Alþýðublaðið - 09.12.1987, Side 2

Alþýðublaðið - 09.12.1987, Side 2
2 Miövikudagur 9. desember 1987 MMBUBLMÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Umsjónarmaður helgarblaðs: Blaðamenn: Dreif ingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blað hf. Valdimar Jóhannesson Ingólfur Margeirsson Jón Daníelsson Þorlákur Helgason Haukur Hólm, Ingibjörg Árnadóttir, Kristján Þorvaldsson og Sigríöur Þrúöur Stefánsdóttir. Þórdls Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaöaprent hf., Sfðumúla 12. Áskriftarslminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakiö virka daga, 60 kr. um helgar. KAUPLEIGAN ER BYLTING Frumvarp félagsmálaráöherra um kaupleiguíbúöir er tímamótafrumvarp um húsnæðismál á íslandi. Sam- kvæmt frumvarpinu um Kaupleiguíbúöir, er lagt til að þær verði byggðará vegum sveitarfélagaeða félagasamtaka á þeim forsendum að íbúareigi kost áað velja um leigu eða kaup. Lagt er til að tilhögun kaupleiguíbúða verði með tvennum hætti; félagslegar kaupleiguíbúðir og almennar. Þar með er Ijóst að ibúðirnar verðaekki eingöngu ætlaðar ákveðnum tekjuhópum heldur felur hiðívíþætta kerfi kaupleiguíbúðanna það í sér, að fleiri tekjuhópar eigi kost áað nýtasér hið nýjafyrirkomulag við að leigjaeðakaupa íbúð. Samkvæmt frumvarpinu hafa leigjendur að minnsta kosti fimm ára umþóttunartíma varðandi ákvörðun um kaup á íbúð. Félagslegu kaupleiguíbúðirnareru fyrst og fremst tilboð til tekjulágra hópa. Þar er lagt til að sveitarfélög eöajé- lagasamtök sem byggja kaupleiguíbúðir fyrir lágtekjufólk eða aðra sem af félagslegum ástæðum þurfa aðstoðar við húsnæðisöflun, njóti iánsfyrirgreiðslu úr Byggingarsjóði verkamanna sem nemur allt að 85% kostnaðar. Lánstími eráætlaður43 árog vextirþeirsömu og almennt gildahjá sjóðnum. Framkvæmdaraðili útvegar 15% fjármögnunar og er í því skyni heimilt að selja lífeyrissjóðum eða öðrum skuldabréf til fjáröflunar. Frumvarpið kveður á um að leigugjald greiðist mánaðarlega í félagslegu kaupleigu- íbúðunum og miðast afborganir og vextir af láni Bygg- ingarsjóðs verkamanna auk vaxtakostnaðar af 15% fram- lagi sveitarfélagsins að viðbættum almennum rekstrar- kostnaði. Auk þess á kaupandi kost á að kaupa íbúðina á kjörum Byggingarsjóðs verkamanna að því tilskyldu að skilyrðum varðandi lánveitingar úr sjóðnum sé fullnægt. I almenna kaupleiguíbúðarkerfinu er lagt til að sveitar- félög eða félagasamtök sem þurfa af sérstökum ástæðum að auka framboð íbúðarhúsnæðis, eigi kost á hámarks- láni, eða70%, úr Byggingarsjóði ríkisins auk viðbótarláns úr sama sjóði. í þessu skyni er gert ráð fyrir að stofna sér- stakan lánaflokk í Byggingasjóði ríkisins. Leigugjald fyrir almennar kaupleiguíbúðir greiðist mánaðarlega og leigj- andi sem óskar að kaupa íbúðina getur gert það sam- kvæmt samningi um afborganir af lánum. Þá er sam- kvæmt frumvarpinu sveitarfélögum eða öðrum sem byggja almennar kaupleiguíbúðir, heimilt að selja verð- tryggð skuldabréf fyrir allt að 15% kostnaðar. Frumvarp félagsmálaráðherra um kaupleiguibúðir er mikilvægt frumvarp til lausnar á hluta þess geigvænlega vandamáls sem húsnæðismál eru að verða. Líkt og í öðr- um geirum þjóðlífsins bitna húsnæðismálin verst á þeim sem minnst mega sín, og hingað þurfa annað hvort að borga blóðpeninga fyrir húsaleigu eða ramba á barmi gjaldþrots við að komayfirsig og sína þaki af eigin mætti. Kaupleiguíbúðirnar voru hugmynd og baráttumál Alþýðu- flokksins