Alþýðublaðið - 02.10.1986, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 2. október 1986
'RITSTJQRNARGREIN'
Þjóðarsómi í veði
Skyndiiega er ísland komið í heimsfréttirnar.
Leiðtogar voldugustu ríkja heims ætla að hitt-
ast á eyju í Atlantshafi, miðja vegu á milli
Moskvu og Washington. Þeir ætla að ræða
mikilvægustu mál heimssögunnar; friðsamleg
samskipti, afvopnun og hvernig koma megi í
veg fyrir þá tortímingarhættu, sem yfir mann-
kyni vofir.
Auðvitað er það mikill heiður fyrir íslendinga,
að leiðtogamir skuli vilja hittast á íslandi. En
það leggurþjóðinni miklarskyldurá herðar. Öll
fjölmiðlaaugu heims munu beinast að íslandi
í marga daga. Og þegar hafa heyrst raddir i út-
löndum um að staðarvalið sé ekki heppilegt.
Það skorti hótel og öryggisgæslu og fjar-
skiptamöguleikar séu ekki nægir.
En við tökum ekki mikið mark á svona gagn-
rýni. Hún hlýturað komafrámönnum, sem lítið
þekkja til hér á landi, eða nennaekki að ferðast
hingað. Engu að síður eykur gagnrýnin kröfur
um að allt fari vel úr hendi við undirbúning
fundarins. Það væri lakara ef fulltrúar heims-
fjölmiðlanna færu heim óánægðir með þjón-
ustu og viðmót.
Islendingarverðaað horfast í augu við þástað-
reynd, að margir þeirra manna, sem hingað
koma vegna fundarins, vita sáralítið um land
og þjóð og telja ísland á mörkum hins byggi-
lega heims. Það er ekkert smámál að breyta
þessum skoðunum og sýna og sanna með
fullri reisn, að þjóðin er þeim vanda vaxin að
hýsa hina voldugu gesti.
Reykjavíkurfundurinn getur orðið býsna
sögulegur og markað upphaf verulega bættrar
sambúðar stórveldanna. Þó er því ekki að
ieyna, að margir sérfræðingar ( alþjóðamálum
telja, að enn beri svo mikið á milli í tillögum
Gorbachevs og Reagans í afvopnunarmálum,
að fundurinn hér muni ekki þjóna verulegum
tilgangi sem undirbúningur undir annan og
veigameiri fund.
En það er af hinu góða að leiðtogarnir skuli
setjast niður og ræðast við. Það væri kannski
ráð að bjóða þeim í heita pottinn í Sundlaug
Vesturbæjar. Þar hafa mörg vandamál verið
leyst. Síðan ætti að leyfa þeim að sitja í friði og
ró I ráðherrabústaðnum á Þingvöllum, njóta
náttúrufegurðar og kyrrðar svo þeir megi
skynja betur tilgang þess að halda notkun
kjarnorkuvopna í skefjum. Þetta eru jú bara
menn.
En gamanlaust, þá er þessi fundur mikilvæg-
ur fyrir alla heimsbyggðina. Tii hans verður
vitnað í allri stórveldaumræðunni löngu eftir
að honum lýkur. Það er því mikilvægt, að ís-
lendingar geri allt sem í þeirra valdi stendur til
að hann gangi snurðulaust, og að enginn trufl-
un verði, sem varpar rýrð á land og þjóð.
Það er mikilvægt að íslensk stjórnvöld láti
þetta tækifæri ónotað til að ræða samskipti
sín við þessarstórþjóðir. Slfkt erekki við hæfi.
Mistakist undirbúningur fundarins og komi
fram alvarlegir hnökrar fundardagana, getur
það orðið mikið áfall fyrir álit þjóðarinnar út á
við.
Þess vegna er nauðsynlegt að allir sameinist
um að beita kröftum sínum til að taka vel á móti
þjóðarleiðtogunum og fylgdarliði þeirra. Takist
vel til er ekki að efa að fleiri mun fýsa að funda
á íslandi.
