Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 9. desember 1987 7 UTLOND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir Pernilla hitar sig upp i „Baöhúsinu", áöur en Kabarettinn hefst í „Rock Maskinen". Ágóö- inn rennur óskertur í hjálparsjóð gegn eyöni. ÖÐRUVÍSI FRÍRÍKI Það eru svœði í Kristjaníu, þar sem hin 16 ára „félagsmála tilraun(í, hefur heppnast. Á dimmri nóttu í mars 1971 klifruðu sex ungir menn yfir girðingu sem umlukti húsin í Bodsmandsstræde. Þar höföu búið yfirmenn sjóhers- ins en nú voru þessi hús ekki lengur í notkun. Ungu menn- irnir lýstu því yfir, að fríríkið Kristjanía væri stofnað. Ekki mun þeim hafa boðið í grun hvaða afleiðingar þetta mundi hafa. Þetta var hugsað sem mjög „dönsk“ viðbrögð vlð óróa og uppivöðslulátum unga fólksins á árunum 1968- 1970. Tilraun til að safna saman ýmsum öflum sem ekki gátu fengið útrás á hefð- bundinn hátt. Þetta leiddi til stöðugra árekstra við lögreglu og stjórnmálamenn. Einn daginn voru uppi háværar kröfur um að leggja fríríkið niður, næsta dag var krafist stuðn- ings við þessa merkilegu fé- lagsmálatilraun. Útflutningur sem skiptir milljónum Undanfama daga og vikur hefur Kristjanía aftur komið af stað umræðum ( Þjóðþing- inu. Nýjar kröfur um að loka hverfinu og það strax. Of- beldi og lögbrot farin að ganga of langt, og erfitt að koma auga á jákvæðar hliðar þessarar „tilraunar f félags- málurn". Hægt er þó að finna já- kvæðar hliðar. Það er ekki mörgum kunnugt um, að f Kristjaníu blómstrar útflutn- ingsverslun, með veltu sem nemur milljónum danskra króna. Útflutningurinn er til flestra landa Evrópubanda- lagsins og einnig til Banda- ríkjanna. Ein starfsemin þarna hefur átt svo mikilli velgengni að fagna að hún hefur vaxið upp ur Kristjaníu. Það er glerblástursverk- smiðja Kristjaníu, sem nú hefuraðsetur í nágrenni Hró- arskeldu (Roskilde). Það er sannarlega þess vert að fylgjast með þeirri starfsemi. Utanríkisráðuneyt- ið var fastur viðskiptavinur, þegar þörf var á dönskum listiðnaöargripum tiJ að gefa erlendum gestum. Glös merkt Kristjanfu eru átoorð- um í sendiráðum ýmissa landa. Lfklega er Jesper Sölling þekktastur í alþjóðlegu sam- hengi. í Kristjanfu framleiðir hann grindina (stellið) í Ped- ersen-reiöhjólin. Framleiðsl- an er flókin og vinnustofan getur aðeins framleitt um það bil 400 grindur á ári, sem flestar eru fluttar út. Starf- semin hefur góð sambönd í Sviss og Þýskalandi. „Þvf miður fórum við ansi flatt á viðskiptunum við Bandaríkin. Það var árið 1986, og mikil bjartsýni rlkti f við- skiptamöguleikum við Bandaríkin. Við töpuðum miklu, vegna þess að millilið- ur okkar í Bandaríkjunum sá ekki sóma sinn í því að gera upp við okkur fyrir þau hjól sem við höfðum afhent. Raunabót var þó í því að kvik- myndaleikarinn Donald Suth- erland fékk Pedersen-reið- hjól, þegar hann vann að kvikmyndinni „Oviri“. Hann var ánægður með hjólið og útvegaði okkur nokkrar pant- anir frá Hollywood, og okkur fannst nú töluvert púður í þvl,“ segir Jesper Sölling, sem harðneitar að láta kalla sig verksmiðjustjóra. „Kallið mig bara Jesper," segir hann. Sendiferðahjól Preben er einn af þremur eigendum „Smedien" (Smiðj- an) í Kristjaníu. í Smedien hafa þeir sérhæft sig í fram- leiðslu brennsluofna og þriggja hjóla flutninga- eða sendiferðareiðhjóla. Fyrstu ofnarnir voru smíðaðir úr gömlum olíutunnum, og not- aðiraf fyrstu íbúum Kristj- aníu til að halda á sér hita yf- ir vetrarmánuðina. Nú þykja það forréttindi að eiga ósvik- inn Kristjaníuofn. Þeireru um allt bæöi f Danmörku og í öðrum löndum. Flutningahjólin eru eftir- mynd gömlu „SvajeT;hjól- anna sem voru áberandi á götum Kaupmannahafnar hér á árum áður. Póstur og sími eru stórir viöskiptavinir. í Þýskalandi og Sviss eru þau notuð f hundraðatali. Þessa dagana er þriggja vikna af- greiðslufrestur á hjólunum, vegna þess að einn starfs- kraftur af þremur (eigendur) er f fæðingarorlofi! Húsgögn og ofnar Thorbjörn í „Snedkeriet" (Trésmiðjunni) hefur verið í Kristjaníu í ellefu ár. Til að byrja með var Snedkeriet eins konar þjónustufyrirtæki fyrir íbúa Kristjaníu. Þeir sáu um að lappa upp á íbúðirnar og gera við ýmislegt. Nú er öldin önnur og þeir smíða húsgögn úr gömlum bjálkum og endurnýja gömul húsgögn. Til þeirra er leitað af söfnum ef einhverja sér- staka hluti vantar I gömul húsgögn. Mesti gróði þeirra er þó í gamaldags ofnum sem þeir múra upp með múr- steinum og seljast grimmt í Þýskalandi. Þetta hefur að vfsu lítið með trésmiðju að gera. Jesper, Preben og Thor- björn eru sammála um að of- beldið sem er svo mikið talaö um, sé aðeins fremst í frírík- inu, sem sagt við hliðið og að flestir sem þar eigi hlut að máli hafi ekkert með Kristjaníu að gera. „Á hverjum morgni kemur strætisvagn með um fimmtíu unglinga og hleypir þeim út við hliðið. Þetta eru ungling- ar, sem samfélagið ræður ekki við. Allt hefur verið reynt, þessir unglingar hafa verið inni á stofnunum og f fangelsum. Þegar búið er aö reyna allt segja unglingaráð- gjafarnir; Prófum Kristjaniu. Hvernig eigum við að leysa vandamál sem allir aðrir hafa gefist upp við að leysa?“ seg- ir Preben í Smiðjunni. (Det fri Aktuelt) í Smiöj- unni eru framleidd Pedersen reiöhjól og sendi- ferðahjól. Asger hefur byggt sérkenni- legan brennsfu- ofn, fimnrog hálfu tonni af gömlum múrstein- um. Trésmiðj- an hefur gengiö vel, hún framleiðir ofna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.