Alþýðublaðið - 18.02.1987, Page 9

Alþýðublaðið - 18.02.1987, Page 9
Miðvikudagur 18. febrúar 1987 9 Fast þeir sóttu sjóinn Á vegum Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi tók Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins ný- lega saman yfirlit um fiskafla á landinu árið 1985, skiptingu hans eftir landshlutum, fisktegundum og aflaverðmæti á hvern íbúa. At- hugað var sérstaklega hvernig afli skiptist á milli útgerðarstaða á Austurlandi. Upplýsingarnar í þessa reikninga voru teknar úr ritinu Utvegur 1985, sem Fiskifélagið gefur út. Tölur um mannfjölda voru frá Hagstofunni og miðuðust við 1. des. 1985. í þessu yfirliti kemur margt fram. Austurland — Iandið í heiid Austurland er í Iangefsta sæti ef reiknaður er heildarafli. Þar var landað 491.363 tonnum, sem eru 31.8% landaðs afla á landinu öllu. Þar munar mest um loðnuna, því hún var 389.321 tonn eða 42% loðnuaflans, sem landað var hér- lendis. Hvað síldina varðar var Austurland auðvitað í efsta sæti með 27.626 tonn, sem voru 56% landsaflans. Varðandi bolfiskinn er Austurland í 4. sæti á eftir Reykja- nesi (89.471 tonn), Norðurlandi eystra (73.830 tonn) og Suðurlandi (68.766 tonn). Austurlandsaflinn nam 67.386 tonnum, sem voru 14% bolfiskaflans sem barst að landi. Heildarverðmæti alls landaðs afla á Austurlandi nam rúmum tvö þúsund milljónum króna, eða 154.960 kr. á hvern íbúa kjördæmis- ins. Það er næstum þrisvar sinnum hærri tala en fæst ef heildarafla- verðmæti þjóðarinnar er deilt á landsmenn alla. Slíkan samánburð ber auðvitað að taka með miklum fyrirvara, því hlutfall sjávarútvegs í heildaratvinnu er auðvitað mis- munandi eftir landshlutum. Samanburður innan Austurlands Ef bornir eru saman útgerðar- Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. staðir á Austurlandi kemur í ljós að Hornafjörður er í 1. sæti á bolfisks- listanum með 12.785 tonn eða 19% af bolfiskafla Austurlands. Horna- fjörður er líka í 1. sæti síldarlistans, því þar er hann með 5.121 tonn eða 19% Austurlandsaflans. í síldinni fylgir Eskifjörður fast á eftir með 4.976 tonn eða 18%. Seyðisfjörður er með mest af loðnunni árið 1985, því þar var landað 152.154 tonnum, sem voru 39% loðnuaflans á Aust- urlandi. Heildaraflaverðmætið var hæst á Seyðisfirði, eða 380 milljónir. í öðru sæti var Neskaupstaður með 332 milljónir og Eskifjörður í því þriðja með 330 milljónir. Seyðfirðingar voru líka í 1. sæti hvað varðar aflaverðmæti á íbúa. Þeir höfðu 380 þús. á mann. Næstir voru Eskfirðingar með 304 þúsund á mann og í 3. sæti Djúpivogur með 249 þúsund. Verkunarskipting Alþýðublaðið á Austurlandi hef- ur‘o 1985. VerrS mcetið nam rúmum tverni milljörðum það ár ur fengið yfirlit yfir verkunarskipt- ingu fiskafla á Austurlandi árið 1985. Þar kemur í ljós að Höfn er í 1. sæti í frystingunni með 10.241 tonn, sem eru 20% heildarfrysting- ar á Austurlandi. í öðru sæti er Neskaupstaður með 7.248 tonn. Á söltunarlistanum er Höfn sömu- leiðis í 1. sæti með 8.731 tonn (18%) en í 2. sæti er Eskifjörður með 6.985 tonn. Seyðisfjörður er með mesta bræðslu af útgerðarbæjunum á Austurlandi, eða 152.338 tonn, sem eru 39% af bræðslunni í fjórðungn- um. Smáauglýsing í Alþýðublaðinu á Austurlandi kostar ekki neitt. Smáauglýsingar Skilvinda óskast Mig bráðvantar skilvindu. Þarf að vera í nothæfu ástandi. Upp- lýsingar gefur Anna í síma 5798. Útprjónaðir sokkar Útprjónaðir sokkar, sjöl o.fl. til sölu. Upplýsingar gefur Anna í síma 5798. Frystikista óskast Óska eftir að kaupa frystikistu ca. 210 lítra. Upplýsingar í síma 88832. Barnagæsla Óskum eftir barngóðri konu eða stúlku til að gæta 7 mánaða drengs í mars og apríl. Upplýs- ingar í sima 1807. Smáauglýsingar á SKVGGNST UHPtfc ymsoNpip Einn liður í þeirri þjónustu Hampiðjunnar að miðla upplýsingum um eiginleika og notkun veiðarfæra. er útvegun og dreifing myndþanda. Nú þjóðum við sjö áhugaverð myndbönd á kostnaðarverði. 1. I TIUtAUHATAHKINUM 2. HSKUN ÍTftOLU 3. fíSKAP MePÞKAGMOr 4. POKSKANBT 5. TOGVeiPAKFÆfUP 6. LÍNUVeiPAK VIPAIASKA ?. HUMAK- OG rtSKITKOU Nánari upplýsingar veitir söiudeiid Hampiðjunnar. HAMPIÐJAN Box 5136, 125 Reykjavík, sími28533 Kynntu þér kosti HÁVAXTABÓ KARINNAR Samvinnubanki íslands hf. Útibúið Egilsstöðum símar 97—1233 og 97—1423

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.