Alþýðublaðið - 10.07.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.07.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 10. júl( 1987 3 Börkur Árnason afhendir Smára Guðmundssyni fyrstu SAAB bifreiðina semGlobusseiuráíslandi. Hjáþeim stendurÁgúst Ragnarsson sölustjóri. Norræn menningar- kynning í Japan Árið 1982 stóðu Norðurlöndin fimm að mikilli menningarkynn- ingu í Bandaríkjunum. Þótti sú kynning takast vel og ákváðu ríkis- stjórnir Norðurlanda að efna til svipaðrar kynningar í Japan, og hefst hún í haust. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, mun um miðjan sept- ember opna fyrstu sýninguna, sem verður sýning á nytjalist, „Scandin- avian Design“. Þá mun forseti ís- lands halda blaðamannafund og kynna allt verkefnið, en kynning- arnar verða um ellefu talsins. Is- lenskir listamenn taka þátt í sýning- um á nytjalist, listhönnunarsýning- um, myndlistasýningum, tónleik- um, bókmenntakynningum, kvik- myndahátíð og einnig kynningu á barna- og unglingabókmenntum. Af íslands hálfu verða verk eftir eftirtalda listamenn og hönnuði: Á nytjalistasýningum: Sigrún Einarsdóttir, Sören S. Larsen, Kol- brún Björgólfsdóttir, Sigurlaug Jó- hannesdóttir, Guðrún Gunnars- dóttir, Arndís Jóhannsdóttir, Hulda Jósepsdóttir, Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Þórdís Zöega, Pétur B. Lúthersson, Valdimar Harðarson, Gunnar Magnússon, Sveinn Kjarval, Markús B. Þor- geirsson, Pétur Th. Pétursson og Pétur Tryggvi Hjálmarsson. Auk þess verk frá fyrirtækjunum Ála- foss og Glit. Á listhönnuanrsýningum: Ás- gerður Búadóttir, Guðný Magnús- dóttir, Jens Guðjónsson, Jónína Guðnadóttir, Leifur Breiðfjörð, Ragna Róbertsdóttir og Steinunn Þórarinsdóttir. Á myndlistasýningum: Jóhannes S. Kjarval, Helgi Þorgils Friðjóns- son og Gunnar Örn Snorrason. Á hátíðartónleikum verður flutt verkið „Choralis“ eftir Jón Nordal. Á bókmenntakynningum: Svava Jakobsdóttir. Jafnframt verður gefið út norrænt smásagnasafn þar sem verða sögur efti Halldór Lax- ness, Guðberg Bergsson og Svövu Jakobsdóttur. Á kvikmyndahátíð: Kvikmyndin „Útlaginn“ eftir Ágúst Guðmunds- son. Á kynningum á norrænni nú- tímatónlist verða flutt verk eftir: Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Karólínu Eiríksdóttur og Áskel Másson. Einar Jóhannes- son, klarinettuleikari, verður þátt- takandi af íslands hálfu. í tengslum við kynningar og list- sýningar verða gefnar út veglegar sýningaskrár og upplýsingabæk- lingar. Auk samnorrænu verkefn- anna munu einstök lönd verða með eigin kynningar og sýningar og á þessu ári mun Kristín ísleifsdóttir verða með leirmunasýningu í Tokyo. Utanríkisráðuneytið og mennta- málaráðuneytið hafa í samvinnu við fulltrúa íslenskra listamanna staðið að efnisvali og skipulagn- ingu ásamt samstarfsaðilum í Jap- Fiskeldi: Eitraðir þörungar ollu — í fyrsta skipti svo vitað sé að'slíkir þörungar valdi tjóni hér á landi. Fyrirbærið þekkt í Noregi. — Norðmenn farnir að leita til Islands til að kynna sér strandeldi. Eitraðir þörungar ollu miklum usla og umtalsverðu tjóni hjá fisk- eldisstöðvum í Hvalfirði á dögun- um, að því er segir í nýju fréttabréfi Landssambands fiskeidi- og haf- beitarstöðva. Meðal annars missti fiskeldisfélagið Strönd h.f. um 9500 fiska. Vegin meðalþyngd fiskanna var um 420 grömm. Þetta mun vera í fyrsta skipti svo vitað sé til að slíkir þörungar valdi tjóni i fiskeldisstöð á íslandi. Við greiningu kom í ljós að hér var um