Alþýðublaðið - 13.08.1987, Blaðsíða 1
— Útgjöld og byggingarkostnaður fóru tæpan milljarð umfram áætlanir.
— Fjármálaráðherra lætur gera faglega úttekt á því í hverju mistökin séu
fólgin svo og hver beri ábyrgðina.
Útgjöld og byggingarkostnaður
vegna Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar fóru tæpan milljarð umfram
áætlanir á árinu. Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
hefur skrifað Ríkisendurskoðun
bréf vegna þessa og farið fram á að
gerð verði fagleg úttekt á því í
hverju mistökin séu fólgin svo og
hver beri ábyrgðina.
„Það lýsir sér meðal annars t
verðþenslunni í landinu að áætlanir
standast ekki. Það er auðvitað fullt
af ríkisstofnunum sem leita eftir
aukafjárveitingum af þeim sökum,
en þar að auki vantar mjög á að
settar séu eðlilegar og heilbrigðar
reglur um það hvernig aukafjárveit-
ingum sé beitt, “ sagði fjármálaráð-
herra í samtali við Alþýðublaðið í
gær og bætti við: „Síðan eru það
einstök hneykslismál sem þurfa sér-
staka rannsókn og nýlegt dæmi um
það er flugstöðvarhneykslið sem
lýsir sér í því að farið er tæpan mill-
jarð umfram áætlanir um bygging-
arkostnað og útgjöld á árinu.“ Jón
Baldvin hefur því farið fram á að
gerð verði sérstök fagleg úttekt á því
í hverju mistökin séu fólgin og hver
beri ábyrgðina.
Fjármálaráðherra sagði að mikið
hefði verið lagt í áætlunargerð
vegna flugstöðvarinnar í Keflavík,
áður en framkvæmdir voru hafnar.
„Fjármálaráðuneytið var m.a. full-
Heildaraflinn fyrstu sjö mánuðina:
Stefnir í enn eitt metárið
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands, er heildarafli
landsmanna meiri fyrstu sjö mán-
uði ársins, en á sama tíma í fyrra.
Virðist því stefna í enn eitt metárið
hvað aflabrögðin snertir. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölunum er
heildaraflinn frá janúar til loka
júlimánaðar 969.933 tonn en var
799.978 tonn á sama tímabili í
fyrra.
Meira hefur veiðst af þorski og
öðrum botnfisktegundum, en á
sama tíma í fyrra. Heildarþorskafl-
inn samkvæmt bráðabirgðatölun-
um er 263.847 tonn, en var 244.483
tonn í fyrra. Gera má því ráð fyrir
að það sem eftir er ársins þurfi
margar útgerðir að leggja meiri
áherslu á aðrar botnfisktegundir
svo nýta megi þorskkvótann fram
eftir ári. Heildarafli annarra botn-
fisktegunda frá áramótum er
185.037 tonn, en var 180.934 tonn á
sama tímabili í fyrra. Loðnuveiði
hefur einnig verið öllu meiri á þessu
tímabili, eða heildaraflinn um
492.000 tonn en var um 350.000
tonn fyrstu sjö mánuðina í fyrra.
Rækjuaflinn er 20.500 tonn en var
um 15.700 í fyrra.
Mesta aukning heildaraflans
kemur fram hjá bátunum, en sam-
kvæmt tölum Fiskifélagsins er afli
þeirra 724.870 tonn fyrstu sjö mán-
uðina, eða um 150.000 tonnum
meiri en í fyrra. Heildarafli togar-
anna hefur aukist um 20.000 tonn
miðað við sama tíma í fyrra og er
heildarafli þeirra um 244.000 tonn.
Mestur afli hefur borist í land í
Vestmannaeyjum, um 135.000
tonn. Munar þar mest um loðnuna,
eða um 99.000 tonn. Á sama tíma í
fyrra höfðu borist í land um
135.000 tonn í Eyjum. í Reykjavík
hafa borist í land um 45.000 tonn,
en í fyrra bárust í land um 41.000
tonn í Reykjavík.
