Alþýðublaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 1
alþýðu-
Miðvikudagur 18. febrúar 1987__________33. tbl. 68. árg.
„Brjótum múrinn” á Vesturlandi:
Byggðamál í
brennidepli
„Þessir fundir tókust mjög vel í
hvívetna. Við ræddum baráttumál-
in í kosningunum og stöðu lands-
málanna yfirleitt. það má segja að
meginefni fundanna hafi verið
byggðamál, sjávarútvegs- og land-
búnaðarmál, sagði Eiður Guðna-
son, formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins í samtali við Alþýðublað-
ið í gær. Frambjóðendur flokksins
á Vesturlandi luku fundarferð sinni
um kjördæmið á sunnudag. Haldn-
ir voru 8 fundir á jafnmörgum dög-
um.
Fundirnir voru vel sóttir, allt að
70 manns á þeim fjölmennustu.
Fjórir efstu menn listans í kjör-
dæminu voru frummælendur á
fundunum en auk þeirra voru gest-
ir: Jón Sigurðsson, sem skipar efsta
sætið í Reykjavík, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, varaformaður, sem skipar
annað sæti í Reykjavík, Guðmund-
ur Einarsson sem skipar efsta sæti á
Austurlandi, Jón Bragi Bjarnason
sem skipar fimmta sæti í Reykjavík
og Stefán Benediktsson alþingis-
maður.
Fyrsti fundurinn var í Logalandi,
síðan voru fundir á Akranesi, Borg-
arnesi, Búðardal, Stykkishólmi,
Grundarfirði, og fundaferðinni
lauk á sunnudag í Ólafsvík og Hell-
issandi.
Það er mikill hugur í alþýðu-
flokksmönnum á Vesturlandi og
eru þeir þeir fyrstu sem hefja skipu-
lagt starf fyrir kosningamar í kjör-
dæminu. Kosningamiðstöð flokks-
ins verður opnuð mjög fljótlega á
Akranesi, og ráðgert er að opna
kosningaskrifstofur í öllum þétt-
býlisstöðum í kjördæminu.
Hæstiréttur á þing?
„Ég sé ekki ástæðu til að gagn-
rýna ummæli forseta Hæstaréttar
efnislega, né heldur forsætisráð-
herra, þar sem það væri vissulega
óeðlilegt að dómstólar stæðu að
skipun nefndar eftir að málið er
komið til dómstólanna. Það má
hins vegar gagnrýna tvennt í þessu
sambandi: Það er óheppilegt að
dómstólar, þá sérstaklega Hæsti-
réttur, hafi með höndum stjórn-
Framhald á bls. 2
Fundir í kosningamiðstöðinni
Undanfarna laugardaga hafa verið haldnir kynningarfundir í kosningamiðstöð Alþýðuflokksins i
Síðumúla 12, þar sem frambjóðendur á lista flokksins íReykjavík, hafa fjallað um ýmsa málaflokka.
Þessir fundir hafa verið vel sóttir. Á laugardaginn var rœddi Jón Bragi Bjarnason, sem skipar fimmta
sœtið á Reykjavíkurlistanum, um nýsköpun í atvinnulífi. Myndin er frá þessum fundi.
Frœðslustjóramálið í furðulegri mynd:
Einstæð samskipti dóms-
valds og framkvæmdavalds
„Hingað til hafa menn staðið í þeirri trú að um væri að ræða aðskilnað dómsvalds
og löggjafarvalds.... Því verður ekki trúað fyrirfram að meirihluti Alþingis taki við
fyrirmælum eða lagatúlkunum frá forseta Hæstaréttar í gegnum sendiboða í gervi
forsætisráðherra,” segir Jón Baldvin Hannibalsson í samtali við Alþýðublaðið.
Þau tíóindi gerðust á Alþingi á
mánudag í umræðum um svokallað
fræðslustjóramál, að forsætisráð-
herra sté í pontu og flutti þingheimi
skilaboð frá forseta Hæstaréttar.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins lét í Ijós
hneykslun á því með hvaða hætti
þingheimi bærust skilaboð frá for-
seta æðsta dómsvaldsins. Alþýðu-
blaðið ræddi við Jón Baldvin í gær.
