Alþýðublaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 1. desember 1987
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
„Maðurinn er að fyllast stórmennskubrjálæði," skrifaði Ulf Adelsohn i dagbók sína.
ekki er hægt að treysta því
að hann standi við samkomu-
lagið ... Stóra spurningin er,
getur maður treyst því aö
Palme standi við orð sín? Að
hann hlaupi ekki í allt aðra
átt, þegar honum hentar?"
„Stórmennsku-
brjálæði“
„Maðurinn er kominn með
stórmennskubrjálæði —
hann er með „keisara kom-
plexa“...
Svona væri hægt að halda
áfram. í dagbók Ulf Adelsohn
er aftur og aftur komið inn á
hvað skapofsi Olaf Palme
hafi verið mikill og lítið fer
fyrir jákvæðum athugasemd-
um um þennan stórbrotna
stjórnmálamann og leiðtoga.
Rúmlega þremur mánuðum
áður en Olaf Palme var skot-
inn til bana, skrifaði Adel-
sohn í dagbókina: „Þessi
maður þolir ekki mótbárur, þá
verður hann öskureiður."
Eins og hér hefur komið I
Ijós, dregur þessi fyrrverandi
leiðtogi stjórnarandstöðunn-
ar á dögum Olaf Palme, upp
allt aðra mynd af pólitlskum
höfuðandstæðingi sínum, en
sú ímynd Olaf Palme sem
flestir og ekki hvað síst eftir
dauða hans, hafa skapað sér.
Adelsohn gerir sér fyllilega
grein fyrir þessu. í formála
bókarinnar skrifar hann: „Sú
mynd sem ég dreg upp af
Olaf Palme, er allt önnur og
verri en sú mynd sem vana-
lega er dregin af honum. Olaf
Palme var myrtur á grimmdar-
legan og svíviröilegan hátt
og vissulega harma allir þann
geðveikislega verknað.
Skyndilegt og sorglegt fráfall
hans breytir þó engu um þær
athugasemdir sem ég skrif-
aði í dagbók mína. Skrif mín
eru hreinskilin lýsing á því,
hvernig Olaf Palme kom fyrir
sjónir andstæðings i hita
baráttunnar. Sú mannlýsing
mín er og verður áreiðanlega
mjög umdeild. Sú staðreynd
stendur þó eftir, að þannig
koma hann mér fyrir sjónir."
— Garlsson betri
Ulf Adelsohn átti mikiö
betri samskipti við manninn
sem átti eftir að verða for-
sætisráðherra við fráfall
Palme. Þessi maðurvar
Ingvar Carlsson og Adel-
sohna hóf máls á þessu við
Ingvar Carlsson, þegar þeir
borðuðu saman I janúar 1984.
— „Aldrei er mögulegt aö
eiga svona afslappaðar sam-
ræður við Olaf Palme eins og
við þig.“ Carlsson svaraði því
til, aö Palme væri ósköp
venjulegur Svíi — heilbrigð-
ur, vinalegur og réttsýnn.
í athugasemd sem Adel-
shon ritaði í dagbókina eftir
dauða Olaf Palme, er hann að
bera saman Palme og Carls-
son. Adelsohn, heldur þvl
fram að með athugsemdun-
um í dagbókinni, sýni hann
fram á, hvað það var miklum
erfiðleikum bundið að eiga
samskipti við Palme og
„hvernig framkoma hans eitr-
aði andrúmsloftið I sænskri
pólitík".
„Það liggur við að ég
öfundi Carl Bildt (eftirmaður
Adelsohn sem leiðtogi flokks
Moderata) af þvl að fá Ingvar
Carlsson sem andstæðing.
Hann hefur aldrei, svo ég viti
til, fallið í þá gryfju að vera
með persónulegar árásir, en
þaö var daglegt brauð hjá
Palrne."
Hætt er við, eins og Adel-
sohn segir að þessar skoðan-
ir hans verði umdeildar og
bersýnilegt hatur á Palme,
hafi stjórnað penna hans við
skrif dagbókarinnar.
(Arbeiderbladet.)
