Alþýðublaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. desember 1987
3
FRÉTTIR
Greiðslur frá Tryggingastofnun:
BOTAÞEGAR GERÐIR AD
VANSKILAMÖNNUHI
Útborgun lífeyris og bóta miðast ekki við mánaðamót eins og flestar aðrar greiðslur í
þjóðfélaginu. — Ekki má búast við breytingu á nœstunni.
Lífeyris- og bótaþegar eru
mjög óánægöir meö aö
greiðsiur frá Tryggingastofn-
un miðast ekki við mánaða-
mót. Það hefur valdið fólki
óþægindum að sögn Hans
Jörgenssonar hjá Samtökum
aldraðra. Framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalagsins telur að
oft á tíðum sé það velvilja
fólks að þakka að það bitnar
ekki á öryrkjum. Að áliti
Eggerts G. Þorsteinssonar,
forstjóra Tryggingastofnunar
er ekki unnt að breyta þessu.
Þeir sem fá greiddan lífeyri
eða bætur frá Trygginga-
stofnun rikisins þurfa að biða
til 10. hvers mánaðar eftir
útborgun. Þar sem allir reikn-
ingar miðast yfirleitt við
mánaðamót er töluverð
hætta á því að verið sé að
gera bóta- og lífreyisþega að
vanskilamönnum.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Hans Jörgensson hjá
Samtökum aldraðra, að þetta
kæmi sér illa fyrir marga þar
sem margar greiðslur væru
um mánaðamót. „Það hefur
verið almenn óánægja yfir
þessu.“ Hans sagðist ekki
vita til þess að fólk hefði orð-
ið fyrir beinum kostnaði
vegna þessa, en hins vegar
hefðu margir orðið fyrir tölu-
verðum óþægindum.
Sagði Hans að tekist hefði
að knýja fram breytingar
vegna greiðslna úr Lífeyris-
sjóði starfsmanna ríkisins,
en ellilífeyrir væri ekki
greiddur fyrr en 10. Hann
sagðist ekki vita til þess að
verið væri að reyna að fá
þessu breytt, en þó þætti sér
það ekki ólíklegt.
Ásgerður Ingimarsdóttir
framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalags íslands sagðist
ekki vita til þess að þetta
hafi valdið miklum óþægind-
um, þó kæmi það fyrir að
biðja þyrfti um frest fyrir fólk.
Yfirleitt semdu öryrkjar um
gjalddaga í samræmi við út-
borgunardag bóta þegar eitt-
hvað væri keypt, einnig væru
ýmsir reikningar s.s. sima-
reikningar sem ekki þyrfti að
greiða um mánaðamót. „Ég
býst nú við að stundum geti
þetta veriö dálltið óþægi-
legt.“ Hún taldi þó að velvilji
almennings kæmi oft í veg
fyrir að öryrkjar lentu í vand-
ræðum út af þessu.
„Þetta var kannað all ræki-
lega og reynt að finna leið til
að breyta þessu. Það reyndist
mögulegt með lífeyrisjóði, en
ekki með bætur,“ sagði
Eggert G. Þorsteinnson for-
stjóri Tryggingastofnunar
ríkisins. Þá sagði hann að
bóta- og lífeyrisþegar vissu
nákvæmlega hvenær greiðsla
bærist og yrðu að miða af-
borganir við það, gætu þeir
einhverju um það ráðið.
Ástæðuna fyrir þessari
dagsetningu sagði Eggert
vera þá að umboðin úti á
landi þurfi að skila inn öllum
upplýsingum um breytingar
e.þ.h. sem orðið hafa um
mánaðamót. Það fari síðan
inn í tölvu og þetta sé
vinnslutíminn sem þarf.
Jón Baldvin um skattkerfisbreytingarnar:
KOMNIR LENGRA í
UMBÓTUM EN EB
— Niðurfelling undanþága gerbreytir aðstœðum til
öflugra skatteftirlits.
Starfsmenn hjá fjórtán fyrirtækjum í fata- og vefnaiðnaði fengu í gær afhenta viðurkenningu fyrir
þátttöku i starfsþjálfunarnámskeiði. Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra afhenti viðurkenningarnar.
g 6000 bíða eftir lánsloforðum:
EG HEF SKYLDUM AÐ
GEGNA VIÐ ÞETTA FOLK
þótt forsœtisráðherra í Morgunblaðinu kalliþetta sprell, segir félagsmálaráðherra
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra segir að
þegar undanþágur söluskatts
af matvælum hafi verið felld-
ar niður verði söluskattsupp-
gjör matvöruverslana miklu
einfaldara. Jafnframt verði
eftirlit skattyfirvalda með
söluskattsskilum mun auð-
veldara en nú er. Þá segir
hann íslendinga vera komna
lengra í skattaumbótum en
Evrópubandalagið.
Á Alþingi i gær mælti fjár-
málaráðherra fyrir frumvarpi
um söluskatt, vörugjald og
tolla. Ráðherrann ítrekaði
þessa skoðun sína og vék
sérstaklega að gagnrýni sem
fram hefur komið um það
markmið að stefna að ein-
þrepa söluskatti. Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ hefur
meðal annars vikið að þessu.
