleiða jafn mikið og
í fyrra. í hugmyndinni fólst að hag-
ræðing yrði í rekstri hjá öllum aðil-
umí‘
Jóhannes lagði áherslu á að
bændur vildu búa við sömu kjör og
aðrar útflutningsgreinar. Iðnaður
og aðrir atvinnuvegir búa við hæstu
gjöld af hálfu ríkisins í formi tolla-
fríðinda og fl. samkvæmt því sem
fram komu á Búnaðarþingi í vetur.
Landbúnaðurinn hefði verið
misnotaður sem vísitölufyrirbæri
og sem byggðastefna. Það væri
kominn tími til að menn fari að efla
raunhæfa byggðastefnu. Krafan
væri sú að búin séu það stór að fólk
hafi mannsæmandi afkomu. Með-
altal í landbúnaði gengur ekki.
Taka verður tillit til landgæða og
möguleika á landnýtingu. Aðspurð-
ur taldi Jóhannes ekki óeðlilegt, að
eins og sakir stæðu fækkaði bænd-
um eitthvað. Þó taldi hann kvótann
aðeins lausn til 2—3 ára. Bændur
gætu beðið í 1—2 ár. Hætta væri á
því að þeir menn sem við hefðum
mesta þörf fyrir fari, en hinir verði
eftir. Að lokum var Jóhannes
spurður um það hvort honum fvnd-
ist Stéttarsamband bænda þjóna
sínu hlutverki sem skyldi, því svar-
aði hann á þessa leið: „Bændur
flykkjast um þá stjórn sem þar er
og því má álykta svo að menn séu
ánægðir með Stétt.arSamband
bænda“
Léttlamb
fitusnautt
kjöt
Á föstudaginn var boðið til veislu
í Ritunni við Nýbýlaveg í Kópavogi.
Gestgjafinn Gunnar Páll Ingólfs-
son var að kynna nýja markaðsvöru
„léttlamb“, sem eru 6—10 vikna ný-
slátruð lömb. Blaðamaður Alþýðu-
blaðsins var á meðal gesta og hrip-
aði hjá sér það markverðasta.
Þetta kjöt er að mati blaðamanns
Alþýðublaðsins ljúfengara, en hið
sígilda lambakjöt. Það er einnig
fíngerðara og ljósara. Gunnar Páll
Ingólfsson sagði að miklu minni
fita væri á skrokknum, en venju-
legu „fjalla-lambi“ Almennt var
gerður góður rómur að þessari nýj-
ung. Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar , sagði að þetta væri
svo gott að möguleiki væriað gera
petta kjöt að heimsfrægum rétti.
Það sem vantaði væru góðir sölu-
menn. Það á að leggja áherslu á að
við getum boðið hreina náttúruaf-
urð, sagði Ingólfur. Sigurgeir Þor-
geirsson doktor í sauðfjárrækt
sagði að þetta framtak hlyti að hafa
áhrif í framleiðslumálum. Þetta yki
fjölbreytileikann að fá nýtt lamba-
kjöt á þessum árstíma. Tæknilega
séð, sagði hann ekkert því til fyrir-
stöðu að láta ær bera allan ársins
hring. Það þarf að hugleiða alla
möguleika til að rétta hag sauðfjár-
bænda.
Það kom fram að í Miðjarðar-
hafslöndunum eru til réttir gerðir af
nýfæddum lömbum, sem þykja hið
mesta ljúfmeti. Þar eru ókannaðir
markaðsmöguleikar.
Það sem gerir þessa nýjung
merkilega er að með þessari fram-
leiðsluaðferð er hægt að framleiða
sama kjötþunga án þess að fram-
leiða fitu og engin þörf er að beita
á fjall.
Samstarf Búnaðarbankans og Brunabótafélagsins gerir þér nú
mögulegt að kaupa ferðatryggingu um leið og þú kaupir gjaldeyri
í bankanum.
Ferðatrygging Brunabótafélagsins er samsett trygging
sem bætir tjón vegna slysa, sjúkdóma og ferðarofs, auk tjóns á farangri.
Búnaðarbankinn býður ferðatékka
í 7 gjaldmiðlum, seðla í öllum skráðum gjaldeyristegundum
og Visa greiðslukort.
Ferðatrygging og gjaldeyrir á sama stað.
BRUIWBÓT (Íbúnaðarbankinn
-AFÖRYGGISÁSTÆÐUM \l\J traustur banki