Alþýðublaðið - 01.12.1987, Qupperneq 3
Þriðjudagur 1. desember 1987
3
FRÉTTIR
Haffjarðará í sölu:
NÝTA HEIMAMENN FORKAUPSRÉTT?
Aðstoð ríkisins hugsanleg. Tveir einstaklingar hafa boðið 118 milljónir í ána. Tíu ára
samningur við tilboðsgjafana gerir heimamönnum erfitt fyrir.
Heimamenn og fleiri kanna
nú möguleikana á að nýta
forkaupsréttinn að Haffjarö-
ará, hugsanlega með aðstoð
ríkisins. Páll Jónsson og Ótt-
ar Yngvason hafa þegar boö-
iö núverandi eigendum, um
118 milljónir króna að því að
talið er, fyrir ána og jarðirnar
í kring. Þeir hafa nú þegar
tryggt sér ána á leigu i tíu ár,
og gerir það heimamönnum
mjög erfitt fyrir, þar sem lág-
ar tekjur yrðu af ánni á þeim
tima.
I síðustu viku var haldinn
fundur ýmissa aðila sem
áhuga hafa á málinu, þ.á.m.
brottfluttra Snæfellinga og
Hnappdælinga. Á fundinn
mættu einnig oddvitar hrepp-
anna tveggja sem áin og jarð-
irnar eru í, Kolbeinsstaða-
hrepps og Eyjahrepps. Skip-
aður var starfshópur til að
kanna málin frekar.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Reynir Ingibjartsson
einn úr hópnum að þarna
væru tveir einstaklingar að
kaupa um helming allra jarða
i tveimur hreppum og ána (
þeim tilgangi einum að nýta
veiðiréttindin. Þarna væru
einnig ýmsir sérstakir og
fagrir staðir sem m.a. væru á
minjaskrá Náttúruverndar-
ráðs og hefðu menn áhyggjur
af því að þarna verði hugsan-
lega unnin spjöll vegna hagn-
aðarsjónarmiða.
Að sögn Reynis hafa Páll
og Óttar verið með ána á
leigu frá því í fyrra, til tíu ára
þannig að mjög erfitt væri
fyrir heimamenn að nýta sér
forkaupsréttinn, því að þarna
væri um svo háar upphæöir
að ræða og áin gæfi ekkert
af sér í mörg ár. „Hrepparnir
eiga enga peninga. Þeir gætu
kannski tekið dýr lán, en
þetta er svo fátt fólk að það
gæti ekki staðið undir því.
Sérstaklega þar sem hrepp-
arnir eru bundnir af leigu-
samningnum“. Sagði Reynir
að sér þætti eðlilegast að
ríkið kæmi inn I þessar um-
ræður, enda væri það engin
lausn að einhverjir aðrir
einkaaðilar keyptu jarðirnar.
Sagði Reynir að þetta mál
þyrfti að vinna vel í nánu
samráði við heimamenn.
Hrepparnir hafa fjögurra
vikna frest til að ákveða hvort
þeir nýti sér forkaupsréttinn,
og ætti sá frestur a'ð renna
út um miðjan des. Sagði
Reynir að ýmsar athuga-
semdir hefðu veriö gerðar og
farið hefði verið fram á mat,
þannig að fresturinn væri I
raun til jóla.
Starfshópurinn sem skip-
aður var mun hittast næstu
daga og verður stefnan þá
ákvörðuð frekar.
Útvarpsstjóri Stjörnunnar:
MARKÚS ÖRN
BIÐJIST
AFSÖKUNAR
Svipmyndir frá ráóstefnu félagsmálaráðuneytisins um starfsmenntun i atvinnulífinu sem haldin var á lauqar-
aaginn. a
Starfsmenntun í atvinnulífinu:
YFIR 200 Á RÁDSTEFNU
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIS
er haldin var um helgina. Félagsmálaráðuneytið hœst ánœgt með
hversu góð og fjölbreytt þátttakan var.
Olafur Hauksson, útvarps-
stjóri Stjörnunnar hefur sent
Markús Örn Antonsson,
útvarpsstjóri:
..HEF MÍNAR
HEIMILDIR”
„Ég held aö menn veröi aö
skoða þetta í samhengi við
orðrétt ummæli mín í HP,
þær getgátur sem þar koma
fram um þennan erfiða rekst-
ur, og þar er ríkisútvarpið
meðtalið, eru settar fram til
að vekja menn til umhugsun-
ar um stöðu þessara útvarps-
mála almennt um þessar
mundir“, sagði Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri er
Alþýðublaðið bar þessi um-
mæli undir hann.
Sagði hann að það sem
hann hefði látið hafa eftir sér
um Stjörnuna og Bylgjuna
væri byggt á ummælum sem
hann hefði heyrt og á umtali
manna sem hafi verið að lýsa
áhyggjum slnum. Þettaværu
menn sem stæðu mjög nærri
þessum stöðvum. Sagði
hann að alls ekki væri verið
að reyna að koma höggi á
keppinauta ríkisútvarpsins,
með þessum vangaveltum
um rekstrarafkomu Bylgjunn-
ar og Stjörnunnar eftir að
samkeppni hófst milli þeirra.
