Alþýðublaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. október 1987 5 Vigdis forseti heilsar Cossiga forseta ítaliu í Quirinale höllinni i Róm. Handan viö Cossiga forseta er Andreotti utanríkisráðherra og yst til haegri sendiherra ítala á ís- landi Scaglia. Lengst til vinstri á myndinni er siðameistari italska utanríkisráðuneytis- ins Francesco Guariglia, sem hafði veg og vanda af hinni glæsilegu heimsókn. Vigdis kemur í fylgd Francesco Guariglia siðameistara inn i Sala d’Ercole, þar sem hún tok á móti sendiherrum erlendra ríkja í Róm. Takið eftir vegateppunum. sem skrevttu allan salinn. 1 Opinber heimsókn Vigdísar forseta til Ítalíu GLÆSILEG FERÐ Sikileyingarnir heilluðust af Vigdísi. Vildu norræna drottn- ingu aftur á eyjuna. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir fór ( opinbera heimsókn til Ítalíu í fyrri viku í boði Cossiga forseta Italíu. Vigdís forseti átti viðræöur við Cossiga forseta, Goria forsætisráðherra og Andre- otti utanríkisráðherra. Eftir tveggja daga opinbera heim- sókn til Rómar var Vigdís forseti tvo daga á Sikiiey í boði stjórnarinnar, Atti hún viðræður við landstjórann í Sikiley, auk borgarstjórans I Palermo. Hún skoðaði þing- höllina í Palermo og ráðhúsið auk þess sem hún fór í þyrlu- ferð um eyjuna m.a. umhverf- is eldfjallið Etnu. Þá skoðaði hún tvö grísk útileikhús á eyj- unni, steinhellana frægu í Sirakúsu, sem voru eitt af sjö furðuverkum veraldar, þ.e. eyra Dionisosar. Hún kom á búgarð hjá borginni Kataníu og vakti svo mikla hrifningu eyjaskeggja, að þeir höfðu að orði að hún ætti að vera drottning Sikileyjar, enda réðu norrænir menn Sikiley hundruð ára og þinghúsið í Palermo heitir einmitt Palazzo dei Normani — höll Normanna. í föruneyti Vigdís- ar forseta var m.a. Steingrím- ur Hermannsson, utanríkis- ráðherra, sem átti viðræður við Andreotti utanríkisráð- herra um öryggismál Evrópu með tilliti til þeirra afvopnun- artillagna, sem nú eru rædd- ar milli stórveldanna auk þess sem þeir ræddu við- skipti landanna og afstöðu Efnahagsbandalagsins til þeirra. G.T.K. Höfuðbúnaður heiðursvarðanna i Quirinale höllinni þótti með afburð- um glæsilegur. Ef til vill er hér kominn úlfynjan sem fóstraði Rómul- us og Remús, sem stofnuðu Rómarborg 753 f.kr. Ljósmyndir: Guð- laugur Tryggvi Karlsson. Frá veislu landsstjórans á Sikiley í Villa Igiea til heiðurs forseta íslands. I ráðhúsi Palermo, Palazzo delle Aquila, stóð yfir gifting i kapellunni þegar Vigdísi forseta bar að. Hér heilsar hún ættingjum brúðhjónanna. Fulltrúi Vatikansins heilsar forsetanum. Til hægri er Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra og Hörður Helgason sendiherra. Spjallað saman i griska leikhúsinu i Taormina, þar sem Halldór Laxness samdi Vefarann mikla frá Kasmír. Frá vinstri: Vigdís forseti, leiðsögumaður, Steingrímur Hermannsson og kona hans Edda Guðmundsdóttir. Aftan við Vigdisi er Kornelíus Sig- mundsson, forsetaritari og standandi er Scaglia sendiherra ítala.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.