Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. desember 1987 5 Dómsmálaráðherra með frumvarp um breytingu á barnalögum: SAMEIGINLEG FORSJÁ BARNA — eftir skilnað foreldra eða sambúðarslit svo og hjá foreldrum óskilgetinna barna. Dómsmálaráðherra mun á næstunni leggja fram frum- varp um breytingar á barna- lögum nr. 9 15. apríl 1981. Helstu breytingarnar eru þær aö heimilað veröi aö foreldrar sem hafa skilið, semji um sameiginlega forsjá barna sinna og ennfremur aö for- eldrar óskilgetinna barna sem ekki eru samvistum geti samið um slíka skipan að því er börn þeirra varöar. Frum- varpið er nú til umfjöllunar i þingflokkum. Sifjalaganefnd hefur samið frumvarpið sem dómsmála- ráðherra mun flytja á næst- unni. í henni eiga sæti dr. Ármann Snævarr, formaður, Auður Auðuns, fyrrv. dóms- málaráðherra, Baldur Möller, fyrrv. ráðuneytisstjóri og Guörún Erlendsdóttir, hæsta- réttardómari. Ritari nefndar- innar er Drífa Pálsdóttir, deildarstjóri. Mikilvægustu þættirfrum- varpsins eru i 16. og 18. grein þar sem lagt er til að fyrir- mynd annarra norrænna laga, að heimilað sé að foreldrar sem hafa skilið, semji um sameiginlega forsjá barna sinna og ennfremur að for- eldrar óskilgetinnar barna sem ekki eru samvistum, geti samið um slíka skipan er börn þeirra varðar. Til viðbót- ar þessu eru svo ýmis ákvæði, þar sem lagðar eru til breytingar á barnalögum, bæði vegna leiðréttinga á texta og einkum með hlið- sjón af könnun sem fram hef- ur farið á framkvæmd lag- anna. Lögfest á Norðurlöndum Á síðustu árum hefur verið lögfest á öllum Norðurlönd- um ákvæði er veita foreldrum svigrúm til þess að mæla svo fyrir að þau hafi sameigin- lega forsjá barna sinna þrátt fyrir skilnað, slít á óvígðri sambúð eða um er að ræða foreldra óskilgetins barns, sem eigi búa saman. Fyrst voru sett lög um þetta efni í Svíþjóð 1976 með breytingum 1979 og 1983, í Noregi 1981, í Finnlandi 1983 og Danmörku 1985 með gildistöku 1. janúar 1986. Lög þessi eru mismun- andi. Á það ekki síst við um þá meginspurningu, hvort stjórnvöld eða dómstólar geti ákvaröað einhliða án óska foreldra eða gegn andstöðu a.m.k. annars þeirra að sam- eiginleg forsjá skuli viðhöfð eða hitt sé fremur, að for- senda fyrir slíkri tilhögun sé samkomulag foreldranna. Hvað þýðir skipanin í raun? I samningi um sameigin- lega forsjá barns felst ekki í sjálfu sér að barn búi hjá báðum foreldrum og því síð- ur jafn lengi hjá hvoru fyrir sig. Þegar slíkur samningur er gerður á Norðurlöndum er algengast að barnið búi hjá öðru foreldri en dveljist hjá hinu á tilteknum tímum eftir því sem semst milli foreldr- anna. Hins vegar veitir sam- komulagið eða skipanin svig- rúm til þess fyrir foreldra að semja svo um, að barnið dveljist eða búi hjá öðru t.d. í 3 mánuði og næstu þrjá mán- uði hjá hinu. En slík tilhögun er þó miklu fátíðari í reynd, ef miðað er við tiltækileg gögn um framkvæmd þessara mála og er hún tíðust þegar for- eldrar búa í grennd við hvert annað og barnið þarf ekki að skipta um skóla eða barna- heimili. Sameiginleg forsjá þýðir ennfremur að báðir for- eldrarnireru forsjármenn barns og lögráðendur þess. Það þýðir að bæði ráða þvi sameiginlega hvernig til skip- ast um persónulega hagi barns, um dvalarstað, vist á dagvistarstofnun, skóla- göngu, uppeldisþætti, aðild að trúarfélagi, þátttöku i fé- lagsstarfi, hugsanlegar lækn- isaðgerðir, hvort barnið verði ættleitt og allt er varðar fjár- muni barnsins og fjár- ráðstafanir. Barna- og unglingaslys