Tíminn - 01.08.1967, Qupperneq 14

Tíminn - 01.08.1967, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 1. ágúst 1967. 14 VÁ FYRIR DYRUM Framihaida aí t>ls 1. báðir verið því fylgjandi. í tillögu þeirrL sem stjóm Búnaðarfélags- ins gerði og hefur nú verið lögð fyrir landbúnaðarráðherra, er gert ráð fyrir, að Búnaðarfélag íslands tilnefndi einn mann í nefndina, Stéttarsambandið ann- an og landbúnaðarráðherra 'til- nefndi formann nefndar- innar. Landbúnaðarráðherra hefur tekið málinu vel, og standa vonir til að hún taki til starfa eins fljótt og auðið er. Búnaðarmáiastjóri sagði enn- fremur: — Eins og öllum er kunnugt hefur tíð verið óvenju köld í vor og sumar, sérstaklega á öllu norð anverðu landinu. Það var augljóst strax í vor, að miklar kalskemmd ir voru í túnum viðs vegar um Norðaustur- og Norðurland, allt, til Vestfjarða og jafnvel um smá- skemmdir að ræða víðar í land- inu eins og í Dalasýslu, Snæfells- nesi og á nokkrum stöðum í upp- sveitum Suðurlands. Strax var augljóst, að uppskerubrestur mundi verða mikill, þar sem tún- in voru mest skemmd, eins og í Norður-Þingeyjarsýslu og í Norð ur-Múlasýslu og með sjó fram og í ýmsum sveitum Suður-Þingeyj arsýslu, á stöku stað í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslu, norðanverðri Strandasýslu og við ísafjarðardjúp. Hefði viðrað sæmi lega í júlímánuði hefði mátt bú- ast við, að hinir óskemmdu hlutar túnanna hefðu sprottið sæmilega. Því miður hefur júlímánuður ver ið svo kaklur, að til viðbótar kal- inu er um algjöran grasbrest að ræða víða á Norðausturlandi og á annnesjum og með sjó fram allt til Vestfjarða. Að vísu getur eitt hvað sprottið héðan af, ef brigði til hlýrrar veðráttu, en það er útséð um, að heyfengur getur ekki orðið góður á Norðurlandi, og ef ekki hlýnar eittJhvað, þá verður víða algjör vá fyrir dyrum allt frá Héraðsflóa að ísafjarðardjúpi. Þó er spretta í innsveitum í Eyjafirði og þar fyrir vestan miklu betri en í útsveitum og á stöku bæ er um meðal spreltu að ræða, eða allt að því, Veðráttan hefur verið mjög óbagstæð til heyskap- ar til þessa á N-Austurlandi, sí- felldir kuldar, rigning, slydda og snjókoma, en það hefur komið að minni sök til þessa vegna gras- leysisins þar. Hins vegar hafa þurrkar verið sæmilegir og nýt- ing því allgóð á því, sem heyjað hefur verið í Eyjafirði og þar fyr- ir vestan, en sláttur hefur óvíða staðið í meira en hálfan mánuð á Norðurlandi og víða skemur, og heyskapur því víðast hvar mjög skammt á veg kominn, nema í inn anverðum Eyjafirði. — Öðru máli er að gegna á Suðurlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Þótt alls staðar vor aði seint, þá hefur tíðarfarið ver- ið tiltölulega hlýtt og sumir dag ar ágætir um sunnanvert landið, og sérstaklega hagstæð heyskap- artíð í júlímánuði. Spretta var víð ast hvar með allra seinasta móti, en í Austur-Skaftafellssýslu, Mýr dal og undir Eyjafjöllum má telja grasvöxt góðan og á þessum svæð um má vonast eftir fullkomlega meðalheyskap eða heldur meira. Annars staðar á Suðurlandi lítur vel eða sæmilega út með hey- skap, vegna þess hve hagstæð veðráttan hefur verið. Allar töð- ur hafa þornað á Ijánum, en ekki lítur vel út með háarsprettur og töður eru víða heldur með minna móti að magni til, og sums staðar mun minni en í meðalári, vegna tregrar grassprettu. Hægt er að bæta úr lítilli háarsprettu með því að bera á milli slátta, eins og sumir bændur gera, og komi hlý ir votviðrisdagar á næstunni. Við spurðum Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóra, hvað hann ráð legði bændum nú í þessum málum ______TÍMINN______________ og sagði hann: —• Það fyrsta, sem hver bóndi ætti nú að hafa hugfast, er að heyja sem allra mest og mögulegt er. Allir, sem hafa goitt gras ættu að afla sem allra mestra heyja, ef þeir geta heyjað meira en handa sínum skepnum er öruggur mark- aður fyrir allt það hey, sem um- fram verður. Hinir, sem sjáan- lega verða i heyþröng, ættu að hafa úti öll spjót um að afla sér þó eins mikilla heyja og kostur er á, með því að nýta engja- bletti ef til eru, og öll eyðitún, sem hægt er að nýta. Jafnvel ættu bændur að leita til fjarlægra staða ef þar er hægt að fó viðunandi slægjur, því að hey er ómetanlegt fyrir þá, sem heylitlir eru, eða vantar hey. Það er um að gera, að hver og einn reyni að bjarga sér eins og bezt hann getur nú í sumar, því gras, sem úti verður, verður ekki gefið skepnum í vet- ur. — Því miður eru litlar líkur til þess, að margir bændur hafi hey forða umfram eigin þarfir, en þeir, sem gera ráð fyrir að geta selt hey, ættu að undibúa sig sem bezt með það, m.a. með þvi að láta vélbinda heyið, og geyma það véibundið, þar til sala fer fram. Það sparar vinnu og flýtir fyrir viðskiptum og heyflutning- um þegar þar að kemur, sagði búnaðarmálastjóri að lokum. 