Þessar þrjár stóðu sig best í heilsuskokkinu í sumar. Frá vinstri: Guðríður
Gisladóttir, Sólveig Kolbeinsdóttir og Anna Sigurðardóttir.
Hópur af galvöskum heilsuskokkurum.
Ábyrgð h.f. og ÍR:
214 skráðu sig
í heilsuskokk
Vinsamleg tilmœli til ráðherra:
„Nauðsynlegt að
ákvæðum laga sé fylgt“
Menntamálaráðherra hefur ráðið Hannes Hólmstein í
stöðu rannsóknarlektors, án þess að auglýsa stöðuna
svo sem lög mæla fyrir. — Kennarar í sagnfræði við Há-
skóla íslands senda frá sér ályktun.
í tilefni 25 ára starfsafmælis
Ábyrgöar hf., tryggingafélags bind-
indismanna, hinn 18. mars 1986,
ákvað stjórn félagsins að helga af-
mælisárið hinum nýja lífsstil heil-
brigðis og hollustu í anda mark-
miða Alþjóöa heilbrigðisstofnun-
arinnar um heilbrigði allra árið
2000.
Eitt af verkefnum félagsins i
þessum anda var að stofna til sk.
heilsuskokks fyrir almenning, sem
var fyrst og fremst ætlað þeim sem
ekki hafa stundað likamsrækt áður.
Var fenginn til aðstoðar hinn góð-
kunni frjálsíþróttaþjálfari ÍR Guð-
mundur Þórarinsson.
í ljós kom strax á fyrstu æfingu
hinn 18. júní að mikill áhugi var
fyrir þessari starfsemi, fjöldi
manns skráði sig í Heilsuskokks-
klúbbinn þá þegar, fólk á öllum
aldri, konur, karlar og börn. Alls
skráðu sig 214 í Heilsuskokkið í
sumar og hafa margir tekið þátt í
æfingunum á skokkbrautunum við
Laugardalslaugina þrisvar í viku
hverri. Flestir á æfingu voru 114
talsins, en að jafnaði sóttu 50—60
hverja æfingu.
Og það kom einnig í ljós að
margir, konur og karlar, höfðu
aldrei stundað líkamsrækt áður, en
gafst nú gott tækifæri til að reyna,
þvi Guðmundur þjálfari leiðbeindi
hverjum og einum með hliðsjón af
aldri, líkamsstyrk og fyrri æfing-
um, og gætti þess að enginn ofgerði
sér. Þetta fólk hefur haft mikla
ánægju af hreyfingunni og útivist-
inni og hefur fundið, hvernig því
hefur jafnt og þétt vaxið þróttur og
þol, bæði til líkama og sálar.
Síðasta heilsuskokksæfingin var
mánudaginn 22. september sl., sem
var sk. samæfing þar sem allir
hlupu saman rúmlega þriggja kiló-
metra vegalengd. Að því loknu kom
allur hópurinn saman í hinum nýju
húsakynnum ÍSÍ í Laugardal þar
sem þátttakendum voru veitt viður-
kenningarskjöl fyrir þátttökuna og
þeim þrem heilsuskokkurum, sem
best sóttu æfingarnar, var að auki
færðar gjafir fyrir frábæra ástund-
un og elju.
Þótt hinum reglubundnu æfing-
um á vegum Ábyrgðar hf. og ÍR sé
lokið í ár er fullur hugur í heilsu-
skokkurum að halda áfram í vetur
og hefur Guðmundur þjálfari boð-
ist ti! að leiðbeina mönnum við inni
og útiæfingar í vetur.
Háskóli íslands:
r
Oskabarn eða
• •
Oskubuska
Bandalag háskólamanna
efnir til fundar í tilefni 75
ára afmælis Háskóla ís-
lands.
Háskóli íslands — óskabarn eða
öskubuska, er yfirskrift fundar sem
Bandalag háskólamanna gengst
fyrir á 75 ára afmælishátíð Háskóla
íslands. Fundurinn verður haldinn
sunnudaginn 5. október kl. 14 í
stofu 101 íOdda, ogeröllum opinn.
