Tíminn - 01.08.1967, Page 2

Tíminn - 01.08.1967, Page 2
2 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 1. ágúst 1967. TiíWm ocean ilii; i II ÍHvó^tUiut* |§ Kouln v! || UiswHtti. tfurt Beifmmng <jt í (OVO tlO'A m JARÐÉDLISRANN- SÓKNIR f SURTSEY EJ-Reykjavík, mánudag. Eins og frá var skýrt í blað inu fyrir helgina, hafa verið birtar niSurstöður af itarleg- um rannsóknum á Surtsey, eink um með því að niynda eyna með innrauðum geislum. Var eyjan m. a. mynduð úr gervi hnetti. Rannsóknir þessar munu halda áfram í sumar, en þá munu tveir bandarískir visinda menn koma'hingað og kanna Surtsey enn frekar. Einnig munu þeir kanna Heklu og Kötlu, en myndun með inn- rauðum geisluiá á þeim slóð- um, sem fjöll þessi eru, sýndu, að vert væri að kanna ástandið nánar. Myndirnar þrjár eru af Surtsey. T.d. er loftmynd, tek- in í október 1966, en Jólnir er neðst til vinstri. T.v. er inn rauð mynd af Surtsey, te'kin á svipuðum tíma. Hið dekksta á myndinni er Atlantshafið og vatnið í eyjunni, en hið skær hvíta sýnir hvar gígurinn er. Aðrir hvítir blettir sýna hraun lög neðanjarðar og aðra staði, þar sem mikill hiti er. Á mið myndinni, sem tekin var í jan úar 1967, sýnir hvar neðan- jarðarhitinn hefur brætt snjó- inn, og einnig sézt nýtt hraun flóð niður í vatnið. Myndin hér til hliðar sýnir hluta af Surtsey. Strikalínan sýnir, hvaða leið vísindamenn fóru, er þeir mynduðu eyna með innrauðum geislum, en krossarnir sýna hvað myndun- in fór fram. Örvarnar sýna hvar hraun rann í janúar s.l. LEYFI FENGIÐ FYRIR 64 STARFSMÖNNUM í frétt frá menntamálaráðuneyt inu, sem blaðinu barst í gær seg ir: Ríkisútvarpinu hefur verið heimilað að fjölga föstum starfs- UÍA-hátíí í Atíavík um verzlunarmannahelgina FB-Reykjavík, mánudag. Ungmenna- og íþróttasam- band Austurlands hefur ákveð ið að halda útisamkomu um Verzlunarmannahelgina í Hall ormsstaðaskógi. Slíkar samkom ur hefur UÍA haHdið undanfar- in ár, og hefur þar verið bönn- uð neyzla áfengra drykkja. Sam komurnar hafa farið mjög vel fram, og verið vinsælar, og má reikna með að svo verði einnig að þessu sinni, enda verður þarna margt til skemmtunar og gamans fyrir þátttakendur. Útisamkoman hefst á laugar- dagskvöldið kl. 21 með dans- leik, og munu Dumfoó og Steini frá Akranesi leika fyrir dansi og einnig Austmenn frá Nes- kaupstað, því bæði verður dans að inni og úti. Kl. eitt eftir mið nætti hefst miðnæturvaka við varðeld, og fara þar fram all- mörg skemmtiatriði. Flugelda- sýning verður, leikararnir Ró- bert Árnfinnsson og Rúrik Har aldsson skemmta, Tónakvartett inn frá Húsavík syngur og danski fjöllistarmaðurinn Barly Stefán Jasonarson sýnir listir sinar. Einnig leika Dumfoó og Steini. Á sunnudaginn hefjast há- tíðahöldin kl. 10 fyrir hádegi með keppni í frjálsum íþrótt- um, hástökki, langstökki og einnig fer þar fram víðavangs hlaup Austurlands. Kl. 14 hefst útisamkoma í Samkomu- rjóðrinu og þar verða þessi skemmtiatriði: Lúðrasveit Nes- kaupstaðar leikur, undir stjórn Haralds Guðmundssonar, Stef- án Jasonarson í Vorsabæ flyt- ur ræðu, og ávörp flytja Elma Guðmundsdóttir frá Neskaup- stað og Kristján Ingólfsson for maður UÍA, sem setur sam- komuna og líynnir skemmtiat- riði. Tónakvartettinn á Húsa- vík syngur og leikararnir Ró- bert Arnfinnsson og Rúrik Har- aldsson skemmta, einnig Karl Framhald á bls 15 mönnum sjónvarpsins upp í 64, og munu nýju starfsmennirnir sum part koma i stað lausráðinna starfsmanna og ennfremur verða til þess að minnka yfirvinnu, sem hingað til hefur verið óhjákvæmi legt að vinna. Er hér um að ræða ráðstafanir innan ramma þeirrar fjábhagsáætlunar, sem sjónvarpið starfar etfir. Prófessor settur í ensku við Hásk. ísl. í frétt frá menntamálaráðuneyt inu, sem blaðinu hefur borizt, segir: ,,Með lögum nr. 41/1966 var stofnað prófessorsembætti i ensku við heimspekideild Háskóla ís- lands. Embætti þetta var auglýst laust til umsóknar og hefur I- J- Kirby, lektor, verið settur próf- essor í ensku við heimspekideild Háskóla íslands til eins árs, frá 1. júlí 1967 að telja. Heyskapur gengur vel í Lóni TE-Volaseli, mánudag. Iíeyskapur hefur gengið nokkuð vel hér um slóðir. Tún voru að vísu frekar illa sprottin, en núna er sprettan orðin ágæt. A.m.k. einn bóndi hér í sveitinni hefur Framnaid a bls. 14. Öryggisútbúnaður strætisvagnsins í fullkomnu lagi OÓ-Reykjavík, mánudag. Strætisvagninn Sem ók á dælu- stöðina í Hafnarfirði s.l. laugar- dagsmorgun hefur nú verið rann sakaður hjá Bifreiðaeftirliti rík- isins og kom í jjós að stýri og hemlar bflsjns voru í fullkomnu lagi þegar hann fór út af vegin- um. Sagt var frá því í blaðinu í gær að stýri bílsins hafi hlaupið í lás og hemlarnir orðið óvirkir þar með. Er þetta haft eftir fram burði bílstjórans en hann gaf lögreglunni í Hafnarfirði þessar upplýsingar við yfirheyrslu. En þær virðast ekki hafa við rök að styðjast og verður að leita ann- arra orsaka fyrir útafakstrinum. Starfsmenn Bifreiðaeftirlits- ins hafa þrautreynt fyrrgreind tæki strætisvagnsins og voru þau í fullkomnu lagi. Eins má geta þess að í vagninum er vökvastýri, sem er eingöngu til að létta bíl- stjóranum aksturinn og þótt eitt- hvað komi fyrir vökvaútbúnaðinn skeður ekki annað en það að þyngra verður að stýra bílnum, og hefur slík bilun í stýri engin áhrif á hemlaútbúnaðinn. Skemmdir á strætisvagnin- um urðu töluverðar við að aka út af og á dæluhúsið. Undirvagninu skekktist og yfirbyg.|ingin er úr skorðum gengin.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.