Alþýðublaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 10. desember 1986
Göng í efsta tindinum
„En ekki má gleyma Oddsskarðs-
göngunum“ sagði Hlífar. „Útlend-
ingar spyrja okkur stundum hvers
vegna í ósköpunum við séum að
gera göng í gegnum hæsta tindinn.
Þau eru þarna efst í fjallinu og
hefðu náttúrlega þurft að vera
miklu neðar. — Ég veit eiginlega
ekki hvað réði þessari staðsetningu.
Það var byrjað á göngunum árið
1972 og það kann að vera að Vega-
gerðin hafi ekki treyst sér í stærri
göng. Hins vegar var mikið deilt um
staðsetningu þeirra á sínum tíma.
Helsti gallinn við göngin fyrir ut-
an, að sjálfsögðu, staðsetninguna
er hve þau eru þröng. Flutningabíll
sem stendur lögleg mál, 3,8 m á
hæð og 2,5 m á breidd, sleppur
varla í gegn, þarf að sneiða fram hjá
ýmsum steinnibbum sem standa út
úr berginu. Það er mikill vatnselgur
í göngunum sérstaklega á veturna
eftir að skíðamiðstöðin opnar. Þá
er mikil umferð í gegnum þau og
þau standa opin í langan tíma. Það
geta þá myndast miklir klakabólstr-
ar, bæði grýlukerti niður úr loftinu
og eins þykkir svellbunkar á vegin-
um. Þetta skapar náttúrlega mikla
slysahættu.“
„Framfarir“
— Hefurðu lent í einhverjum
vandræðum í göngunum?
Úr Oddskarði.
þennan veg og má segja að hann sé
eins og hann var upphafi fyrir 30 ár-
um síðan. Hann hefur verið-hækk-
aður á einstaka stað en liggur í gróf-
um dráttum eins.“
Fagridalur er nú ruddur alla daga
vikunnar nema sunnudaga. Hlifar
sagði að það væru yfirleitt engin
vandamál með Fagradalinn. „Ef
það er flug á annað borð þá er
Fagridalur fær. Það er búin að vera
vegagerð á Fagradal frá því ég man
eftir mér. Það er reyndar reiknað
með að klára þær framkvæmdir á
næsta ári“ sagði Hlífar. Næsta
sumar er reiknað með að slitlag
verði komið á allan dalinn.
Fjarlœgur draumur
Hlífar gaf lítið út á það þegar
blaðamaður spurði hann hvort ekki
væri æskilegt að stefna að hringvegi
með jarðgöngum til Seyðisfjarðar.
Slíkar hugmyndir hafa m.a. komið
fram. Hann sagði að það hlyti að
vera fjarlægur draumur.
„Þetta myndi ekki leysa okkar
vanda neitt. Það sem Norðfirðingar
þurfa fyrst og fremst er góður vegur
til Eskifjarðar og þá fyrir Seyðfirð-
inga að endurbótum á Fjarðarheiði
verði haldið áfram. En um hana er
nú ágætis sumarvegur og meiri end-
urbætur eru á döfinni. Fyrir Fá-
urlandi. Þessi sami aðili gegnir
einnig hlutverki ferðamálafulltrúa
Austurlands, með skrifstofu á Eg-
ilsstöðum. En samtök aðila í ferða-
útvegi á Austurlandi hafa engan
fastan starfsmann fyrir sig, en eru
flestir aðilar að Ferðamiðstöð Aust-
urlands.
í bílaflota Austfjarðaleiða eru 3
rútur 2 fjórhjóladrifsbíiar einn stór
einsdrifs bíll og snjóbíll. Að auki á
fyrirtækið bát. En af hverju bát?
„Hann er ætlaður til skemmti-
siglinga og sjóstangveiði,“ sagði
Hlífar. „Við viljum geta boðið
ferðamönnum, að hafa eitthvað
fyrir stafni á sumrin. En bjóðum
svæðif Hlífar sagði að einnig kæmi
til greina, ferðir til Reyðarfjarðar á
bátnum.
Stundum er talað um það að
ferðamenn sem heimsækja fjórð-
unginn, sem margir koma í tengsl-
um við ferjuna Norrönu á Seyðis-
firði, sleppi fjörðunum. Þeirra við-
komustaður sé fyrst og fremst Hér-
aðið. „Með því að byggja upp betri
aðstöðu hér niður á fjörðunum, þá
held ég að við getum komið í veg
fyrir að þeir sleppi fjörðunum eins
mikið og þeir gera. Menn verða að
vita að þeir hafi eitthvað erindi til
okkar,“ sagði Hlífar Þorsteinsson á
Neskaupstað.
Hvers vegna að gera göng
í gegnum hæsta tindinn?
Hlífar Þorsteinsson bifreiða-
stjóri í Neskaupstað er aðaleigandi
Austfjarðaleiða sem sjá um áætlun-
arferðir á milli Egilsstaða, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar og Neskaup-
staðar. Hlífar stundar aksturinn
sjálfur daglega og hefur sínar skoð-
anir á samgöngumálum Austfirð-
inga. Hlífar segir þar ýmislegt
ábótavant og skýrir sín sjónarmið í
samtali við Alþýðublaðið.
„Það er óhætt að segja að sam-
göngumálin hjá okkur séu mjög
neðarlega. Við eigum hér margt
ógertþ sagði Hlífar. „Ég tel brýn-
asta verkefnið að fá nýjan flugvöll á
Egilsstöðum og auðvitað bætt
vegakerfi. Oddsskarð er t.d. gífur-
legur farartálmi. Þar er ekki ýtt
nema endrum og eins og þó það sé
rutt þarf oft að nota snjóbíl. Það er
ekkert hugsað út í það, að rúturnar
komist báðar leiðir. — Nei, það er
ekki rutt með tilliti til áætlunar.
