Alþýðublaðið - 17.07.1987, Blaðsíða 1
MMBUMDU)
- - STOFNAÐ ~1 _ , _ ,,,.,. . ,.
Föstudagur 17. júlí 1987 I 1919 1 133. tbl. 68. árg.
Aðkoman að ríkissjóöi:
MEIRI HALLI OG VERÐBÓLGA
— en búist var við. Jón Baldvin ómyrkur í máli á Akureyrarfundi. Gífurlegar auka-
fjárveitingar og undanþágufargan.
„Vandi ríkissjóðs er meiri en við
áttum von á. Hallinn er meiri en
gert hafði verið ráð fyrir, og ég ótt-
ast að verðbólgan sé meiri en opin-
berar tölur gefa til kynna,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, á opnum fundi Al-
þýðuflokksfélaganna á Akureyri í
gær. -
Jón Baldvin nefndi sem tölur um
aukafjárveitingar, þ.e. fjárveitingar
utan fjárlagaramma. Vegna flug-
stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli
Úsamþykkt
rafmagns-
tæki á
markaðnum
Stór hluti örbylgjuofna og
uppþvottavéla á markaðnum er
án tilskilinna söluleyfa frá Raf-
magnseftirliti ríkisins. Sala
þessara tækja án prófana Raf-
magnseftirlitsins er algerlega
ólögleg, en afar vægt virðist vera
tekið á brotum af þessu tagi.
Bergur Jónsson, hjá Raf-
magnseftirlitinu staðfesti þetta í
samtali við Alþýðublaðið í gær
og sagði að viðurlög væru afar
illa og nánast ekki skilgreind.
Hann sagði ennfremur að af
hálfu Rafmagnseftirlitsins væri
fremur lögð áhersla á að laða
menn til samvinnu um það að
framfylgja settum reglum í
þessu efni.
í nýlegri könnun Neytenda-
samtakanna á örbylgjuofnum
og uppþvottavélum, sem birt er
í nýútkomnu Neytendabiaði,
kemur í ljós að af 28 tegundum
uppþvottavéla sem til sölu eru í
verslunum, hafa einungis 10
hlotið samþykki Rafmagnseftir-
litsins. Ástandið virðist hlut-
fallslega mun skárra að því er
örbylgjuofnana varðar. 46 teg-
undir voru athugaðar og 29
þeirra höfðu hlotið samþykki.
Helmingur þeirra uppþvotta-
vélategunda sem ekki voru sam-
þykktar voru þó til athugunar
hjá eftirlitinu, en engu að síður
er óheimilt að selja prófunar-
skyld tæki fyrr en samþykki
hefur fengist.
Það er heldur alls ekki sjálf-
gefið að rafmagnstæki fái sam-
þykki Rafmagnseftirlitsins.
Bergur Jónsson nefndi sem
dæmi um þetta að á árinu 1984
hefðu 911 tegundir prófunar-
skyldra rafmagnstækja verið
samþykktar en 156 umsóknum
synjað.
hefði borist reikningur upp á 760
milljónir króna umfram áætlun.
Vegna Hafskips/Útvegsbanka-
málsins yrði ríkissjóður að greiða
770 milljónir og aukaútgjöld tengd
landbúnaði hefðu verið um 1200
milljónir um mitt þetta ár. Auka-
fjárveitingar af ýmsu öðru tagi
væru um 600 milljónir.
Þá sagði Jón Baldvin, að ýmis-
legt benti til þess að verðbólgan
væri nú meiri en opinberar tölur
gæfu til kynna. Nefndi hann nokk-
Eins og fram hefur komið, hyggst
Blaðaprent h/f flytja starfssemi
sína með haustinu, í nýtt húsnæði
að Lynghálsi 9. Þá verður tekin í
notkun ný prentvél sem hefur
miklu meiri möguleika en sú eldri.
Nýja vélin getur prentað 64 síður,
ur dæmi þessu til rökstuðnings.
Hann kvað hættumerkin blasa
hvarvetna við, og það yrði að taka
rösklega á ef stöðva ætti hallarekst-
ur ríkissjóðs og draga úr óhagstæð-
um viðskiptajöfnuði.
