Alþýðublaðið - 17.03.1987, Síða 2
2
RITSTJÓRNARGREIN’
Þriðjudagur 17. mars 1987
VÍMA OG SÍBROT
V-lttar Guðmundsson yfirlæknir á Vogi setur
fram athyglisverðar hugmyndir um tengsl sí-
brota og vímuefnaneyslu í ítarlegri grein sem
birtist í helgarblaði Alþýðublaðsins sl. laugar-
dag. í skrifum Óttars kemurfram að aöalvanda-
mál refsifanga er alkóhólismi, og því sé eina
raunhæfa leiðin til þess að rjúfa vítahring
vímu, afbrota og refsivistar að ráðast að fíkn-
inni sjálfri, þ.e. neyslu refsifangans á áfengi og
öðrum vímugjöfum.
A íslandi eru rekin tvö aðalfangelsi fyrir refsi-
vistarfanga, Litla-Hraun og Kvíabryggja. Auk
þess sitja menn í skemmri eða lengri tíma í
gæslu á Skólavörðustígnum eða í Síóumúla-
fangelsi og nokkrir fangar eru í fangelsinu á
Akureyri. Á þessari stundu gista um 90 manns
fangelsin í landinu, sumir í skemmri tíma en
nokkrir eiga margra ára vist framundan. Tíðni
afbrota og dóma hefur aukist á undanförnum
árum og tengjast afbrot æ meira ávana- og
flkniefnabrotum. Tilgangur refsivistar er eink-
um tvenns konar: annars vegar er fangelsum
ætlað að vernda borgara og þjóðfélagið í heild
gegn einstaklingum sem aðhafast refsivert at-
hæfi og hins vegar er dæmið hugsað þannig
að refsivist geri fangana að betri mönnum, og
gagnlegri þjóðfélagsþegnum. Á því vill verða
mikill misbrestur og hefur það ekki síst komið
fram í máli fanganna sjálfra, bæði gegnum fé-
lagasamtökin Vernd og á öðrum vettvangi.
r
I grein Óttars kemurþað berlegafram að meiri-
hluti íslenskra refsifanga er háður áfengi og
öðrum vímuefnum og margirhafaverið í áfeng-
ismeðferðum án þess að ná varanlegum bata
frá áfengissýki. Orðrétt segir Óttar: „íslenskir
afbrotamenn lendayfirleitt áglapstigum ísam-
bandi við neyslu áfengis eðaannarravímuefna,
fjármagna neyslu með innbrotum eða ávísana-
fölsunum, lendai líkamsmeiðingum eöamorð-
um ölvaðir, stela bílum í fylleríum og svona
mætti lengi telja. Aðalatriðið er, að harðsvírað-
ir glæpamenn sem fremja afbrot sin annað
hvort einungis i auðgunarskyni eða af hreinni
fúlmennsku eru, sem betur fer, sjaldséðir í
þessu landi.“ Óttar rekur einnig vitahring af-
brotamanna og bendir á að þegar fangar hafa
setið af sérafbrot, komi þeiroft fulliraf góðum
áformum út í lífið, en lúta lægra-haldi gegn
Bakkusi og séu óðar komnir út í afbrot að nýju.
Og þá er stutt í handtöku og refsivist og víta-
hringurinn heldur áfram. Það er sama hve mik-
ið fanginn er aðstoðaður félagslega, bæði
varðandi atvinnu og húsnæði; meðan ekki er
gripið inn í aðalvandamál hans, áfengisfíknina,
mun sagan alltaf endurtaka sig, að dómi Ótt-
ars. í greininni kemur einnig fram neysla fíkni-
efna í fangelsum landsins einkum á kannabis-
efnum og róandi lyfjum. Vísir að mótvægi er til
staðar, t.d. hefur Litla-Hraun starfrækt AA-
deildir og undirstrikar Óttar að möguleiki
þeirrafangasem hafaverið allsgáðirá refsitím-
anum sé mun meiri þegar út í lífið er komið, en
þeirra sem neytt hafa fíkniefna meðan þeir af-
plánuðu dóminn.
Ottar Guðmundsson hefur haldið reglulega
fyrirlestra um áfengis- og vímuefni á Litla-
Hrauni og vinnur daglega við meðferð áfengis-
og vímuefnasjúklinga að Vogi. Hann gerþekkir
þau vandamál sem hann skrifar um. Hugmynd-
ir hans til lausnar á vandamálum afbrota og
vímuefnanotkunar eru mjög athyglisverðar:
„Mín tillaga er sú að fangelsin verði deilda-
skipt, þannig að komið verði upp deild innan
t.d. Litla-Hraunssem rekin verði í samstarfi við
meðferðarstofnanir fyrir áfengissjúka. Á slíkri
deild yrði mikíl áhersla lögð á AA-fundi sem
yrðu á hverjum degi. Fangar yrðu að sækja um
að komast á slíka deild en það ætti einnig að
verða eftirsóknarvert þar sem frammistaða
manna í áfengisprógramminu yrði lögð til
grundvallar þegar metið yrði hvort stytta ætti
refsivistina. Slík deild yrði auðvitað algjörlega
laus við öll vímulyf og mjög hart tekið á brotum
í því sambandi."
