Alþýðublaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 1
alþýðu- Fimmtudagur 26. mars 1987 59. tbl. 68. árg. Helena heim „Það er ekkert nýtt að frétta af sérframboðsmálum ennþá“, sagði Helena Albertsdóttir við blaðamann Alþýðublaðsins síðdegis í gær. „Þaö er hugur í okkur öllum. Þetta er hrottaleg aðför að Aibert, sérstaklega í Ijósi ummæla formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hann viðhafði á Stöð 2. En það er allt klárt, ef á þarf að halda“, sagði Helena Albertsdóttir. Hulduherinn stendur nú grár fyrir járnum og tilbúinn í baráttu. Hvernig hann hyggst beita sér er ekki vitað enn, en stóra spurningin hlýtur að vera sú hvort Albert fer í sérframboð eða ekki. Ásgeir Hannes Eiríksson: Þrýstingurinn vex“ en héðan í frá verður ekkert gert án samráðs ii * 99 99 við fjölskyldu Alberts „Hlutir gerast hratt núna. Ég hef verið á fundum með mörgum og það er Ijóst að Albert Guðmunds- son er að fá miklu meiri vigt sem pólitíkus út um allt land en kannski áður hefur verið. Það hefur verið litið á Albert sem kjördæmisþing- mann fyrir Reykjavík hingað til, en nú eru menn farnir að horfa til hans á landsvísu“, sagði Ásgeir Hannes Eiríksson, einn helsti stuðnings- maður Alberts Guðmundssonar í samtali við Alþýðublaðið í gær. „Helena er komin til landsins og við erum mjög hressir með það, hún er bæði góður skipuleggjandi og harðdugleg. Hún er að setja sig inn í málin núna, en Helena hefur þó vissulega fylgst vel með gangi mála að utan. Hingað kemur hún þó ekki síst til þess að hitta fjölskyldu sína. Héðan í frá verður ekkert gert nema í samráði við Albert og fjöl- skyldu hans. Ég veit ekki hvað hægt er að kalla málið fram til þessa: Harmleik kannski fyrst og fremst. Þetta virðist ekki eiga neitt skylt við pólitík lengur, enda eru allar al- mennar reglur nú þegar brotnar á Albert Guðmundssyni. Því er lýst yfir strax, að hann komi ekki til mála sem ráðherra fyrir Sjálfstæð- isflokkinn eftirleiðis, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra lýs- ir því yfir í útvarpsviðtali í gær, að Albert muni segja af sér áður en Al- bert hefur tekið ákvörðun sjálfur, o.n. Þrýstingurinn vex og það er greinilega mikill áhugi úti á lands- byggðinni fyrir því að Albert bjóði fram sér, en við bíðum og sjáum hvað setur“, sagði Ásgeir Hannes Eiríksson. Bjarni P. Magnússon, kosninsastjóri A Ibvðuflokksins: Fundir um allt land Svo er fyrsti útvarpsfundurinn í kjördæmum á sunnudag kl. 20.00 á Hvolsvelli og það eru Sunnlending- ar sem ríða þar á vaðið. Útvarpað verður á rás 1 í tvo klukkutíma, þannig að Sunnlendingar sem ekki komast á fundinn geta hlustað á frambjóðendur Alþýðuflokksins á Suðurlandi í útvarpi en þeir eru Magnús H. Magnússon, Elín Alma Artúrsdóttir og Þorlákur Helga- son. „í þessari viku förum við Al- þýðuflokksmenn um allt land og ætlum að verða fyrstir islenskra stjórnmálaflokka til þess að koma fjórum konum á þing. Út á þaö gengur öll okkar vinna þessa vik- una. Það var fundur á Höfn í Hornafirði í fyrradag sem tókst mjög vel. Stórfundur verður á laug- ardaginn kemur í Hollywood kl. 14.00, en þar munum við bjóða upp á barnapössun og skemmtiatriði og við hvetjum alla til að koma á þenn- an fund“, sagði Bjarni P. Magnús- son, kosningastjóri Alþýðuflokks- ins í samtali viö blaðið í gær. „Eins er að koma úr prentun bæklingur sem við munurn dreifa á vinnustaði. Þá er fundur í Garðabæ í dag í Kirkjuhvoli. Þar munu tala Jón Sigurðsson, Kjartan Jóhanns- son, Rannveig Guðmundsdóttir og Bjarni Sæmundsson, en hann er fulltrúi Garðbæinga á listanum. Þá er einnig fundur á ísafirði á laugardaginn kl. 15.30 í Uppsölum, Súðavík á sunnudaginn kl. 13.30 í Félagsheimilinu, en sérstakur gest- ur á fundunum fyrir vestan verður Jón Sigurðsson. Á blaðamannafundi i gær sagð- ist Thorvald