Frummælendur á fundinum eru,
Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri
Álafoss og Þorsteinn Gylfason
dósent. Að loknum framsöguerind-
um verða pallborðsumræður og
fyrirspurnir. Fundarstjóri verður
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari og fyrrverandi háskólarekt-
or.
í tilefni afmælisins verður ýmis-
legt annað að gerast í október. Gert
er ráð fyrir nokkuð samfelldri dag-
skrá vikuna 4—11 október með
fundum, fyrirlestrum og sýningum
á starfi skólans.
Embættisfærsla menntamála-
ráöherra hefur um nokkurt skeið
verið vinsælt fréttaefni. Sverri hef-
ur tekist að skapa hina ýmsu um-
ræðu um allt og ekki neitt í kringum
hitt og þetta sem hann hefur gert,
en hefði e.t.v. betur látið ógert.
A.m.k. aö sumra áliti. Kennarar i
sagnfræði við Háskóla íslands hafa
séð ástæðu til að ræða gerræðisleg
vinnubrögð ráðherrans. Hér fer á
eftir ályktun sem samþykkt var á
fundi þeirra nýverið.
„Fundur kennara í sagnfræði við
Háskóla íslands, 19. september
1986, fagnar þeirri ákvörðun
menntamálaráðherra, Sverris Her-
mannssonar, að láta endurreisa
stöðu rannsóknarlektors í sagn-
fræði. Það er mikilvægt fyrir sagn-
fræðirannsóknir að til séu stöður
rannsóknarlektora i tengslum við
Sagnfræðistofnun Háskóla ís-
lands, og þá helst fleiri en ein.
Árið 1981 ákvað þáverandi
menntamálaráðherra að neita að
auglýsa lausa til umsóknar stöðu
rannsóknarlektors í sagnfræði, sem
þá var ekki skipuð, og hefur þessari
óheppilegu ákvörðun ekki verið
haggað enn þá, þótt ákveðið skref
hafi nú verið stigið til að endurreisa
stöðuna. Fundurinn harmar að ráð-
ið skuli hafa verið í stöðuna án þess
að hún hafi verið auglýst eins og lög
mæla fyrir. Aðstæður geta varla
réttlætt undantekninguna, sem hér
var gerð. Eins og málum var háttað
fengu hvorki dómnefnd né heim-
spekideild tækifæri til að meta hæfi
manna til að gegna stöðunni líkt og
lög og reglugerð háskólans segja til
um.
Það er sérstaklega mikilvægt að
ákvæðum laga um auglýsingu
stöðu sé fylgt við haskóla til að
standa vörð um reisn fræðigreinar
og frelsi hennar til að þróast eðli-
lega.
Jafnframt bendir fundurinn á að
staða kennslumála í sagnfræði við
Háskóla íslands breytist á engan
hátt við stofnun eða endurreisn
rannsóknarlektorsstöðu í greininni.
Eftir sem áður er meir en helmingur
allrar kennslu í sagnfræði í höndum
stundakennara. Þörfin á fleiri
kennarastöðum í sagnfræði er
þannig brýn.“
Vextir 1
viðbrögðum en verið hafa. En þetta
kerfi er seinvirkt og það gerist ekk-
ert einn, tveir og þrír“, sagði Hrafn
Magnússon framkvæmdastjóri
Sambands almennra lífeyrissjóða í
samtali við Alþýðublaðið i gær að-
spurður um áhrif vaxtalækkunar-
innar á spariskírteinum ríkissjóðs á
almenna vexti. Hrafn benti hins
vegar á að þegar hefði aðgerðin Ieitt
til lækkunar á verðbréfamarkaði á
spariskirteinunum og bankatryggð-
um bréfum. Líkast til um 1—1,5%.
FÉLAGSSTARF
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík
Flokksþing
Fulltrúar Alþýðuflokksfélaganna I Reykjavfk á flokks-
þingi Alþýðuflokksins eru boðaðir á fund fimmtudag-
inn 2. okt. kl. 171 félagsmiöstöð jaf naðarmanna Alþýðu-
húsinu.
Fulltrúaráðið.