Alþýðublaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 8
8
Laugardagur 1. ágúst 1987
Ásgeir Lýðsson, lögreglumaður í Vestmannaeyjum:
„Þjóðhátíð Vestmannaeyinga
er hátíð landsins alls“
Talað um þjóðhátíð og tíðarfar — fólksstrauminn til Vest-
mannaeyjadansleiki og kvöldvökur — tjaldbúðir til fyrirmyndar
— þriggja daga fjör — drykkjuskap í lágmarki og stálhraust
börn sem verða til á þjóðhátíðum!
Lifandi
Verslunarmannahelgi!!!
Föstudagur 31. júlí
RAS 2
9.05
Morgunþáttur
Hljómsveitin Centaur heldur hljóm-
leika í beinni útsendingu I þættinum
og flytur frísklega blússlagara af
plötu sinni „Blúsdjamm.“ Kristín og
Skúli heyra hljóðið I mönnum I upp-
hafi útihátíða víða um land, leika
óskalög hlustenda úti á landi og
leggja vinsældarlistagetraun fyrir
hlustendur.
Laugardagur 1. ágúst
RÁS 1
Ferðatag 13.00
igurður Helgason fylgir ferðalöng-
um úr hlaði I upphafi verslunar-
mannahelgar, gefur góð ráð varðandi
umferð og akstur og leikur tónlist í
bland.
RÁS 2
Laugardagsrásin 12.45
Sigurður Þór Salvarsson og Þorbjörg
Þórisdóttir fara að vísu ekki langt um
helgina nema þið, hlustendur góðir,
leyfið þeim að slást (förina með fjöl-
breytta dagskrá tengda útivist, ferða-
málum og íþróttum hvar á landinu
sem er á FM 87,7—99,9
Við grillið
\ð Laugardagsrásinni lokinni reynir á
kunnáttu Hrafns Bachmanns verslun-
armanns við grillið (þegar glorsoltnir
hátíðargestir um allt land finna reyk-
inn af réttunum.)
18.00
Sunnudagur 2.ágúst
RÁS 1
15.10 Sunnudagskaffi í Eyjum
Ævar Kjartansson færir þeim, sem
ekki leggja leið sína til Eyja, brot af
þjóðhátíðarstemmningunni þar en
auk þess er hann vís til að skjóta
efni úr Eyjum inn I dagskrá rásar 2
um helgina
RÁS 2
10.05 Við tjaldskörina
Umsjónarmenn blða misjafnlega 'ufítrýf
morgunsvæfs landans við tjaldskör-'' '
ina að morgni sunnudagsins með
léttum lögum, rifja upp minningar frá
fyrri verslunarmannahelgum og leika
lög sem tengjast þeim. Þeir hafa
samband við útisamkomur um allt
land og fylgjast með umferð og um-
gengni í þessari 12 stunda dagskrá
sem stendur til kl. 22.00. Talað verður
við fólk á flestöllum ferðamannastöð-
um á landinu og einnig við þá sem
fara hvergi en njóta næðisins heima
hjá sér. Fastir sunnudagsþættir eins
og Listapopp og Spilakassinn verða
á sínum stað.
Mánudagur 3. ágúst,
frídagur verslunarmanna
RAS 2
9.05 Hringiðan
Broddi Broddason og Snorri Már
Skúlason bjóðast til að verða ferða-
fólki samferða heim. Þeir beina sjón-
um sínum til Eyja í lok þjóðhátíðar
og veita ferðalöngum gagnlegar upp-
lýsingar hvar á landi sem er. Samt
verða þeir sem heima sitja ekki
sviknir um hefðbundin hringiðudamp
í hjarta mannlífsins frekar en endra-
nær.
