Alþýðublaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 1
alþýðu m Laugardagur 3. janúar 1987 1. tbl. 68. árg. Freðfiskmarkaðirnir: „Hangir á bláþræði“ — sagði Sigurður Markús- son framkvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar Sam- bandsins. — Birgðir hafa aldrei verið eins naumar. Sjómannaverkfall um- fram sjö daga gæti stór- skaðað markaðina. „Birgðir hafa aldrei verið eins naumar og núna og það er stór hætta á ferðum. — Svona staða hefur aldrei komið upp áður, en ég tel að allt umfram viku stöðvun sé stórkostlega alvarlegt, og ógerning- ur að gera sér grein fyrir afleiðing- unurn," sagði Sigurður Markússon framkvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar Sambandsins í samtali við Alþýðublaðið í gær. „Það er óhætt að segja að þetta hangir á blá- þræði,“ sagði Sigurður. Guðmundur H. Garðarson fram- kvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sagði að birgðir hefðu ekki verið minni svo menn muni. Hann sagði að í það heila væri talið að birgðir S.H. væru um 5—6000 tonn. Guðmundur sagði að eðlilegar birgðir hjá þeim væru taldar um 11—13 þúsund tonn. Getur þessi jólasveinn heitið nokkuð annað en Stúfur? „Brjótum múrinnt( Fundarherferð á Austfjörðum Þeir Guðmundur Einarsson, alþingismaður, og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, hófu fundaherferð um Austfirði í gær undir kjörorðinu: „Brjótum múrinn“, sem vísar til þess, að Alþýðuflokkurinn keppir nú að því að fá þingmann kjörinn í Austfjarðarkjördæmi, en þar hefur flokkurinn ekki átt þingmann í um aldarfjórðung. Fundaherferðin hófst á Vopnafirði í gær, en næstu daga verða fundir sem hér segir: Laugardaginn 3. janúar: Valaskjálf á Egilsstöðum kl. 14:30. Félagslundur á Reyðarfirði kl. 17:30. Sunnudagurinn4. janúar: Egilsbúð I Neskaupstaö kl. 14:00. Valhöll á Eskifirði kl. 17:00. Mánudagurinn 5. janúar: Herðubreið á Seyöisfirði kl. 21:00. Þriðjudagurinn 6. janúar: Fáskrúðsfjörður, Breiðdalsvlk og Stöðvarfjörður. Fundarstaðir auglýstir síðar. Miðvikudagurinn 7. janúar: Djúpavik kl. 17:00 og Höfn í Hornafiröi kl. 21:00. Fundarstaðir auglýstir slðar. Lúra V Júlíusdóttir hjá A.S.Í.: „Hækkanirnar áhyggjuefniu — sérstaklega svo fljótt eftir samninga- gerðina „Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem gefin var í samningunum, gekk út á það að hækkun opinberrar þjónustu verði haldið innan marka almennra launahækkana á árinu. Hitt er rétt að hver og ein svona hækkun hún mælist reyndar ekki mikið í vísitöiu, þannig að það er mjög erfitt að fullyrða um það hvort þessar hækkanir sem talað er um núna hjá Hitaveitunni og Landsvirkjun komi til með að mæla eitthvað umfram almennar hækkanir,“ sagði Lára V. Júlíus- dóttir í samtali við Alþýðublaðið í gær. „En þegar fleiri slíkar hækkanir leggjast saman og þetta fer að verða almenn regla yfir alla línuna, þá fer þetta að mælast alvarlegar inn í vísitöluna og það er aðaláhyggju- efnið, sem við stöndum frammi fyr- ir núna. Þá kemur skriðan á eftir, — Póstur og sími og fleiri slík fyrir- tæki. Það er fyrst og fremst áhyggjuefniðþ sagði Lára V. Júlíus- dóttir, lögfræðingur hjá A.S.Í. Siómannaverkfallið: Bráöabirgðalög veröa ekki sett „Engin ástœða til að œtla annað en sjómenn og útvegs- menn séu fullfœrir til að Ijúka málum sjálfirf sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. „Ég vil helst ekki hugsa út í það, hvaða afleiðingar sjómannaverk- fallið hefur ef það dregst á langinn. Ég held það séu góðar vonir um að það leysist um helgina og því best að geyma allar yfirlýsingar fram yfir helgi,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Alþýðublaðið í gær aðspurður um sjómannaverkfalliö og afleiðingar þess. „Hér er um frjálsa samninga milli aðila að ræða og þeir verða að Ijúka þeim,“ sagði ráðherra. „Nei, það tel ég alls ekki. Slika hluti gera menn ekki nema það sé algjörlega