Alþýðublaðið - 18.02.1987, Side 11

Alþýðublaðið - 18.02.1987, Side 11
Miðvikudagur 18. febrúar 1987 11 Þjóðflutningar í Austur-Indíum 2,5 milljónir manna flytjast búferlum. Miklir fólksflutningar eiga sér nú stað í Austur-Indíum á vegum stjórnvalda þar. Samkvæmt áætl- uninni eiga tvær og hálf milljón manna að flytjast búferlum á ára- bilinu 1984—89. Fólksflutningarn- ir kosta mikið fé og eru að verulegu leyti kostaðir af alþjóðlegum sjóð- um, en þjóna engan veginn þeim til- gangi sem þeim er ætlað. Mikil um- hverfisröskun er fyrirsjáanleg og sömuleiðis mikil röskun á menn- ingarlegu jafnvægi eyjabúa. Engu að síður er flutningunum haldið áfram. Aætlanir um fólksflutninga frá hinum þéttbyggðu eyjum, Java og Bali ná allt aftur til nýlendutíma- bilsins, þegar Hollendingar réðu eyjunum. Þá þegar var talið að eyj- arnar væru of þéttbyggðar. Suk- arno forseti, „faðir eyjanna”, hafði og uppi svipuð áform í sinni tíð, en það er fyrst nú, undir stjórn Suharto forseta sem áætlanirnar eru gerðar að veruleika. Á Jövu og Bali búa meira en 100 milljónir manna og á ári hverju bætast við tvær til þrjár milljónir. Það er því ljóst að jafnvel þótt áætl- uninni yrði fylgt út í æsar, þá ber það álíka mikinn árangur og það að ausa lekan bát með skeið. Fólkinu fjölgar jafnt og þétt. Til ytri eyjanna Straumurinn liggur til hinna fjar- lægu eyja í eyjaklasanum, s.s. Sum- atra, Kalimantan, Sulawesi og Tim- or. Nýju byggðirnar eru undirbúnar af hernum, en fyrir landnema er líf- ið enginn dans á rósum. Þeir fá lít- inn jarðarskika til afnota, verkfæri og útsæði fyrsta árið. En jarðvegur- inn er slæmur, einkum til hrís- grjónaræktar, samgöngur erfiðar og litlir möguleikar á að selja afurð- irnar. Landnemarnir una ekki sinni nýju tilveru, en flosna upp í stórum stíl. Margir snúa aftur til Jövu, en þar er þeim haldið „afsíðis”, til að þeir breiði ekki út niðrandi ummæli um nýbyggðirnar. Aðrir fara til næstu borgar, eða reyna að fá vinnu á einhverri af stóru plantekrunum. Sífellt berast nýjar frásagnir af mis- heppnuðu landnámi og sumir telja að allt að helmingur landnemanna yfirgefi nýju heimkynnin. Umhverfisröskun Hið nýja landnám á lítt byggðum eða óbyggðum eyjum hefur í för með sér mikla náttúruröskun. um 80% af landinu er ósnortin náttúra, vaxin frumskógi, sem nú er sem óð- ast verið að ryðja burt. Regnskógar Austur-Indía eru um 10% af öllum regnskógarsvæðum heimsins og þeim verður að mestu leyti útrýmt ef Iandnámsáætlunin verður fram- kvæmd eins og fyrirhugað er. Allmargar dýrategundir í regn- skógum Austur-Indía eru hvergi til annars staðar, smádýr, fuglar og skordýr. Til dæmis er 1480 af 9000 fuglategundum heimsins hvergi að finna annars staðar en þar. Þessar tegundir eru í mikilli útrýmingar- hættu ef regnskógasvæðunum verður breytt í akurlendi, eins og ætlunin er og það er lítið vitað um hugsanlegar loftslagsbreytingar í kjölfarið. Frumbyggjar Svæðin sem eru tekin undir hið nýja landnám eru í sumum tilvikum byggð fólki sem hefur átt þar