Alþýðublaðið - 14.10.1986, Side 1

Alþýðublaðið - 14.10.1986, Side 1
alþýöu Þriöjudagur 14. október 1986 196. tbl. 67. árg. Síldarsamninzar við Sovétmenn: Kanadamenn og Norðmenn undirbjóða „Við vitum ekkert hvenær við- ræður hefjast aftur. Það er hvort töfin verður nokkrir dagar eða nokkrar vikur“, sagði Gunnar Flóvenz framkvæmdastjóri Síldar- útvegsnefndar í samtali við Alþýðu- blaðið í gær aðspurður um samn- ingaviðræður við Sovétmenn um sölu saltsildar. Fyrir helgi slitnaði upp úr viðræðum og þeim frestað. Gunnar vildi ekkert meira um mál- ið segja að svo stöddu og vísaði til fréttatilkynningar frá Síldarútvegs- nefnd. í viðskiptasamningi íslands og Sovétríkjanna er gert ráð fyrir ár- legri sölu á 200—250 þúsund tunn- um af saltaðri síld til Sovétríkjanna en sovézku samningamennirnir hafa nú tilkynnt, að þeir hafi aðeins heimild til að ræða um kaup á 40 þús. tunnum. Sovézku samningamennirnir hafa gefið þá skýringu, að ákvörð- un um fjárveitingar vegna innflutn- ings á árinu 1987, séu ekki teknar fyrr en í byrjun nóvember en unnið sé áfram að því að ákvörðun um undanþágu varðandi frekari salt- síldarkaup frá íslandi verði hraðað. Ekkert samkomulag hefir tekizt um söluverðið og vísa sovézku samningamennirnir til þess, að þeir hafi þegar gengið frá samningum við Kanadamenn um kaup á salt- aðri síld á Iangtum lægra verði en samið var um við íslendinga á sl. ári. Auk þess liggi fyrir tilboð frá Noregi, Bretlandseyjum og Hol- landi á langtum lægra verði, en út- flytjendur í þessum löndum sækja fast á að koma sem mestu magni af saltaðri síld á sovézka markaðinn. í viðræðunum undanfarna daga hefir tekizt að fá Sovétmenn til að falla frá sumum þeirra fjölmörgu nýju skilyrða, sem þeir hafa í ár sett fyrir kaupum á saltaðri síld frá ís- landi, en um ýmsar aðrar breytinga- kröfur þeirra hefir ekki ennþá náðst samkomulag. Þessi mynd var tekin á blaðamannafundinum margumrædda, sem Sovétmenn héldu eftir Reykjavikurfundinn. Flestir eru sammála um að þar hafi sovéska leiðtoganum tekist vel upp og náð talsverðu forskoti í áróðursstríðinu. Sjónvarpið: Þessi mynd er tekin í Háskólabíói á blaðamannfundi Gorbachevs. Fremst á myndinni eru nokkrir sovéskir frétta- menn. Það vakti nokkra athygli hve tœki þeirra og tól voru lítið í takt við tœkniþróunina. Gagnlegur fundur „Miðað við þær raunsœju vonirsem menn gátu gert sér fyrir func/inn“, segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins „Það voru stöðugar hringingar allan daginn og við beðnir um efni sem við vorum að senda út. Þetta var síðan sent í gegnum gervihnött um víða veröld, sagði Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri á Sjónvarpinu í samtali við Alþýðublaðið í gær. En athygli hefur vakið feiknagóð um- fjöllun Sjónvarpsins af fundi leið- toga stórveldanna. Er óhætt að segja að athyglin hafi náð langt út fyrir landsteinana. „Við reyndum að aðstoða þessar erlendu fréttastofur eftir því sem kostur var“, sagði Ingvi Hrafn. „Þetta var bæði efni sem var endan- lega unnið úr hjá okkur og efni sem þeir fengu til að vinna úr“. Sjónvarpið seldi þessa þjónustu sína á 10 þúsund krónur mínútuna sem þykir alls ekki mikið í þessum bransa. Við ákvörðun gjaldskrár „Eftir þessa helgi þá verður sennilega búið að selja 1500 afrugl- ara af þeim 4000 sem búið er að panta hjá okkur“, sagði Guðrún Helga Birgisdóttir, sölustjóri hjá Heimilistækjum hf., í samtali við blaðið. „Það vefst fyrir mörgum að tengja afruglarana við sjónvarps- tækin og þess vegna bjóðum við uppsetningarþjónustu. Það kostar 500 krónur að fá mann frá okkur til að tengja tækið. Hann athugar þá einnig loftnet og þess háttar um leið. Hvern afruglara má aðeins nota fyrir eina íbúð og það er til dæmis alveg stranglega bannað að var tekið mið af verðlagningu slíkr- ar þjónustu erlendis. „Við