Alþýðublaðið - 01.08.1987, Qupperneq 2
2
Laugardagur 1. ágúst 1987
fimueuDin
Sími:
Útgefandi:
Ritstjóri:
Ritstjórnarf ulltrúi:
Blaðamenn:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofa:
Setning og umbrot:
Prentun:
681866
Blað hf.
Ingólfur Margeirsson.
Jón Daníelsson.
Ása Björnsdóttir, Elínborg Kristin Kristjánsdóttir
Kristján Þorvaldsson og Orn Bjarnason.
Valdimar Jóhannesson.
Halldóra Jónsdóttir, Eva Guðmundsdóttir og
Þórdís Þórisdóttir.
Filmur og prent, Ármúla 38.
Blaðaprent hf., Síðumúla 12.
Áskriftarsfminn er 681866.
Réttlátt
skattkerfi í augsýn
Skattskrár fyrir áriö 1987 hafa verið lagðar fram. Eitt
af helstu stefnumálum Alþýðuflokksins i síðustu
kosningu var sanngjörn tekjuskipting í formi einfald-
ara og réttlátara skattkerfis. Þar var lögð áhersla á að
gera heildarendurskoðun á skattkerfinu og herða að-
gerðir gegn skattsvikum. Rökin voru einföld: Skatt-
kerfið þarf að afla ríki og sveitarfélögum nauðsyn-
legra tekna til sameiginlegra verkefna landsmanna á
þann hátt að allir — einstaklingar jafnt sem fyrirtæki
— leggi sitt af mörkum. í því sambandi var undirstrik-
að að sníða þyrfti skattreglurá þann veg, að álagning
verði réttlát en jafnframt skilvirkari en verið hefur.
m
I málefnasamningi ríkisstjórnarinnar voru öll þessi
helstu áhersluatriði í skattamálum skjalfest. Það er
ánægjulegt að nýr fjármálaráðherra ætlar ekki að
standa við orðin tóm heldur fylgja fast á eftir að eitt
mesta réttlætismái á íslandi verði f ramkvæmt: að rétt-
látir skattar verði lagðir á einstaklinga og fyrirtæki,
undankomuleiðum verði lokað og hætt að svindla á
almenningi í þágu hinna efnameiri og ófyrirleitnari. í
Alþýðublaðinu í dag birtist viðtal við Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra: „Það er til gömul
hugmynd um réttlæti í tekjuskatti: Þeim mun hærri
sem tekjurnarverða, þeim mun meiraáviðkomandi að
greiða í skatt. Þess vegna var skatturinn þrepaður...
Reglan er einfaldlega þessi: Þeim mun hærri tekjur,
þeim mun hærri skattur." Og á öðrum stað í viðtalinu
segir Jón Baldvin Hannibalsson: „Meginverkefni rík-
isstjórnarinnar, eins og kemur fram í hennar málefna-
samningi, er að taka allt skattkerfið til heildarendur-
skoðunar: Að koma á einfaldari framkvæmd á stað-
greiðslukerfi skatta, að endurskoða frá grunni skatt-
lagningu fyrirtækja þar sem meginreglan er sú að
fækka frádráttarliðum og undanþágum og fylla út í
skattagöt, breikka skattstofninn en lækka skatt-
prósentu. í þriðja lagi að taka ákvörðun um skattmeð-
ferð átekjum og fjármagni til samræmis við tekjurfyr-
ir vinnuna. í fjórða lagi að koma á einföldu og undan-
þágulausu neysluskattakerfi sem að lokum verður
virðisaukaskattur og þar sem hægt er að koma við eft-
irliti og viðurlögum ef út af ber. í heild sinni á þetta
skattkerfi að vera einfalt, auðskilið og ódýrt í fram-
kvæmd og þar með að verða til þess að auka virðingu
mannafyrirog traust áskattkerfinu og komaí veg fyrir
skjóttekinn gróða í formi skattsvika á kostnað samfé-
lagsins."