heima frá ómuna tíð. Þannig er það t.d. á Vestur-Guineu þar sem búa 1,2 milljónir „innfæddra”, en meining- in er að flytja þangað 698.000 land- nema næstu árin. Yfirlýst stefna stjórnarinnar er að allir íbúar eyjar- innar skuli renna saman í eitt indó- nesíusamfélag, en það er hægara sagt en gert. Frumbyggjarnir hafa sína eigin lifnaðarhætti og menningu sem verður óhjákvæmilega fyrir mikilli röskun við komu svo margra inn- flytjenda. þeir þurfa að láta af hendi hefðbundin veiðisvæði og fiskimið og einnig eru þeir látnir flytjast búferlum til að heildar- skipulagning stjórnarinnar nái fram að ganga. Sagt er að þeir flutningar séu framkvæmdir með valdi og flestir eyjaskeggjar muni þurfa að flytjast búferlum áður en yfir lýkur. Öll framkvæmd áætlunarinnar er í höndum hersins, bæði fólks- flutningar, verklegar framkvæmdir og síðast en ekki síst að sjá til þess Hugbúnaöarsýning IBM verðlaunar íslenskt hugvit Á fimmtudag var opnuð um- fangsmikil hugbúnaðarsýning ell- efu íslenskra fyrirtækja og IBM á íslandi, en sýningin gefur heildar- mynd af fjölþættum íslenskum hugbúnaði sem hér fæst fyrir IBM S/36 tölvur. Við opnunina afhenti Jón V. Karlsson, framkv.stjóri Markaðssviðs, fyrstu og önnur verðlaun í nýafstaðinni samkeppni fyrir íslenska hugbúnaðarframleið- endur. Fyrstu verðlaun, fimm hundruð þúsund krónur, hlaut tövluþjón- ustufyrirtækið Rekstrartækni hf., fyrir hugbúnað til að nota við kostnaðareftirlit og áætlanagerð í fiskiðnaðarfyrirtækjum. Hið verð- launaða kerfi nýtist stjórnendum sjávarútvegsfyrirtækja við val á hagkvæmustu vinnsluleiðum hrá- efnisins. Upplýsingar fyrir kerfið koma frá hinum ýmsu hugbúnaðar- kerfum, sem eru nú þegar í notkun í IBM S/36 tölvum fiskiðnaðarfyr- irtækja. Meiri hluti þeirra notar nú IBM S/36 tölvur og mun hinn nýi hugbúnaður nýtast vel fjölda fyrir- tækja í sjávarútvegi. Önnur verðlaun, tvö hundruð þúsund krónur, hlutu Benedikt Jóhannesson og Gísli Hjálmtýsson, fyrir hugbúnað fyrir sömu tölvu- tegund, sem ætlaður er til að halda utan um verðbréf og hentar það verðbréfaeigendum sem og verð- bréfaskuldurum. Þátttakendur í hugbúnaðarsamkeppninni voru hátt á annan tug, en dómnefnd skipuðu dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR, Jón Vignir Karls- son og Ómar Kristinsson, frá IBM. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, opnaði sýninguna, sem er í húsakynnum IBM á Islandi að Skaftahlið 24, og er opin 12.—14. febrúar kl. 10:00—18:00. Sýningin er opin öllum sem áhuga hafa og ánægju af tölvuhugbúnaði, tölvulausnum og nýjustu tækni á þessu sviði. Eins og fyrr segir, taka ellefu ís- lensk fyrirtæki þátt í sýningunni ásamt IBM. Tölvubankinn sýnir fjárhags- og viðskiptamannabók- hald og afgreiðslukerfi. Hugbúnað- arhúsið sýnir tímaskráningarkerfi og gæðaeftirlitskerfi fyrir frysti- hús. Pegasus hf. kynnir sendingar- og móttökukerfi fyrir telexskeyti í gegnum System 34/36/38 tölvur. Forritun sf. sýnir fjárhagsbókhald og Frum hf. almennan viðskipta- hugbúnað fyrir