Alþýðublaðið - 27.06.1987, Page 9
Laugardagur 27. júní 1987
Háskólahátíð
Háskólahátíð verður haldin í Há-
skólabíói í dag kl. 14. Þar verður
lýst kjöri heiðursdoktors jafnframt
því sem kandidatar verða braut-
skráðir.
Athöfnin hefst með því að Blás-
arakvintett Reykjavíkur leikur.
Prófessor Guðjón Axelsson, forseti
tannlæknadeildar, lýsir kjöri heið-
ursdoktors og afhendir doktors-
bréf. Háskólarektor, dr. Sigmundur
Guðbjarnason ræðir málefni Há-
skólans og ávarpar síðan kandi-
data. Deiidarforsetar afhenda
kandídötum prófskírteini. Að lok-
um syngur Háskólakórinn nokkur
lög undir stjórn Árna Harðarsonar.
Að þessu sinni verða brautskráðir
348 kandídatar og skiptast þeir
þannig:
Embættispróf í guðfræði 6, B.Ar
próf í guðfræði 2, embættispróf í
læknisfræði 44, B.Srpróf í læknis-
fræði 2, kandidatspróf í lyfjafræði
lyfsala 11, B.Srpróf í hjúkrunar-
fræði 48, B.Srpróf í sjúkraþjálfun
14, embættispróf í lögfræði 30,
kandídatspróf í íslenskri málfræði
2, kandídatspróf í islenskum bók-
menntun 2, kandídatspróf í sagn-
fræði 1, B.Arpróf í heimspekideild
37, próf í íslensku fyrir erlenda
stúdenta 7, lokapróf í byggingar-
verkfræði 11, lokapróf í vélaverk-
fræði 12, lokapróf í rafmagnsverk-
fræði 12, B.Srpróf í raungreinum
52, kandídatspróf í viðskiptafræð-
um 28, kandídatspróf í tannlækn-
ingum 9, B.Arpróf í félagsvísinda-
deild 18.
Með sáningu úr Landgræðslupokanum rná ná töluverðum árangri
í að endurheimta þau landgæði sem tapast hafa. Aburðarverksmiðja ríkisins
og Landgræðslan vilja með Landgræðslupokanum hvetja til sameiginlegs átaks
um uppgræðslu landsins. Pokinn inniheldur auk áburðar 250 gr. af uppgræðslufræi,
sérstaklega ætlað til dreifingar með áburði. Hann kostar aðeins 200 kr. og fæst á
bensínstöðvum um land allt. Það er tilvalið að taka Landgræðslupokann með í
ferðalagið, dreifing úr honum veitir pkkur ánægju og gerir ótrúlegt gagn.
Stöndum saman — Gróið land gleður augað.
Bókmennta-
hátíð
Bókmenntahátíðin í Reykjavík
verður haldin 13,—19. september
1987. Þetta er önnur bókmennta-
hátíðin, hin fyrsta var haldin 1985
og var Ijóðahátíð, en að þessu sinni
verður áhersla lögð á óbundið mál.
Verndari hátíðarinnár er Vigdís
Finnbogadóttir, forseti.
Frumkvæði, að hátíðinni átti
Knut 0degárd forstjóri Norræna
hússins og er hann jafnframt fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
Stjórn hátíðarinnar skipa: Árni
Sigurjónsson ritstjóri, Einar Kára-
son rithöfundur, Halldór Guð-
mundsson útgáfustjóri, Ingibjörg
Björnsdóttir fulltrúi, Sigurður Val-
geirsson útgáfustjóri, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur, Knut 0de-
gárd forstjóri og Örnólfur Thors-
son bókmenntafræðingur.
Langflestir höfundanna koma
frá Norðurlöndum. Að auki er boð-
ið fulltrúum annarra landa til þess
að styrkja bókmenntasamskipti
Norðurlanda og umheimsins. Þeg-
ar hafa þessir höfundar þegið boð
að koma:
Frá Danmörku Poul Borum,
Klaus Rifbjerg og Dorrit Willum-
sen.
Frá Finnlandi Kaari Utrio, Eeva
Kilpi 0£ Johan Bargum
Frá Alandseyjum Karl-Erik Berg-
mann
Frá Noregi Jon Michelet, Tor
Obrestad og Herbjorg Wassmo
Fulltrúi Sama Rauni Magga
Lukkari
Frá Svíþjóð Sven Delblanc, Sara •
Lidman og Ola Larsmo
Frá Chile Isabel Allende
Frá Vestur-Þýskalandi Luise
Rinser
Frá Austur-Þýskalandi Erwin
Strittmatter
Frá Frakklandi Benoite Groult og
Alain Robbe-Grillet
Vonir standa til að nöfn fleiri rit-
höfunda bætist við Iistann, m.a.
þátttakendur frá Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum og Bretlandi, en
sem stendur er beðið svara frá þess-
um löndum.
Bókmenntahátíðin hefur fengið
styrk frá Norræna menningar-
sjóðnum. Reykjavíkurborg hefur
gefið vilyrði fyrir fjárveitingu og
Norræna húsið og einkafyrirtæki
munu einnig styrkja hátíðina.
Nokkur sendiráð og menningar-
stofnanir greiða fargjöld rithöf-
unda viðkomandi landa.