Alþýðublaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 6. október 1987 MMMBUÐIÐ Sími: 681866 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Blaðamenn: Umsjónarmaður helgarblaðs: Ingólfur Margeirsson. Jón Danielsson. Ingibjörg Árnadóttirog Kristján Þorvaldsson. Þorlákur Helgason. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir, Eva Guðmundsdóttir, Þórdís Þórisdóttir, Olöf Heiður Þorsteinsdóttir og Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Setning og umbrot: Prentun: Filmur og prent, Ármúla 38. Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Askriftarsíminn er 681866. Fjármálaráðherra og SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, SÁÁ, fögn- uðu 10 ára afmæli um helgina. Óþarfi er að fjölyrða um starfsemi SÁÁ. Á áratug hafa samtökin gjörbreytt viðhorfi landsmannatil áfengissýki, bjargað mannslífum og gefið fólki sjálfsvirðingu og sjálfstraust á nýjan leik sem ekki var lengur reiknað með sem viðbjargandi einstaklingum. Samtökin hafa á tíu árum reist eina glæsilegustu með- ferðarstöð fyrir áfengissjúklinga í Evrópu og þótt víðar væri leitað, þarsem þrautþjálfað starfslið, læknarog ráð- gjafar hjálpa fólki aftur til Ijóssins og vonarinnar. Þar að auki starfrækja samtökin tvö eftirmeðferðarheimili, annað að Sogni í Ölfusi og hitt á Staðarfelli í Dölum. Sam- tökin eigaennfremurglæsilegaraðalstöðvar að Síðumúla í Reykjavík þar sem fjölbreytt starfsemi fer fram, meðal annars ráðgjafaþjónusta og fjölskyldunámskeið fyrir að- standendur áfengis- og vímuefnasjúklinga. SáÁ hefur byggt starfsemi sína á einkaframtaki og óvenju fórnfúsu starfi einstaklinga. í dag nýtur SÁÁ dag- gjalda heilbrigöiskerfisins en þeir peningar nægja skammt og standa aðeins straum af sjúkrakostnaði við sjúkrastöðina Vog. í erfiðri samkeppni um frjáls framlög til liknarstarfsemi og sölu happdrættismiða, hefur fjár- hagsstaða samtakanna orðið æ erfiðari er fram liðu tímar og sérstaklega hefur kostnaður samfara byggingu sjúkra- stöðvarinnar að Vogi verið SÁÁ erfiður Ijár í þúfu. Greiðsluerfiðleikar SÁÁ, geta, ef lengra er horft fram á veginn, staðið hinni miklu og góðu starfsemi samtakanna fyrir þrifum. Það voru því gleðileg tíðindi sem Jón Baldvin Hannibals- son flutti SÁÁ á glæsilegri tíu ára hátíð samtakanna í Há- skólabíó síðastliðinn laugardag. í ræðu sinni sagði fjár- málaráðherra það hlutverk okkar sem lifum í íslenska þjóðfélaginu að hjálpa þeim einstaklingum sem þjást af áfengissýki: „Við vitum að þetta fóik er megnugt að lifa góðu lífi ef því tekst að rjúfa fjötrana og losa sig undan viðjunum. Þáöðlast það frelsi til að lifamanneskjulegu lífi á nýjan leik en þarf ekki að reika óviturt um vellina eins og Salomon kemst að orði,“ sagði fjármálaráðherra. Jón Baldvin reifaði síðan greiðsluerfiðleika samtakanna vegna byggingaframkvæmdanna að Vogi og ítrekaði að samtökin hefðu notið óverulegra ríkisframlaga. Síðan sagði ráðherra: „Ríkisstjórn íslands vill af þesum sökum koma til móts við samtökin. Þess vegna hefur verið ákveð- ið að leggja til við Alþingi íslendinga í fjárlögum næsta árs að á árinu 1988 og næstu árum verði varið til samtak- anna 15 milljónum krónaáári svo aðsamtökunum auðnist að halda áfram þeirri baráttu sem þau hafa hafið og heyja enn með góðum árangri." Jón Baldvin Hannibalsson hefur með þessum orðum stigið stórt skref til móts við þá sjúku og þjáðu sem orðið hafa áfengi og öðrum vímuefnum að bráð. SÁÁ hefurátíu árum leyst að mestu leyti af hólmi þá þætti heilbrigðis- kerfisins sem snúa að áfengismeðferð og aflétt legu- plássum og sjúkrarými af spítölum. Slíkt ber ríkiskerfinu að endurgreiða með ákveðnum, föstum ríkisframlögum. Þetta er því rétt ákvörðun hjá fjármálaráðherra og ríkis- stjórn íslands. Vonandi hlýtur tillagan góðan meðbyrí söl- um Alþingis. ÖNNUR SJÓNARMIÐ Þingmenn sem ekki ná endurkjöri, þurfa allajafna að finna sér nýja atvinnu. Sumir þurfa að gera þetta upp á eigin spýtur en ýmsir hafa þó haft vaðið fyrir neðan sig og fengið tímabundna