innflutning, verslun og almenna þjónustu. Hugvirki verður m.a. með Hús- val fyrir fasteignasölur, Bílval fyrir bílasölur og Val fyrir viðskipta- menn og afgreiðslur úr birgða- geymslu. Fasti kynnir framlegðar- kerfi fyrir iðnfyrirtæki og Kerfi hf. sýnir Alvís fyrir S/36. Almenna kerfisfræðistofan hf. verður með nýtt staðlað birgðakerfi fyrir fiskverkendur og sýnishorn af útkomu á tilboðsverkum. Rekstrar- tækni hf. er með kynningu á alhliða stöðluðu kerfi fyrir íslenskan sjáv- arútveg, svo sem aflabók, skip- verjalaun og framlegðarkerfi. Skrifstofuvélar hf. kynna Alvís- hugbúnað frá Kerfi hf. og RT-laun frá Rekstrartækni hf., ásamt hug- búnaði frá Frum hf. Miðverki og Tölvubankanum. IBM á íslandi sýnir það nýjasta í skrifstofusjálfvirkni og auk þess gefur fyrirtækið út, í tengslum við hugbúnaðarsýninguna, bækling um helsta hugbúnað fyrir S/36, sem verður afhentur á sýningunni. /-----------------------------\ Ferðu stundum á hausinn? Hundruð gangandi manna slasast árlega í hálkuslysum. Á mannbroddum, ísklóm eða negldum skóhlífum ertu „svellkaldur/köld". Heímsæktu skósmiðinn! ||U^FERÐAR ♦ífkr.r 'a ■ . . =r.'.r . . . Fiskimaður frá Jövu. Einn af þeim heppnu sem þurfa ekki að fara í útlegð. að óánægðir andófsmenn nái ekki að mynda fjöldasamtök gegn að- gerðum stjórnvalda. Alþjóðabankinn og Vesturlönd Fólksflutningarnir kosta mikið fé. Að útvega einni fjölskyldu nýjan samastað kostar sem svarar 500.000 ísl. kr. og það eru engir smámunir í landi þar sem daglaun eru innan við 25 krónur. Framkvæmdirnar eru líka fjár- magnaðar að verulegu leyti af vest- rænum peningastofnunum, af Al- þjóðabankanum, sjóðum á vegum Sameinuðu þjóðanna og ýmsum vestrænum ríkjum, s.s. Bandaríkj- unum, Vestur-Þýskalandi, Frakk- landi, Hollandi og Belgíu. Alþjóða- bankinn hefur nú þegar veitt um 17 milljónum króna til fyrirtækisins, en samtals er áætlað að erlend að- stoð nemi þrijungi þess kostnaðar sem fólksflutningarnir hafa í för með sér. Verkamannafélagið Hlíf Afmælisfagnaður í tilefni 80 ára afmælis félagsins verður haldinn af- mælisfagnaður, sunnudaginn 22. febrúar kl. 14:00, I veitingahúsinu Skútunni, Dalshrauni 15. Hlífarfélagar, makar þeirra og aðrir velunnarar félags- ins eru boðnir velkomnir. Stjórn V.m.f. Hlífar Laus staða sérfræðings á eðlisfræðistofu Raun- vísindastofnunar Háskólans Staða fastráðins sérfræðings i þéttefnisfræðum við eölisfræðistofu Raunvlsindastofnunar Háskólans er laus til umsóknar. Sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa á sviði eðlisfræði málma og hafa umsjón með þeirri rannsóknaraðstöðu sem þegar er fyrir hendi á stofnuninni á þessu sviði. Umsóknarfrestur er til 17. mars n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíð- ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök af vlsindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuð- um. Umsókjiir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavlk. Menntamálaráðuneytið 16. febrúar 1987

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.