Ráðherrann nefndi þó ekki
Ásmund einu orði, en sagði:
Því hefur verið haldið fram
að með því að stefna að ein-
þrepa söluskatti á allar vörur
séum við orðnir kaþólskari
en sjálfur páfinn. Lltum að-
eins á þennan punkt. Jú eng-
inn annar en Evrópubanda-
lagið, eins og það leggur sig.
Það er nýmæli fyrir mig, ef
stefna þess bandalags I
matarmálum er allt í einu
orðin fyrirmynd annarra
þjóða.“
Fjármálaráðherra sagði að
þær hugmyndir sem reifaðar
hafa verið innan Evmpu-
bandalagsins um tvíþrepa
söluskatt, siður en svo eins
byltingarkenndar og sumir
vildu vera láta.
I því sambandi benti Jón
Baldvin á að gerð hafi verið
tillaga um það hjá EB að
horfið verði frá margþrepa
virðisaukaskatti í tveggja-
þrepa skatt: „Lengra treysta
menn sér ekki til að gagna
að þessu sinni. Og af hverju
eru þessar tillögur lagðar
fram? Jú, einfaldlega vegna
þess að menn eru hættir að
ráða við þetta kerfi með fjöld-
ann allan af skattþrepum.
Óánægjan er orðin svo mikil.
Eftirlitið orðið svo erfitt.
Kannast menn ekki við þetta
í viðskiptum sínum við ís-
lenska söluskattskerfið? það
er nákvæmlega þetta, sem
við erum að reyna að komast
út úr.“
Jón Baldvin bætti því síð-
an við, að íslendingar væru
einfaldlega komnir lengra í
skattumbótum en Evrópu-
bandalagið.
Fjármálaráðherra sagði að
niðurfelling undanþága
myndi gerbreyta aðstæðum
til öflugra skatteftirlits. Þann-
ig myndu starfsmenn á skatt-
stofum, sem nú þurfa að
eyða miklum tíma í að yfir-
fara fylgipappíra með sölu-
skattsskýrslum, geta snúið
sér að söluskattsendurskoð-
un og virkara eftirliti með
bókhaldi fyrirtækjanna. Þá
myndi breytingin leiða til
mikillar einföldunar í upp-
gjöri á söluskatti hjá mat-
vörukaupmönnum. Það ætti
ennfrekar að stuðla að bætt-
um skattskilum.
Komið hefur til tals, I
tengslum við breytingarnar á
söluskattslögum, að skylda
smásölufyrirtæki, til þess að
nota löggilta búðarkassa.
Ráðherra hefur heimild til
þessa, samkvæmt lögum, og
sagðist hann hafa ákveðið að
láta kanna sérstaklega hvort
rétt sé að stíga skrefið til
fulls og skylda smásöluaðila
til að nota löggilta þeninga-
kassa.
„Ríkisstjórnin samþykkti
að þessu máli skyldi hraöað í
gegnum þingið. Þá voru 4000
lánsumsóknir sem höfðu
safnast upp frá því um miðj-
an mars þegar útgáfu lánslof-
orða var hætt. Nú þegar 10
dagar eru eftir til jóla, þá eru
6000 umsóknir sem bíða og
ég tel að Alþingi beri skylda
til þess að afgreiöa þetta mál
fyrir jólaleyfi,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra í samtali viö Alþýðu-
blaði í gær. Jóhanna mætti
ekki á rlkisstjórnarfund í
gærmorgun vegna þeirra tafa
sem orðið hafa á afgreiðslu
húsnæðisfrumvarpsins, en
það hefur verið ( nokkrar vik-
ur í salti í félagsmálanefnd
neðri deildar.
Jóhanna sagði að í raun og
veru væru það um 18000
manns sem biðu eftir því að
þetta mál leystist. Umsókn-
irnar væru 6000 þúsund en
þegar fjölskyldurnar allar
væru taldar með væru 18000
manns sem biðu. „Sem hús-
næðisráðherra hef ég skyld-
um að gegna við þetta fólk,
þótt forsætisráðherra hafi
kosið að kaHa þetta sprell í
viðtali i Morgunblaðinu."
Jóhanna sagðist telja að
þrátt fyrir breytingar I með-
förum félagsmálanefndr
neóri deildar næði frumvarp-
ið fram meginmarkmiði: Að
tryggja þeim forgang til hús-
næðislána sem verst eru
sett. Að tryggja betri stjórn í
kerfinu og koma í veg fyrir
þenslu.
Píslarganga þessa frum-
varps hefur verið mjög mikil,
en ég vænti þess að það fá-
ist lausn. Það er að mínu
mati nauðsynlegt að rikis-
stjórnin sameinist um að
koma þessu máli i forgangs-
röð, eins og reyndar var sam-
þykkt I ríkisstjórninni f októ-
ber,“ sagði Jóhanna. Þegar
húsnæðisfrumvarpið kemur
úr félagsmálanefnd á það eft-
ir að fara i gegnum 5 umræð-
ur í þinginu.
Félagsmálaráðherra mun
ekki sækja fundi ríkisstjórn-
arinnar, meðan rikisstjórnin
hefurekki ský laust samein-
ast um það koma málinu í
gegn.