Alþýðublaðið - 08.10.1986, Side 1
alþýöu-
0
Miövikudagur 8. október 1986 192. tbl. 67. árg.
Fjármögnun húsnœðisldnakerfisins:
Samkomulagi náð
Lífeyrissjóðirnir og fjármálaráðuneytið hafa
náð samkomulagi um kaup á skuldabréfum til
næstu tveggja ára.
Fulltrúar fjármálaráðuneytisins
og lífeyrissjóðanna hafa undan-
farna daga setið á fundum vegna
kaupa lífeyrissjóðanna á spari-
skírteinum ríkissjóðs. Samkvæmt
lögunum um nýja húsnæðislána-
kerfið var gert ráð fyrir að sam-
komulag næðist fyrir 1. október sl.
— Að sögn heimildamanna Al-
þýðublaðsins hefur nokkuð greint á
milli samningsaðila um vaxtavið-
miðanir en um er að ræða ákvarð-
anatöku um kaup og vaxtakjör til
næstu tveggja ára. Þegar blaðið fór
í prentun í gær var útlit fyrir að
samkomulag næðist, en fundur
hófst í fjármálaráðuneytinu klukk-
an þrjú í gærdag.
í samtali við blaðamann Alþýðu-
blaðsins sl. fimmtudag sagði Sig-
urður Þórðarson deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu aðspurður
um drátt á samkomulagi, að hér
væri um það stórt mál að ræða að
eðlilegt væri að drægist að ná sam-
komulagi. „Það er verið að ræða
um stærsta lánasamning hér í land-
inu, upp á 6—7 milljarða. Það þarf
að tala við ýmsa sem málið snertir
og það skiptir í sjálfu sér ekki máli
hvort það er samið deginum fyrr
Framh. á bls. 2
Prófkjör Albýðuflokksins í Reykjanesi:
Kosið um 5 efstu
sætin 8.—9. nóv.
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi ákvað í fyrra-
kvöld, að prófkjör um skipan fimm
efstu sæta á framboðslista Alþýðu-
flokksins í kjördæminu við næstu
Alþingiskosningar skuli fara fram
dagana 8. og 9. nóvember næst-
komandi.
Frambjóðandi er í kjöri í öll sæti,
ef hann býður sig ekki fram í tiltek-
ið sæti. Ef hann býður sig fram í
eitthvert tiltekið sæti er hann einnig
í framboði í öll sæti þar fyrir neðan.
Berist hins vegar aðeins eitt fram-
boð í eitthvert sæti listans, er sjálf-
kjörið í það sæti. Framboðsfrestur
rennur út 20. október. Auglýsing
um prófkjörið birtist í Alþýðublað-
inu í dag.
Þessi mynd var tekin áýlokksþingi Alþýðuflokksins um helgina. Þarna sitja saman við borð Asmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson.
Skuldasöfnun erlendis:
r
Oráðsían heldur áfram
Þrátt fyrir bœttar ytri aðstœður er ríkisstjórnin
við sama heygarðshornið í erlendri skuldasöfn-
un.
Staða bankanna gagnvart erlend-
um lánadrottnum hefur batnað um
3 milljarða fyrstu átta mánuði árs-
ins. Hins vegar hafa langtímalán
aukist og miðað við tölur frá Þjóð-
hagsstofnun er greiðslubyrði af lán-
unum áætluð á þessu ári um 19% af
útflutningstekjum. Er það svipað
hlutfall og í fyrra og skiptast
greiðslur nokkurn veginn jafnt á
vexti og afborganir. Vextir hafa þó
lækkað frá í fyrra en afborganir eru
hins vegar hærri.
Þrátt fyrir hagstæðar ytri að-
stæður hefur ríkisstjórnin ekki tek-
ið á þeim vanda sem við er að glíma
varðandi erlenda skuldasöfnun.
Vextir hafa lækkað vegna iækkunar
dollarans, olíuverð hefur ekki verið
eins lágt í áraraðir. Ennþá eru samt
lántökur hærri afborgunum á lán-
um sem fyrir eru.
Þeir hagfræðingar sem Alþýðu-
blaðið leitaði upplýsinga hjá töldu
erlenda skuldasöfnun hafa aukist.
Þó skammtímalán hefðu minnkað
þá væri einnig mikið um skuld-
breytingar sent væru auðvitað ekk-
ert annað en ný lán. Bættar aðstæð-
ur væru ekki nýttar til að greiða
niður, heldur væri samið um frest á
lausnum.