frá upphafi. Meó framlagningu frumvarpsins hefur flokkurinn lagt fram eitt þarfasta frumvarp til lausn- ar húsnæðisvandanum, sérstaklega með tilliti til tekju- lágra hópa en einnig til annarra hópa sem eiga við erfið- leika að stríða. Kaupleiguíbúðirnar er nýr valkostur í hús- næðismálum íslendinga og losar stórlega um þann rembihnút sem húsnæðismál þjóðarinnar eru í. Það er því þjóðþrifamál að frumvarpið hljóti sem hröðustu og bestu afgreiðsiu á Alþingi. ÖNNUR SJÓNARMIÐ MORGUNBLAÐIÐerað breytast í umræðublað um Tjörninaog fyrirhugað ráð- hús. Flestir skrifa gegn ráð- húsinu en nokkrar greinar hafa borist blaðinu þar sem ráöagjörð Davíðs og unnenda ráðhússins er varin. Ein slík grein birtist í gær og er höf- undur hennar Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi Pólýfónkórsins og ferðamála- frömuður. Lesum niðurlags- orð hans: „íslendingar eru þrasgjörn þjóð. Ég byði ekki í menn- ingarástandið, ef úrtölufólkið hefði alltaf siðasta orðið. Nýjasta dæmið er umfjöilun um ráðhús við Tjörnina. Af likani, og teikningum að ráða, virðist mér fara saman notagildi og fegurð og bygg- ingin af hóflegri stærð. Arki- tektúr er að því leyti undir- stöðulistgrein, að allir hafa hana fyrir augum og hún mótar sjónskyn og smekk al- mennings. Þannig verður hún aflvaki annarra lista. Þess er þörf á íslandi. Þegar hið nýja ráðhús er risið í norðurhorni Tjarnarinnar vestanvert, fríkka drættir miðbæjarins. Tjörnin þarfnast verndar af því tagi sem felst i umhirðu hennar og endurnýjun ramm- ans í kring. Nýja ráðhúsið verður tjarnarprýði og Tjörnin þar með meiri prýði Reykja- víkur, öllum til augnayndis, ef rétt og skynsamlega er á málum haldiö." Svo mörg voru þau orð. ÚTVARPSSTJÓRARN- IR Markús Örn Antonsson (RUV) og Ólafur Hauksson (Stjarnan) eru komnir í hár saman eins og við höfum áð- ur greint frá í Alþýðublaðinu. Tilefnið er fullyrðing Markús- ar Arnar að frjálsu stöðvarnar séu reknar með tapi. Ólafur Hauksson sendi frá sér fréttatilkynpingu um þetta efni fyrir nokkru og lætur slð- an kné fylgja kviði I Dagblað- inu Vísi í gær í grein sem ber fyrirsögnina „Bjálkinn (auga Markúsar Arnar“. Lesum brot af grein Ólafs: „Fullyrðingar Markúsar Arnar um tap stöðvanna eru engum rökum studdar. Val hans á tima til að slá þessu fram er hins vegar jafnfurðu- legt og sjálfar fulfyrðingarn- ar. Þetta segir hann nefni- lega á sama tíma og fram Það er sjónarmið Ólafs Hauks- sonar útvarpsstjóra, að Markús Örn viti ekkert um rekstur einka- stöðvanna. Ingóifur Guðbrandsson setur fram þau sjónarmið að Tjörnin verði falleg með nýju ráðhúsi. kemur að hans eigin stofnun er rekin með 80 til 90 miiljón króna halla á þessu ári. Þessi halli á ríkisútvarpinu er skuggalegur þegar tekið er tillit til þess að stofnunin fékk 67 prósent hækkun af- notagjalda snemma á árinu. Án hennar hefði hallinn orðið talsvert meiri. Það sannast hér á Markús Erni máltækið um flisina í auga náungans og bjálkann í eigin auga. Hann breiðir út órökstuddar fullyrðingar um ætlað tap keppínauta sinna, á meðan hann burðast sjálfur með heilt tonn af tapi á bak- inu. Reyndar eru áhyggjur Markúsar af keppinautunum skiljanlegar. Stjarnan og Bylgjan hirða útvarpshlustun þar sem þær nást. Fáir hlusta orðið á rás 1 ríkisút- varpsins nema i fréttatímum. Rás 2 hefur litla hlustun á stöðum þar sem Stjarnan og Bylgjan heyrast einnig. Stöð 2 hrifsar til sín áhorf- endur af sjónvarpinu. Stöð 2 fjölgar útsendingartimum frá mánuði til mánaðar og eykur á sama tíma innlenda dag- skrárgerð. Sjónvarpið reynir af veikum mætti að fylgja á eftir, þreytt og lasburða. Einkastöðvarnar halda úti kröftugri dagskrá og njóta hylli hlustenda og áhorfenda fyrir langtum minni kostnað en rikisútvarpið. Stjarnan er til að mynda i húsnæði sem er á stærð við anddyrið í nýja útvarpshúsinu við Efstaleiti. Um 60 Stjörnur kæmust fyrir í því húsi.