Það eru ákveðnir dagar sem rutt er
og þá er bara farið í gegn og svo eru
þeir farnir. — Vinnan búin í dag“
Samgöngurnar
öryggisatriði
Góðar samgöngur yfir Odds-
skarð eru gífurlegt öryggisatriði
fyrir Austfirðinga því á Neskaup-
stað er Fjórðungssjúkrahúsið. Hlíf-
ar sagðist fara margar ferðir á vetri
á snjóbil til að aðstoða vegna
sjúkraflutninga.
Hlífar sagði að fyrirhugað væri
að byrja vegaframkvæmdir í Odds-
skarði næsta sumar. „Menn hafa'
ekki verið á eitt sáttir við þær hug-
myndir sem komið hafa fram en
mér skiist að verið sé að sníða helstu
agnúana af í því sambandi. Ég held
því að megi segja, að framkvæmdir
byrji við þokkalegan vetrarveg yfir
Oddsskarð, en það tekur einhver ár
að Ijúka honum. Samkvæmt áætl-
unum er t.d. gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir við veginn Eskifjarðar-
megin taki tvö ár. Ég gæti trúað að
þetta taki 4—5 ár“
—Spjallað við Hlífar
Þorsteinsson, bíl-
stjóra á Neskaupstað
um samgöngumál og
fleira.
„Við erum oft í vandræðum að
komast út úr þeim. Það skefur svo
fyrir munnann. Þetta er í lagi t.d. á
snjóbílnum þegar maður kemur að
göngunum, því þá er hægt að ýta
snjónum frá þar sem bíllinn er með
tönn að framan. En það er yfirleitt
verra að komast út. Það hefur t.d.
nokkru sinni komið fyrir, að það
hafi aðeins verið gat sem hægt var
að skríða út um. Eg tel að það megi
að einhverju leyti fyrirbyggja að
skafi svo fyrir munnann. Það hefur
bara sáralítið verið hugsað um
„Það sem okkur vantar fyrst og
fremst varðandi snjóruðning á
Oddsskarði, er góður vegurþ sagði
Hlífar. „En það sem mætti fara bet-
ur við snjóruðninginn í dag, væri að
byrja að ryðja fyrr á morgnana,
þannig að vegurinn sé klár þegar
fólk byrjar að fara um hann. Það er
t.d. verið að fara með tækin frá
Reyðarfirði klukkan 9 á morgnana
og vinna hefst e.t.v. ekki fyrr en
klukkan lOeða 11. Oddsskarð er þá
jafnvel ekki fært fyrr en um mið-
nætti“
skrúðsfirðinga verður eflaust tak-
markið að fá göng inn úr Reyðar-
firðinum í Fáskrúðsfjörð.
En brýnasta jarðgangnaverkefn-
ið á Austurlandi er samtenging milli
Vopnafjarðar og héraðs. Þá tengist
Austurland meira Norðurlandi.
í ferðamálum þarf
samstillt átak
Hlífar hefur látið að sér kveða
við uppbyggingu ferðaútvegs á
Austurlandi. Hann telur Austfirð-
inga eiga þar mikla möguleika en
byggja þurfi upp með samstilltu
átaki þeirra sem að ferðamálum
starfa á Austurlandi. Nú þegar hef-
ur tekist samstarf með þessum aðil-
um sem hefur verið að skila sér.
Hlífar sagði að í haust hefðu t.d.
aðilar að austan tekið þátt í ferða-
málakaupstefnu í Reykjavík. Ferða-
málasamtök voru þar með bás.
„Það var vel tekið eftir okkur þarna
og ég vona að þetta skili sér,“ sagði
Hlífar, „en í raun erum við bara rétt
að byrja. Fyrst er að byggja upp
starfsemina, síðan koma ferða-
mennirnir. Og það er best að vera
hóflega bjartsýnn. Þetta tekur allt
tíma.“
Vestnorræna nefndin, sem er lið-
ur í starfsemi Norðurlandaráðs,
hefur fulltrúa í hálfu starfi á Aust-
reyndar í vetur, í samstarfi við Flug-
leiðir og Hótel Snæfell á Seyðis-
firði, svokallaðar veiðiferðir á
Austfirði. Þetta hefur farið hægt af
stað og ekki verið nægilega kynnt,
en ég vona að úr því rætist.
I fyrra var boðið upp á ferðir með
rútum til Mjóafjarðar og sagði
Hlífar að það hefði gefist vel.
Næsta sumar er fyrirhugað að
bjóða ferðir til Borgarfjarðar eystri.
Hlífar sagði að miðar í þessar ferðir
væru t.d. seldar hjá B.S.Í. í Reykja-
vík en flestar ferðaskrifstofur gætu
selt í þessar ferðir. Hlífar sagði að
báturinn gæfi möguleika á að fara
í ferðir til Seyðisfjarðar og jafnvel
til Borgarfjarðar. „Það eru mjög
skemmtilegar víkur sunnan við
Borgarfjörð og svo er náttúrlega
Loðmundarfjörður í leiðinni.
Þarna eru skemmtilegar gönguleið-
ir og ég get sótt fólk yfir á þetta
l I í l
A AUSTURLANDI
Alþýðublaðið á Austurlandi fer inn á
hvert heimili í kjördæminu. Auglýsing
þín kemur því fyrir sjónir allra íbúa
Austurlands ef hún birtist í Alþýðublað-
inu.