Alþýðublaðið - 07.02.1987, Page 21
Afmæliskveðj ur
til Gylfa Þ. Gíslasonar
skóla Islands, en Gylfi lagði
sinn drjúga skerf að grundvelli
viðskiptafræðikennslunnar við
skólann á sínum tíma og kom
aftur til kennslu eftir að ráð-
herradómi lauk. Hann er einn
af virtustu kennurum stofnun-
arinnar fyrr og siðar.
Prátt fyrir orðstír og völd er
Gylfi einstakt ljúfmenni.
Mannúðin, aðall jafnaðarstefn-
unnar, á hjarta Gylfa og hug.
Hversu oft hefur hann ekki
brýnt fyrir félögum sinum í Al-
þýðuflokknum að án góðs
hjartalags séu vitsmunir lítils
virði. Ungur nam hann þann
sannleika, að allt skuli í kær-
leika gjört. Þess vegna eru
margir pólitiskir andstæðingar
Gylfa, persónulegir vinir hans.
Auk þess er hann líka elskaður
og dáður sem tónlistarmaður.
Gylfi er afburða ræðumaður,
orðsins list bókstaílega leikur
honum á tungu. Hann hefur
fjölda þjóðtungna á valdi sínu.
Þegar honum tekst vel upp, þá
bókstaílega geislar hann af
andagift.
Gylfi er ekki einungis vinsæll
hér á landi, heldur á hann nána
vini út um allan heim. Allir
helstu leiðtogar jafnaðar-
manna í veröldinni eru per-
sónulegir vinir hans og hann er
einn af máttarstólpum nor-
ræns samstarfs. Ef Gylfi hefði
lagt fyrir sig alþjóðastjórnmál
væri hann Ttygve Lie og Dag
Hammarskjöld íslendinga.
Þrátt fyrir bardaga stjórn-
málanna er Gylfi einstakur
húmoristi. Á fundum leysir
hann oft grútfúlustu mál með
nýrri hlið, sem kemur fólki til
þess að taka gleði sína á ný.
Kímnigáfa er ein af göfugustu
eðliskostum mikilla stjórn-
málamanna ásamt sáttfýsi og
bræðraþeli. Þá fara saman
miklir vitsmunir og göfugt
hjarta.
Til hamingju með daginn
foringi. Megi okkur öllum end
ast viðkynningin við þig sem
allra lengst.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Framboðslisti
Alþýðuf lokksi íis
í Reykjavík
1987 kynntur
Framboðslisti Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík verður kynntur á
Hótel Sögu sunnudaginn 8.
febrúar kl. 20.30 í Súlnasal.
Aðalræðumaður kvöldsins
verður Jón Sigurðsson.
Fjöldi landsþekktra skemmti-
krafta mun koma fram með
Ríó-tríóinu í broddi fylkingar.
Almenna bókafélagið:
Hagsæld -
tímar og
hamingja
— ritgerðir og ræður eftir
Gylfa Þ. Gíslason, í tilefni
af 70 ára afmæli hans.
Gylfi Þ. Gíslason er 70 ára í dag.
í tilefni af því kemur út hjá AB bók
eftir Gylfa, Hagsæld — tímar og
hamingja. Úrval úr verkum hans,
ritgerðir og ræður frá upphafi.
Bókin skiptist í nokkra höfuð-
þætti: Hagfraeöi — hagsaga, Jafn-
aðarstefnan, íslensk hagstjórn, ís-
lensk menning, ísland meðal þjóða
og Samferðamenn.
Hér er á ferðinni mikið rit, u.þ.b.
350 bls. Helgi Skúli Kjartansson
valdi efnið. Fjölmargar myndir eru
í bókinni.
Fjölskylduskemmtun
í Mosfellssveit
Sunnudaginn 8. febrúar kl. 17.00
efnir Leikfélagið og Skólahljóm-
sveit Mosfellssveitar til fjölskyldu-
skemmtunar í fþróttahúsinu að
Varmá.
Efnisskrá er fjölþætt og leitast
við að hafa efni fyrir alla aldurs-
hópa. Leikfélagið og Skólahljóm-
sveitin hafa átt gott samstarf um
árabil við skemmtanahald í sveit-
inni, en fá einnig til liðs við sig
dansara frá Heiðari Ástvaldssyni
og Sigríður Þorvaldsdóttir kemur
fram í hlutverki „Rympu á rusla-
haugnum“ hinu nýja leikriti Her-
dísar Egilsdóttur.
LANCIA THEMA:
IBURÐUR,
ÞÆGINDI
0G TÆKNILEG
FULLK0MNUN
Við hjá Lancia viðurkennum fúslega að við höfum gaman
af því að vera fyrstir. Fyrir 25 árum síðan smíðuðum við
fyrsta ítalska bílinn með framdrifi. Pað var líka okkar hug-
mynd að smíða bíl með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum
og sjálfberandi yfirbyggingu. Og enn erum við í fararbroddi.
Nú er það fólksbíll sem skipar sér á bekk með þeim bestu í
Evrópu og sameinar kraft og aksturseiginleika sportbílsins og
íburð og þægindi luxusbílsins. Þetta er LANCIA THEMA.
Að innan er THEMA íburðarmikill og geysilega rúmgóður og
undir húddinu leynist 165 hestafla TURBO vél með millikæli og
ýmsum tæknilegum eiginleikum, sem hingað til hafa eingöngu verið
notaðir í vélar kappakstursbíla. Þessi vél skilar THEMA TURBO úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða á aðeins 7.2 sekúndum og hámarkshraðinn
er 218 km/klst! Vélin er næsta hljóðlaus og titringsdeyfar eyða öllum titringi,
þannig að þú finnur raunverulega aldrei fyrir þessum ógnarkrafti. Hröðunin
og mýktin er slík, að líkast er að setið sé í þotu í flugtaki! Ef þetta er ekki nóg
fyrir þig, þá er hægt að fá THEMA með 32 ventla FERRARI V8 vél og þá er
hröðunin í 100 km hraða aðeins 6.8 sekúndur!
LANCIA THEMA TURBO kostar nú aðeins 895 þúsund krónur* með álfelgum og ríku-
legum búnaði. Aðrar gerðir af LANCIA THEMA kosta frá 760 þúsund krónum*.
Ef þú telur að þú eigir aðeins það besta skilið, hafðu þá samband við okkur og fáðu að reynsluaka
LANCIA THEMA TURBO, ÞAÐ ER LÍFSREYNSLA ÚT AF FYRIR SIG!
LANCIA THEMA ER FLUTTUR INN AF BÍLABORG H.F. ÞAÐ TRYGGIR ÖRUGGA
ENDURSÖLU OG 1. FLOKKS ÞJÓNUSTU, SEM ER RÓMUÐ AF ÖLLUM SEM TIL ÞEKKJA!
LANCIA THEMA FÆST í 5 MISMUNANDI GERÐUM:
THEMA TURBO - 2000 cc, 165 hö, 0-100 km/klst = 7.2 sek.
THEMA i.e - 2000 cc, 120 hö, 0-100 km/klst = 9.7 sek.
THEMA 6V - 2850 cc, 150 hö, 0-100 km/klst = 8.2 sek.
THEMA TURBO DIESEL - 2500 cc, 100 hö, 0-100 km/klst = 11.9 sek.
THEMA 8.32 - 2927 ccc, 218 hö, 0-100 km/klst = 6.8 sek.
LANCIATHEMA^
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SlMI 63-12-99
★ gengisskr. 14.1.87