Jón Baldvin sagði, að á undan-
förnum árum hefðu stjórnmála-
menn ekki skattlagt fyrir útgjöld-
um ríkissjóðs. í stað þess hefðu þeir
tekið erlend lán og einnig á innlend-
um markaði. í síðustu fjárlögum
hefði verið gert ráð fyrir því, að afla
þar af 8 síður í 4 litum, en sú sem
fyrir er, getur einungis prentað í
svörtu 40 síður, fjórlit í opnu og
forsiðu og 1 lit á móti.
Talsvert mikil breyting verður frá
því sem nú er. Öll starfsaðstaða
1500 milljóna króna með sölu ríkis-
skuldabréfa. Aðeins hefðu selst
bréf fyrir 200 milljónir. Það væri
ljóst, að ríkið yrði að hækka vexti á
bréfunum, ef þau ættu að seljast í
samkeppni við önnur vaxtatilboð á
peningamarkaði. Hann lét hins veg-
ar í ljósi miklar efasemdir um mikl-
ar vaxtahækkanir, sem hann taldi
að gætu haft verðbólguhvetjandi
áhrif.
Jón Baldvin fjallaði nokkuð um
aðstöðu fjármálaráðuneytisins til
mun batna til muna, auk þess sem
mötuneyti verður á staðnum.
Starfsfólki fjölgar, en sem kunnugt
er verða ritstjórnir Alþýðublaðsins,
Tímans og Þjóðviljans saman í hús-
unum og verður þetta fyrirkomulag
án efa hagstæðara fyrir alla aðila.
að sinna verkefnum sínum.
Pappírsvinnan væri yfirgengileg,
m.a. vegna hverskonar undanþágu-
fargans í tengslum við skatta og
tolla. Þessar undanþágur yrðu af-
numdar með öllu og sjálfur kvaðst
hann ekki ætla að verða einhver
„afgreiðslustjóri" í ráðuneytinu.
Hann ætlaði að taka á skattamál-
unum af fyllstu hörku, en um þann
málaflokk fjallaði hann ítarlega á
fundinum og verður greint frá þeim
hluta ræðu hans í Alþýðublaðinu á
morgun.
Sameiginleg setning verður hjá
blöðunum og stendur til að kaupa
setningarvélar, en ekki er vitað
hvenær af þeim kaupum verður.
Aðalfundur Blaðaprents verður í
dag og munu málin þá væntanlega
skýrast nokkuð.
Sjávarútvegssýning undirbúin:
55 ÍSLENSK FYRIRTÆKI VERÐA MED ( HAUST
Innlendir aðilar munu ráða yfir
um þriðjungi alls rýmis á sjávar-
útvegssýningunni sem haldin
verður í Laugardalshöll í Reykja-
vík í september. Alls hyggjast 55
íslensk fyrirtæki sýna vörur sínar
á sýningunni.
Sjávarútvegssýningin er á góðri
leið með að verða fastur liður í til-
veru íslenskra fyrirtækja í þessari
grein og hefur undanfarin ár vak-
ið vaxandi áhuga erlendra aðila. í
ár er búist við miklum fjölda er-
lendra sýningargesta og er því hér
á ferðinni kjörið tækifæri fyrir ís-
lenska framleiðendur til að ná
viðskiptasamningum við erlenda
kaupendur.
Nú hefur verið ákveðið að allir
íslensku sýningarbásarnir verði
eins og hefur Gunnar Bjarnason
annast hönnun þeirra. Sýningin
verður haldin 1 Laugardalshöll
dagana 19r23. september og sýn-
ingarsvæðið verður alls 4.700 fer-
metrar.
Nýbygging Blaðaprents, Alþýðublaðsins, Tlmans og Þjóöviljans er nú að rlsa við Lyngháls I Reykjavlk. A-mynd: Róbert.
Blaðaprentsblöðin:
Fá nýja prentvél í haust
Blaðaprent flytur í nýtt húsnæði í haust. Stórauknir litamöguleikar. Hægt að
prenta 64 síður í nýju vélinni.