Alþýðublaðið - 21.05.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 21.05.1987, Blaðsíða 2
2 MPYÐUBUBIÐ Simi: 681866 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Orn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson og Jón Danlelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Filmurog prent Ármúla38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 Launamisrétti jr I nýútkomnu fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar er aö finna athyglisverðar tölur um launamismun á höf- uðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Þar kemur fram að fólk á landsbyggðinni vinnur lengri vinnutíma fyrir um lægri laun en stéttar- félagar þess á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn er mismikill eftir stéttum en á hinn bóginn án undan- tekninga. Alþýðublaðið skýrir nánar frá þessum töl- um í forsíðufrétt í dag. Mestur er munurinn á launum karlmanna sem vinna skrifstofustörf. Þeir sem vinna þau störf á höfuðborgarsvæðinu hafa hartnær fjórð- ungi hærra tímakaup en starfsbræður þeirra á lands- byggðinni. Þákemureinnig fram (útreikningum Kjara- rannsóknarnefndar að starfsstéttir á höfuðborgar- svæðinu vinnastyttri tímaen þeirsem vinnahiiðstæð störf á landsbyggðinni. M unurinn á þessum launum á höfuðborgarsvæði og landsbyggð stafar fyrst og fremst af því, að yfirborg- anir eru bæði meiri og tíðari í Reykjavlk og nágrenni höfuðborgarinnar en annars staðar á landinu. Af töl- um fréttablaðsins virðist einnig mega draga þá álykt- un að yfirborganirnar aukist hlutfallslega með hækk- andi taxtalaunum, eða með öðrum oröum í öfugu hlut- falli við þörfina. Fréttabréf Kjararannsóknarnefndar ítrekar einnig verulegan launamun karla og kvenna. Sé þetta tekið til hliðsjónar launamuninum milli höf- uðborgarsvæðis og landsbyggðar, verður munurinn gifurlegur á hliðstæðum störfum karla i Reykjavik og kvenna á landsbyggðinni. Sem dæmi má nefna að kona sem vinnur skrifstofustarf úti á landi hefur að meöaltali 195 kr. á tfmann í dagvinnu en karlmaður í hliöstæðri vinnu á höfuðborgarsvæðinu fær að með- altali 323 kr. á timann. Þeir bera sem sagt 66% meira úr býtum. Alþýðublaðið hefur ítrekað bent á þann gifurlega mun sem er á högum launafólks á höfuöborgarsvæð- inu og á landsbyggðinni. Höfuðborgin hefur sogað til sín fjármagn og þjónustu og skilið eftir landsbyggð- ina með einhliðastarfsgreinar, dýran aðflutning og lé- lega þjónustu. Heildarútkoman er verri ytri skilyrði, lægra kauþ, verri þjónusta og hraþandi fasteignamat. Eitt af höfuðmálum Alþýðuflokksins i síðustu kosn- ingum var ný byggðastefna þar sem áhersla var lögð á þróun byggðar, jafnvægi í byggðaþróun, eflingu byggðakjarna, og að starfsemi Byggðastofnunarverði tekin til endurskoðunar með það í huga, að hlutverk sveitarfélaganna í aðgerðum til styrkingar byggðanna verði aukið. Alþýðuflokkurinn lagði og á það áherslu að fjármagn verði í auknum mæli geymt og ávaxtað á heimaslóð. í þvi sambandi var bent á nauðsyn þess að nýr og sterkur lifeyrissjóður allra landsmanna og sameiginlegur fjárfestingalánasjóður atvinnulifsins starfi i deildum eftir landshlutum. Nýjar upplýsingar um launamismun á höfuðborgar- svæðinu og landsbyggð, og launamismunun karla og kvenna sem vinna hliðstæð störf, er enn ein sönnun þess að nýrri rikisstjórn er mikið verk á höndum að jafnaefnahagslegt, félagslegt og menningarlegt mis- vægi höfuðborgar og landsbyggðar og uppræta launamisrétti kynjanna. Byggingariðnaðurinn: HAGSMUNAAREKSTRAR, FÚSK OG GRÓÐABRALL íslensk hús, byggð á síðari árum, eru sum hver svo illa byggð, að nán- ast má þakka fyrir að þau standi undir eigin þunga og hrynji ekki of- an á eigendur sína. Þetta er í sem stystu máli niðurstaða könnunar sem Rannsóknarstofnun bygging- ariðnaðarins hefur nýlega fram- kvæmt og sagt var frá m.a. hér í blaðinu í gær. Þessi könnun er þó ekki þannig unnin að af niðurstöðum hennar einnar saman megi draga þá álykt- un að ástandið sé almennt svo slæmt sem hér var lýst. Þetta mál er hins vegar ekki alveg nýtt af nálinni og séu þær upplýsingar sem fyrir liggja, lagðar saman, blasir við ófögur mynd af fúski, vinnusvik- um, gróðabrallsþrýstingi og hags- munaárekstrum. í byggingariðnaðinum á íslandi liggja miklir peningar og þangað sækja ýmsir einstaklingar og fyrir- tæki gífurlegan hagnað. Það hrika- lega ástand nýlegra bygginga sem nú er að koma í opinbert ljós, skap- ast ugglaust að stórum'hluta af því hvernig staðið er að húsbyggingum hérlendis og hversu lélegt eftirlit er með því að þeim lögum og reglum sem þó gilda, sé framfylgt. Flestar stærri byggingar eru ann- aðhvort unnar eftir útboðum eða byggðar beinlínis til sölu á frjálsum markaði. í báðum þessum tilvikum er það auðvitað hagsmunamál þess sem framkvæmdirnar annast