Tíminn - 22.07.1967, Síða 9

Tíminn - 22.07.1967, Síða 9
LAUGA&DAGUR 22. júli 1967. Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkv«stndastjóri: Kristján Bet.ediktsson, Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsaon (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur Bankastrætl 7 Af- greiðslusími 12323 Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Norrænt æskulýðsár Einn mikilvægur þáttur arangurs af norrænu sam- starfi kemur betur og betur í Ijós með hverju sumrinu sem líður. Hann er tíðari og meiri samfundir norræns fólks, og árangurinn frá sjónarhóli íslendinga er ekki aðeins sá, að þeir geri tíðreistara til annarra Norður- landa, heldur fer þeim Norðurlandabúum sífjölgandi, sem hingað koma. Þetta er auðvitað einnig tímanna tákn um stórbættar samgöngur. Dagana 1.—8. ágúst í sumar verður haldið hér eitt- hvert fjölmennasta norrænt mót, sem hér hefur verið háð. Það er norræna æskulýðsmótið, sem haldið er á vegum norrænna æskulýðssamtaka. Þetta mót er sérstaklega ánægjulegt fyrir það, að það sýnir aukna áherzlu á þátttöku unga fólksin,- í norrænu samstarfi, en bæði starf norrænu félaganna og Norðurlandaráðs hefur um of verið í höndum eldra fóiks og við það miðað, og forysta æskumanna verið þar allt of lítil. Þetta þarf að breytast, því að finni æskan ekki sjálfa sig að einhverju leyti í þessu samstarfi, nær það aldrei viðhlítandi ár- angri, verður aðeins barátta fyrir góðri en týndri hugsjón. Nú er reynt að kalla a æskuna ■ norrænt samstarf með því að efna til norræns æskulýðsárs. Á þetta æskulýðsmót i sumar munu koma hingað allt að 300 manns, flest fólk á aldnnum 20—30 ára. Þetta fólk mun leggja sig fram um að kynnast íslenzkum jafn- öldrum, íslenzkum menningarháttum, sögu þjóðarinnar og nútímabúskap, og síðast en ekki sízt landinu sjálfu. Mót þetta er undirbúið af dugnaði og forsjá hér, séð fyrir fræðslu og ferðum, tundum og kynningu, en þó nær það alls ekki tilgangi sínum nema með mikilli og virkri þátttöku íslenzks æskufoiks a sama reki. Þess vegna er ástæða til þess að hvetja íslenzkt æskufólk til þátttöku í dagskrá mótsins, hjáipsenn við gestina og leiðbeiningum. Slík kynni eru 1 senn góð þjónusta við þjóðina, gestina og norræna samvinnu, og kynning við gott fólk verður okkur sjálfum óblandin ánægja. Eitt hið bezta, sem ungt fólk með góðar heimiilsástæður, getur gert í þessu sambandi er að bjóða norrænum jafn- aldra til heimilisdvalar meðan mótið stendur. Forstöðu- menn mótsins hér hafa óskað eftir slíku liðsinni, og ástæða til þess að hvetja fólk, ?em þetta getur, til þess að verða við beiðninni. Kvikmyndir Ósvalds Það er margra dombærra rnanna mál, ekki aðeins íslenzkra, heldur og erlendra ærkunnáttumanna, að Surtseyjarmynd Ósvaldar fínudsen með hinni sérkenni- legu nýtízkutónlisi Magnúsar Rióndals Jóhannssonar sé mjög gott verk og raunar aívek. þegar iitið er á að- stæður. Sú mynd hefur og fengið verðuga viðúrkenn ingu erlendis Nú hefur Ósvaldur gert aðra neimildarkvikmynd um hverí, og hefur sú rnvna fengið góða vjður kenningu á kvikmyndavikn Evmpuráðs oe dreifist nú um Evrópu skólum og fræðsiustofnunum Ósvaldur Knudsen er ein.srakur áhugamaður um kvikmyndagerð, þótt ekki sé sermenntaðu) á þvi sviði Reynslan og áhuginn hafa nins vegar orðið honum góðir kennarar. Ósérplægni hans oe iugnaður hafa borið ár- angur, sem við erum pll í mikilli þakkarskuld fyrir. __TÍMINN______________________________________9 -----------------------------------------------j Joseph Alsop: Upplausnin í Kína magnast með hverjum deginum sem líður Framvindan bar kann að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu styrjaldar- innar í Vietnam HETJUMÁLVERK AF MAO FORMANNI. Freistandi er að vara menn við að líta upp og draga á- lyktanir af því, sem við aug- um blasir í Kína. Á ýmsu velt ur og hæpið að auðið verði að álykta rétt. Með hverjum deginum sem líður auikast þó horfurnar á því, að alger upp- lausn í Kína kommúnistanna ráði að verulegu leyti úrslit- um um niðurstöðu styrjaldar- innar í Vietnam. Naumast þarf að fara mörg um orðum um útsikýringu þeirra áhrifa, sem alger upp- lausn í „hinu víðáttumikla Kína“ handan landamæranna hlýtur að hafa á allan gang mál í Norður-Vietnam. Hitt er miklu meira í óvissu, hverja stefnu rás viðburðanina í Kina sjá-lfu kunni að taka í framtíðinni Enginn er þess umkominn, að segja fyrir, hvort auðið verði eða ekki að halda þar uppi einihvers konar mála- myndastjórn uim ófyririsjáan- lega framtíð. Æ fleiri fróðir menn leiða þó getur að því, eða allt taumhald stjórnarvalda verði að heita má horfið áður en þetta ár er liðið í aldanna skaut. Og margt bendir tii að svo fari. í fyrsta lagi virðist orðið langlaegt í Kina