Alþýðublaðið - 10.12.1986, Qupperneq 6
6
Miðvikudagur 10. desember 1986
VARIÐ YKKUR Á JÓLATIB
PARDUS
Glæsileg og sígild hönnun...
Vönduð efní
klassísk snið.
Póstsendum
um allt land.
KAPUSALAN
Kostnaðurinn falinn
Hinn gífurlegi kostnaður við af-
borgunarkaupin er hins vegar vand-
lega falinn fyrir væntnalegum
kaupendum, a.m.k. í þeim skilningi
að af hálfu seljenda er þessi kostn-
aður aldrei settur fram sem ein
heild, eða kaupandanum gerð grein
fyrir því hversuná þessi upphæð er,
reiknuð sem prósenta af láninu.
Sá liður aukakostnaðarins sem
mestu máli skiptir í þessu sambandi
er hinn svokallaði staðgreiðsluaf-
sláttur. Þessi liður mætti í rauninni
alls ekki síður heita afborgunará-
Iag, en það heiti lýsir þessu fyrir-
brigði á mun sannari hátt.
Staðreyndin er nefnilega sú að
seljandi þeirrar vöru sem um er að
ræða hverju sinni er reiðubúinn að
selja vöru sína gegn hinu svonefnda
staðgreiðsluverði og þess vegna er
eðlilegt að líta á þetta verð sem hið
raunverulega verð vörunnar. Þetta
byggist á því að staðgreiðsla er það
sem kalla mætti standard í viðskipt-
um.
Þótt staðgreiðsla sé þannig hin
eðlilega og venjulega aðferð þegar
vara skiptir um eigendur gegn pen-
ingagreiðslu, hefur það lengi tíðk-
ast að dýrari hlutir væru seldir með
einhvers konar afborgunarkjörum.
í þessu sambandi er auðvitað sjálf-
sagt að menn geri sér ljóst að þegar
varan er ekki greidd út í hönd, er
seljandinn að lána kaupandanum
fjármuni og því ekki nema eðlilegt
að þetta peningalán beri vexti, á
sama hátt og önnur lán.
Þetta getur í grundvallaratriðum
gerst með tvennum hætti. Annað
hvort greiðir kaupandinn vexti af
láninu, sem þá eru reiknaðir út í
samræmi við eðlilega bankavexti,
eða hann greiðir fyrir vöruna hærra
verð, sem svarar eðlilegum vöxtum.
Þessi síðarnefnda aðferð er fólgin í
staðgreiðsluafslættinum, eins og
hann er upphaflega hugsaður.
Vaxtavextir
af okurvöxtunum
Það sem hins vegar gerist, eins og
afborgunarkaupum er í flestum til-
vikum háttað hérlendis um þessar
mundir, er það að báðar þessar að-
ferðir eru notaðar í einu, þannig að
kaupandinn tvíborgar vextina af
þeim peningum sent hann fær að
láni. Og raunar er ekki öll sagan
sögð með þessu, því að stað-
greiðsluafslátturinn er í mjög mörg-
um tilvikum svo hár að hann einn
svarar til sannkallaðra okurvaxta.
Þessu til viðbótar þarf svo kaup-
andinn að greiða vexti af stað-
greiðsluafslættinum (afborgun-
arálaginu), eins konar vaxtavexti af
okurvöxtunum, auk stimpilgjalds
og annarra fastra kostnaðarliða.
Það er því ekki að undra þótt hin
samanlagða vaxtaprósenta verði
talsvert há þegar upp er staðið, —
og sannarlega er heldur ekki von að
hinn almenni neytandi, geri sér full-
komna grein fyrir því sem hann er
að fara út í þegar hann gengur inn
í verslun til að fjárfesta í einhverju
heimilistæki.
Staðgreiðsluafsláttur mun yfir-
leitt vera hlutfallslega hærri af
ódýrari vörutegundum og því mun
óhætt að miða við þá þumalputta-
reglu að þeim mun óhagstæðara sé
að kaupa hluti á afborgunarkjör-
um, sem þeir eru ódýrari.
Jólatilboð — dœmi
úr raunveruleikanum
Til að skýra nánar hvernig öllum
þessum álögum er háttað, skulum
við ofur einfaldlega taka raunveru-
Iegt dæmi úr einni af þeim fjöl-
mörgu auglýsingum um jólatilboð
sem nú dynja yfir landsmenn úr öll-
um áttum. Það sem auglýst er í
þessu tilfelli, er 20 tommu litsjón-
varpstæki, sem á staðgreiðsluverði
kostar 29.980 krónur. Afborgunar-
verðið er hins vegar hvorki meira né
minna en 35.900 krónur.
