Alþýðublaðið - 18.02.1987, Qupperneq 5
Miðvikudagur 18. febrúar 1987
5
Elliheimilið á Eskifirði:
Fjársöfnunin komin
þúsund krónur
Nýja elliheimilið á Eskifirði er nú fokhelt
í 560
Enn er ekki ljósí hvenær nýja
elliheimilið á Eskifirði verður tilbú-
ið til notkunar, en áætlað er að það
muni fullbúið kosta um 45 milljónir
króna. Þar af hefur þegar verið var-
ið um 12 milljónum i bygginguna
sem nú stendur fokheld.
Að sögn Bjarna Stefánssonar,
bæjarstjóra á Eskifirði, ríkir mjög
almennur áhugi meðal bæjar-
stjórnarmanna og bæjarbúa allra
um að koma byggingunni áfram og
sýndi þessi áhugi sig best á fjársöfn-
uninni á þrettándanum, sem sagt
var frá í síðasta blaði, en þá gengu
bæjarfulltrúar í hús á Eskifirði og
tóku á móti framlögum bæjarbúa.
Sagði Bjarni að sú söfnun væri nú
komin upp í 560 þúsund krónur og
hann sagðist þess fullviss að ekki
væru öll kurl komin til grafar enn í
því sambandi og mundi eitthvert fé
enn eiga eftir að berast.
Á nýja elliheimilinu mun verða
pláss fyrir 14—18 dvalargesti eftir
atvikum. Bjarni Stefánsson kvað
enn of snemmt að segja fyrir um
hvenær heimilið gæti tekið á móti
fyrstu dvalargestunum og nefndi í
því sambandi að enn væri ekki lok-
ið við að gera fjárhagsáætlun bæj-
arins fyrir þetta ár. Sagði hann
þetta stafa af því að tölvuvæðing
stæði yfir og hefði af þeim sökum
fengist sérstök undanþága frá fé-
lagsmálaráðuneytinu til að seinka
gerð fjárhagsáætlunar.
Bjarni sagði fjárhagsáætlunina
verða tilbúna um mánaðamótin og
þá myndi m.a. liggja fyrir hversu
miklu fé yrði unnt að verja úr bæj-
arsjóði til byggingar elliheimilisins
á þessu ári.
Hvers vegna kjósum viö Alþýöuflokkinn?
Halldór Harðarson,
verkamaður,
Seyðisfirði
Alþýðuflokkurinn er
langvœnlegasti valkosturinn
ídag ogfyrir mér er alls ekki
um annað að rœða. Ég held
að ekki sé um annað að gera
en að reyna að ná fram ein-
hverri breytingu í kosning-
unum í vor.
Það er sama hvert litið er.
Allt virðist vera meira og
minna í molum í landinu.
Það skiptir ekki máli hvað
það er sem kemur upp á
borðið hjá þessari ríkisstjórn
sem nú situr, — h'ún veldur
engu.
Ég var á fundi hér um
daginn hjá þeim Jóni
Baldvin og Guðmundi Ein-
arssyni og ég get ekki annað
sagt en að mér lítist afar vel
á Guðmund og málflutning
Úlfar Sigurðsson,
bifreiðarstjóri,
Eskifirði
Mér finnst stjórn þessara
tveggja flokka sem nú situr
vera óðum að ganga sér til
húðar. Loforðalistinn þeirra
hefur ekkJ staðist sem
skyldi. Það dettur auðvitað
alltaf eitthvað upp fyrir af
kosningaloforðum, en það
má nú satt að segja fyrr vera.
Við getum nefnt stóriðju-
málin hér á Austfjörðum
sem dœmi og ýmis hneykslis-
mál hafa líka komið upp sem
tengjast þessum flokkum
sem nú stjórna. Þar má t.d.
nefna Hafskipsmálið og
frœðslustjóramálið. Svona
mál eru engan veginn til að
auka hróður stjórnarflokk-
anna.
Ég tel Alþýðuflokkinn
langbesta valkostinn í kom-
andi kosningum. Ég vil
benda á að Alþýðuflokkur-
inn á vissa samleið með t.d.
sœnskum jafnaðarmönnum
og af Svíum gœtum við lcert
ýmislegt í þeim málum sem
hans og mér virðist afar
ákjósanlegt að styðja hann
til þingmennsku.
Það er líka tími til kominn
að fara að gefa þessari ríkis-
stjórn frí. Við getum tekið
peningamálin sem dœmi og
mistnotkun hennar á fé al-
mennings ogþað virðist vera
sama hvar borið er niður.
Það er sama rullan áfram.
horfa til heilla fyrir almenn-
ing.
Mér finnst líka að við get-
um tekið Bandaríkjamenn
til fyrirmyndar í því að láta
þá flokka víkja frá völdum
sem ekki standa sig og fela
öðrum stjórnina í staðinn.
Það getur orðið til þess að
þeir standi sig betur nœst.
Alþýðuflokkurinn er tví-
mælalaust besti valkostur-
inn fyrir þá sem eru óánœgð-
ir með núverandi ríkisstjórn
og ég vil endilega hvetja fólk
til að kjósa ekki eftir ein-
hverjum gömlum hefðum,
heldur láta sannfœringuna
ráða.
Að undanförnu hafa frambjóðendur A-listans á Austurlandi heimsótt vinnustaði víðs vegar í kjördœminu, yfir-
leitt við ágœtar undirtektir. Þessi mynd var tekin í frystihúsinu á Neskaupstað við eitt slíkt tœkifœri og það er
Guðmundur Einarsson, alþingismaður sem hér er á tali við eina af starfsstúlkunum.
BAUKURINN,
KJÖRBOKINOG
LANDSBANKINN
HJÁIPA ÞÉR
AÐNÁENDUM
SAMAN
Pegar lítið fólk ræðst t stórar
fjárfestingar er gott að minnast
þess að margt smátt gerir eitt
stórt. Smámynt sem safnað er
í sparibauk og síðan lögð á
Kjörbók stækkar og ávaxt-
ast hraðar en þig grunar.
Bangsa baukurinn fæst I öllum
sparisjóðsdeildum Lands-
bankans. Pegar spariféð úr
honum er lagt inn er Kjörbók-
in visasta leiðin að settu
marki. Barnið, baukurinn og
bankinn leggjast á eitt;
tölurnar hækka og að lokum
ná endar saman.
Kennum börnunum okkar að
spara peninga og ávaxta þá,
það er gott veganesti og
gagniegt.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna (100 ár