Eftir dauða Olaf Palme var honum stillt
upp í einskonar fílabeinsturni, og litið á
hann sem hálfgerðan dýrðling. Flestir hafa
gleymt því, að hann var mjög umdeildur
maður. Þeir, sem lesa dagbók Ulf Adelsohn
frá árunum 1981—'96 gleyma því ekki. Þar
er Olaf Palme lýst sem ósannindamanm,
manni sem ekki var hœgt að treysta.
Manni, sem kom aftan að fólki, manni sem
ekki þoldi andmœli.
Þeir hafa gætur hvor á öðr-
um, „prufukeyra" hvor annan.
Smám saman víkur spennan
fyrir tilfinningu sem vart er
hægt að lýsa með öðru orði
en — hatri.
17. desember 1983 skrifar
Adelsohn í dagbókina: „Menn
segja að líklega hati Paime
mig eða fyrirlíti mig, eða trú-
lega hvorttveggja."
Adelsohn skrifar aldrei að
hann hati Palme, en hvaða
aðra ályktun geta menn dreg-
ið, eftir að hafa lesið úrdrátt
sem þann, er hér fer á eftir:
— Palme er
ósannindamaður
„Palme sagði mér ekki
sannleikann í utanríkisnefnd-
inni ... vissara að sýna
fyllstu varkárni I samskiptum
við hann.“
„Það er hræðilega erfitt að
umgangast mann, sem mað-
ur getur aldrei verið viss um
að fari með rétt mál.“
„Það er mér ekki undrunar-
efni að Palme virðist vera að
einangrast meira og meira og
tortryggni hans gætir æ meir.
Hann er greinilega ekki í jafn-
vægi. Hann skrökvar, segir
hálfan sannleikann og hagar
sér þannig að það gæti end-
að með ósköpum.“
„Það virðist ekki vera til
neitt sem heitir veglyndi í
hans skapgerð, og hann er
greinilega mjög langrækinn.“
„Ég sagði Anders Thun-
borg (varnarmálaráðherra
Palme) hreint út, að persónu-
leiki Palme stæöi ( vegi fyrir
samkomulagi um varnarráð-
stafanir. Til þess liggja tvær
ástæður: (fyrsta lagi vegna
þess, að Palme gæti komið
aftan að mönnum, þegar
samkomulag hefur náðst, og
í öðru lagi vegna þess að
Á myndinni er Adelsohn, sem öfundar eftirmann sinn — af því hann
fékk Ingvar Carlsson fyrir andstæding.
Á árunum 1981—1986 var
Ulf Adelsohn leiðtogi
„Moderaterna“, sænska
hægri flokksins. Öll þessi ár
skrifaði hann dagbók, sem
nú er að koma út í bókar-
formi.
Á mjög opinskáan hátt
segir hann frá árum sínum,
sem leiðandi stjórnmálamað-
ur í stjórnarandstöðu í Sví-
þjóð.
Hatur?
Sá kafli bókarinnar, sem
fjallar um Olaf Palme, er
mjög umdeildur en er sá
hluti bókarinnar sem hefur
vakið mesta athygli og þykir
safarík lesning. Oumdeildan-
lega var Palme miðpunktur-
inn I sænskri pólitik á þess-
um árum, enda er persóna
Olaf Palme eins og rauður
þráður í gegnum dagbók
Adelsohn. Burtséð frá mál-
efnum og tímastaðsetning-
um, virðist Adelsohn, leiðtogi
hægrisinna gera sér Ijóst að
það er Palme, sem er mestrar
athygli verður. Ekki eingöngu
flokksleiðtoginn og forsætis-
ráðherrann Olaf Palme, held-
ureinnig persónan Olaf
Palme.
Hinn nýkjörni Adelsohn
bervirðingu blandaða
spennu fyrirOlaf Palme, þeg-
ar hann hittir hann. Hann
veit, að Olaf Palme er óvenju-
lega harður pólitískur and-
stæðingur.
Hæfileikaríkur, vel máli far-
inn, séður stjórnmálamaður.
Pólitíkus með stóru P. Adel-
sohn veit, að ef hann á að
halda virðingu sem leiðtogi
stjórnarandstöðunnar verður
hann að láta hart mæta
hörðu.
Til að byrja með eru sam-
skipti þeirra hlaðin spennu.
Palme — eins og hann kom Ulf Adelsohn fyrir sjónir
ÓÁREIÐANLEGUR OG HALDINN
STÓRMENNSKUBR JÁLÆÐI