Alþýðublaðið - 01.08.1987, Page 3
Laugardagur 1. ágúst 1987
Veöriöum verslun-
armannahelgina:
Votviðra-
samt en
styttir upp
Veðrið um verslunarmannahelg-
ina verður breytilegt; búist er við
votviðri fyrri hluta helgarinnar en
væntanlega styttir upp á sunnudag
og mánudag. Samkvæmt spánni
viðrar best á Suð-Austurlandi.
í heild er spáin þessi: Hæg norð-
læg átt um landið og skúrir um vest-
anvert landið og norðanvert til S-
Austurlands en þar verður þurrt og
léttskýjað. Á sunnudag tekur hins
vegar að þorna upp og jafnvel sést
til sólar á mánudeginum. Á vinsæl-
ustu stöðunum um verslunar-
mannahelgina, Vestmannaeyjum
og Húsafelli, verður svipað veður;
skúrir á laugardag en þornar upp
sunnudag og mánudag. Fólk er hér-
með hvatt til að búa sig vel og
gleyma ekki regnfötum og öðrum
skjólflíkum heima. Góða helgi !
Sumarhús eru komin I tlsku á Islandi og verða nú vinsælli með hverju árinu sem Ifður. Nefna má sem dæmi að orlofshús stéttarfélaganna, eru
yfirleitt öll upppöntuð snemma vors. Á sfðari árum hafa ýmsir aðrir aóilar einnig tekið að reisa sumarhús til útleigu. Húsin á myndinni standa rétt
fyrir utan þorpið I Vík I Mýrdal og landslagið I kring er óneitanlega með tignarlegra móti.
Sjónvarp:
BORNIN VIUA BREYTINGAR
Auglýsingar vinsælastar. Kennsla á áhugasviöinu. Innlendir þættir út. Niður-
stöður úr könnun SKAÍS koma á óvart.
Börn og unglingar vilja ýmsu
breyta hvað varðar sjónvarpsefni og
samkvæmt nýrri könnun sem
SKÁÍS hefur gert fyrir ríkisútvarp-
ið virðast forstöðumenn stofnunar-
innar hafa rennt býsna blint í sjóinn
við val á efni fyrir þessa aldurs-
hópa. íslenskir þættir sem sérstak-
lega hafa verið ætlaðir börnum og
unglingum, njóta takmarkaðra vin-
sælda en börnin vilja fremur sjá
ýmislegt sem ekki hefur verið á dag-
skránni.
Yfirgnæfandi meirihluti barna
og unglinga telja að kennsla í sjón-
varpi ætti að fara fram á tímabilinu
frá kl. þrjú á daginn til kl. sjö á
kvöldin. Nærri tveir þriðju eru
þessarar skoðunar. Næststærsti
hópurinn vill hafa þessa kennslu á
kvöldin. Þessi svör falla að stórum
hluta saman við núverandi heima-
námstíma, en hátt í 40% þeirra sem
svöruðu í könnuninni stundar
heimanámið á þessum tíma. AU-
margir lesa líka heimalexíurnar á
kvöldin og talsverðir hópar stunda
þetta nám á morgnana eða strax eft-
ir hádegið.
Það vekur raunar athygli þegar
skoðaðar eru niðurstöður sem
varða núverandi sjónvarpsefni, að
íslenskir þættir sem settir hafa verið
á dagskrá sjónvarpsins sérstaklega
vegna þessara aldurshópa eru ekki
sérlega vinsælir. Þannig vildu
fjöldamargir fella niður þætti eins
og „Rokkana“, „Stóru stundina
okkar“ og „Unglingana í frum-
skóginum".
Auglýsingar virðast hins vegar
enn vera með vinsælasta sjónvarps-
efni fyrir þessa aldurshópa, því að
af öllum þeim fjölda barna og ung-
linga sem skilaði inn svörum í
könnuninni, vildu aðeins þrír losna
við auglýsingar af dagskránni.
