Alþýðublaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. nóvember 1987 5 FRETTIR Smábátasjómenn: LEIGJA BAT OG KVÓTA Takmarkanir kvótafrumvarpsins bjóða upp á lögbrot að sögn smábátasjómanna Trillukarlar leigja sér bara bát og kvóta þegar þeir eru búnir með sinn, eða landa á nafn annars báts. Takmarkan- irnar sem boðaðar eru í nýja kvótafrumvarpinu bjóða upp á að menn reyni að fara í kringum það. Þetta kemur fram í spjalli sem Alþýðu- blaðið átti við smábátasjó- mann. í 9. grein frumvarps til laga um stjórn fiskveiða kemur f- ram að bátum undir 6 tonn- um er óheimilt að veiða meira en 40 tonn árlega, en bátar 6—10 tonn fá ákveðið aflahámark miðað við meðal- afla á ákveðnu viðmiðunar- tímabili. Samkvæmt heimild- um Alþýðublaðsins bjóða þessar takmarkanir upp á það að menn fari í kring um reglurnar. „Þegar menn eru búnir með kvótann sinn, taka þeir sér bara á leigu bát sem er lítið i fiskiríi og halda áfram,“ sagði smábátasjómaður sem Alþýðublaðið ræddi við. Sagðist hann þekkja dæmi þess að menn hafi veitt áfram á stórum báti, en land- að þvi á trillu, sem þeir annaðhvort eiga eða hafa tek- ið á leigu. í morgum tilfellum eru þeireinnig fiskverkendur, eða þeir semja við fiskverk- andann. Þannig að eftirlit með þessu er svo til ekkert. „Þetta býður upp á svona vinnubrögð. Það er ófært að smíða kerfi sem beinlíns leiðir af sér þörf manna að brjóta það í nauðvörn." Að mati smábátasjómannsins er þessi tillaga algjörlega óhæf, illa unnin og ókunnáttusam- lega. Hún væri greinilega unnin af mönnum sem ekkert þekkja til smábátaútgerðar. Smábátasjómönnum væri ekki svarað þegar þeir benda á annmarkana. Að mati viðmælanda blaðsins væri ekki tekið tillit til atvinnumannanna eins og sagt væri, heldur miðaðist þetta frekar við „hobbý“ menn. ERUHfl EKKI ÞflGNflÐAR" M Turninn á Lækjartorgi i Reykjavik öðlaðist nýtt hlutverk i gær þegar upp- lýsingaþjónusta Miðlunar, Gula linan, opnaði þar útibú. A—mynd: Róbert. HÁTÍÐAHÖLD í GRANDA Mikil hátíðahöld verða í Granda hf. i dag. Starfsmönn- um og fjölskyldum þeirra er boðið að koma og taka þátt i hátíðahöldunum. Tilgangur- inn er að gefa aðstandendum starfsmanna kost á að kynn- ast af eigin raun fyrirtækinu þar sem feður þeirra, mæður systkini og aðrir nákomnir starfa dags daglega. Með þessu vonast stjórn- endur Granda hf. að fjöl- skyldan í heild nái að auka tengsl sín og skilning á mikilvægi þeirrar starfsemi sem fer fram í Gránda. Að sögn forráðamanna Granda Verðkönnun Verðlagsstofnunar: NÝI BÆR DÝRASTI STÓRMARKADURINN Verðlag í verslunni Fjarðar- kaup í Hafnarfirði er í 89% tilvika fyrir neðan meðalverð. Nýi bær, Eiðistorgi, verðlegg- ur hins vegar sínar vöru r í flestum tilvikum fyrir ofan meðalverð, eða i 88% tilvika. Þetta kemur fram í verðkönn- un sem Verðlagsstofnun gerði í ellefu stórmörkuðum nú í október. Þar segir enn fremur að Nýi bær sé oftast með hæsta verð á vörum sín- um eða á 157 vörutegundum af 265. Fjarðarkaup í Hafnar- firði reyndist hins vegar vera með lægsta verð á 127 vöru- tegundum af 289. Hagkaup í Kringlunni kemst næst Fjarö- arkaupum, er með lægsta verð á 56 vörutegundum af 262. Það virðist vera sama hvað Verðlagsstofnun tók fyrir í könuninni, Nýi bær, var yfir- leitt með hæsta verð. Tekin var saman hlutfallslegur fjöldi með hæsta og lægsta verð og var þá um 60% vöru- tegunda i Nýja bæ með