lausn frá fyrra starfi meðan þeir sátu á þingi. Þá er það tiltölulega al- gengt sjónarmið að bæði sé rétt og sjálfsagt að útvega föllnum þingmönnum nýja vinnu og þá er sjaldnast valið af verri endanum, því fyrrver- andi alþingismanni hæfir að sjálfsögðu ekki að flytjast mjög langt niður virðingar- stigann í þjóðfélaginu. Senni- lega myndi virðingu Alþingis setja nokkuð ofan ef afdank- aður þingmaður færi að vinna við höfnina, svo dæmi sé tekið. Þeir þingmenn sem ekki voru endurkjörnir i kosning- unum í vor, hafa að undan- förnu sem óðast verið að raða sér í lausar stöður og hafi ekki verið lausar stöður sem þeim hentuðu, hafa þær verið búnar til. Það nýjasta i þessu efni er að nú er Davíð Aðalsteins- son, fyrrum þingmaður fram- sóknarmanna á Vesturlandi, búinn að fá nýja vinnu. Það voru flokkssystkin hans í kjördæminu sem tóku verk- efnið að sér og nú er búið að búa til nýja stöðu handa hin- um fallna þingmanni. Hann verður starfsmaður kjördæm- issambands Framsóknar- flokksins í Vesturlandskjör- dæmi og mun jafnframt rit- stýra kjördæmisblaðinu Magna. Að sjálfsögðu lásum við þetta í Tímanum. Sjálfsagt væri ekkert sérstaklega merkilegt við þessa frétt, ef ekki kæmi til það sérkenni- lega sjónarmið sem Tíminn heldur blákalt fram um það hvaða ályktanir megi nú draga af öllu saman um styrk Framsóknarflokksins í kjör- dæminu. Timinn heldur nefnilega áfram: „Þetta er í fyrsta sinn sem kjördæmissambandið hefur á sínum snærum launaðan starfsmann, þannig að þetta eru merk tímamót fyrir sam- bandið, og sýnir kannski best Davíð Aðalsteinsson. Ber að túlka fall hans af þingi sem tákn um sókn Framsóknarflokksins í Vest- urlandskjördæmi? Okkur finnst það mjög athyglisvert sjónarmið. þá sókn sem flokkurinn er f á Vesturlandi." Þar höfum við það. Þegar framsóknarþingmenn detta út af þingi í kosningum, ber að skilja það sem merki um sókn í kjördæminu. Óneitan- lega sjónamið sem vert er að vekja athygli á. Mannaráðningar á Vesturlandi: Davíð starfsmaður kjðrdæmissambands Davíð Aðalstcinsson, fyrrvcr- andi alþingismaður Framsdknar- ni>kic.sins, bctur verið ráðtn starís- maður kjóKÍæmissornbands i:ram- sdknarflokksins á Vesturlandi. Auk þess mun hann ritstýra kjftr- dan'nisMaðinu Magna- Aðalaðsetur Daviös vcrður í fiorgarnesí, nánar líltekið á Brák- arbraut 5, og siminn þar er 7633. Hans aðalstarf vetður að stvrkja félagsstarfið og efla tengsl flokks- félaga innbyrðis sem og aö efla , tlokkinn í heild sinni. Þetta er í íyrsta sinn sem kjör- dæmissambandiö hefur á stnurn snairum launaöan starfsmann. þannig aö þetia eru inerk ttmamöt tyrir sambandiö,og sýnir kannskt best þá sókn sem flokkurinn er í á Vesturlandi. Maghi mun í framhaldi af þess- unvbreytingum kotna m mánaðar- ieg;t og na'sbí biað er vamtnrtiegt um næstu mánaöamót. - SÓL Guðrún Jóhannesdóttir, formaðru kjórdæmissamhands FrajnwVknar- flokksins ú X't'AmteuéL Ák'xmrít't Stefánsson, alþingtsmaður ug 0av.tð J Aöalsteinsson, nýráðinn starfsmaðnr kjnrdtvmis.samband.vtus og rit^jóri/ Magna. ORÐSENDING ERÁ IÐNLÁNASJÓÐI UM BREYTT ÚTLÁNAKJÖR Hinn 15. september kom til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlánasjóðs. Þau eru nú sem hér segir: Vélalán háð lánskjaravísitölu 7,65% vextir Byggingarlán háð lánskjaravísitölu 8,65% vextir Útlán bundin gengi SDR 8,65% vextir Lán vöruþróunar- og markaðsdeildar háð lánskjaravísitölu 5,00% vextir Byggingarlán undir 5.000.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en byggingarlán yfir 5.000.000,00 kr. eru bundin gengi SDR. Vélalán undir 250.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en vélalán yfir 1.000.000,00 kr. eru bundin gengi SDR. En þegar tekin eru vélalán hærri en 250.000,00 kr. en iægri en 1.000.000,00 kr. ræður lántaki hvor kjörin hann þiggur. Samsvarandi breyting verður á útistandandi iánum þar sem ákvæði skuldabréfa heimila slíkt. IÐN LÁIMASJÓDUR IÐNAÐARBANKINN USKJARQÖTD 18, 101 REYKJAVlK, SiMI 081800

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.