Ríkisútvarpid, félagi á ferðalagi
allan sólarhringinn um allt land
RIKISUTVARPIÐ
Hin árlega þjóðhátíð
þeirra Vestmanneyinga er
löngu orðin landsþekkt
og fjölmargir eru þeir
sem láta sig aldrei vanta
á þetta árvissa sumar-
gaman. Alþýðublaðið
hafði samband við Ásgeir
Lýðsson, lögreglumann í
Vestmannaeyjum og lagði
fyrir hann nokkrar
spurningar varðandi
þessa hátíð sem öllum
Vestmannaeyingum þykir
svo vœnt um og eru svo
stoltir af
— Það er Íþróítafélagið Týr sem
heldur samkomuna á þjóðhátíðinni
í ár. Hvað eigið þið von á mörgum
þjóðhátíðargestum að þessu sinni?
„Það er nú dálítið afstætt. Þetta
fer mikið eftir veðri en ég mundi
vilja giska á svona um fimm til sex
þúsund manns. Annars eru svo
margar fleiri útihátíðir núna í ár að
það er ekki gott að segja hvert
straumurinn kann að liggja en Vest-
mannaeyjarnar hafa alltaf verið
vinsælar. En ef ég man rétt þá er um
sex staði að ræða í ár þar sem í boði
eru útiskemmtanir. Annars hefur
maður verið að heyra að straumur-
inn muni liggja í Húsafell þetta ár-
ið, hvað sem svo verður.“
— Hvað verður svo helst til
skemmtunar hjá ykkur í ár? Ein-
hverjar óvœntar uppákomur
kannski?
„Það verður nú fyrst og fremst
þetta hefðbundna: Dansleikir á
kvöldin og svo kvöldvökurnar sem
alltaf hafa verið mjög vinsælar.
Fólk mætir þarna með gítara,
harmonikkur og eflaust fleiri
hljóðfæri að venju. Og svo hefur
það alltaf verið venjan að fá ein-
hverja skemmtikrafta úr borginni.“
— Þið eruð líka frægir fyrir
ákaflega fallegar tjaldbúðir?
„Ja, heimafólk kemur alltaf með
hústjöldin sín inn í Herjólfsdal og
það setur vissulega mikinn og tign-
arlegan svip á samkomuna. Svo
kemur fólkið frá meginlandinu með
sín tjöld og saman gerir þetta mjög
fallegan heildarsvip. “
— Og þetta er mikil hátíð og
heilög fyrír alla Vestmannaeyinga?
„Jú, þetta er geysilega mikil hátíð
fyrir alla Vestmannaeyinga og
þarna mæta yfirleitt allir sem
vettlingi geta valdið. Þetta er árlegt
tilhlökkunarefni. Eins er þetta löng
hátíð sem byrjar með dansleik á
fimmtudagskvöldið hérna niðurfrá
í bænum og svo bætast við föstu-
dagur, laugardagur og sunnudagur,
þannig að þetta er ansi langt og
mikið og gaman.“
— Hafiði þurft að hafa mikil af-
skipti af drukknu fólki?
„Yfirleitt er það ekki. Það er bara
veðrið sem segir til um það. Ef það
er gott veður þá er lítið að gera hjá
okkur. En ef það er slagveðursrign-
ing og svona þá situr fólk meira í
tjöldum og þá er fólk oft drukkið.
Þá sitja menn við flöskuna miklu
frekar í stað þess að fara út í rign-
inguna. Annars er yfirleitt svo mikil
hreyfing á fólki á svona hátíðum —
fólk er að labba um og sýna sig og
sjá aðra og verður fyrir bragðið
ekki eins drukkið. Og ef gott er veð-
ur þá er alveg einstakt útsýni frá
Eyjunum. Þannig byggist þetta
mjög mikið á veðrinu hvernig til
tekst.“
— En nú langar mig til þess að
spyrja þig einkennilegrar spurn-
ingar. Hefur það verið rannsakað
hversu mörg börn fœðast u.þ.b. níu
mánuðum eftir hverja þjóðhátíð?
„Nei, ég þori ekki að upplýsa þig
um það, en það er alltaf eitthvað og
ég held að enginn hafi kvartað hing-
að til yfir því að hafa ekki fengið
óskir sínar uppfylltar á þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum. “
Viðtal: Örn Bjarnason