“ Því næst vindur Ólafur sér I menningarhlutverk Ríkisút- varpsins en þaö nefnir hann „skyldukvakiö": „Forráðamenn rikisút- varpsins kvaka gjarnan um skyldur þær sem á það eru lagðar með útvarpslögunum. Þeir búa siðan sjálfir til lista yfir skyldur og ráðast af hörku i að uppfylla þær. Ekkert tillit virðist tekið til þess að tvær öflugar útvarps- stöðvar og ein sjónvarpsstöð í einkaeign eru komnar fram á sjónarsviöið og axia þegar talsvert af þessari ábyrgð — án þess að lög þurfi til. Ríkisútvarpið lætur eins og það sé ennþá eitt á byigj- um Ijósvakans. Mál er að þessi gamla fyrrverandi ein- okunarstofnun vakni af Þyrni- rósarsvefni sinum. Til að byrja með þarf ríkis- útvarpið að endurskoða, i Ijósi breytinganna, hvernig það geti best uppfyllt skyld- urnar. Það mætti til dæmis byrja á að spyrja neytendur Ijósvakamiðlanna, í stað þess að reiða sig um of á ráð og raddir innanhússmanna sem sífellt tala með fyrirlitningar- tón um einkastöðvarnar. Með reigingslegu taii sínu lýsa þeir nefnilega frati á þann smekk sem nýtur almennrar hylli.“ Nú er að sjá hvort Markús Örn svari þessu kvaki. Einn með kaffinu Prestur einn í smáþorpi úti á landi, þótti afar trúaöur. Dag einn þegar prestur hélt messu fyrir fullri kirkju, brast á mikil rigning og brátt hófust mikil flóð svo að vætla tók inn í kirkjuna. Sumir kirkjugestir risu á fætur og komu sér út tii að blotna ekki í fæturna. Prestur hélt áfram að messa. Þetta var löng messa og bráðum tók vatnið að streyma inn kirkjugólfið. Flestir komu sér nú út úr kirkjunni. Prestur hélt áfram að messa. Nú versn- aði veðrið um allan mun, áin flæddi yfir bakka sina og vatnið streymdi inn í þorpið og vatnsborðið hækkaði stöðugt í kirkjunni. Menn kölluðu til prestsins og sögðu honum að koma sér út. Prestur sagði einungis: „Guð bjargar mér“. Og hélt áfram að messa. Ekki leið á löngu þangað til vatnið náði upp að predikunarstólnum. Menn komu nú róandi á árabát og báðu prestinn í Guðs lif- andi bænum að stökkva upp i bátinn. Prestur svaraði: „Guð bjargar mér“. Og hélt áfram að messa. Nú hækk- aði vatnsborðið svo að prestur varð að flýja upp í turn- inn. Þangað komu menn á mótorbát og báðu prestinn að koma um borð áður en hann drukknaði. „Guð bjargar mér,“ svaraði presturinn. Nú neyddist presturinn tii að klifra upp á turninn því stöðugt hækkaði vatnsborðið. Menn komu í þyrlu, létu síga niður björgunarstól og sögðu presti að setjast í stólinn. „Guð bjargar mér, sagði presturinn og hélt fast um turninn. Vatnið hækk- aði og presturinn drukknaði. Presturinn kom til Himnaríkis, ruddist reiður fram- hjá Lykla-Pétri og heimtaði að fá að tala við Guð almátt- ugan. Honum varð að ósk sinni. Presturinn sagði æva- reiður: „Hvernig er það Guð, ég segi öllum söfnuði mín- um að trúa á þig og að þú munir bjarga mér og öðrum. Svo lætur þú mig bara drukkna!" Guð horfði sorg- mæddur á þjón sinn og sagði: „Hvað áttu við? Fyrst sendi ég þér árabát, síðan mótorbát og loks þyrlu!“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.