á íslandi: HÆSTA SLYSATÍDNI í HEIMI Ólafur Ólafsson, landlæknir, segir orsakirnar m.a. œfingaleysi og óvarkárni ökumanna. Slysatíöni barna og ungl- inga hér á íslandi er með þv( hæsta í heiminum. Rúmlega helmingur slasaðra I umferð er undir tuttugu ára aldri og er unglingum á aldrinum 15—19 ára um 4—5 sinnum hættara viö að lenda í um- feröarslysi en 25 ára og eldri. Þeir ökumenn sem valda þessum slysum eru 24 ára og yngri. Orsakirnar eru margar m. a. óvarkárni og æfinga- leysi ungra ökumanna. Aftur á móti eru slys vegna ölvunar við akstur fátiðari hér á ís- landi helduren ( nágranna- löndunum. Þetta er meðal efnis ( grein eftir Ólaf Ólafsson land- lækni, sem birtist i slðasta tölublaði Læknablaðsins. Greinin nær til barna- og unglingaslysa á íslandi og kemur fram að um leið og þeim hefur fjölgað hér á landi fækkar slysum i ná- grannalöndum okkar. Nú er svo komið að slysatíðni barna- og unglinga (drengja) hér á landi er með því hæsta í heiminum. Flest slysin seg- ir Ólafur vera í frítíma, í um- ferð, i heimahúsum og i starfi. Slysatlðni I umferð er hæst meðal 17—18 ára ungl- inga þ. e. skömmu eftir að þeir fá ökuréttindi. Tekur Ólafur sem dæmi framhalds- skóla meö 500 piltum og 500 stúlkum. Á hverju ári slasast um 20—25 þessara pilta og 10—12 stúlkur, sum hver lífs- hættulega. Vélhjólaslys eru algeng og áriö 1985 var um 80% þeirra sem lentu I þess- konar slysum, unglingar á aldrinum 15—19 ára. Reið- hjólaslys verða aftur á móti mest á börnum, 5—14 ára. Tlðni slysa á gangandi vegfar- endum er einni hæst meðal barna og unglinga og nær hámarki I 5—9 ára aldurs- hópnum. En hvernig stendur á öllum þessum slysum og hvers vegna er börnum og ungling- um hættara en öðrum. Olafur hefur haldbærar skýringar á því. Ungir ökumenn eru í mörgum tilvikum óvarkárir og þá skortir æfingu. Auk þess notar lítill hluti þeirra bílbelti. Börn hlaupa skyndilega út á akbraut og er það algengasti slysavaldurinn. Talið er að flest slys af þessum toga verði utan skólatíma þ.e.a.s. þegar börnin eru að leik. 50% þeirra sem valda slysum á gangandi vegfarendum eru ungir og reynslulitlir öku- menn þ. e. 24 ára og yngri. Vélhjólaslys eru einnig al- geng og eru 63% þeirra vegna þess að réttur er brot- inn á ökumanni hjólsins. At- hygli vekur einnig að 50% þeirra sem slasast á vélhjóli hafa aðeins haft ökuréttindi ( hálft ár. Til þess aö draga úr slysa- tíðni hafa lögboðnar hraða- takmarkanir og öryggisútbún- aður reynst best hingað til. Ólafur telur það einnig ráð- legt að taka upp ökukennslu i framhaldsskólum sem val- fag. Æfing i ökuhermi væri ákjósanleg leið, segir Ólafur. Um slys ( heimahúsum segir Ólafur að 30% barna á höfuðborgarsvæðinu á aldrin- um 0—4 ára komi á slysa- deild Borgarspítalans árlega. Það mun vera 8% af Ibúa- fjöldanum og hæsta slysa- tíðni I Evrópu. Eitranir er langalgengasta orsökin. Til að koma í veg fyrir slys af þessu tagi verður að vera fræðsla f skólum og heima- húsum sem upplýsa fólk um skaðleg áhrif efnanna sem notuð eru. Nýlega kom út upplýsingabæklingur um þessi efni sem dreift var ( öll hús. Ólafur kemur einnig llti- lega inn á vinnuslys og or- sakir þeirra. Þau eru algeng- ust í aldurshópnum 16—20 ára og skýringuna segir Ólaf- ur sennilegast vera þá að ungt fólk kemur reynslulaust I störf á vorin og þá verða slysin. Því þyrfti að koma á fót i framhaldsskólum og hjá vinnuveitendum fræðslu og æfinganámskeiðum fyrir skólafólk.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.