Þegar hringt var í verslunina og
spurt nánar um afborgunarkjörin,
Úttekt Vinnunnar,
sem gefin er út af
ASÍ, á afborgunar-
kjörum og okurvöxt-
unum sem tíðkast í
kringum þessi kjör,
vakti verðskuldaða at-
hygli um land allt
þegar sjónvarpið
varði hluta af frétta-
tíma sínum til að gera
henni skil fyrir fáum
vikum. Ýmsir aðilar
höfðu í hótunum um
að kæra Vinnuna og
ritstjóra hennar fyrir
þessi „níðskrif“, en
öllu minna virðist
hafa orðið úr fram-
kvæmdum, allavega
er ekki vitað til þess
að nein kæra hafi
borist til réttra yfir-
valda, þegar þetta er
ritað.
BORGARTÚNI 22
SÍMI23509
Næg bflastæði
AKGREYRI
HAFMARSTRÆTI 88
SÍMI 96-25250
Hinn beiski sannleikur sem að
neytendum snýr í þessu máli, er
auðvitað sá, að þær fjárhæðir sem
greiddar eru umfram staðgreiðslu-
verð, þegar um afborgunarkaup er
að ræða, eru svo háar, að það er
fullkomin ástæða til að tala um ok-
ur í því sambandi. í dæmi því sem
tekið var í grein Sverris Albertsson-
ar ritstjóra Vinnunnar, samsvaraði
kostnaðurinn vegna afborgunar-
kjaranna um 80% ársvöxtum.
Margir imynda sér sjálfsagt að
þarna sé um eitthvert sérstakt tilfelli
að ræða og kostnaðurinn sé í flest-
um tilvikum miklu minni. Svo er þó
alls ekki. Staðreynd málsins er
miklu fremur sú að tiltölulega auð-
velt er að finna dæmi um afborgun-
arkjör, þar sem samanlagður
kostnaður vegna þessa greiðslufyr-
irkomulags nemur miklu hærri pró-
sentu, ef hann er umreiknaður í
vexti af þeirri upphæð sem raun-
verulega er fengin að láni.
Þetta er hluti af auglýsingu frá einum þeirra fjölmörgu aðila, sem nú bjóða
hvers kyns rafmagnstœki á sérstöku jólatilboðsverði. En munurinn á stað-
greiðslu- og afborgunarverði er geigvœnlegur.
20”sjónvarp
29.980
Kr
stgr
Afborgunarverð
35.900,-kr.
VI0 TÖKUM VEl Á Móri ÞÉR
16 sjonvarp
yh.26380.-a
Afborgunarverð
32.200,-kr.
• ■
14 sjonvarp
Kr. 22.900J-stgr
Afborgunarverð
25.900,-kr
fengust þær upplýsingar að miðað
væri við 35% útborgun og eftir-
stöðvar á skuldabréfi til sex mán-
aða.
Og nú skulum við fara að athuga
málið. Útborgunin er 35% af
35.900 krónum, eða 12.565 krónur.
Það þýðir að miðað við stað-
greiðsluverðið vantar 17.415 krónur
til að hægt sé að borga þetta tæki á
borðið. Þetta er auðvitað sú upp-
hæð sem þarf að fá að láni. Þegar
skuldabréfið er útbúið stendur hins
vegar á því að kaupandinn skuldi
23.335 kr. Mismunurinn á þessum
tveimur upphæðum, 5.920 kr., er
hinn svokallaði staðgreiðsluafslátt-
ur.
Vextir eru svo auðvitað greiddir
af allri upphæð skuldabréfsins
staðgreiðsluafslættinum líka.
Samkvæmt upplýsingum Lands-
bankans, nema bankavextirnir af
þessari upphæð í formi skuldabréfs
til 6 mánaða 1.018 krónum og lán-
töku- og stimpilgjald ásamt kostn-
aði við að útbúa skuldabréfið 841
krónur ti! viðbótar. Samkvæmt
þessu verður því bankakostnaður-
inn alls 1.859 krónur.
Tölurnar lagðar saman
Séu nú allar þessar tölur lagðar
saman, kemur í ljós að kaupandinn
greiðir 7.779 krónum meira fyrir
sjónvarpstækið ef það er keypt á af-
borgunum, heldur en hann þarf að
gera ef hann á þess kost að greiða út
í hönd.
Þetta er sem sagt afborgunar-
kostnaðurinn í heild og í rauninni er
ekkert eðlilegra en að reikna hann
Jolatilboö