hæsta verð. Aftur á móti var um helmingur vörutegunda í Fjarðarkaupum með lægsta verð. Á meðfylgjandi súluriti má sjá að Fjarðarkaup er oft- ast fyrir neðan meðalverð en Nýi bær fyrir ofan. % 90 80 70 60 50 40 30 20 10 meðalverð 10 20 30 40 50 60 70 - 80 90 Verð fyrir neðan og ofan meðalverð HLUTFALLSLEGUR FJÖLDI VÖRUTEGUNDA í HVERRI VF.RSL.UN FYRIR OFAN MEÐALVERÐ. .111 H ••• 4 o- l-i _ c S- c S 3 5S cl'E si 11 1 §■ 2 S HI.UTFALLSLEGUR FJÖI.DI VÖRUTEGUNDA í HVERRl VERSLUN FYRIR NEÐAN MEÐALVERÐ. hf. er þetta einnig verðugt tækifæri til að kynna yngri kynslóðinni aðal atvinnuveg þjóðarinnar. Fyrirtækið verður opið frá kl. 13.00—18.00. í Granda- garði verður kynning á starf- semi og vinnuaðstöðu og opnuð málverkasýning, sem fengin er að láni frá Lista- safni A.S.Í. Bakkaskemma, sem hýsir mikinn hluta af starfsaðstöðu Granda hf. verður einnig opin gestum. Það verður m. a. kynnt aðstaða starfsmanna- félags Granda. í Norðurgarði verða til sýnis ýmsar fiskteg- undir og á skrifstofunni sem er þarna til húsa verður boðið upp á tölvuleiki og fleira. All- an daginn verða standandi kaffiveitingar í mötuneytinu og úti fyrir Norðurgarði verð- ur einn að togurum Granda hf. til sýnis. Þeir.sem langar í siglingu, eiga þess kost að fara með togaranum stutta ferð. Fyrsta ferð verður farin kl. 13.00 og sú slðasta kl. 17.00. segir Þórhildur Þorleifs- dóttir við ummælum Baidvins Jónssonar. Næsta skref jafnréttis- baráttunnar, karlakeppni? Andstæðingar fegurða- samkeppna eru ekki þagnað- ir, þó árangur islenskra stúikna i heimsmeistara- keppni í fegurð undanfarin ár hafi verið góður. Þeir segja þetta ánægjulegt fyrir stúlk- urnar, en fegurðarmælikvarð- inn sé út i hött. Næsta skref jafnréttisbaráttunnar fegurð- arsamkeppni karla? „Maður hefur ekkert á móti fallegu kvenfólki frekar en fallegum körlum," sagði Þór- hildur Þorleifsdóttir þingmað- ur Kvennalistans, er Alþýðu- blaðið bar undir hana um- mæli Baldvins Jónssonar í Mbl. í gær, þar sem hann vonast til að raddir andstæð- inga fegurðarsamkeppna séu þagnaðar, vegna glæsilegs árangurs íslenskra stúlkna I slikum keppnum undanfarin ár. „Þær raddir hafa ekkert með það að gera hvort þess- ar stúlkur ná árangri í keppni eða ekki, heldur það mat sem lagt er á kvenfólk með því að stilla þeim upp til sýn- is og dæma hver sé „falleg- ust“. Fannst henni þessi notkun á kvenlíkamanum, til- litslaust til annarra verðleika, vera niðurlægjandi. Sagði hún að árangur þessara stúlkna væri auðvitað ánægjulegur fyrir þær. „Það er auðvitað gleðilegt fyrir þær að ná árangri á þeirri braut sem þær velja sér. Maður er ekkert að amast við þessum stúlkum, manni finnst þær nánast vera fórn- arlömb sjónarmiða karla." Sagði hún að á meöan karlmenn telja sér sæmandi aö mæla kvenfólk eftir þess- um mælikvarða sé langt í land. „Það er kannski væn- legast til árangurs í jafnrétt- isbaráttunni að efna til veg- legrar karlakeppni og sjá hvað þeim þætti um það.“ Tilkynning frá Lyfjaeftirliti ríkisins, Lyfjanefnd og Lyfjaverðlagsnefnd Skrifstof ur f ramangreindra aðila hafa verið fluttar að Eiðistorgi 15, 3. hæð, Seltjarnarneshreppi (dyrasími og inngangur frá 1jp§inu). Nýtt símanúmer efrsL (91) 61 21 11. Póstfang Lyfjaefti^ Pósthólr240. 172 Seltjarnarnesi. Lyfjanefnd: Pósthólf 180. 172 Seltjamarnesj

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.