hefðum eflaust getað selt þessa þjónustu miklu dýrara verði“, sagði Ingvi Hrafn. „Við höfðum forskot á þessa menn, því hér erum við öllu kunnugir. Vitum hvernig við eigum að afla fréttanna og við hverja á að tala“. Ekki er vitað hve kostnaður var mikill hjá Sjónvarpinu þá daga sem fundurinn stóð yfir. „Nei, ég hef ekki hugmynd um það“, sagði Ingvi Hrafn aðspurður. „Það er hins veg- ar ekki vafi á því að það er langt frá því að við höfum náð upp í þann kostnað sem við lögðum í. Yfir- völdum var kunnugt um að það yrði mikill kostnaður vegna þessarra beinu útsendinga og þeirra tækja sem við leigðum. — Það er greini- Framh. á bls. 2 nota einn og sama afruglarann fyrir heilan stigagang í blokk. Fólk þarf að skrifa undir samning þar sem það lofar að misnota ekki tækið á nokkurn slíkan hátt“. „Þetta fer þannig fram, að mynd- in er send skekkt út sem afruglarinn leiðréttir svo aftur. Þegar þú kaupir tækið hjá okkur, þá færð þú tíu stafa kvótanúmer sem er stimplað inn í tækið og þegar það er komið inn, þá hreinsast trufíunin frá. Og það eru engin tvö kvótanúmer eins. Eins eru tækin sjálf númeruð og kvótanúmerið virkar aðeins á við- komandi tækjanúmer. Síðan borg- „Menn verða að reyna að gera greinarmun á innihaldi stórvelda- samninga og fjölmiðlafári í kring- ar þú áskrift til dæmis fyrir næsta mánuð og færð þá nýtt kvótanúm- er. Áskriftin að Stöð 2 fyrir einn mánuð eru 950 krónur, tækið kost- ar 11.200 og uppsetningin 500. Upphafskostnaóur er sem sagt 12.650 krónur“. „Fólk hefur sýnt þessu geysilegan áhuga. Það stoppar ekki síminn hjá okkur og við höfum verið að vinna til kl. tíu undanfarin kvöld til þess að reyna að anna þessu öllu. Við fá- um enn u.þ.b. 100 pantanir á dag, þannig að eftirspurninni er ekkert að linna", sagði Guðrún Helga Birgisdóttir, sölustjóri hjá Heimil- istækjum hf. um þessa fundi. Það mátti öllum Ijóst vera fyrir fundinn að til hans var ekki stofnað með von um ein- hverja meiriháttar endanlega samn- inga“, sagði Jón Baldvin Hanni- balsson formaður Alþýðuflokksins í samtali við Alþýðublaðið í gær að loknum fundum Gorbatsjovs og Reagans. „Það var ljóst að ekki var von um endanlega samninga hér“, sagði Jón Baldvin. „í fyrsta lagi var fund- urinn kynntur sem fyrst og fremst undirbúningsfundur fyrir raun- verulegan Ieiðtogafund. Menn töl- uðu um að mjög gott mætti þykja ef næðist samkomulag um dagskrá næsta fundar. Skilgreiningu á þeim markmiðum sem stefnt væri að í af- vopnunarmálum. Þetta var staðfest með samkomu- lagi um algjört fréttabann, þess vegna var ég frá upphafi þeirrar skoðunar, eins og ég lét koma fram í útvarpsviðtali fyrir fundinn, að það mætti þykja viðunandi árangur ef samkomulag tækist um fram- haldið. Ástæðan fyrir því að menn lýsa þessum fundi sem svörtum sunnu- degi í hrikalegum vonbrigðum, er fyrst og fremst ein: Á seinustu stundu rufu Sovétmenn samkomu- lagið um fréttabann og létu að Alþingi: Fjárlögin lögð fram í gær Frumvarp til fjárlaga var lagt fram á Alþingi í gær. Mikil leynd hefur verið yfir þessari fjárlagagerð og hafa Þorsteinn Pálsson, fjár- málaráðherra og samstarfsmenn hans við fjárlagagerðina, varist allra fregna af innihaldi fjárlaga- frumvarpsins þegar það hefur bor- ist í tal. Karvel Pálmason alþingismaður hafði þetta að segja: „Þrotlaust hefur verið unnið að gerð fjárlaga- frumvarpsins alveg frá því í vor og verður fróðlegt að vita t.d. hvort taka á upp virðisaukaskatt eða ekki frá og með næstu áramótum. Einn- ig er búist við tillögum um frekari skattlagningu á landbúnaðarafurð- ir. Spurst var fyrir um fjárlaga- frumvarpið í fjárveitinganefnd fyr- ir stuttu, en þá voru alls engar upp- lýsingar gefnar". Nú vilja allir afruglast: 4000 pantanir komnar Önnur sending á leið til landsins Sló í gegn

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.