Alþýðublaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 18. mars 1987
11
U tanríkisráðherra
Noregs til íslands
Dagana 24,—25. þessa mánaðar
mun Thorvald Stoltenberg, utan-
ríkisráðherra Noregs, koma í opin-
bera heimsókn til Islands í boði
Matthíasar Á. Mathiesen, utanrík-
isráðherra.
Stoltenberg mun eiga viðræður
við Matthías Á. Mathiesen um al-
þjóðamál og samskipti íslands og
Noregs. Þetta er fyrsta utanlands-
ferð hans í embætti utanríkisráð-
herra Noregs.
Thorvald Stoltenberg er fæddur í
Osló 1931. Hann lauk lagaprófi
1957 og gekk í norsku utanríkis-
þjónustuna 1958. Auk starfa í ráðu-
neytinu gegndi hann störfum í ýms-
um sendiráðum Noregs. Hann var
alþjóðaritari Alþýðusambands
Noregs 1970—1971.
Hann var aðstoðarutanríkisráð-
herra á árunum 1971—1972 og aftur
1976—1979. Hann hefur einnig
gegnt embættum aðstoðarvarnar-
málaráðherra og aðstoðarvið-
skiptaráðherra.
Varnarmálaráðherra var hann á
árunum 1979—1981. Hann var
skipaður utanríkisráðherra 9. mars
s.l. eftir fráfall Knut Frydenlund.
Thorvald Stoltenberg er kvæntur
Karin Heiberg aðstoðarviðskipta-
ráðherra.
Thorvald Stoltenberg utanríkisráð-
herra Noregs.
HVAÐ
MEÐ ÞIG
—. VIÐEIGUM
SAMLEIÐ
Félag höfunda frceðirita og kennslugagna:
Mótmælir mismunun höfunda
Stjórn Launasjóðs rithöfunda
hefur nýlega úthlutað starfslaunum
til 81 höfundar, alls 11.9 milljónum
króna. Eins og undanfarin ár fengu
örfáir fræðiritahöfundar starfs-
laun.
Almennur félagsfundur í „Hag-
þenki — félagi höfunda fræðirita
og kennslugagna" haldinn 12. mars
hefur mótmælt þeirri starfsreglu
sem enn virðist beitt af stjórn sjóðs-
ins og hefur verið orðuð þannig í
bréfi til félagsins að fylgt sé „ . . .
þeirri meginreglu að veita ekki fé til
vísindarita eða fræðirita . . í‘ í
ályktun sem Alþýðublaðinu hefur
borist frá Hagþenki segir: „Slík
starfsregla samræmist ekki 3. grein
laga um sjóðinn þar sem tekið er
fram að „Rétt til greiðslu úr sjóðn-
um hafa íslenskir rithöfundar og
höfundar fræðiritaí1 Hún samræm-
ist heldur ekki sanngirniskröfum
vegna þess að sé slíkri reglu beitt
hafa höfundar alþýðlegra fræðirita
svo til enga möguleika á styrk til
starfa úr neinum opinberum sjóði
og þeim að því leyti gert örðugra að
helga starfinu krafta sína en öðrum
íslenskum höfundum. Slík mis-
munun höfunda samræmist heldur
ekki ábyrgri menningarstefnu þar
sem þróun íslenskrar tungu og
menningar er ekki síst háð því
hversu góð verk eru skrifuð um þau
fræði sem þarf að fjalla um á ís-
lensku, s.s. sögu, tungu, listir og
bókmenntir þjóðarinnar, menntun,
atvinnulíf, stjórnmál og tækni eða
náttúru landsins.
Fundurinn fagnar því að Launa-
sjóður rithöfunda fékk til úthlutun-
ar nokkru meira fé en undanfarin ár
og væntir þess að sjóðurinn verði
Jóhanna Sigurðardóttir
Gréta Aðalsteinsdóttir
Léra V. Júiiusdóttir
'/T8wæPtt
Margrét Heinreksdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Elín Harðardóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur opinn stjórnmálafund, fimmtudaginn 19.
mars í Alþýðuhúsinu v/Strandgötu, með efstu
konum á lista flokksins í Reykjavíkur- og Reykja-
neskjördæmum. Kl. 20.30.
