Alþýðublaðið - 27.06.1987, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 30. maí 1987
MANNFÓRNIR I AFRlKU
Óhugnanlegir atburöir hafa gerst í Vestur-Afríku, þar sem svartigaldur hefur blossað
upp að undanförnu
Á bökkum Hoffmannsárinnar í
grennd við smábæinn Harper í Líb-
eríu fundust lík tveggja drengja,
Emmanuel Dalieh 6 ára og Samuel
Johnson 7 ára. Á bæði líkin vantaði
bæði hendur og fætur.
I einu af fátækrahverfum Abidj-
an, höfuðborgar Fílabeinsstrandar-
innar gómuðu íbúarnir ungan
mann með bakpoka sem úr lak
blóð. I pokanum reyndist vera
barnshöfuð. í nærliggjandi héraði
fundu vegfarendur lík fullorðins
manns í skurði. Maðurinn hafði
verið skorinn á hol og hjartað rifið
úr brjósti hans.
í öllum fjórum tilvikunum höfðu
fórnariömbin orðið skuggalegum
helgisiðum að bráð, sem hafa rutt
sér til rúms í ríkjum Vestur-Afríku
að undanförnu. Dagblöðin í Níger-
íu birta jafnt og þétt fréttir af lim-
lestum líkum sem hafa fundist og
hrollvekjandi fyrirsagnir eins og
t.d. „Morðingjaflokkar hafa lík-
amshluta kvenna til sölu“.
Foreldrar skólabarna í hafnar-
bænum Tema í Ghana hafa haldið
börnum sínum heima við af ótta við
að þeim yrði rænt og slátrað. Lög-
reglan þar handtók mann nokkurn
sem vildi selja 15 ára stúlku á sem
svarar 375.000 ísl. kr. til að nota
sem fórnardýr við trúarathöfn.
Slíkar fórnarathafnir eiga að
blíðka anda og hulin máttarvöld og
þykja vænlegri til árangurs en þegar
venjuleg fórnardýr eru notuð, s.s.
hænsni, geitur og grísir. Þegar mik-
ið liggur við eða sérstakar óskir eru
færðar fram, eru mannfórnir
áhrifameiri.
Börnum oft fórnað
Sá sem óskar t.d. öðrum manni
dauða, sjálfum sér langlífis eða vill
tryggja stöðu sína gagnvart öfund-
armönnum, þarf einfaldlega að
grípa til þess ráðs að fórna annarri
manneskju.
Sá sem afræður hvaða gjafir eru
tilteknum anda velþóknanlegar, er
sérstakur seiðmaður eða galdra-
doktor. Hann ákveður hvort nota
skuli höfuð, hjarta, augu, lifur eða
kynfæri. Fórnardýrin eru oft börn,
þar sem þau eru talin hrein og
flekklaus.
Stundum nægir að hafa Iíkams-
leifar þeirra sem þegar eru dauðir
og það er meira að segja stundaður
„útflutningur" á hauskúpum, rif-
beinum og fleiri mannabeinum frá
Ghana til Benin og Nígeríu. Það er
því ekki að undra að kirkjugarðarn-
ir í Accra, höfuðborg Ghana, eru í
vægast sagt slæmu ástandi. Mörg
þúsund gröfum hefur verið raskað
þar í seinni tíð.
Ný galdraöld virðist vera í upp-
sigiingu í Vestur-Afríku. Fleiri og
fleiri aðhyllast eins konar aftur-
hvarf til þeirra siða sem forfeðurnir
ástunduðu.
Námsmenn í Nígeríu flykkjast til
fyrirlestra um „hefðbundið helgi-
hald í Afríku“. Fræðibækur um
launhelgar eru með söluhæstu bók-
um í bókaverslunum. Fjölskyldu-
og ættarmót eru haldin þar sem
seiðmaðurinn er nauðsynlegur lið-
ur í samkomuhaldinu og ekkert til
sparað að fá besta seiðmanninn.
Þeir bestu í faginu selja þjónustu
sína dýru verði og keyra um í Merc-
edes Bens.