Hugmyndir Óttars á deildaskiptum fangels-
um eiga rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna
þar sem slíkt fyrirkomulag hefur reynst mjög
vel. Þeir fangar sem hafa fengið að vera í friði
fyrir vímuefnum í fangelsum og unnið að al-
vöru að áfengis- og fíkniefnavanda sínum með
aðstoð sérhæfðra manna við meðferðarstofn-
anir, hafi orðið betri og hæfari einstaklingar
þegar fangelsishliðin lokast að baki þeim og
lífið tekur við. Það er vonandi að þessar rót-
tæku hugmyndir í fangelsismálum nái eyrum
ráðamanna sem fara með dóms- og félagsmál
á íslandi.
Sendill óskast
Utanrikisráðuneytið óskar að ráða röskan og
áreiðanlegan ungling til sendiferða, hálfan eða
allan daginn.
Nánari upþlýsingar eru veittar i afgreiðslu ráðu-
neytisins.
Utanrikisráðuneytið
Jóhanna Slguröardóttlr
Margrét Helnrakadóttlr
Gréta Aöalsteinsdóttir
Lira V. Júllusdóttlr
Rannveig Gudmundsdóttir
Guðrún Ólafsdóttlr
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur opinn stjórnmálafund, fimmtudaginn 19.
mars í Alþýðuhúsinu v/Strandgötu, með efstu
konum á lista flokksins í Reykjavíkur og Reykja-
neskjördæmum. Kl. 20.30.
Flutt verða stutt ávörp og fyrirspurnum svarað.
Fundarstjóri verður Gylfi Ingvarsson.
Allir velkomnir
Stjórnin
Rás 2 útvarpar allan
sólarhringinn
Rás 2 útvarpar allan sólarhring-
inn um land allt frá og með 18.
marz n.k. Næturútvarp verður á
FM-kerfi Rásar 1 og Rásar 2 auk
langbylgju, þannig að næturdag-
skráin mun berast til alls landsins
og næstu miða. Útvarpsráð sam-
þykkti á fundi sínum sl. miðviku-
dag tillögur um breytta dagskrá
Rásar 2.
Starfsemi Rásar 2 hófst 1. desem-
ber 1983 og var þá útvarpað í sex
klukkustundir virka daga með hlé-
um og samtengingu við Rás 1. Til-
drögin voru þau að dagskrá Rásar 1
hafði með árunum orðið æ fjöl-
breyttari og lengri. Með breyttum
þjóðfélagsháttum og sífellt aukn-
um kröfum um dagskrárframboð
við hæfi sem flestra samfélagshópa
þótti einsýnt að skapa þyrfti rými
fyrir aukið dagskrárefni á annarri
rás.
Ríkisútvarpið hefur haft dag-
skrárstefnu og rekstur Rásar 2 til
endurskoðunar að undanförnu. í
tillögum að nýrri dagskrá koma
fram margvísleg kröftug og
skemmtileg nýmæli. Aðaláherzla
verður eftir sem áður Iögð á flutn-
ing léttrar tónlistar í fjölbreyttu úr-
vali, fréttir og fréttatengda þætti,
dægurmálaumræðu og íþróttir.
Með hagræðingu í rekstri verður
unnt að lengja dagskrána verulega,
eða í sólarhringsútsendingu, án
mikils aukakostnaðar. Þjónustavið
hlustendur í öllum landshlutum
verður aukin og ennfremur munu
breytingarnar styrkja stöðu Rásar 2
sem auglýsingamiðils í samkeppni
við aðrar útvarpsstöðvar.
Sérstakur vinnuhópur innan Rík-
isútvarpsins hefur gert tillögur að
breyttri dagskrá Rásar 2. í honum
starfa Jón Örn Marinósson, tónlist-
arstjóri, Friðrik Páll Jónsson, vara-
fréttastjóri, Ingólfur Hannesson,
íþróttafréttamaður og Ólafur Þórð-
arson, tónlistarfulltrúi. Bogi
Ágústsson, sem nýlega tók við
starfi fulltrúa framkvæmdastjóra
hljóðvarps, hefur einnig unnið að
skipulagsbreytingunum.
- Hafn vinn Verk Nýla Verk Yfirl, afhe gegr sam xT'— Hafnarfjarðarbær malbikun arfjarðarbær leitar tilboða í eftirfarandi malbiks- u sumarið 1987: hiuti 1: gnir, malbikun gatna og göngustfga. iluti 2: agnir, viðhald á slitlögum gatna. Útboðsgögn verða nt á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á a stað þriöjudaginn 24. mars kl. 11.
Lokað
Lokað verður eftir hádegi ( dag þriöjudaginn 17.
mars, hjá Rafmagnseftirliti rikisins, Síðumúla 13,
vegna jarðarfarar dr. Jakobs Gíslasonar, fyrrver-
andi orkumálastjóra.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
t
Alúðarþakkir sendum við þeim fjölmörgu, sem sýndu
Bjarna Vilhjálmssyni,
Á mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
«I3EB'°AR
fyrrverandi þjóðskjalaverði
virðingu sfna og okkur samúð og hlýju við andlát hans og
jarðarför.
Kristín Eiriksdóttir,
Kristín Bjarnadóttir, Halldór S. Magnússon,
Elísabet Bjarnadóttir, Jón H. Stefánsson,
Eiríkur Bjarnason, Guðrún Hauksdóttir,
Vilhjálmur Bjarnason, Auður María Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og systkini hans.