útilokað að fá lausn í mál og það hafi skapast mjög slæmt ástand. Ég held að það sé engin ástæða til að ætla annað en sjó- menn og útvegsmenn séu fullfærir um að ljúka málum sjálfirþ sagði Halldór þegar hann var spurður hvort til greina kæmi að setja bráðabirgðalög sem bönnuðu verk- fallið. „Jú birgðir eru í algjöru lágmarki og ef ekki verður hægt að afhenda fisk á markaðina þá er það alvar- legra mál en hægt er að gera sér grein fyrirþ sagði Halldór. I samtali við Alþýðublaðið á gamlaársdag sagði Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins að ef menn sinntu ekki mörkuðunum núna yrði stór hætta því samfara í nútíð og fram- tíð. Hann sagði einnig, að mörg frystihúsa Sambandsins ættu mjög miklum erfiðleikum og gæti stöðv- un haft ófyrirsjáanlegar afleiðing- ar. N eyðarþj ónustu sinnt kauplaust Meinatæknar sem hættu störf- um á Borgarspitalanum um áramót sinna þar nú aðeins neyðarþjónustu og skipta með sér sex tíma vöktum auk bakvakta. Þetta gera þær án kröfu um þóknun. „Landlæknir fór fram á þetta við okkur. Embættið telur að neyöar- þjónustu sé ekki sinnt á Borgarspít- alanum nema þar sé veitt sama þjónusta og á stórhátíðardögum. Við skipulögöum því þessar vaktir í fimm daga,“ sagði Valborg Þor- leifsdóttir meinatæknir í samtali við Alþýðublaðið i gær. Deila meinatækna og borgaryfirvalda virðist nú í algjörum hnút og hafa engar viðræður átt sér stað eftir að meinatæknar gengu út um áramót. Gísli lést á gamlársdag Gísli bóndi Gíslason, sem allir landsmenn þekktu eftir Stikluþætti Ómars Ragnarssonar, lést á sjúkra- húsinu á Patreksfirði á gamlársdag. Gísli var fæddur á Uppsölum þann 29. október 1908 og var því 78 ára gamall þegar hann lést. Hann bjó alla sína tíð á Uppsölum og stund- aði þar fjárbúskap. Gísli var ókvæntur og barnlaus. „Við höfðum tekið þá afstöðu, að við vildum ekki vinna þessa vinnu fyrir það kaup sem boðið hefur verið. Þess vegna sögðum við upp fyrir hálfu ári síðan. Viðræður um okkar kröfur hafa engar orðið. Okkur hefur einungis verið boðið að ef við drægjum uppsagnirnar til baka fengjum við þessa umtöluðu 2ja launaflokka hækkun sem meinatæknar á Landspítalanum fenguþ sagði Valborg meinatæknir, en hún er ein af þeim sem hættu störfum á Borgarspítalanum um áramót. Valborg sagði að kröfur þeirra væru síður en svo eitthvað sér á báti. Kjarasamningar meina- tækna hjá ríkinu eru lausir og sagð- ist hún reikna með að þar yrðu lagðar fram hliðstæðar kröfur. Deilurnar standa um 45% áhættu- álag og 16 daga vetrarfrí. Af þeim 39 meinatæknum sem hættu störfum hafa 6 þegar hafið störf annars staðar. Valborg sagði að ef mál þetta tefðist frekar gæti orðið erfitt að manna allar stöður. Um hríð hefur spítalinn einnig ver- ið undirmannaður og álag mikið á þeim meinatæknum sem þar hafa starfað. Stéttin er fámenn og ásókn í deildina í Tæltniskólanum hefur verið dræm. Þánnig hófu aðeins tólf nám í haust en yfirleitt hefur þurft að synja umsóknum. 16—17 hafa venjulega verið teknir inn, en Davíð Oddsson fyrir þremur árum voru umsækj- endur t.d. 60. Borgarstjóri hefur þótt sýna Iitla sáttaviðleitni í þessu máli. Þannig neitaði hann t.d. að taka boði meinatækna þegar þeir vildu fresta uppsögnum sínum í desember vegna sérkennilegrar stöðu spítal- ans þá, eins og öllum ætti að vera kunnugt. Borgarstjóri sagði að ekki væri hægt að fresta uppsögnunum frekar og vitnaði í því sanrbandi til lagalegs álits. Málið er því í sama hnút sem fyrr og engar viðræður eiga sér stað. Alþýðuflokkurinn opnar kosningamiðstöð Alþýðuflokkurinn hefur nú opnað kosningamiðstöð vegna væntanlegra Alþingiskosninga. Kosningamiðstöðin er í Síðumúla 12 (Blaðaprentshúsinu) 2. hæð og verður hún op- in alla daga frá klukkan 13:00 til 19:00. Síminn er 689370. Stjórnandi kosningamiðstöðvarinnar verður Ámundi Ámundason.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.