Jafnvel Tommi og Jenni eiga sér
fleiri andstæðinga, 7 talsins, að
ekki sé minnst á aðra næstum jafn
vinsæla þætti, svo sem Steinaldar-
mennina, fílinn Babar og litlu
prúðuleikarana.
Ef vikið er að þeim efnistegund-
um sem börn og unglingar vilja sjá
meira af í sjónvarpi, ber fyrst og
fremst að telja bíómyndir sem mjög
margir virðast vilja fjölga. Náttúru-
lífsþættir, teiknimyndir og gaman-
þættii koma svo næstir á eftir vin-
sældaröðinni. Enn má raunar
nefna að nokkur hluti þessara ald-
urshópa vill sjá meira af spurninga-
þáttum, fræðsluþáttum, íþróttum
og framhaldsþáttum og einstaka
vill jafnvel sjá meira af fréttum.
Þá má nefna að starfskynning er
vinsælt sjónvarpsefni og virðist
jafnvel ekki unnt að greina mark-
Mikil óánægja ríkir meðal íbúa
við Njálsgötuna í Reykjavík, vegna
þeirrar miklu umferðar sem fylgir
lokun Laugavegarins. Hafa þeir
sent borgaryfirvöldum og lögreglu-
stjóra bréf, þar sem þeir lýsa
óánægju sinni. Þar kemur m.a.
fram, að hraði við götuna sé ótrú-
lega mikill á stundum, auk gler-
brota og sóðaskapar. íbúarnir fara
fram á skjótar úrbætur.
Alþýðublaðið hafði samband við
Þórarinn Hjaltason, yfirverkfræð-
ing Umferðardeildar í Reykjavík og
spurði hann um gang mála. Hann
sagði meðal annars, að hann væri
búinn að mæla hraðann á Njálsgöt-
unni og hefði komið í ljós, að hann
væri 33 km á klst. Menn gætu þó
ekið þar á um 40 km hraða, þrátt
fyrir 8 cm háar hraðahindrunaröld-
ur.
Hann sagði, að gatan væri með
hættulegustu götum í bænum og
ástandið væri slæmt þar. Settar
hefðu verið hraðahindranir við
nokkrar nálægar götur, en skoðanir
væru skiptar um hraðahindranir al-
mennt.
Til stendur að taka upp einstefnu
á Njálsgötu, en ekki er hægt að
ákveða það fyrr en búið er að at-
huga allt hverfið, en þeirri athugun
lýkur væntanlega fyrir næsta vor.
„Það er enginn vafi á því, að ein-
tækan mun á milli aldurshópa hvað
þessu viðvíkur. Milli 60 og 70% af
börnum og unglingum allt frá
þriggja ára aldri og upp úr hafa
áhuga fyrir þessu efni.
Áhugi fyrir barnaíþróttum er
svipaður og fyrir starfskynningu,
stefna eykur öryggið, það hefur
sýnt sig annars staðar", sagði Þór-
arinn.
Varðandi umverðarþungann á
Njálsgötunni nú, sagði hann að
ekki hefði verið hægt að beina allri
umferðinni niður á Hverfisgötu og
en þegar kemur að kennslu fyrir
börn fer áhuginn greinilega dvín-
andi með aldrinum. Nærri 80%
yngstu barnanna vilja fá kennslu í
sjónvarpið en í 13—16 ára aldurs-
hópnum er þetta hlutfall komið
niður undir helming.
Skúlagötu, vegna mikillar slysa-
hættu þar.
Starfsmaður hjá Hreinsunar-
deild borgarinnar sagði, að erfitt
væri að komast að til að hreinsa,
vegna bíla sem færi lagt allsstaðar
sunnanmegin , í götunni.
Fríhelgin mikla:
Verslunarfólk
fólk í fullri
vinnu
„Þetta er óforskammað hjá
ríkisvaldinu, að láta fólkið
vinna á þessum eina frídegi, þeir
gátu alveg frestað þessu í
nokkra daga. Og fyrir utan það,
hvernig þetta á að vera; einn
vöruflokkur með 25% sölu-
skatti, annar með 0% og einn
með 10%, þeir eru orðnir þrír,“
sagði Júlíus Jónsson, verslunar-
stjóri, í versluninni Nóatúni í
Reykjavík, um söluskatt á mat-
vörur.