Stoltenberg, utanrikis- ráðherra Noregs, vonast til að ís- lendingar yrðu með í embættis- mannanefnd um kjarnorkuvopna- laus Norðurlönd. Stoltenberg sem hér er í opinberri heimsókn hefur lagt ríka áherslu á að samkomulag náist meðal Norðurlandanna um þetta mál. Fundur utanríkisráð- herra Norðurlanda hófst í Reykja- vík klukkan 16.00 í gær og var hon- um framhaldið i morgun og ráðgert að honum Ijúki fyrir hádegi í dag. Þannig er dagskráin fyrir yfir- standandi viku, sagði Bjarni P. Magnússon, kosningastjóri Al- þýðuflokksins. Stoltenberg átti einkaviðræður við Matthías Á. Mathiesen á þriðjudag er hann kom til landsins. Á blaðamannfundinum í gær sagð- ist Stoltenberg vera bjartsýnn eftir þær viðræður. Aðspurður um hvort hugsanleg afstaða íslendinga gegn hugmyndinni um embættismanna- nefnd, gæti haft áhrif á samskipti þjóðanna og samvinnu Norður- landaþjóða, sagðist Stoltenberg ekki vilja svara. Hann sagðist ekki ganga út frá öðru en íslendingar yrðu með. Embœttisnefnd um kjarnorkuvopnalaus Norð- urlönd:______________________ Stoltenberg bjartsýnn Peningaþensla vegna húsnæðislánakerfisins? Útlán jukust meira en innlán fyrstu mánuði ársins. Heildaraukning útlána til einstaklinga var um 800 milljónir á sama tíma og heildar- aukning til sjávarútvegs var 1100 milljónir. Fyrstu mánuði ársins hafa út- lán vaxið meira en innlán. í janúar og febrúar jukust innlán um 5°/o meðan útlán jukust um 7°Io. Á síðasta ári varð hins vegar mjög jákvæð þróun á peningamark- aðnum þegar innlán að meðtöld- um vöxtum jukust um 33.4% á sama tíma og útlán jukúst um 20.9%. Lítið hefur verið fjallað um þessa þróun fyrstu mánuði ársins og þeir hagfræðingar sem Al- þýðublaðið talaði við sögðu, að erfitt væri að draga of miklar ályktanir. Þeim bar hins vegar saman um að þessar tölur gæfu tilefni til að farið verði með gát í stjórnun peningamála, þannig að komið verði í veg fyrir ástand pen- ingaþenslu sem leiði til enn meiri verðbólgu. Hagfræðingur hjá Seðlabank- anum sagði í samtali við Alþýðu- blaðið, að ásókn einstaklinga í út- lán hefðu aukist mikið, fyrstu mánuði ársins, vegna nýja hús- næðislánakerfisins og lánsloforð- anna sem gefin hafa verið út en koma ekki til framkvæmda fyrr en síðar á árinu eða á næsta ári. Fólk hefur verið hvatt til að leita til viðskiptabanka með fyrir- greiðslu þegar lánsloforð liggur fyrir. Heildaraukning útlána fyrstu tvo mánuðina var um 4,5 milljarð- ar þar af voru um 800 milljónir til einstaklinga. Útlán til fyrirtækja voru um 2,2 milljarðar, þar af eru útlán til sjávarútvegs stærsti liður- inn, eða um 1100 milljónir. Til verslunar var aukningin 700 mill- jónir og 600 milljónir til iðnaðar. Útlán til sjávarútvegs drógust verulega saman í fyrra þar sem mikið var gengið á birgðir i land- inu. Birgðir hafa hins vegar aukist aftur eins og oftast er á þessum árstíma þegar vertíð er í gangi. Út- lán til sjávarútvegs aukast því verulega á þessum árstíma. Aukningin til einstaklinga er hins vegar um 7% á fyrstu tveim- ur mánuðunum, sem þýðir um 48% aukningu á ársgrundvelli. Útlán til einstaklinga voru um 11 milljarðar í byrjun árs. Bent er á að vafasamt geti verið að byggja á slíkum hreyfingum á stuttu tíma- bili vegna þeirrar óreglu sem myndast i útlánum vegna hús- næðislánakerfisins. Útlán til einstaklinga hafa aukist um 7% fyrstu mánuði ársins. Aukningin þýðir um 48% á ársgrundvelli. Hagfrœðingur hjá Seðlabankanum sagði að aukningin stafaði fyrst og fremst af meiri ásókn einstaklinga eftir útlánum, vegna útgefinna lánsloforða Húsnœðisstofnunar. alþýðu- inRT.ir. SKAGINN — VESTURLAND Alþýðublaðið á Vesturlandi fer inn á hvert heimili í kjördæminu. Auglýsing þin kemur því fyrir sjónir allra íbúa Vesturlands ef hún birtist í Alþýðublaðinu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.