þörunginn, gyrodinium aureolum að ræða. Þessi þörungur hefur valdið miklu tjóni í norsku fiskeldi. Norðmenn hafa lent í umtals- verðum vandræðum í vetur og það sem af er þessu ári með strandeldi. Frá náttúrunnar hendi eru aðstæð- ur til strandeldis hinar ákjósanleg- ustu í Noregi, en vandræðin hafa aðallega verið vegna hitra-veikinn- ar og eitraðra þörunga. I lok maí- mánaðar dvaldi hópur Norðmanna hér á landi í þeim tilgangi að kynna sér strandeldi. Til að komast hjá áðurnefndum vandamálum og tryggja sjó af betri og jafnari gæðum velta Norðmenn því fyrir sér að flytja eldið á land a.m.k. að hluta til. Ætlun Norð- manna er að dæla sjó frá miklu dýpi upp í ker á landi. Þar sem ís- lendingar hafa nokkra reynslu af strandeldi með Atlantshafslax leit- uðu þeir hingað og kynntu sér starf- semi nokkurra starfandi strandeld- isstöðva á suðvesturhorninu. Globus tekur við SAAB Globus tók við SAAB-umboðinu á Islandi þann 16. júní síðastliðinn. Reksturinn er nú þegar að komast í fullan gang og er til að byrja með skipulagður þannig að viðgerðar- og varahlutaþjónusta er á sama stað og áður í húsnæði Töggs hf. að Bíldshöfða 16, en söludeildin er rekin í Globus að Lágmúla 5. Mikil eftirspurn er eftir SAAB bifreiðum og afhenti Globus fyrstu bifreiðina þann 2. júlí s.l. an sem komið hafa til Islands til að velja verk. Samstarfsaðilar í Japan eru m.a. Seibu-Iistasafnið, ríkis- sjónvarpið NHK, Japan Foundati- on, dagblaðið Yomiuri Shimbun og fleiri. Flugleiðir hf, SAS og Finnair hafa sýnt verkefninu sérstakan vel- vilja og aðstoðað á ýmsa vegu. Gert er ráð fyrir að auk forseta íslands muni Karl XVI Gústaf Svía- konungur, Friðrik krónprins Dana, Haraldur krónprins Noregs og Sonja krónprinsessa verða viðstödd opnun ýmissa þátta ásamt ráðherr um utanríkis- og menntamála og sendiherrum. Vegagerðarmenn: Samningurinn samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu var samningur ASÍ og Vegagerðar rík- isins samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta. Samningurinn hafði verið undir- ritaður 24. júní síðast liðinn. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða starfsfólk í tímavinnu. Vinnutími frá kl. 17.00 til kl. 21.00. Upplýsingar á skrifstofu póstmeistara Ármúla 25. Á mölinni mætumst • með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. J PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða starfsfólk til sumar og framtíðarstarfa. Upplýsingar á skrifstofu póstmeistara Ármúla 25. Vegna útfarar Gunnlaugs Péturssonar, fyrrv. borgar- ritara, verða skrifstofur Reykjavíkurborg- ar að Austurstræti 16 og Pósthússtræti 9 lokaðar frá kl. 12.00 föstudaginn 10. júlí 1987. Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓE)S FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1973- 1. fl.A 1974- 1. fl. 1977- 2. fl. 1978- 2. fl. 1979- 2. fl. 15.09.87 15.09.87-15.09.88 10.09.87-10.09.88 10.09.87-10.09.88 15.09.87-15.09.88 kr. 22.062,84 kr. 13.356,08 kr. 4.144,09 kr. 2.647,32 kr. 1.725,93 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁRSGREIÐSLUMIÐA 1973-1. fl.B 15.09.87-15.09.88 10.000 gkr. skírteini 50.000 gkr. skírteini kr. 1.063,45 kr. 5.317.25 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiða ferfram í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Sérstök athygli skal vakin á lokagjalddaga 1. flokks A1973, sem er 15. september n.k. Reykjavík, júlí 1987 SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.