undangengn- ar vikur að járnbrautarkerfið bregðist gersamlega hlutverki sínu hér og hvar. Verkföll og borgaraleg átök virðast ráða hér mestu um. Enn hefir eng- in flutningastöðvun staðið lengur en örfáa daga í senn en undangenginn mánuð hefir aldrei verið um minna en tvær stöðvanir að ræða í senn á mikilvægustu jámibrautar- leiðunum. Sú ógnun vofir hér bersýnilega yfir, að þessi ó- lestur magnist af sjálfu sér. í öðru lagi hefir komið til opinberra átaka borgaranna innbyrðis i öðru hverju fylki i Kína síðustu þrjár vikurnar. Ólgan hefir smátt og smátt magnazt og orðið að blóðug- um átökum. e‘n hjaðnað svo aftur. „Byltingarsinnar" hafa barizt inbyrðis, eða við and- stæðinga Maos, og herinn hefir tekizt á við fylkingarnar sitt á hvað. eítir því um hvaða fylki er að ræða i það og það sinnið. Óeirðirnar virðast einnig orðnar landlægar eins og járnbrautarstöðvanirnar, og þessi framvinda gæti ekki síð- ur magnast af sjálfu sér. í þriðja lagi virðist öll borg- araleg stjórn farin út um þúf- ur i tólf fylkjum í Kína. Þjóð frelsisherinn gegnjr þar þeirri stjórnsýslu. sem borgaraleg vfirvöld annast að dllum jafn- aði. En þarna blasir einmitt við torskilin gáta. Svo undar lega bregður við. að herinn virðist búa við samfellda innr' skipan og sæmilega einingu Þó fylgir nerinn í einu fyík- ingu Mao að málum, í öðru er hann á móti Mao og ef til “ili blut.laus í þ’-iðja fvlkinu og keppir að þvi marki einu, að halda uppi einihvers konar reglu. í fjórða lagi hefir komið til óeirða og alvariegra átaka í allmörgum hinna stærri.borga í landinu og sérstaka athygli vekur, að sú hefir orðið raun- in í Shanghai, en talið var, að Mao-istar hefðu tekið þar við völdum og framkvæmt nauð- synlegar „Hreinsanir". Óeirðir í Wuihan gengu það langt fyrir skömmu, að hinni frægu brú yfir Yangtse — einu brúnni yfir þetta stórfljót neð anvert, — var lokað um tíma, að því er virðist til að að- skilja stríðandi fylkingar í borgunum tveimur. Með hverri vikunni, sem líður, virðist æ minna .almennt vitað um, hvað er að gerast, einkum vegna þeirra ofbeldis- iaðgerða, sem gripið hefir verið til í Peking gegn jap- önskum stjómarrindrekum og fréttamönnum, en þeir lásu áður hinar endalausu, upp- límdu tilkynningar og greindu umheiminum frá efni þeirra. Og þetta er í sjálfu sér ugg- vænlegur fyrirboði. Það bend- ir til þess að frá þvi megi skýra erlendis. Hafa verður hliðsjón af þessu almenna ástandi þegar fregnir berast um nýja tilraun Maos og fylgifiska hans, til þess að lægja öldumar, hefta útbreiðslu upplausnarinnar og koma á ein'hverri reglu að nýju. Slíkar tilraunir hafa áður verið gerðar. Chou En-lai var til dæmis hvattur til þess í vetur, að reyna að koma á einhvers konar málamiðlun, svo *ð leiðtogar mennin.garbylting*ar innar gætu tengið ráðrúm til að átta sig. En ekki voru nema nokkrar vikur liðnar þegar að hafnar voru grimmilegustu á- rásir a teiðtogana í þjóðstjórn Chous. Varaforsætisráðherrarn ir voru helztu aðstoðarmenn hans, en nú er sagt, að þeir hafi allir með tölu orðið al- varlega fyrir barðinu' á „Rauð- um varðliðum" og fleiri kúg- unaröflum. Svo var gripið til þess sem önþrifaráðs, að senda þjóð- frelsisherinn fram til átaka. Nú starfar herinn eftár að minnsta kosti fjórum loka- fyrirskipunum, sem allar hljóða um að „koma á reglu að nýju, hvað sem það kosti" Þar við bætast svo enn fleiri jafn eindregnar skipanir, sem allar ganga út á það, að ekki megi „með neinu móti stemma stiigu við menningarbylting- unni“, en hún er frumorsök allra óeirðanna. Kína hefir í hartnær tvö ár gengið líkt og eins konar dragspil, ýmist verið dregið út til upplau'snar eða þrýst saman að röð og reglu á ný. En sérhver sundurdráttur hef- ir nálgast algera upplausn, ör- lítið meira en hinn næsti á un<jan, og hver nýr samþrýst- ingur að röð og reglu hefir reynst erfiðari og áhrifaminni en hinn sáðasti. Fregnirnar frá Peking gefa manni helzt til kynna, að Mao og nánustu samstarfs- menn hans hamist við að gefa þjóðinni fyrirskipanir, sem hún hlusti alls ekki á. Klíka Maos jg aðrar leyfar fyrri forystu virðast berjast heiftar- lega, bæði með slægð og harð fylgi um völdin, sem verða æ síður eftirsóknarverð með hverjum deginum, sem líður. .Svo virðist helzt sem verið sé að leika óraunverulegan sjón- leik, eða þann hinn sama og leikinn var við hirð Mings, þegar Manshuríumenn biðu fyrir utan hliðin, eða við hirð Sings, þegar Mongólar voru handan múrsins mikla. En sú er raunin á, að í þetta sinn eru óvinirnir ekki erlendir innrásarmenn. Óvin- irnir eru kínverska þjóðin sjálf og þau öfl í flokknum. ríkisstjórninni og heraum, sem hneigjast að skynsemi, hag- sýni 'og efnalegum framförum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.