Alþýðublaðið fagnar því að nýr fjármálaráðherra
hyggst láta hendur standa fram úr ermum til að
tryggja þjóðfélaginu réttlátara og einfaldara skatt-
kerfi sem tryggir ríki og sveitarfélögum jafnari tekjur,
jafnframt því sem undanþágum og sérreglum verði
fækkað og skattfrelsismörk hækkuð með aukningu
persónuafsláttar og barnabótum. Með fastri skilvirk-
ari og réttlátri skattstefnu er stigið stórt skref í átt að
auknu jafnrétti á íslandi.
Fyrirgreiðslustjórnkerfi
Það eru ekki aðeins kjósendur
sem virðast hafa undarlegar hug-
myndir um alþingismenn og hlut-
verk þeirra, eins og við skoðuðum í
síðustu viku. Stór hluti þingmanna
virðist einnig í vafa um hvert hlut-
verk þeirra er, a.m.k. verður ekki
önnur ályktun dregin af störfum
þeirra.
Skaffarar
Þeir þingmenn eru ótrúlega
margir sem líta ekki á það sem hlut-
verk sitt að setja landinu lög og
hafa eftirlit með framkvæmdavald-
inu, eins og stjórnkerfið gerir þó
ráð fyrir. Þeir virðast þvert á móti
líta á það sem hlutverk sitt að sinna
málefnum sem koma þingmennsku
og löggjafarstörfum ekkert við.
Þetta eru þeir sem oft eru nefndir
fyrirgreiðslupólitíkusar.
Þessir þingmenn beina einkum
kröftum sínum að nefndum, sjóð-
um og ráðum þar sem úthlutun pen-
inga eða annarra verðmæta fer
fram og reyna með ýmsum hætti að
tryggja kjördæmi sínu, kjósendum
og vinum hlut í kökunni. Þeir
leggja ákaflega sjaldan fram þing-
mál um hagsmunamál þjóðarheild-
arinnar og sumir aldrei. Þeir eiga
sitt undir því hvernig þeim gengur í
skaffarahlutverkinu, enda virðist
vera til nóg af kjósendum sem eru
reiðubúnir að dæma þá á þeim for-
sendum.
Það eru þessir menn sem mest
notuðu víxileyðublaðahilluna í AI-
þingishúsinu þegar hún var enn
uppi á vegg. Það eru þessir menn
sem eyða meiri tíma á fundum í alls
konar stofnunum heldur en þeir eru
viðstaddir í þingsölum.
Þeir eru slæmir þingmenn vegna
þess að þeir hirða meira um sér-
hagsmuni heldur en almannahags-
muni sem þeim er þó ætlað að
gæta. Það felst í eðli fyrirgreiðslu-
starfa að þegar einum er veitt fyrir-
greiðsla þá þýðir það að einhvers
staðar er annar sem ekki fékk fyrir-
greiðslu, einhver sem færðist aftar í
biðröðina af því að hinum almennu
leikreglum var ekki framfylgt. Það
auðveldar þeim þó störfin að erfitt
er að benda á neinn til tekinn sem
tapar á þessu framferði; skaðinn er
miklu fremur heildarinnar sem hef-
ur sett sér almennar reglur sem ætl-
unin var að fara eftir.
n Plj Wmam é 1
' P í
■ f’ \jK
Ég held að ekki sé á neinn hallað
þótt menn á borð við Albert Guð-
mundsson, Eggert Haukdal og
Stefán Valgeirsson séu útnefndir
smákóngar fyrirgreiðslunnar. Þeir
hafa gert fyrirgreiðsluna að ævi-
starfi.
Stjórnkerfið
En það er ekki einungis kjósend-
um og þingmönnum að kenna að
hér viðgengst pólitík sem er skaðleg
almannahagsmunum, skaðleg
þingræðinu og skaðleg siðferðisvit-
und í stjórnmálum. Fyrirgreiðslu-
sendlarnir gætu ekki verið það sem
þeir eru ef stjórnkerfið byði ekki
upp á það.
