Alþýðublaðið - 01.08.1987, Síða 4
4
Laugardagur 1. ágúst 1987
„Ég er allur lurkum laminn, en ég
er fljótari aö ná mér núna en oft
áður. Það er eins og maður harðni
með árunum," segir Jón Páll Sig-
marsson, nýkominn úr keppninni
„Sterkasti maður allra tima.“
Jón Páll
Sigmarsson
aflraunamaður:
TAKA
Á
ÖLLU
SÍNU“
Talað um sterkustu menn í heimi — hvernig tilfinning
það er að draga á eftir sér 700 kílóa fallbyssu — nokkur
orð um tröliið Bill Kazmaiir — Geoff Capes í sínu besta
formi — að rölta um sér til skemmtunar með 700 kílóa
hjólbörur og sitthvað fleira sem vissara er að lesa tvisvar.
Viðtal: Örn Bjarnason
Jón Páll Sigmarsson
lœtur ekki að sér hœða
frekar en fyrri daginn.
Nú er hann nýkominn
heim eftir að hafa tek-
ið þátt í kraftakeppni
þar sem þrír sterkustu
menn veraldar reyndu
með sér. Hver sigraði í
því Siríði er reyndar
leyndarmál ennþá, en
hér á eftir fer viðtal við
Jón Pál um þessa
grimmilegu átaka-
keppni.
Öflugir andstœðingar
— Jón Púll, þú ert nýkominn
heim eftir að hafa tekið þátt í að
keppa um titilinn „Sterkasti maður
allra tíma.“ Hvar fór þessi keppni
fram?
„Þessi keppni fór fram í og við
Huntleykastala sem er ekki langt
frá Aberdeen í Skotlandi. Og auk
mín tóku þátt í þessari keppni
Geoff Capes, sem íslendingar
kannast vel við, og svo Bill
Kalzmaiir sem er Bandaríkjamað-
ur, mjög þekktur þar í landi og
raunar út um allan heim, því hann
er það öflugur að hann er kallaður
„The Recordbreaking Mountain of
a Man!“ Og þetta er maður sem
aldrei hefur tapað keppni, fyrir ut-
an það þegar hann tók þátt í keppn-
inni „Sterkasti maður í heimi,“ þá
lenti hann í þriðja sæti. Síðan vann
hann næstu þrjú ár í röð. Og þessi
maður hefur verið talinn ósigrandi
og hefur í rauninni verið það lengst
af. Hann hefur alltaf unnið þessi
mót sem hann hefur tekið þátt í
með miklum yfirburðum.
Og einmitt af því að við höfum
aldrei keppt saman, þá hafa verið
uppi vissar efasemdir um það hvort
ég væri þess verðugur að bera titil-
inn „Sterkasti maður í heimi. Og
Bill þessi er geysilegt tröll. Þetta er
sá hrikalegasti maður sem ég hef
nokkurn tímann keppt við. Hann er
vel yfir þrjúhundruð pund að
þyngd og alveg tinnukvattaður eða
skorinn, eins og það er kallað öðru
nafni. Einnig er mikil dýpt í öllum
vöðvamassanum, þannig að hann
er ekki beint árennilegur! Og það er
líka sagt um þennan mann að
„Hann skilji ekki þá upplifun að
lenda í öðru sæti“ þar sem það hafi
hann aldrei reynt nema einu sinni
fyrir mörgum árum.“
Sverð, skildir og fallbyssur
— Og í hvaða greinum var
keppt?
„Við byrjuðum á því að halda
sverðinu með annarri hendi og
skildi með hinni og áttum síðan að
halda þessum vopnum út frá Iíkam-
anum eins lengi og við orkuðum
eftir þar til settum reglum. Þar á
eftir tókum við á steinum sem við
áttum að bera nokkra vegalengd
þar sem tímataka gilti. Þetta voru
hnöttóttir steinar eins og notaðir
eru í keppninni „Sterkasti maður í
heimi.“ Þar næst drógum við fall-
byssu upp brekku með handafli, en
sú byssa vegur eitthvað um 700 kíló.
Eftir það þá hentum við staurum
eins langt og við gátum og það fór
fram á grasvelli.
En þess má geta að mótið er sett
þannig upp að mótshaldararnir
reyna að vera sanngjarnir við alla
keppendur. Þarna eru sem sagt
kastgreinar, lyftingagreinar. Eg
verð að játa, að fyrirfram leist mér
ekki þannig á, að ég hefði neina
grein sem ég gæti kallað mína grein
sérstaklega umfram hina tvo kepp-
endurna. Þarna hafði Capes nokkr-
ar kastgreinar, en þar er hann mjög
góður og eins dráttargreinar sem
hann er líka góður í og Kazmaiir
hafði svo lyftingagreinar þar sem
hann er sérfræðingur í. En Bill
Kaxmaiir hann er sá maður sem
hefur lyft mestu í kraftlyfingum
fram að þessu. Jafnvel þótt hann
hafi ekki keppt í mörg herrans ár í
kraftlyftingum á opinberum mót-
um. Og það hefur enginn getað náð
honum ennþá þar og þetta er mað-
ur sem er langt á undan sinni sam-
tíð.“