það hefði margoft komið
fram af sinni hálfu að ríkisút-
varpið væri rekið með tapi.
Muntu biðjast afsökunar
og draga ummæli þín til
baka?
„Ég myndi fyrstur manna
óska þeim á Stjörnunni og
öðrum til hamingju ef þeir
væru að safna fé og þessi
rekstur rekinn með stórfelld-
um hagnaði. Hins vegar hef
ég mínar heimildir sem segja
mér annað. Ég vildi aðeins
vekja menn til umhugsunar
um stöðu þessara miðla og
þeim aðstæðum sem þeir
búa við I dag, þar er rlkisút-
varpið meðtaliö".
frá sér fréttatilkynningu þar
sem hann fordæmir harðlega
þau orð Markúsar Arnar
Antonssonar útvarpsstjóra í
siðasta Helgarpósti, að
Bylgjan, Stjarnan og Stöð 2
séu reknar með tapi. Ólafur
segir fullyrðingu Markúsar
Arnar „furöulega" og að hún
„flokkist undir atvinnuróg."
í fréttatilkynningunni segir
orðrétt:
„Fullyrðing Markúsar Arnar
er vægast sagt furðuleg, og
flokkast undir atvinnuróg.
Ríkisútvarpsstjóri hefureng-
ar upplýsingar um fjárhag
Stjörnunnar. Hann getur því
ekkert fullyrt um það efni.
Ummæli ríkisútvarpsstjóra
geta grafið undan trausti við-
skiptamanna gagnvart Stjörn-
unni. Það er vægast sagt
furðulegt að Markús Örn
skuli kjósa að slá undir belt-
isstað með þessum hætti, og
sæmirekki forstöðumanni
ríkisstofnunar.
Úr því að ríkisútvarpsstjóri
kýs að ráðast að Stjörnunni
með þessum hætti, þá þykir
rétt að minna á að tekjur
stöðvarinnar byggjast ein-
göngu á auglýsingatekjum.
Lögskipuð afnotagjöld
standa hins vegar undir
helmingi útgjalda ríkisút-
varpsins, á móti auglýsinga-
tekjum. Ef ríkisútvarpið hefði
ekki yfir þessum afnotaskatti
að ráða, þá væri það rekið
með stórkostlegum halla.
Stjarnan væntir þess að
Markús Örn Antonsson dragi
ummæli sín til baka og biðj-
ist afsökunar."
FULLVELDIS-
DAGURINN
í dag, 1. desember er þess
minnst að 69 ár eru liðin frá
því að ísland varð fullvalda
ríki I konungssambandi við
Danmörku.
Fullveldisins verður að
venju minnst með samkomu I
Háskólabíói og hefst hún
kl. 14.
Góð þátttaka var á ráð-
stefnu um starfsmenntun í
atvinnulifinu sem félagsmála-
ráðuneytið stóð fyrir um
helgina. í félagsmálaráðu-
neytinu fengust þær upplýs-
ingar að þar ríkti mikil
ánægja með hversu vel til
tókst og að félagsmálaráð-
herra, Jóhanna Sigurðardótt-
ir, hygðist skipa nefnd til
þess að halda áfram að vinna
að þessum málum.
Þátttakendur voru um 220
og komu viðs vegar að af
landinu. Þeir sem stóðu að
ráðstefnunni voru sérstak-
lega ánægöir með hvað hóp-
urinn var fjölbreyttur. Mættir
voru atvinnurekendur, launa-
fólk, kennarar, bæði frá fjöl-
brautaskólum og Iðnskólan-
um, fulltrúar bænda, fulltrúar
þingflokka, aðilar sem vinna
að málefnum fatlaðra og sem
vinna að jafnrétti kynjanna.
Flutt voru 15 gagnmerk er-
indi og 7 starfshópar unnu
síðan með ákveðin atriði. Má
þar nefna, hvert ætti að vera
markmiðið með starfsmennt-
un I atvinnulífinu, hvernig
skipulagið ætti að vera,
hvaða stjórnvöld ættu að
bera ábyrgð á framkvæmd-
um, hversu hratt þyrfti að
vinna að þessum málum,
hvernig ætti að standa
straum af kostnaði o.fl.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins kom vel fram á
ráðstefnunni, að flestir hafa
tækifæri til að endurmennta
sig í tengslum við þau störf
sem þeir gegna I atvinnulíf-
inu. Margt virðist þó benda
til að það fólk sem hefur litla
skólamenntun búi við lökust
kjör I þessum efnum. Stjórn-
völd þurfa því að hyggja mest
að því að þetta fólk fái tæki-
færi til starfsmenntunar,
bæði I fiskvinnslu og iðnaði.
í félagsmálaráðuneytinu
fengust þær upplýsingar að
það sem vinnumálaráðuneyti
hlyti nú að láta til sln taka.
Það þyrfti að koma því á að
öryggi á atvinnumarkaði væri
tryggt.
Nefndin sem ráðherra ætl-
ar að skipa mun fá niðurstöð-
ur ráðstefnunnar til umfjöll-
unar, kanna þær og gera til-
lögur um skipulag starfs-
menntunar I atvinnullfinu.
Ekki er enn vitað hvenær
nefndin tekur til starfa.