Alþýðublaðið - 17.03.1987, Side 4
alþýðu-
blaöið
Þriðiudagur 17. mars 1987
Alþýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Utgefandi: Blart hf.
Ritstjórar: Arni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor-
valdsson og Jón Daníelsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot Alprent hf„ Ármúla 38
Prentun: Blaöaprent hf„ Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er681866
Reykingar eða
— íBandaríkjunum hefur barátta gegn reykingum
þegar skilað miklum árangri. Yfirvöld setja reglur
um hert viðurlög. Tóbaksframleiðendur eru ugg-
andi um sinn hag.
vinnuna
Reyklaust svœði í bandarískum banka. Starfsfólki eru settir úrslitakostir.
Starfsfólk tóbaksframleiðslufyrirtœkjanna þarf bráðlega að leita sér að annarri vinnu. Eða
hvað?
í 111 ár hefur tóbaksbærinn
Winston—Salem í North Carolina-
fylki í Bandaríkjunum verið ekta
fyrirtækisbær, fyrir tilstilli stærsta
skattgreiðandans þar, tóbaksfram-
leiðandans R.J. Reynolds. Þekkt-
ustu merkin, „Winston“ og
„Camel“ voru ekki aðeins sígarett-
ur, heldur i og með hluti af banda-
rísku goðsögninni. Höfuðstöðvar
fyrirtækisins, 20 hæða skýjakljúf-
ur gnæfir við himin og öll vehnegun
bæjarins byggist á þeirri starfsemi
sem er rekin þar. Án Reynolds-fjöl-
skyldunnar væri þar enginn golf-
völlur, enginn háskóli, engin symf-
óníuhljómsveit.
En nú hefur orðið breyting á.
Erfingi fjölskyldufyrirtækisins,
Patric Reynolds, 37 ára leikari, hef-
ur sagt skilið við tóbaksframleiðsl-
una og hefur gengið til liðs við þá
sem berjast hvað harðast gegn reyk-
ingum. I stað tóbaksframleiðslunn-
ar hefur verið hafin matvælafram-
leiðsla í stórum stíi.
Bandarískir tóbaksframleiðend-
ur hafa ástæðu til að vera uggandi
um framtíðina og þá er af sem áður
var. Alls staðar er vaxandi mótstaða
gegn þessari einu tegund neyslu-
varnings sem er rækilega merkt
með viðvörunum unt skaðsemi vör-
unnar og hugsanlega sjúkdóma eða
jafnvel dauða sem afleiðing neysl-
unnar.
Heilbrigðisvarðhundar
Strax í upphafi þings lágu fyrir
fjölmörg frumvörp um takmarkan--
ir á tóbaksreikingum; allt frá tillög-
um um hærri skattlagningu og upp
í algert bann við tóbaksauglýsing-
um. Sú tillaga sem virðist eiga
mestu fylgi að fagna er um algert
bann við reikingum í flugvélum.
Reykingamenn hugsa með skelf-
ingu til þess hvernig heilbrigðis-
varðhundar fylkja nú liði í löggjaf-
arsamkundunni og þrengja kost
þeirra meira og meira.
í 23 fylkjum Bandaríkjanna bíða
lagafrumvörp um bann við reyking-
um í opinberum byggingum endan-
legrar afgreiðslu. 1450 borgum hef-
ur slíkt takmarkað bann þegar
komið til framkvæmda. Annars
staðar, þ.á.m. í New York og Los
Angeles verða atkvæðagreiðslur
um málið alveg á næstunni.
Nú þegar hafa reykingar sumra
ríkisstarfsmanna verið bannaðar,
nema á vissum svæðum. Það er
nærri þriðjungur ríkisstarfsmanna
sem verður að una því. Síðan í fyrra
hafa bandarískir hermenn orðið að
vera án tóbaks i vinnutímanum.
Stöðugt fjölgar þeim fyrirtækj-
um sem krefjast þess að starfsfólkið
reyki ekki á vinnustað. Fjölþjóða-
fyrirtæki eins og t.d. rafeindarisinn
Texas Instrument, kerfjast þess að
fá reyklaus svæði til afnota í skrif-
stofubyggingum erlendis.