að sleppa sem ódýrast frá bygging- unni. Þetta leiðir til sparnaðar á ýmsum sviðum, gjarnan á þeim atriðum sem ekki sjást þegar bygg- ingunni er lokið. Þannig er reynt að halda hönnunarkostnaði í lágmarki og steypustyrktarjárn er í mörgum tilvikum sparað langt úr hófi. Afleiðingarnar eru þær bygging- ar sem nú eru orðnar tilefni rann- sóknar opinberra aðila, eiga sumar hverjar nóg með að standa undir eigin þunga, eru ekki taldar þola neitt notkunarálag og gætu sem best hrunið eins og spilaborg í með- alsnörpum jarðskjálftakipp. Þótt ástand þessara bygginga hafi ekki orðið tilefni verulegra fréttáskrifa, fyrr en með birtingu Rb-skýrslunnar í fyrradag, hefur nokkur umræða verið í gangi meðal fagmanna í þessu efni. Fyrir réttu ári, í maí 1986, birtist í Verktækni,' fréttablaði verkfræðinga og tækni- fræðinga, grein um siðareglur verk- fræðinga eftir Gunnar Torfason ráðgjafarverkfræðing, þar sem m.a. er vikið að ýmiss konar fúski og hagsmunaárekstrum sem aftur koma niður á traustleika bygginga. í erindi sem Gunnar flutti á náms- stefnu á vegum endurmenntunar- nefndar háskólans, fjallaði hann einnig um þetta efni. Þetta erindi birtist í greinarformi í Morgunblað- inu í byrjun apríl sl. Lýsingar Gunnars á ástandinu eru ófagrar en ekki verður séð að ástæða sé til að draga réttmæti þeirra í efa. Gunnar hefur áratuga reynslu í faginu og var meðal þeirra sem unnu að könnuninni sem fjall- að var um hér að framan. Gunnar telur m.a. algengt að byggingameistarar sem byggi sölu- húsnæði, leiti tilboða í hönnun hússins, þar á meðal burðarvirkis- teikningar og lagnateikningar. Síð- an er samið við þann aðila sem býð- ur lægst verð og „getur tryggt stimplun teikninga hjá bygingar- fulltrúa með minnstu járnamagni og á sem fæstum blöðumí* Gunnar heldur því einnig fram , að sumir byggingameistarar eigi til að segja hönnuðinum fyrir um járnamagn og fleira. „Þessir bygg- ingaraðilar eru margir fastagestir á byggingarfulltrúaskrifstofunum. Og einhverra hluta vegna fá lélegar og oft ófullkomnar teikningar, á þeirra vegum, frekar fljótari af- greiðslu hjá kerfinu en hitt, þótt undarlegt megi virðast" Við hönnun bygginga starfa sjálfsagt margir ágætlega hæfir menn sem hafa til að bera bæði full- komna þekkingu á viðfangsefni sínu og þann heiðarleika sem til þarf að sinna því sómasamlega. Gunnar Torfason bendir hins vegar á tilvist allmargra „harkara" í fag- inu, sem hann segir selja þjónustu sína ódýrar en svo að unnt sé að vinna verkin sómasamlega fyrir þær upphæðir. Gunnar telur að virkasti hópur- inn af þessum fúskurum sé ekki mjög stór og nefnir töluna tuttugu manns í því sambandi. Síðan segir hann orðrétt: „Flest nöfnin þekkja byggingarfulltrúarnir á höfuðborg- - arsvæðinu og væri því leikur einn að stöðva þetta fúsk gegnum skrif- stofur embættismanna. En einnig hér er ríkjandi landlæg drullu- sokkadýrkun og Iinka" Þessar lýsingar kunnugs manns gefa ekki beinlínis ástæðu til bjart- sýni um styrkleika eða vönduð vinnubrögð í íslenska byggingar- iðnaðinum. Svo gæti virst sem ein- falt ætti að vera að uppræta spill- inguna í „bransanum", með því að auðvelda eftirlitsaðilum að vinna sín störf, t.d. með auknum mann- afla. Þetta gæti þó orðið erfiðara en sýnist í fljótu bragði. Spillingin teygir anga sína víða, jafnvel inn á þær opinberu stofnanir sem við þessi mál eiga að fást. Þannig munu finnast dæmi þess að opinberir starfsmenn sem hafa eiga eftirlit með þessum málum, séu sjálfir að vinna að hönnun í kvöldvinnu., Þetta fyrirkomulag leiðir auðsjáan- lega til hagsmunaárekstra og gerir mun erfiðara að ráðast að rótum vandans. Það verður þó að teljast nokkurn veginn öruggt að stjórnvöld muni grípa til einhverra bragða, til að bæta ástand bygginga frá því sem nú er. Þrátt fyrir allar tilhneigingar kerfisins til að viðhalda „status quo“, er ástandið í byggingariðnað- inum greinilega orðið svo alvarlegt að ekki verður með nokkru móti við það unað. En jafnvel þótt takist að koma í veg fyrir að fúskið haldi áfram, hef- ur það þegar haft mikil áhrif og get- ur átt eftir að hafa uggvænleg áhrif á fjárhag margra húseigna sem nú lifa í þeirri sælu trú að þeir hafi gert góð kaup. Byggingar sem hannaðar hafa verið með þeim hætti að þær gera ekki betur en að standa undir sjálf- um sér verða væntanlega óseljan- legar með öllu, eftir að upp kemst um svikin. Sumar þeirra verður trú- lega hægt að treysta nokkuð með ærnum tilkostnaði, en þó má gera ráð fyrir að margar þeirra verði aldrei jafngóðar og ætlast var til í upphafi. Að koma fram ábyrgð á hendur fúskurunum, verður bæði tíma- frekt starf og erfitt og í flestum til- vikum munu þeir húseigendur sem það reyna, ekki hafa árangur sem erfiði, ef að vanda lætur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.