I Reykjavík hafa safnast saman
mikil völd á fáar hendur. Hér eru
teknar mikilvægar ákvarðanir um
framkvæmdir og atburði út um allt
land, oft án þess að þeir sem þær
skipta mestu máli fái nokkuð um
sagt. Hér hefur einnig safnast mik-
ið peningavald í hendur stjórn-
málamanna og afleiðingin eru þau
óeðlilegu áhrif stjórnmálamanna á
efnahags- og atvinnulíf sem eru
undirrót eilífrar heimatilbúinnar
efnahagskreppu.
Það er því að nokkru leyti eðli-
legt að þingmenn utan af lands-
byggðinni líti á það sem hlutverk
sitt að tryggja kjördæmi sínu hlut-
deild í því sem hér er skipt. Þetta er
þó eins óeðlilegt fyrir efnahags- og
atvinnulíf og frekast má verða.
Hvað halda menn t.d. að útgerðar-
maðurinn í Cuxhaven þurfi oft að
leita til þingmannsins síns vegna
bankaláns eða annarrar fyrir-
greiðslu? Ákvarðanir eru teknar af
þeim sem fjærst eru atburðum,
þeim sem minnstra hagsmuna eiga
að gæta, ekki hinum sem til þekkja
og eiga allt sitt undir afdrifaríkum
ákvörðunum.
Úr þessu má bæta með róttækum
stjórnkerfisbreytingum. Byrja á því
að færa völd úr stofnunum úr
Reykjavík til stofnana heima-
manna. Auknum völdum þurfa að
fylgja tekjustofnar heim í hérað og
einnig bein ábyrgð stjórnenda þar
gagnvart íbúum. Þetta verður bezt
gert með einhvers konar héraðs-
stjórna- eða fylkjafyrirkomulagi
sem mikið var rætt um fyrir síðustu
kosningar.
í annan stað er mikilvægt að
flytja völd frá stjórnmálamönnum
til ópólitískra stofnana sem lúta
venjulegum viðskiptalögmálum.
Hér er sérstaklega átt við ríkis-
banka og sjóðakerfi sem veita
stjórnmálamönnum alltof mikil
peningavöld í þjóðfélaginu. Stjórn-
málamenn halda lífæðum helztu at-
vinnuvega í hendi sér i gegn um
þessar stofnanir. Þetta er ákaflega
skaðlegt heilbrigðu efnahagslífi.
Það hlýtur t.d. að vera ljóst að und-
irstöðuatvinnuvegurinn, sjávarút-
vegur, má ekki stjórnast af öðru en
hörðustu viðskiptasjónarmiðum.
Ef undirstaðan er ekki traust er
hætt við að hitt titri sem ofan á er
reist.
í þriðja lagi væri vænlegt að auka
þá starfsemi þingsins sem lýtur að
eftirliti þess með störfum fram-
kvæmdavaldsins. Þetta er mikil-
vægur þáttur í starfi löggjafans sem
hefur verið vanræktur til þessa. Eft-
irlitsnefndir þingsins eru annað
hvort ekki til eða eru máttlausar af
því að þingmenn vita ekki til hvers
er ætlazt af þeim. Breytingum í
þessa veru myndi fylgja aukið
sjálfstraust þingmanna, heilbrigð-
ara og skilvirkara stjórnkerfi.
ALLIR
i RÉTTA RÖÐ
Allir í rétta röð.
Nýtt og tullkomiö tölvustýrt simaborö tryggir snögga sim-
svörun og afgreiðslu eftir réttri röö. Þegar þú hringir i Hreytil
og heyrir lagstúf. veistu aö þú hefur náö sambandi viö
skiptiboröiö og færð afgreiöslu von braöar.
Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellssveit.
Höfum opnaö nýjar biðstöövar viö Ásgarö í Garöabæ.
Esso-stööina viö Reykjavikurveg i Hafnarliröi og viö Þverholt
i Mosfellssveit. Þetta tryggir enn be'tn þjónustu.
Höfuðborgarsvæðið er nú eitt gjaldsvæði.
Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi
að Bessastööum eöa frá Austurvelli í Straumsvík
á innanbæjartaxta Reykjavíkur
\urmI7
68 55 22