Refsað fyrir reykingar
Þeir sem ekki þola við án tóbaks-
ins, verða ósjaldan að sæta refsing-
um. í höfuðstöðvum umhverfis-
verndaryfirvalda í Fíladelfíu fá
starfsmenn munnlegt tiltal við
fyrsta brot, skriflegt við það næsta.
Verði einhver uppvís að því að
brjóta bannið í þriðja sinn er hann
sendur í fimm daga launalaust
leyfi. Svo eru aðrir atvinnurekend-
ur sem ráða alls ekki reykingafólk
til starfa.
Fyrir mánuði síðan setti fyrir-
tækið USG Acoustical Products í
Chicago starfsmönnum sínum, 200
að tölu, úrslitakosti. Þeir sem ekki
yrðu hættir að reykja með vorinu,
yrðu reknir. Til að auðvelda þeim
átakið bauðst fyrirtækið til að
borga átta vikna dvöl á „afvötnun-
arstofnun“. „Það kemur að því að
reykleysi verður skilyrði fyrir þvi að
fá vinnu,“ segir forstjóri hjólbarða-
verksmiðjunnar Good Year.
Hert löggjöf varðandi reykingar
er mikill sigur fyrir ákveðna hópa
borgara, sem hafa árum saman bar-
ist fyrir rétti þeirra sem ekki reykja.
í Bandaríkjunum eru nálægt því
500 samtök, sem berjast gegn tób-
aksneyslu, sem skv. upplýsingum
heilbrigðisyfirvalda kostar 300.000
Bandaríkjamenn lífið ár hvert.
Andreykingamenn láta töluvert
að sér kveða og þeim hópum fjölgar
sem marka sér reyklaus svæði víðs
vegar.
Reykingar andfélagslegar
Landssamtök lækna gegn reyk-
ingum upplýsa jafnt stjórnvöld sem
hinn almenna borgara um tíðni
sjúkdóma og dauðsfalla af völdum
reykinga. Onnur samtök hafa aðrai
baráttuaðferðir, til dæmis það aé
breyta áletrunum á auglýsinga-
spjöldum meðfram þjóðvegum.
Slagorðinu „Winston — America’s
best“ er hiklaust breytt í „Winston
— America’s Death“ og fleira i
sama dúr.
1 Bandaríkjunum er meira að
segja hægt að græða peninga á þvi
að berjast gegn reykingum. Bar-
áttukonan Rita Eddison hefur
komið á fót ráðgjafamiðstöð í Bost-
on, sem vex og blómstrar. Þar eru
gerðar andreykingaáætlanir fyrir
fyrirtæki og veitt ráðgjöf um laga-
leg atriði.
Þótt allt gangi henni í haginn, tel-
ur hún ekki að hér sé um lífstíðarat-
vinnu að ræða. Svo vel hefur gengið
að útrýma reykingum af vinnustöð-
um að starfsemi sem þessi hlýtur
fyrr eða siðar að verða óþörf. Hún
hefur mikla samúð með þvi óláns-
ama fólki sem getur ekki losað sig
við þennan löst. Fram að þessu hef-
ur það þótt karlmannlegt og sexý að
reykja. Nú flokkast það undir and-
félagslegt athæfi.
Ekkert líkt „Ameríkuí6
í Moskvutíðindum (Moscow
news) birtast að jafnaði óraiangar
ræður eftir flokksleiðtoga Mikhail
Gorbatsjov og annað pólitískt efni.
En fyrir skemmstu var vakin þar
athygli á frétt í sunnudagsblaði
„The New York Times“, þar sem
sagt var frá sovésku sjónvarpsefni
sem hefur vakið mikla athygli vest-
an hafs að undanförnu. Þar stóð:
„Þið hafið séð þættina „Ameríka"
— komið niður á jörðina og sjáið
rétta mynd af lífi fólks í Sovétríkj-
unum“.