„Forsætisráðherra sagðist hafa
skroppið fram til þess að spyrja for-
seta Hæstaréttar hvort frumvarp
forseta neðri deildar, Ingvars Gísla-
sonar, um að Hæstiréttur tilnefni
nefnd utanþingsmanna til að rann-
saka samskiptaörðugleika mennta-
málaráðuneytis og fræðsluyfir-
valda á Norðurlandi, væri ekki
mjög vafasamt. Forsætisráðherra
sagði að forseti Hæstaréttar hefði
leyft honum að hafa það eftir sér
Framhald á bls. 2
„Geðhiálp verður að
ikna
fá au
að stoð
99
„Ég kynntist fólki með geðræn
vandamál þegar ég vann á Klepp-
spítalanum árið 1978 og er sjálfur
lærður sálfræðingur. Eins vann ég
í klúbbi í Danmörku, en þar fer
fram svipuð starfsemi og rekin er
núna niður við Hallærisplanið
hér í Reykjavík. Sá klúbbur var í
Árósum og var fyrir fólk sem
hafði verið lagt inn á geðsjúkra-
hús og var hugsaður sem eftir-
meðferð til að brjóta upp félags-
lega einangrun fólks með geðræn
vandamál", sagði Magnús Þor-
grímsson, sálfræðingur og for-
maður Geðhjálpar, en hann og
Gísli Theodórsson, ritstjóri tíma-
ritsins Geðhjálp komu að máli við
blaðamann í gær.
„Við starfrækjum félagsmið-
stöð að Veltusundi 3,b. Þar er op-
ið hús fyrir fólk með geðræn
vandamál og eins aðstandendur
þess, sem gefur þessu fólki tæki-
færi til að hittast og ræða sín mál
og brjóta upp einangrun og höml-
ur sem fólk með geðræn vanda-
mál á oft við að stríða“, sagði erfiðleikum með að finna sér fé-
Magnús. lagsskap við hæfi. Fólk kannski
býr eitt í herbergi út i bæ og vantar
mannleg samkipti, en skortur á
Emangrun
„Þetta fólk er oft mjög ein- -----— 'jjTm—
angraðogáerfitt meðaðopnasig
gagnvart öðru fólki. Snar þáttur i 11 88
vandamálum fólks með geðræn
vandamál er einangrun. Það á í jl'gg | QQ |
þessum mannlegu samskiptum
auka oft á tíðum á hin geðrænu
vandamál sem þegar eru fyrir
hendi. Einnig getur þetta fólk ein-
angrast þótt það eigi fjölskyldu
og vini, ef það hefur ekki lag á að
notfæra sér það umhverfi sitt, en
það er eitt einkenni sjúkdómsins
að fólkið lokast inn í sjálfu sér, fái
það ekki aðstoð.
Magnús Þorgrímsson, sálfrœð-\ Tímaritið Geðhjálp, 2. tbl er Gísli Theodórsson, ritstjórí tíma-
ingur og formaður Geðhjálpar. komið út. rítsins Geðhjálp.
— segja Magnús
Þorgrímsson, sál-
frœðingur og for-
maður Geðhjálpar
og Gísli Theodórs-
son ritstjóri.
Við tilkomu þessarar félags-
miðstöðvar í Veltusundinu er
komið tækifæri til að brjótast út
úr þessari innilokun og eignast
vini sem skilja vandamálið. Þarna
eiga menn sem sagt val sem ekki
hefur verið til staðar áður, bæði
hinir sjúku og eins aðstandendur
þeirra.
Manneskjan
Markmiðið með stofnun þess-
arar félagsmiðstöðvar er einnig að
bjóða upp á þjónustu sem er ann-
ars eðlis en formlegar stofnanir
bjóða upp á. Hjá stofnun eins og
sjúkrahúsi t.d. gengur viðkom-
andi inn í ákveðið hlutverk, þ.e.
hlutverk sjúklings.
En í félagsmiðstöðinni er við-
komandi tekinn sem manneskja.
Það er enginn sem spyr að fyrra
bragði hvort viðkomandi eigi við
vandamál að stríða eða ekki. Ein-
staklingnum er alveg í sjálfsvald
Framhald á bls. 2
í Alþýðublaðinu eru í dag 8 síður
helgaðar Austurlandi og er blaðinu
dreift inn á hvert heimili á
Austurlandi.
J