Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 1
Dómsmálaráðherra með frumvarp um breytingu á barnalögum í smíðum: SAMEIGINLEG FORSJÁ BARNA — eftir skilnað foreldra eða sambúðarslit sambúðarforeldra Jón Sigursson dómsmála- ráöherra mun á næstunni leggja fram lagafrumvarp á Alþingi um breytingar á barnalögum sem fela í sér að foreldrar sem skilið hafa eða slitið óvigðri sambúð, sé heimilað að semja um sam- eiginlega forsjá barns eða barna sinna. Þetta gildi einn- ig um foreldra óskilgetinna barna sem ekki eru í samvist um. Lagafrumvarpið tekur mið af nýjum norrænum lögum um sama efni. Sifjalaganefnd hefur samið frumvarpið sem flutt verður af dómsmálaráð- herra á næstunni. Með þess- um breytingum er talið lík- 1 legt að samábyrgð foreldra sem slitið hafa samvistum, á velferð barnsins, verði meiri og treysti tengsl barnsins við báða foreldrana. Við gerð frumvarpsins hefur mjög ver- ið horft til Svíþjóðar og Noregs þar sem reglurnar hafa verið lengst í gildi á Norðurlöndum. Sjá bls. 5 Haffjarðará: EINN ADILI HYGGST NÝTA FORKAUPSRÉTT Einn aðili, Guðmundur Halldórsson á Syðri-Rauða- mel, hefur þegar ákveðið að nýta forkaupsrétt að einni af jörðum Thors ættarinnar i Kolbeinsstaðahreppi og Eyja- hreppi. Oddviti Kolbeins- staðahrepps segir að áhugi sé meðal heimamanna að reyna aö kaupa þessar eignir, en fé skorti til. Aö sögn hans er búiö að dómkveðja menn til að meta allar eignirnar upp á nýtt. Eins og Alþýðublaðið greindi frá fyrir skömmu hafa Páll Jónsson i Pólaris og Óttar Yngvason lögmaður nú- verandi eigenda jarðanna gert kauptilboð í þær. Hrepp- arnir hafa hins vegar for- kaupsrétt. Einn ábúandi hefur þegar ákveðið að nýta sér þennan rétt. Það er Guðmundur Hall- dórsson á Syrði-Rauðamel. í samtali við blaðið sagðist hann hafa búið þarna i mörg ár og væri jörðin i eigu Thors ættarinnar, en hann ætli að nýta sér þann forkaupsrétt sem hann hefur. Honum var ekki kunnugt um hvort fleiri hefðu í hyggju að gera slíkt hið sama. Veiðiréttindi í Haf- fjarðará eru ekki innifalin í þeim kaupum. Guðmundur Albertsson oddviti Kolbeinsstaðahrepps var inntur eftir því hvort fleiri væru með áætlanir um að kaupa jarðir. „Það er náttúr- lega hugur í mönnum að gera það“. Sagði hann að í fyrra- dag hafi verið dómkvaddir menn í að meta jarðirnar og eignir og reiknaði hann með að menn biðu eftir að það mat lægi fyrir. í máli Guðmundar kom fram að þó áhugi væri fyrir að reyna að kaupa þessar eignir væri um svo háar fjár- hæðir að ræða að þeir ein- staklingar sem þarna væru hefðu varla bolmagn til þess. Um hugsanlega þátttöku rík- isins í kaupunum, fannst honum frekar ólíklegt að af því yrði. „Það hefur víst nóg á sinni könnu“. Forsætisráðherra og fjármálaráöherra nýttu timann vel á Alþingi í gær, enda fjölmörg frumvörp rikisstjórnar- innar sem þurfa afgreiöslu. A—mynd / Róbert. Annir í þinginu: FRUMVÖRP Á FÆRIRANDI — Stjórnarandstaðan með á nótunum og hefur gripið til málþófs. — Ekki útilokað að þing komi saman á milli jóla og nýárs. Fjármálaráðherra stendur í ströngu þessa dagana, en hann þarf að koma a. m. k. 12 frumvörpum í gegnum þingið fyrir áramót, svo markmid skattkerfisbreytinga og fjár- lagafrumvarpsins nái fram að ganga. Stjórnarandstaðan virðist ennfremur vera vel með á nótunum og hefur tek- ið upp málþóf i þinginu til þess að gera rikisstjórninni erfiðara fyrir. Mál sem þarf að afgreiða fyrir áramót eru m. a. fjár- lagafrumvarpið, lánsfjárlög, staðfesting bráðabirgðalaga um ráðstafanir rikisstjómar- innar í efnahagsmálum og breytingar á þeim jafnhliða, frumvörp um nýja tollskrá, vörugjald og söluskatt, 3 lagafrumvarp um staðgreiðsl- una, frumvarp um launaskatt og sérstakan skatt á skrif- stofu og verslunarhúsnæði. Auk þess eru nokkur minni- háttar mál sem engu að síður þurfa afgreiðslu. Þingmenn sem Alþýðu- blaðið talaði við í gær sögðu útilokað að afgreiða öll þau mál sem lægju fyrir þinginu, miðað við óbreyttan þing- tima. Þannig má búast við að þingfundur verði einnig um helgar fram að jólum og ýms- ir telja óhjákvæmilegt að þing komi saman á milli jóla og nýárs. GIFURLEG SLYSATÍÐNI HJÁ BÖRNUM HVAÐ KOSTAR KAUPLEIGAN? JON HÆTTUR VIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.