í febrúar gátu nálægt því 100
milljónir manna í Bandaríkjunum
og Kanada fylgst meij sjónvarpsút-
sendingunum, sem útvarpað var
um kerfi „Discovery-“ og
„Orbita“- sjónvarpsstöðvanna í
samvinnu við sjónvarps- og út-
varpsnefnd sovéska ríkisins.
Leitað var nánari fregna af þessu
framtaki hjá Viktor Khrolenko og
Jonathan Sanders, sem báðir höfðu
hönd í bagga með útsendingunum
af hálfu sjónvarpsstöðvanna.
Khrolenko vitnaði til orða
Gorbatsjov á blaðamannafundi
eftir leiðtogafundinn í Genf, þar
sem hann sagði það vera hlutverk
hins almenna borgara fremur en
stjórnmálamanna að leiðrétta
staðlaðar og rangsnúnar hugmynd-
ir um lönd og þjóðir. Þá var ákveð-
ið að láta ekki sitja við orðin tóm,
en hefja sýningar á þáttum um líf
og störf hins sovéska meðalborgara
í Bandaríkjunum.
Þættirnir hafa hlotið mikla at-
hygli og jákvæðar undirtektir
áhorfenda, sem hafa hringt hópum
saman tíl sjónvarpsstöðvarinnar,
lýst ánægju sinni og óskað eftir
meiru af sams konar efni. I kjölfar-
ið var skoðanakönnun hrundið.af
stað og spurt hvort hugmyndir
manna um Sovétríkin hefðu breyst
til batnaðar eftir að sýningar hóf-
ust. 90% þátttakenda svöruðu því
játandi, 10% neitandi.
Svo undarlega bregður við að
sýning þáttaraðarinnar „Ameríka",
sem er bandaríski draumurinn í
hnotskurn, hefur ýtt undir hin já-
kvæðu viðbrögð við sovésku sjón-
varpsefninu, að sögn Jonathan
Sanders hjá Harrimanstofnun há-
skólans í Colombia. Margar
mennta- og rannsóknastofnanir
hafa haft samband og beðið um
nánari upplýsingar og niðurstöður
skoðanakannana sýna að meiri-
hluti sjónvarpsáhorfenda óskar eft-
ir framhaldi á þáttunum.
í ráði er að fleiri sjónvarpsstöðv-
ar taki sams konar efni til sýninga á
með vorinu, m.a. í New York og
ennfremur er ráðgert að borgir í
Bandaríkjunum/Sovétríkjunum
skiptist á sjónvarpsefni af heima-
slóðum.
Þegar hefur verið gengið frá
samningi um sameiginlega útgáfu á
tónlistarefni bandarískra og
sovéskra popptónlistarmanna. Þar
koma þekktir tónlistarmenn við
sögu, sem hafa samþykkt að verja
hluta af ágóðanum til stofnunar á
Bandarísk-Bresk-Sovéskum sjóði
til styrktar ungum tónlistarmönn-
um í þessum löndum.
Borgarlæknir:
Farsóttir
Kvef, hálsbólga og lungnakvef
eru algengustu farsóttir í Reykja-
víkurumdæmi. í öðru sæti er iðra-
kvef. Þrifja sætið vermir svo inflú-
ensa af ýmsum toga, en hettusótt er
í því fjórða. í fimmta sæti er svo
Chlamydiae. En hvað er nú það? Jú,
sjúkdómur sem smitast við samfar-
ir, ekki ósvipaður lekanda.
í frétt frá borgarlækni eru taldar
upp þær farsóttir sem helst hrjá
borgarbúa, en auk þeirra sem að
framan eru taldar mætti nefna
streptokokkahálsbólgu og skarlat-
sótt, lungnabólgu, þvagrásarbólgu,
lekanda, lúsasmit (þar með talin
flatlús), hlaupabólu og maura-
kláða. Ókræsileg upptalning.
Kvef, hálsbólga og lungnakvef
eru þó langalgengustu farsóttirnar.
Þau tilfelli eru 739.