Alþýðublaðið - 01.08.1987, Page 19
Laugardagur 1. ágúst 1987
19
„Banda-
ríkja-
menn
eru ekki
Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps mótmælir af-
skiptum Bandaríkjamanna af
hvalveiðum íslendinga innan
eigin fiskveiðilögsögu.“ Banda-
ríkin eru ekki sú vinaþjóð ís-
lendinga sem álitið hef ur verið, “
segir í ályktun sem hrepps-
nefndin hefur nú sent frá sér, en
ályktanir hreppsnefndarinnar
eru að verða árviss viðburður á
þeim tíma árs sem hlé er gert á
vísindaveiðum íslendinga.
Ályktunin fer hér á eftir:
Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps ítrekar ályktun
sína frá 29. júlí 1986 vegna af-
skipta Bandaríkjanna af hval-
veiðum íslendinga. Hrepps-
nefndin mótmælir harðlega sí-
endurteknum afskiptum
Bandaríkjanna af hvalveiðum í
vísindaskyni innan fiskveiðilög-
sögu íslands. Hreppsnefndin
telur með öllu óþolandi, að
starfsemi og mannvirki hers
Bandaríkjanna og Nató á ís-
landi skuli ekki lúta íslenzkum
lögum, en svo er t.d. ekki um
mannvirki og starfsemi þessara
aðila í Hvalfirði.
Hreppsnefndin lýsir fyllsta
stuðningi við atvinnustarfsemi
Hvals hf. og harmar árásir á fyr-
irtækið og forystumenn þess.
Hreppsnefndin minnir á, að
veiðar Hvals hf. hafa ávallt verið
undir stjórnun og ströngu eftir-
liti. Þess hefur jafnan verið gætt
að nýta þá auðlind sem hvalur-
inn er á skynsamlegan hátt,
enda ósannað með öllu, að
gengið hafi verið á hvalastofn-
ana. Sem sjálfstæð þjóð hljóta
íslendingar einir að ákveða,
hvernig þeir nýta auðlindir fisk-
veiðilögsögu sinnar á sem skyn-
samlegastan hátt og til sem
mestra hagsbóta fyrir íslend-
inga sjálfa.
Hreppsnefndin þakkar sjáv-
arútvegsráðherra ötula og ein-
dregna afstöðu hans í hvalveiði-
málinu og skorar á ríkisstjórn-
ina að fylgja stefnu hans fast
eftir og láta hvergi undan síga
fyrir hótunum og yfirgangi.
Gefist íslendingar upp fyrir hót-
unum, er sjálfstæði og sjálfs-
ákvörðunarréttur þjóðarinnar í
hættu.
Hreppsnefndin átelur hlut-
dræga afstöðu Sjónvarpsins í
hvalveiðimálinu, en Sjónvarpið
hefur þrásinnis átt viðtöl við
andstæðinga íslands í þessu
máli, jafnvel menn, sem stuðlað
hafa að skemmdar- og ofbeldis-
verkum á eignum Hvals hf.
(Samþykkt einróma 28. júlí
1987)
Prestur kosinn í Hjallaprestakall
Á kjörmannafundi í Hjalla-
prestakalli, sem haldinn var í Safn-
aðarheimili Digranessafnaðar 29.
júlí var séra Kristján Einar Þor-
varðarson kjörinn fyrsti prestur
þessarar nýju sóknar, sem stofnuð
var í vor. Á kjörmannafundinum
mættu 16 af 18 kjörmönnum, en
þeir eru aðal- og varamenn í sókn-
arnefndinni. Var þetta í fyrsta
skipti, sem prestur var valinn með
þessum hætti eftir nýjum lögum um
prestskosningar frá því í vetur,þar
sem fleiri en einn prestur sóttu um
prestakall. Umsækjendur um
Hjallaprestakall voru fjórir. En
ákveðið hefur verið að gefa ekki
opinberlega upp nöfn hinna um-
sækjendanna, þar sem einn aðaltil-
1 gangur með nýrri lagasetningu var
að sníða af ýmsa annmarka hinna
gömlu laga, og þar var ekki sízt
kapp meðal stuðningsmanna um-
sækjendanna og sá klofningur, sem
því fylgdi bæði meðal sóknarbarn-
anna, þar sem kosningar fóru fram,
og svo eftirköst, ef umsækjandi
fékk ekki brauðið og hélt síðan
heim aftur og var þá eins og honum
hefði verið hafnað, þar sem hann
vildi vera, en heimasöfnuðurinn
yrði að „sitja uppi með hann“, þar
sem aðrir vildu hann ekki. Var þetta
ákveðið í þessum kosningum nú og
eins í Hólabrekkuprestakalli, þar
sem kjörmenn velja sér prest,
fimmtudagskvöldið 30. júlí. En
reglugerð hefur ekki verið sett enn.
Séra Kristján Einar Þorvarðarson
er 29 ára gamall frá Söndum í Mið-
firði og var vígður 5. október 1986
og hefur þjónað síðan í Eskifjarð-
r Barnabílstóll
- bílpúði - belti!
Notar barnið þitt
öryggisbúnað í bílnum?
ÚUMFERÐAR
RÁÐ
arprestakalli í fjarveru sóknar-
prestsins. Kona séra Kristjáns er
Guðrún Lára Magnúsdóttir og eiga
þau einn son, 6 ára.
Ef þú lœtur þig
dreymaum
framandi lönd
undir stýri...
áttu mikla möguleika á
að draumarnir rcetist!
VAKNAÐU MAÐURI
Sofandaháttur viö stýriö, almennt gáleysi og kæruleysi öku-
manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin,
verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar
skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá
slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend-
um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niöurstaöa úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiöingum umferöarslysa).
SAMVINNU
TRYGGINGAR
-gegngáleysi