Afrískir vísindamenn hafa reynt
að geta sér til um ástæðurnar fyrir
þessum nýja andatrúaráhuga. Fró-
fessor Tayo Olafioye frá Nígeríu tel-
ur að einhvers konar misskilin
þjóðernisvakning sé hér á ferðinni.
þar við bætist „menntunarleg
stöðnun" hjá yfirstéttinni á þessum
svæðum.
Hjátrúarfullir mennta-
menn
Það eru ekki aðeins bændur og
skógarfólk sem trúa á vald seið-
mannsins. Það gera líka mennta-
menn, embættismenn, stjórnmála-
menn, lögreglumenn og stjórnend-
ur atvinnulífsins. Þegar ritvél hvarf
á Bendel-háskólanum í Nígeríu,
sendi vararektorinn ekki eftir lög-
reglunni heldur lét hann sækja seið-
manninn. Sá var ekki lengi að finna
þjófinn. Einn af starfsmönnum
skólans var borinn sökum og þeim
úrskurði varð ekki haggað. I Al-
hambra, einu af sambandsríkjum
Nígeríu, neitaði ríkisstjórnin að
flytja inn í bústað sinn því hann ótt-
aðist að innanstokksmunir þar
hefðu verið göldrum slegnir.
Það er samt erfitt að sanna það á
yfirstéttarmenn að þeir trúi á gald-
ur og hafi e.t.v. fórnarmorð á sam-
viskunni. Þegar embættismenn
eiga í hlut er gefið merki frá hærri
stöðum og rannsókn málsins renn-
ur út í sandinn.
Það var einungis vegna skjótra
viðbragða skólapilta, að morðið á
drengjunum tveimur í Harper upp-
lýstist. Þeir settu á svið mikinn við-
búnað, kveiktu í bílum og settu upp
vegatálma í þeirri von að sá seki
yrði órólegur og reyndi að flýja.
Bragðið heppnaðist. Maður nokk-
ur reyndi að komast framhjá vega-
tálmunum á bifreið sinni. Skóla-
piltarnir gripu hann glóðvolgan og
píndu hann til sagna.
Hefðbundið fórnarmorð
Það var þýðingarmikil persóna
sem stúdentarnir veiddu í net sitt.
David Clarke, yfirmaður lögregl-
unnar á staðnum og pólitískur full-
trúi Samuels Doe forseta, sem
stjórnar landinu að hætti einræðis-
herra.
En hann var ekki einn um ódæð-
ið. Ásamt honum voru fimm aðrir
ákærðir fyrir barnsrán og fórnar-
morð; bankastarfsmaður, slátrari,
dómari, lögmaður og líkskoðunar-
maður staðarins.
Ástæðan fyrir glæpnum er
dæmigerð fyrir trúarleg fórnar-
morð. I umdæminu stóðu kosning-
ar fyrir dyrum og að sögn saksókn-
ara vildu hinir ákærðu bæta stöðu
sína með mannfórnum. Clarke
langaði til dæmis í embætti innan
stjórnsýslunnar og líkskoðunar-
maðurinn lét sig dreyma um borg-
arstjórastöðu.
Mennirnir sex héldu hins vegar
fram sakleysi sínu og báru fyrir sig
skort á sönnunargögnum. Þess
vegna varð að fá á vettvang sérfræð-
ing frá höfðuborginni áður en hægt
var að bera fram formlega ákæru.
Sérfræðingurinn, sem er kona,
kvað hiklaust upp sinn dóm.
„Mennirnir eru ekta morðingjar. “
Þar með þótti málið fullsannað,
því þessi margvísa kona var engin
önnur en sú fræga Madame Mary,
viðurkennd af því opinbera sem
seiðkona og með Ieyfisbréf frá
ráðuneytinu upp á vasann til að
upplýsa leynda dóma...
