Alþýðublaðið - 14.10.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. október 1987
3
FRÉTTIR
í landbúnaðarráðuneytinu eru menn hreint ekki tilbúnir að gefa sjávarútvegsráðuneytinu fiskeldið
eftir. Með vaxandi fiskeldi hérlendis hef ur komið upp umræða um það hvort ráðuneytið eigi aö fara
með þessi mál og hefur þar hverjum sýnst sitt.
Landbúnaðarráðuneytið kynnti sín sjónarmið í þessu efni á sérstökum kynningarfundi i gær.
Á fundinum voru kynntar ýmsar stofnanir sem hafa með þessi mál að gera og starfsemi þeirra í
því sambandi gerð skil. A-mynd: Róbert
Fækkun undanþága — lækkun söluskatts:
Aðgerðum frestað?
Fjármálaráðherra segir að meta þurfi þensluástand um ára-
mótin, áður en nokkuð verði hægt að fullyrða um lækkun
söluskattsprósentu.
Ef ekki hefur dregið úr
þensluástandi um áramót
kemur til greina að fresta að-
gerðum ríkisstjórnarinnar um
fækkun undanþága sölu-
skatts og lækkun skattprós-
entu, sem stefnt var að eftir
áramótin.
Að sögn Jóns Baldvins
fjármálaráðherra þart að
meta það í árslok, hvort kerf-
ið hafi verið kælt niður og
slegið hafi á þensluna. Lækk-
un söluskattsprósentunnar
mundi þýða lægra vöruverð
og ýta undir þensluáhrif ef
aðgerðir rfkisstjórnarinnar nú
hafa ekki skilað árangri um
áramót.
Ekki er vitað hve fækkun
undanþága geti leitt til mikill-
ar lækkunar skattprósentu.
Fjármálaráðherra sagði að
talað hefði verið um sölu-
skatt undir 20%, en sagði
ógerlegt að fullyrða nokkuð
um slíkt, að svo stöddu.
Vilhjálmur Egilsson, Verslunarráði:
„Þjóöarsáttinni
sagt
„Ég lít svo á aö með
skattahækkununum sé ríkis-
stjórnin að segja upp þjóðar-
sáttinni og nánast að taka til
baka allt þaö sem samið var
um í febrúar og desember-
samningunum,“ sagði Vil-
hjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs
íslands í samtali við Alþýðu-
blaðið. Vilhjálmur telur þetta
neikvæðasta þáttinn í fjárlög-
um og efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. Jákvæö-
asti þátturinn er að mati Vil-
hjálms viðleitni rikisstjórnar-
innar til hallalausra fjárlaga.
„Það er líka jákvætt aö
leyfa innlendum aðilum að
upp
fjárfesta erlendis og þyrfti að
halda áfram á sömu braut,“
sagði Vilhjálmur. Fleiri já-
kvæð atriði nefndi hann ekki,
en tíundaði hins vegar nei-
kvæða punkta sem felast í
hækkun einstakra skatta:
„Áform um hækkun skatt-
lagningar á sjávarútveg, er
ekki til þess fallin að styrkja
trú um að fastgengisstefnan
haldi, vegna þess að útflutn-
ingsgreinarnar eru þær sem
þurfa að bera uppi þá
stefnu," Vilhjálmur sagði
ennfremur misráðið að
hækka bílana á nýjan leik.
„Það er enn eitt dæmið um
það að almenningur geti ekki
treyst stjórnvöldum."
Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB:
„Verst fyrir
þá verst settu“
„Við erum ákaflega þungir
yfir þessu öllu saman. Þetta
kemur verst niður á þeim
sem búa við verstu kjörin,"
sagði Björn Arnórsson hag-
fræðingur BSRB um efna-
hagsaðgerðir og fjárlaga-
frumvarp rikisstjórnarinnar.
Björn segir að það verði
erfitt að gera kjarasamninga í
framtíðinni sem grípi inn í
efnahagsiifið og miði að því
að halda verðbólgu í skefjum.
„Það verður nánast ógerlegt
ef ekki er hægt að treysta
samningsaðilunum."
Björn sagðist vonast til að
ríkisstjórnin bæri gæfu til að
standa gegn þrýstingi um
gengisfellingar. „Ef að þvf
hjóli verður hreyft af stað, þá
eigum við eftir að ganga í
gegnum hroðalega erfitt ár,
— og er þó nóg samt.“
Fjárlagafrumvarpið:
Bremsur á erlend lán
Allar lántökur ríkissjóös árofmaðar
innanlands — Tekjur og gjöld í frum-
varpinu nema tæpum 60 milljöröum —
Fjárlögin hallalaus
Rikissjóður tekur engin ný
erlend lán á næsta ári, sam-
kvæmt fjáriagafrumvarpi fyrir
árið 1988, sem fjármálaráð-
herra lagði fram á Alþingi í
gær, Samkvæmt frumvarpinu
nema tekjur og gjöld rikis-
sjóðs um 59,6 milljörðum
króna og eru fjárlögin því
hallalaus.