Viðskiptahalli á hverju ári er
nokkurs konar mælikvarði á þá
auknu skuldasöfnun sem þjóðar-
búið hefur tekið á sig. í ár er talað
um viðskiptahalla upp á 2,2 mill-
jarða sem þýðir þá aukningu skulda
sem því nemur. Fyrri hluta ársins
var talað um mun meiri viðskipta-
halla. Því þarf ekki glöggskyggna
til að sjá það að aðstæður til að
stöðva óráðsíuna ættu að vera enn
be.tri.
Anna Kristjánsdóttir; formaður Lögverndar:
w
Réttarstaða Islendinga á steinaldarstigi
Anna Kristjánsdóttir
„Samtökin Lögvernd voru stofn-
uð 16. mars 1985, með það að
markmiði að færa réttarfarið á ís-
landi fram til nútímans. Einnig að
reyna að hamla gegn kunningja-
þjóðfélaginu og koma réttarfars-
málum okkar öllum af steinaldar-
stiginu, sem meðal annars kemur í
veg fyrir það að fólk nái rétti sínum.
Eins þarf að fá fram viðhorfsbreyt-
ingu á því að lögin í landinu séu fyr-
ir fólkið, en ekki fyrir lögmennina
sjálfa,“ sagði Anna Kristjánsdóttir,
formaður Lögverndar, í samtali við
blaðið.
Eitt af markmiðum Lögverndar
er að sjálfsögðu einnig að vekja al-
menna umræðu um mál sem nánast
aldrei eru nefnd og þar á ég við
dómsmálin. Þau mál höfðu aldrei
verið rædd opinberlega fyrr en Lög-
vernd var stofnuð. Almenningur
virtist ekki hafa gert sér grein fyrir
því að hann ætti einhvern rétt.
Skuldarinn hefur alltaf staðið í
þeirri meiningu að hann væri rétt-
Iaus, af því að hann er skuldari. Sá
réttur hefur verið þverbrotinn af
innheimtulögmönnum til dæmis.
Og það má alveg koma fram, að
það eru miklu meiri kvartanir á til-
tekin embætti frekar en önnur. Mér
vitanlega hefur til dæmis aldrei
komið fram kvörtun á embættið í
Kópavogi, sem bendir til þess að
þeir vinni eins og menn.
Það er til réttarstaða fyrir
skuidara
„Fólk er farið að gera sér grein
fyrir því að það á rétt, þótt það sé
skuldarar. Því var löngum haldið
fram, að það hefði verið platað í
viðskiptm og þess vegna ætti það
engan rétt og ætti einfaldlega að
glata sínum peningum, en þetta er
að sjálfsögðu hörmulega rangt. Og
ég held að fólk sé farið að átta sig á
þessu Ioksins.
Réttarfar á
Norðuríöndum
„Það sem við erum að vinna í
núna er að kynna okkur réttarfarið
á hinum Norðurlöndunum og það
kemur í ljós, það erum við búin að
kynna okkur, að það er alstaðar á
öllum hinum Norðurlöndunum og
einnig í Þýskalandi, réttarhjálp fyr-
ir láglaunafólk. Maður sem er í
vissum launastiga og þar fyrir neð-
an fær ókeypis lögfræðiaðstoð.
í Finnlandi gerist þetta stig af
stigi, þannig að ef þú ferð yfir
ákveðinn launaflokk, þá færðu
hluta greiddan af lögfræðihjálp-
inni. Svíarnir eru þó þróaðastir i
þessu réttarfari. í þessum löndum
eru einnig til fastar reglur um það
hvernig eigi að gera verðtryggðan
verksamning og þar eru ströng við-
urlög við brotum á samningagerð,
en því er ekki að heilsa hér upp á ís-
landi og þetta er eitt af því sem við
viljum kippa í lag.
Við höfunt verið að reyna að
vinna í þessu hér heima, talað við
þingmenn og aðra ráðamenn, en
það gerist hreint ekki neitt, þrátt
fyrir að þeir virðist vera okkur sam-
mála I orði. Þess vegna gripum við
Framh. á bls. 2
WE OFFER EXPERTISE
FOREIGN EXCHANGE SERVICES
MiÚmÐARBANKl ÍSLANDS
The Agricultural Bank of Iceland
/ Head Office - Austurstræti 5
Branch Offices in
two major Reykjavík hoteis
Hotel Saga Branch
Hotel Esja Branch