Þorleifur Valdimarsson: „Fólki finnst dagskráin versna hjá Stöð 2.“
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráöherra: „Flugstöðvar-
hneyksliö þarf sérstaka rannsókn."
vissað um það i byrjun árs að allt
væri innan við ramma áætlunar og
allt mundi standast. Síðan breytast
tölurnar frá mánuði til mánaðar og
enda sem milljarður umfram áætl-
aðan kostnað, — sem þýðir stór-
felldan útgjaldaauka fyrir almenn-
ing í landinu,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra.
Þegar kostnaðaráætlun bygging-
ar flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var
lögð fram um vorið 1983 var gert
ráð fyrir að heildarkostnaður við
bygginguna yrði um 42 milljónir
bandaríkjadollara. Nú er ljóst að
kostnaðurinn verður um 70 mill-
jónir dollara og að óbreyttu þurfi
íslenskir skattborgarar að greiða
mismuninn. Bandaríkjamenn
munu greiða 20 milljónir sam-
kvæmt samningum sem tóku mið
af upphaflegri kostnaðaráætlun,
en taka ekki þátt í kostnaði umfram
áætlunina.
Bætt þjónusta er númer eitt:
Myndböndin
aftur í sókn
Útleigan svipuð og áður en Stöð 2 tók til starfa
Myndbandaleigurnar hafa sótt í
sig veðrið að undanförnu og er nú
svo komið, að álíka mikið er að gera
hjá þeim og fyrir tilkomu Stöðvar 2.
„I júní var allt komið á skrið aftur
og í dag er orðið jafnmikið að gera
hjá okkur og áður en Stöð 2 kom.
Fólki finnst dagskráin versna hjá
þeim; myndirnar séu lélegri nú en í
byrjun,“ sagði Þorleifur Valdi-
marsson, formaður félags mynd-
bandaeigenda.
Eftir að Stöð 2 tók til starfa,
lognuðust margar litlu leigurnar út
af og útleiga minnkaði hjá þeim
stærri, en á því virðist nú vera orðin
breyting.
Þorleifur sagði, að víða væri nú
mikill áhugi á því hjá myndbanda-
eigendum, að standa saman um að
hafa sem bestar myndir á boðstól-
um og bæta þjónustuna eins og
mögulegt væri, það væri númer eitt
í dag. Hann sagðist einnig hafa
áhuga á að sérhæfa myndbanda-
leigur, t.d. eina í tónlist o.s.frv.
Alþýðublaðinu lék einnig for-
vitni á að kanna verð og annað hjá
myndbandaleigunum og virtist það
vera svipað á flestum stöðum.
Algengt er að tæki og 3 spólur
séu leigðar út í sólarhring fyrir
600—650 kr., en tækin ein sér á
400—450 kr. Einnig eru nokkrar
myndbandaleigur með tilboðsverð,
t.d. er Grensásvídeó með svokallað
pakkatilboð fyrir einstaklinga og
sjúkrahús, og kostar tækið þá 350
kr. fyrir vikuna, en 2 spólur og tæki
600 kr. fyrir vikuna.
Algengt verð fyrir barnaefni er
kr. lOOfyrirsólarhringinnenannað
nýtt efni er leigt á 200 kr. Eldri
myndir fást fyrir 100—150 kr. Nýjar
myndir kosta myndbandaeigendur
fjögur til fimm þúsund krónur í
innkaupum og þurfa þeir að eigin
sögn að leigja þær út milli 20 og 30
sinnum, til að þær borgi sig. Þá er
eitthvað um það, að myndum sé
hreinlega stolið; þeir fái þær ekki til
baka. Einnig virðist vera nokkuð
algengt, að spólur skemmist í léleg-
um myndbandstækjum, stundum
eftir 10—20 skipti.
Engar reglur eru til um útleigu og
er misjafnt hvernig málum er hátt-
að varðandi skilafrest. Á flestum
myndbandaleigunum kom í ljós, að
ekki er strangt tekið á minniháttar
vanskilum, sérstaklega ef fólk lætur
vita. Víðast hvar eru útfylltir samn-
ingar um skilatíma og annað sem
máli skiptir. Blaðið veit þó til þess,
að í einni myndbandaleigu í
Reykjavík er fólk sektað um 800 kr.,
ef það skilar ekki tæki og spólum
innan sólarhrings og þykir það full-
langt gengið, svo ekki sé meira sagt.
Þar kostar tæki og 3 myndir 800 kr.,
og er það dýrara en annars staðar.