„Það er stór dagur í lífi
hvers höfundar, þegar út
kemur bók. Þessi bók er ekki
mikið skemmtiefni en hún er
heil náma af fróðleik og
snertir hag allra í þjóðfélag-
inu,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson þegar hann
kynnti frumvarpið á blaða-
mannafundi í gær.
Samkvæmt frumvarpinu þarf
ríkissjóður að taka að láni 4,2
milljarða króna til þess að
standa undir afborgunum af
lánum sem tekin hafa verið á
liðnum árum og til þess að
lána til ríkisfyrirtækja.
Meðal nýbreytna i þessu
frumvarpi er að allar lántökur
eru áformaðar innanlands. í
fyrsta skipti í áraraðir er er-
lend lántaka opinberra aðila
lægri en afborganir af erlend-
um lánum. Lánsfjárráðstöfun
lækkar um 3,6 milljarða frá
yfirstandandi ári og grynnkað
er á erlendum lánum þjóðar-
búsins.
Af innlendu lánunum er
áætlað að afla 3 milljarða
meö sölu spariskírteina og
1,2 milljarða króna með
samningum við bankakerfið.
Skuldastaða þjóðarbúsins er
nú talin um 115 milljarðar eða
um 70 prósent af landsfram-
leiðslu. Gert er ráð fyrir að
sjötta hver króna af útflutn-
ingstekjum fari til greiðslu
erlendra lána.
Samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu er afnumin ríkis-
ábyrgð á lántökum fjárfest-
ingarlánasjóða og ríkisfram-
lög til þeirra felld niður. Þetta
er í samræmi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar um að bein af-
skipti af atvinnulífinu séu
sem minnstar.
Nánar er fjallað um fjár-
iagafrumvarpið í fréttaskýr-
ingu í opnu blaðsins I dag.
Ástralski píanóleikarinn Roger
Woodward.
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur sína aðra áskriftartón-
leika fimmtudaginn 15. októ-
ber. Frumfluttur verður Píanó-
konsert eftir Áskel Másson
sem hann samdi sérstaklega
fyrir ástralska píanóleikarann
Roger Woodward en hann er
einmitt einleikari þessara
tónleika. Auk þess verða flutt
Parlsarsinfónían eftir Mozart
og „Myndir á sýningu" eftir
Mussorgsky.
Roger Woodward hefur
getið sér gott orð sem túlk-
andi sígildra og nýrra píanó-
verka. Hann er talinn vera
besti konsertpíanisti heims
en þrátt fyrir það sþilar hann
gjarnan í minni hljómsveitum
Franski hljómsveitarstjórinn
Diego Masson.
og slær þá oft á léttari
strengi.
Stjórnandi á tónleikunum
verður franski hljómsveitar-
stjórinn Diego Masson. Hann
var áður þekktur sem slag-
hljóðfæraleikari en hefur nú
snúið sér að stjórn hljóm-
sveita þ.á.m. Fílharmóníu-
hljómsveit Lundúnaog BBC
Sinfóníuhljómsveitinni. Hann
er einnig stofnandi og stjórn-
andi Musique Vivante, sem
einbeitir sér að flutningi nú-
tímatónlistar.
Eins og venjulega eru
áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar haldnir í
Háskólabíó og hefjast
kl. 20:30.
Gunnar J. Friðriks-
son formaöur VSÍ:
„Loksins
tekið
til hendi“
„Við hljótum að fagna því
að loksins skuli vera tekið tii
hendi og mörkuð einhver
ákveðin stefna. Við sjáum
a.m.k. hvaða rammi okkur er
sniðinn,“ sagði Gunnar J.
Friðriksson um efnahagsað-
gerðir og fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar.
Gunnar sagðist ekki hafa
fengið tækifæri til að kynna
séreinstakla liði, en augljós-
lega væru menn óhressir
með ýmsa skatta á atvinnu-
vegina, sérstaklega auknar
álögur á útflutningsgreinarn-
ar. I þvi sambandi nefndi
hann launaskattinn og þá
ákvörðun að hætta að endur-
greiða söluskattinn.
Formaður Vinnuveitenda-
sambandsins sagði að endur-
greiðslan á söluskattinum og
launaskatturinn gerði stöðu
samkeþpnisiönaðar og út-
flutningsgreinanna enn erfið-
ari, miðað við að búið sé við
fast gengi.
PÍANÓKONSERT
FRUMFLUTTUR