Alþýðublaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 10. desember 1986
9
Allir vinningar
dregnir út
— SÁÁ vill reyna nýjar leiðir og eyða tortryggni
Nú um nokkurt skeið hafa líkn-
arfélög á íslandi treyst einna mest á
happdrætti til fjáröflunar. Velvild
almennings hefur verið aflgjafi
þeirrar starfsemi, sem hvert félag
hefur haft með höndum. Hefur þá
verið farið að reglum, sem dóms-
málaráðuneytið hefur sett. Megin-
reglan er sú, að heildarverðmæti
vinninga skuli nema sjötta hluta
verðmætis útgefinna miða. Þegar
upp er staðið hefur selst ákveðinn
hluti miða og vinningar þar af leið-
andi dregist út í svipuðu eða sama
hlutfalli. Til dæmis ef selst hefur
fjórðungur miða, þá dregst út um
fjórðungur vinninga.
Þetta fyrirkomulag hefur sætt
gagnrýni, sem er skiljanleg. Hefur
umræða í samfélaginu verið nokk-
uð neikvæð og viðbrögð á þann
veg, að þessi fjáröflunarleið hefur
ekki verið í líknarfélögunum eins
gjöful og áður.
SÁÁ vill nú í jólahappdrætti sínu
koma til móts við fram komin sjón-
armið og langar um leið að eyða
tortryggni, sem uppi hefur verið.
SÁÁ fór þess á leit við dóms-
málaráðuneytið, að það heimilaði
að dregið yrði úr seldum miðum í
jólahappdrætti 1986. Vinningar eru
UMFERÐARMENNING _
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
UMFERÐAH
RÁÐ
þó engu að síður glæsilegir sem
fyrr:
1 Daihatsu Rocky jappabifreið að
verðm. 567.700 kr.
3 Daihatsu Charade fólksbifr. að
verðm. 322.200 kr. pr. stk.
10 Daihatsu Cuore Fólksbifreið að
verðm. 269.600 kr. pr. stk.
8 JVC videotökuvélar GR 7C að
verðm. 125.900 kr. pr. stk.
75 JVC tvöf. kassettuútvarpst. að
verðm. 11.750 kr. pr. stk.
75 BMX luxus reiðhjól að verðm.
9.900 kr. pr. stk.
Heildarverðmæti vinninga er því
6.861.250r krónur.
Þar sem eingöngu er dregið úr
seldum miðum má sjá að samtökin
taka hér vissulega mikla áhættu.
Mikilvægt er að greiða heims-
enda miða fyrir kl. 12 á hádegi á að-
fangadag. Síðan verður dregið úr
seldum miðum í beinni útsendingu
á Rás II milli kl. eitt og þrjú e.h. á
gamlársdag.
Stuðningur þjóðarinnar hefur
allt frá stofnun SÁÁ verið styrkur
samtakanna. SÁÁ reiðir sig enn á
þennan stuðning um leið og SÁÁ
kemur til móts við gagnrýni og at-
hugasemdir með nýju fyrirkomu-
lagi happdrættisins. Vonandi til
endurnýjunar trausts og til hags-
bóta beggja.
SÁÁ nefnir happdrættið nú
„Jólagjöf SÁÁ“ og hefur það tví-
þætta merkingu. Við teljum stuðn-
ing fólksins í landinu vera jólagjöf
til SÁÁ og þeir, sem hreppa ein-
hvern hinna 172 vinninga fá jóla-
gjöf SÁÁ. Vinningar fara allir, því
eins og fyrr segir er aðeins dregið úr
seldum miðum. Vinningarnir eru
auk þess skattfrjálsir.
Egilsstaðaflugvöllur.
Egilsstaðir:
ísing og
aurbleyta
Miklir erf iðleikar hafa að undan-
förnu verið á flugsamgöngum milli
Egilsstaða og Reykjavíkur. Ástæð-
urnar hafa verið af ýmsu tagi.
Þannig hefur flug iðulega fallið
niður vegna snjóa og óveðurs, en
þess á milli hefur aurbleyta á flug-
brautinni á Egilsstöðum stundum
orðið þess valdandi að ekki var
unnt að fljúga, þótt veður og færð
væru ákjósanleg að öðru leyti.
Sem dæmi um þessa erfiðleika
má nefna að á sunnudaginn var
flugbrautin á Egilsstöðum lengst af
ófær vegna ísalaga, en þegar hún
var orðin fær undir kvöldið, var ís-
ing orðin svo mikil í Reykjavík að
þar var ekki lendandi.
Egilsstaðaflugvöllur hefur nokk-
uð verið í fréttum að undanförnu,
vegna umræðna um varaflugvöll
fyrir alþjóðlega flugvöllinn í Kefla-
vík, en sem kunnugt er sýnist sitt
hverjum um það hvar beri að stað-
setja slíkan flugvöll. Hefur í því
sambandi m.a. verið bent á að
Egilsstaðir liggja afar vel við flugi
til Norðurlanda og Evrópu.
Mönnum hefur lengi verið ljós
nauðsyn þess að malbika flugbraut-
ina á Egilsstöðum, en af einhverj-
um ástæðum hefur ekki orðið af því
ennþá. Er hér þó um mikið öryggis-
atriði að ræða og myndi væntan-
lega stórbæta samgöngur með
flugi, bæði milli Egilsstaða og ann-
arra staða austanlands, og einnig
milli landshluta.
7 METSÖLUBÆKUR
JÓLAGJÖFIN ÍÁR!
Þessar bækur eru seldar í öllum
helstu bokabuðum landsins.
Bókaútgáfan Breiðablik,
Ármúía 19,108 Reykjavík S 687868
Hérgeturá aðlíta 7þýddar metsölubækur sem
bókaútgáfan Breiðablik gefur út fyrir jólin:
Craig Thomas