Verslunarstjórar í Hagkaup-
um og Miklagarði tóku í sama
streng og lýstu yfir mikilli
óánægju starfsfólks og við-
skiptavina, bæði varðandi skatt-
inn og vinnu um þessa helgi.
Margt verslunarfólk var búið
að ákveða með löngum fyrir-
vara, að fara úr bænum og verð-
ur nú að hætta við.
í Hagkaupum, Skeifunni var
búið að panta 50 manna rútu,
sem svo þurfti að afpanta. Þar
þurfa þeir að telja um 10 þús.
vörutegundir og bjóst Guð-
mundur Friðriksson, verslunar-
stjóri við, að það tæki 1—2
daga.
I Hagkaupum, Kjörgarði,
verður unnið á laugardag," það
fer eftir manskap," sagði Álf-
heiður Jónsdóttir, verslunar-
stjóri, aðspurð um hve langan
tíma það tæki. Hún sagði enn-
fremur, að fólk gæti vel þegið
yfirvinnu almennt," en ekki um
þessa helgi. “
í Miklagarði fer allur mánu-
daginn í vinnu og verður fram-
haldið á þriðjudag ef þarf.Egill
Viggósson, aðstoðarverslunar-
stjóri, sagði reglugerðina afar
óljósa, t.d. væri nýtt nautahakk
undanþegið söluskattinum, en
væru unnir úr því hamborgarar,
þýddi það söluskatt, — og sama
væri að segja um fleiri matvör-
ur. í Nýja-bæ og JL-húsinu
verður lokað yfir helgina.
Ferskt grænmeti, ávextir o. fl.
sleppur við skattinn, en allt sem
er unnið, fryst o. þ. h. fellur
undir söluskattinn. Einnig bök-
unarvörur, s .s. hveiti, sykur
o. fl. Einnig brauð, sultur, dósa-
og pakkamatur ýmiss konar.
Verð á hreinlætisvörum helst
óbreytt.
Bréf til borgaryfirvalda og
lögreglustjórans í Reykjavík
Við íbúar við Njálsgötu í
Reykjavík förum þess eindregið á
leit við borgaryfirvöld og embætti
lögreglustjórans í Reykjavík, að
nú þegar verði gerðar viðeigandi
ráðstafanir við Njálsgötuna vegna
aukinnar umferðar og annarra
óþæginda sem íbúar götunnar
hafa orðið að þola undanfarnar
vikur vegna framkvæmda við
Laugaveg í Reykjavík.
Viðeigandi ráðstafanir eru að
okkar mati aukið eftirlit lögregl-
unnar hvað varðar hraða og bif-
reiðastöður á gangstéttum, aukið
eftirlit borgaryfirvalda með gler-
brotum og öðrum sóðaskap sem
fylgir allri þessari bifreiðaumferð.
Síðast en ekki síst teljum við það
viðeigandi ráðstöfun að settar
verði hraðahindranir á götuna til
þess að draga úr þeim hraða sem
er ótrúlega mikili á stundum og
hlýtur að enda með ósköpum ef
ekkert er að gert. Teljum við það
sýnt að þar sem hraðahindrunum
hefur verið komið fyrir hefur
dregið úr hraða, íbúum gatnanna
til ánægju og borgarbúum öllum
til heilla. (N.B. Njálsgatan er tví-
stefnugata). Jafnframt eru hraða-
hindranir varanleg ráðstöfun.
Hingað til höfum við ekki orð-
ið vör við að neinar ráðstafanir
hafi verið gerðar til þess að mæta
þessu ófremdar ástandi, og er það
einlæg von o^kar að á þessu verði
breyting til batnaðar hið snarasta.
Njálsgata:
MEÐ HÆTTULEGUSTU
GÖTUM I BÆNUM!
Óánægjualda meðal íbúanna. Umferðin frá Laugaveginum öll á
Njálsgötuna. Hreinsunardeildin í erfiðleikum vegna bíla.