Flutt verða stutt ávörp og fyrirspurnum svarað.
Fundarstjóri verður Gylfi Ingvarsson.
Allir velkomnir
Stjórnin
efldur enn frekar með því að stofn-
uð verði ný deild innan hans ætluð
fræðirithöfundum og þar með
verði tryggt að sjóðurinn starfi í
samræmi við þau lög sem um hann
gilda“
Lausar stöður
Við námsbraut [ hjúkrunarfræði við læknadeild Há-
skólaíslandseru lausartil umsóknareftirtaldarstöður:
1. Staða dósents I hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Hjúkrun aldraðra.
2. Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Hjúkrun sjúklinga á handlækninga- og lyflækninga-
deildum.
3. Staða lektors ( hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Fæðingar- og kvenhjúkrun.
4. Staða dósents í hjúkrunarfræði, 50% staða. Aðal-
kennslugrein: Hjúkrunarstjórnun.
5. Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði, 37% staða
til eins árs.
6. Staða lektors ( hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðal-
kennslugrein: Geðhjúkrun.
7. Staða lektors í hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðal-
kennslugrein: Barnahjúkrun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vlsindastörf um-
sækjenda, ritsmlðarog rannsóknir, svoog námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavlk, fyrir 15. aprll n.k.
Menntamálaráðuneytið,
16. mars 1987.
Utboð
Tilboð óskast í viðhald utan húss, húsi Rannsókn-
arstofnana Sjávarútvegsins að Skúlagötu 4. Út-
boðsgögn verða afhent á Teiknistofunni Óðins-
torg, Óðinsgötu 7 gegn 3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
31. mars ki. 11 að viðstöddum bjóðendum.
Kosningaskrifstofur
Alþýðuflokksins
um landið
REYKJANES
Skrifstofan er að Esjugrund 40, Kjalarnesi.
Opin daglega frá kl. 10—11. Slmi 666004.
Kosningastjóri Hulda Ragnarsdóttir.
Skrifstofan er að Hamraborg 14, Kópavogi.
Opin daglega frá kl. 13—19, laugardaga og sunnudaga frá kl.
13— 17. Sími 44700.
Kosningastjóri Guðrún Emilsdóttir.
Skrifstofan er að Strandgötu 32, Hafnarfirði.
Opin daglega frá kl. 17—19 og 20.30—21.30 og laugardaga kl.
14— 17. Simi 50499 — 51506 — 51606.
Kosningastjóri Elln Harðardóttir.
Skrifstofan er að Hafnargötu 31, Keflavik.
Opin daglega frá kl. 14—19. Slmi 92-3030.
Kosningastjóri Haukur Guðmundsson.
VESTURLAND
Skrifstofan er að Vesturgötu 53 (Röst), Akranesi.
Opin daglega frá kl. 16—19, fyrst um sinn laugardaga frá kl.
14—19. Slmi 93-1716.
Kosningastjóri Sigurbjörn Guðmundsson.
NORÐURLAND—EYSTRA
Skrifstofan er að Strandgötu 9, Akureyri.
Opin daglega frá kl. 9—17. Slmi 96-24399.
Kosningastjóri Jón Ingi Cesarsson.
AUSTURLAND
Skrifstofan er að Skrúð, Fáskrúðsfirði.
Opin daglega frá kl. 20—22 fyrst um sinn. Sími 97-5445.
Kosningastjóri Rúnar Stefánsson
Skrifstofan er að Bláskógum 9, Egilsstöðum.
Opin daglega frá kl. 9—24. Slmi 97-1807.
Kosningastjóri Karl Birgisson.
SUÐURLAND
Skrifstofan er að Heiðarvegi 6, Vestmannaeyjum.
Opin daglega frá kl. 17—19 fyrst um sinn. Slmi 98-1422.
Kosningastjóri Þorbjörn Pálsson.
Fleiri kosningaskrifstofur Alþýðuflokksins verða opnaðar á
næstu dögumog verðurþeirragetið nánarsíðar. Frekari upp-
lýsingar um nýjar kosningaskrifstofur veitir kosningamið-
stöð Alþýðuflokksins að Sfðumúla 12. Slmi 689370.