SAMAR ERU ORÐNIR
GEISLAVIRKIR
Allt að 90.000 bequerel hafa mælst í líkama nokkurra
sœnskra Sama
Samar í Norður-Svíþjóð lifa Tjernobyl í Sovétríkjunum þótt lið-
stöðugt í skugga kjarnorkuslyssins í ið sé á annað ár síðan það varð. Ný
Meiri hraði
Dómsmálaráðuneytið hefur
gefið út auglýsingu um hámarks-
hraða á þjóðvegum þar sem há-
markshraði ökutækja á tilteknum
þjóðvegum utan þéttbýlis er ákveð-
inn hærri en í gildi hefur verið til
þessa.
Samkvæmt hinum nýju reglum
verður hámarkshraði á flestum
aðalþjóðvegum landsins (stofn-'
brautum) 80 km á klukkustund og
90 km á klukkustund á þeim þeirra
sem eru með bundnu slitlagi. Há-
markshraði verður gefinn til kynna
með umferðarmerkjum.
Hinn aukni hámarkshraði gildir
ekki fyrir allar bifreiðir. Hámarks-
hraði vörubifreiða sem eru meira en
3500 kg að leyfðri heildarþyngd
verður aldrei meiri en 80 km á klst.
og hámarkshraði bifreiða sem
draga tengi- eða festivagna verður
aldrei meiri en 70 km á klst.
Hinar nýju reglur eru settar á
grundvelli gildandi umferðarlaga,
en tillit tekið til ákvæða um há-
markshraða sem almennt munu
taka gildi á næsta ári við gildistöku
nýrra umferðarlaga.
Ráðuneytið tekur fram að al-
mennur hámarkshraði á vegum ut-
an þéttbýlis er áfram 70 km á klst.
og að almennur hámarkshraði í
þéttbýli er 50 km á klst. Gilda þær
reglur nema annað sé gefið til
kynna með umferðarmerki. Jafn-
framt vekur ráðuneytið athygli á því
að hámarkshraðareglur eru allar
miðaðar við akstur við bestu að-
stæður.
Ráðuneytið telur ástæðu til að
hvetja ökumenn til varkárni í um-
ferð og að virða reglur um öku-
hraða. Telur ráðuneytið að með
hinum nýju regium um hámarks-
hraða skapist ný aðstaða til að
framkvæma eftirlit með ökuhraða.
Væntir það þess að ökumenn virði
hinár nýju reglur og að þær leiði
ekki til þess að almennur ökuhraði
aukist, eða að umferðaröryggi
minnki.
rannsókn hefur leitt í Ijós að síðustu
mánuðina hefur mælst aukið
sesíummagn, ekki í hreindýrunum,
heldur hjá hreindýrabændunum
sjálfum.
Ástæðan er talin vera sú að Sam-
ar hafa aftur tekið upp sitt fyrra
mataræði og borða sitt eigið hrein-
dýrakjöt í stað þess að kaupa mat-
væli. Hjá einstaka manni hefur
mælst geislavirkni sem neniur allt
að 90.000 bequerel.
Yfirvöld í Svíþjóð hafa sett
geislavirknimörkin við 1.500
bequerel á hvert kíló í hreindýra-
kjöti sem er til sölu og heilbrigðis-
yfirvöld setja neyslumörkin á
geislavirkum fæðutegundum við
50.000 bequerel á ári.
Yfirvöld hafa þó ekki ráðgert
neinar aðgerðir vegna þessarar nýju
vitneskju um geislavirkni hjá Söm-
um, a.m.k. hefur það ekki verið til-
kynnt. Eftir Tjernobylslysið setti
stjórnin á fót sérstaka nefnd til að
vinna úr vanda hreindýrabænda í
Svíþjóð. Samar íhuga nú að segja
sig úr nefndinni til að mótmæla því
að hún hefur m.a. haldið fundi án
vitundar þeirra og vegna þess að
Samar lifa stöðugt I skugga Tjernobylslyssins. Nýjar mælingar leiða I Ijós
stóraukið ceslummagn.
þeir hafa að eigin sögn lítil sem eng-
in áhrif haft á störf nefndarinnar.
Fram að þessu hafa sænskir
hreindýrabændur fengið sem svarar
u.þ.b. 600 milljónum ísl. kr. í bætur
frá sænska ríkinu vegna þess tjóns
sem þeir urðu fyrir á hreindýra-
stofninum.