129 LIÍK Framhals af bls. 1. Ekki er enn vitað með vissu hversu margir hafa látið lífið í eldsvoðanum á laugardaginn. Margra sjómanna, sem stukku fyr ir bo.rð, er saknað, og enn er leit að í skipinu að lífcum. Harvey P. Lannam, aðmíráll, sagði á blaðamannafundi í Subic Bay, að tekizt hefði að nafngreina 62 hinna látnu, en hin líkin væru það illa farin, að ómögulegt væri að segja til um nöfnin. Eldurinn á laugardaginn hófst, þegar eldsneytisgeymir í Skyfcawk-flugvél sprakk í loft upp. Benzínið rann um fremri helming flugbrautarinnar og stóð hann samstundis í Ijósum iogum. AJtar á skipinu voru flug vélar reiðubúnar til flugtaks, bún ar eldflaugum og sprengjuim. Nóði eldurinn flugvélunum fljótlega, og sprakk þá allt sem sprungið gat í loft upp, en margir flug- menn brunnu til bana í sætum sínum í fliugklefunum. 80 flugvél ar voru um borð og eyðilagðist 21 fiugvél, en 42 skemmdust veru iega. Flestar voru vélamar af Skyhawk og Phantom-gerðum. Skipstjórinn á „Forrestal“ Jobn K. Beling, sagði, að í hverri flug vél, sem eyðilagðist, hafi verið 1800 kíló af sprengjuan og eld- flaugum. Skipið var á 27 hnúta ferð, þeg ar eldsneytisgeymirinn sprakk og ósköpin hófust. „Forrestal" var statt í Tonkin flóa, en þangað kom skipið á þriðjudag í siðustu viku. Leysti það af annað skip, sem verið hafði um tima á þessum slóðum. Flu'gvélamóðurskipið „Constell ation“ hefur nú tekið við störf um „Forrestals". Beling skipstjóri sagði í dag, að ekki væri hægt að segja til um, hvenær skipið yrði aftur reiðubúið til þjónustu, en taldi víst að gert yrði við ,,Forrestal“. HEYSKAPUR Framhald af bls. 2. lokið fyrra slætti, en flestir eru í miðjum neyskap. Hér er núna ágætis veður og allir í heyi. Ekki hefur heyrzt talað mikið um kal í túnum. Að vísu var vorið kalt, sprettan seint á ferðinni „>g fé lengi í túnum, svo að heyskapur ÞAKKARÁVÖRP Hjartanlega þakka ég börnum mínum og öðrum ætt- ingjum og vinum, sem á einn eða annan hátt glöddu mig á 75 ára afmælinu 26. júlí s.l. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ó!öf Gísladóttir. Föðursystir mín, Signý Jónsdóttir frá Neðri-Hundadal andaðist 27. júli. Jarðarförin fer fram föstudaginn 4. ágúst kl. 13,30 frá Fossvogskirkiu. Guðmundur H. Einarsson. Innilega þökkum við öllum nær og fjær, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför sonar okkar, Sveins Gíslasonar, Kýrholti. Jóna Sveinsdóttir Gísli Bessason 1 Inniiegustu þakkir fyrlr auðsýnda samúð, við andlát og jarðar- för móður okkar, tengdamóður og ömmu, frú Sigurlínu Á. Gísladóttur frá Hofsósi. Börn, tengdabörn og barnabörn. Innllegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Helga Guðbrandssonar Fossá i Kjós Aðstandendur. byrjaði seinna en venjulega, en nú eru horfurnar góðar. Rúningar 'hafa farið fram að einhverju leyti víðast hvar. Hér var klaki ákaf- lega léngi í jörðu, eða fram undir 20. júní. TRULOFUNARHRINGAR Fljót atgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. Guðm. Þorsteinsson gullsmiður, Bankastræti 12. (gníineníal Hjólbarðaviðgerðir OPIÐ ALLA DAGA (LÍKA SUNNUDAGA) FRÁ KL. 8 TIL 22 GÚMMÍVINNUSTOFAU HF. Skipholti 35, Reykjavík SKRIFSTOFAN: sími306 88 VERKSTÆÐIÐ: sími310 55 I FERÐAHANDBÚKINNI ERU »ALLIR KAUPSTAÐIR DG NÝJA VEGAKORT SHELL Á FRAM~ LEIDSLUVERDI. ÞAD ER í STÖRUM &MÆL1KVARÐA, Á PLASTHÖDDDUM PAPPÍR OG PRENTAÐ í LJÓSUM OG LÆSILEGUM LITUM, MED 2,600 ^ Qgm ^ STAÐA NÖFNUM BÆNDURl Nú ei rétti timinn tii að ; ?lírá vélar og tæki sem a aö selia: Traktora Múgavélar Blásara Sláttuvélar Amoksturstæki VIÐ SEUUM IÆKIN — Bila- og búvélasalan v/Miklatorg Simi 23136 Sportfatnaður í ferðalagið, i glæsilegu úrvali BARNALEIKTÆKI ÍÞRÓTTATÆKi VéiaverkstæöF öernharðs Hannessonar. Suðurlanclsbrauf 12 Sim' 3581Ö.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.