Alþýðublaðið - 17.12.1987, Síða 8
MBUBLMB
Fimmtudagur 17. desember 1987
Ragnhildur Helgadóttir:
EKKEKT PENINGALOFORO
— fólst í bréfinu. Heilbrigðisráðuneytið gerði hvað það gat til þess að framkvœmdir gœtu
gengið við byggingu D-álmu Sjúkrahúss Keflavíkur.
Ragnhiidur Helgadóttir
segir aö tullyrðing i fyrirsögn
í Alþýöublaöinu á þriðjudag
hafi verið gersamlega villandi
og afar ósmekkleg. Ragnhild-
ur segir aö í bréfi sem hún
sendi stjórn Sjúkrahúss
Keflavíkur i vor heföi komið
fram yfirlýsing fagráðuneytis,
en ekki falist loforö um pen-
inga, eins og skilja mátti á
fyrirsögn meö fréttinni.
Ragnhildur segir ennfremur
að heilbrigðisráðuneytið hafi
gert hvað það gat til þess að
framkvæmdir gætu gengið
við byggingu D-álmu Sjúkra-
húss Keflavíkur.
í umræðum á Alþingi á
þriðjudag vék Ragnhildur sér-
staklega að fréttinni í Alþýðu-
blaðinu þar sem vitnað var til
Ólafs Björnssonar formanns
sjúkrahússstjórnar, en hann
segir að Ragnhildur hafi sam-
þykkt 30 milljóna króna láns-
heimild fyrirsitt leyti með
bréfi dagsettu þann 15. apríl.
Þremur vikum áður hafði fjár-
málaráðherra verið búinn að
hafna lántökuheimild, en
þess var ekki getið í bréfinu
frá heilbrigðisráðuneytinu.
Ólafur segir að það hafi ekki
verið fyrr en í haust, sem
Guðmundur Bjarnason, nú-
verandi heilbrigðisráðherra,
upplýsti stjórnina um neitun-
ina.
„í bréfinu segir ekkert ann-
að en hver afstaða heilbrigð-
isráðuneytisins er. Ég var
búin að leita eftir samþykki
fjármálaráðuneytisins. Það
tókst að vísu ekki í þessum
umgangi, en þeir sem að
sjúkrashúsinu stóðu lögðu á
það mikla áherslu að afstaða
heilbrigðisráðuneytisins
kæmi bréflega fram. Þannig
að fyrir lægi, að ráðuneytið
myndi ekki standa í vegi fyrir
lántöku af hálfu sjúkrahúss-
ins,“ sagði Ragnhildur í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær.
Ragnhildur sagðist hafa
skrifað bréfið í þessum anda,
en auk þess hafi ráðuneytið
beitt sér fyrir því að sjúkra-
húsið fengi framlag úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra, til við-
bótar þvi sem það fékk á fjár-
lögum. „Við gerðum þvi allt
sem við gátum til þess að
greiða fyrir því að þessi mál
gætu gengið," sagði Ragn-
hildur.
Þá sagði hún að forráða-
menn sjúkrahússins hefðu
talið sig eiga von i fjármagni
frá einkaaðilum og til þess
að svo mætti verða hefðu
þeir talið sig standa betur að
vigi með yfirlýsingu frá heil-
brigðisráðuneytinu í höndun-
um. „Sú yfirlýsing þýðir það
að fagráðuneytið er búið að
fara yfir áætlun sjúkrahúss-
ins og telur að það sé nauð-
synleg framkvæmd. Þaö var
búið að sýna fram á það með
rökum að þetta væri skyn-
samlegt."
Ragnhildur sagði að sér
fyndist því bakari hafa verið
hengdur fyrir smið á forsíðu
Alþýðublaðsins á þriðjudag. í
framhaldi af þessu var þaö
að sjálfsögðu eðlilegt að gert
yrði ráð fyrir sjúkrahúsinu nú
Ólafur Björnsson formaður stjórnar Sjúkrahúss Keflavíkur:
LÁGHIARKSKURTEISI AÐ SEGJA FRÁ
NEITUN FJÁRMÁLARÁÐUNEYTISINS
— Enginn stjórnarmanna áttaði sig á því að samþykki Ragnhildar Helgadóttur hefði enga
þýðingu.
Við hefðum brugðist öðruvísi
við ef afrit af neituninni hpMi
fylgt með bréfinu sem hún
sendi okkur,“ sagði Ólafur.
Ragnhildur sagði að stjórn
sjúkrahússins hafi talið sig
eiga kost á láni frá einkaaðil-
um og til þess að slikt gengi
betur myndi yfirlýsing frá
heilbrigðisráðuneytinu hjálpa
til. Þetta segir Ólafur Björns-
son ekki alls kostar rétt: „Við
ætluðum að fá lán í Spari-
sjóðnum og einkaaðilar
höfðu lagt drög að þvi.“
Ólafur sagöi að „lántöku-
heimildin" hafi verið notuð
sem kosningamál fyrir síð-
ustu alþingiskosningar. „Því
var haldið fram að nú væri
búið að tryggja að bygging
D-álmu ryki af stað. En um
neitun fjármálaráðuneytisins
höfðum við ekki nokkra hug-
mynd fyrr en í haust er Guð-
mundur Bjarnason, núverandi
heilbrigðisráðherra, upplýsti
okkur um bréfið frá ráðuneyt-
inu,“ sagði Ólafur.
Olafur Björnsson formaður
stjórnar sjúkrahúss Keflavík-
ur segir að enginn stjórnar-
manna hafi áttaö sig á því að
30 milljóna króna lántöku-
heimild sem Ragnhildur
Helgadóttir þáverandi heil-
brigðisráðherra samþykkti
fyrir sitt leyti i vor, hafi ekki
haft neina þýðingu.
„Áttum við að giska á þaó?
— Það hefði verið lágmarks-
kurteisi af Ragnhildi að taka
fram í bréfinu til okkar að
fjármálaráðuneytið hafi neit-
að. Það þegir hún um. Það
hefði líka mátt taka fram I
bréfinu að hennar heimild
skipti engu máli varðandi
leyfi til lántöku," sagði Ólafur
í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
í umræðunum á Alþingi á
þriðjudag og í Morgunblað-
inu í gær vék Ragnhildur að
frétt í Alþýðublaðinu á þriðju-
dag. Þar er fjallað um bréf
sem hún sendi stjórn sjúkra-
húss Keflavíkur þann 15.
apríl, 10 dögum fyrir Alþing-
iskosningar. í bréfinu segist
Ragnhildur samþykkja 30
milljóna króna lánsheimild,
„fyrir sitt leyti," til að flýta
fyrir byggingu D-álmu sjúkra-
hússins.
Fréttin í Alþýðublaðinu er
undir fyrirsögninni „Ragn-
hildur gaf út gúmmíloforð“.
Þar er haft eftir Ólafi Björns-
syni, að í haust hafi núver-
andi heilbrigðisráðherra upp-
lýst stjórnina að fjármála-
ráðuneytið hafi verið búið að
hafna lántökuheimild, þremur
vikum áðuren Ragnhildur
samykkti fyrirsitt leyti. Ragn-
hildur segir hins vegar í
Morgunblaðinu, að frétt Al-
þýðublaðsins sé bæði röng
og fram úr hófi ósmekkleg.
Bréf hennar hafi aðeins túlk-
að afstöðu heilbrigðisráðu-
neytisins og menn eins og
Ólafur Björnsson, fyrrverandi
alþingismaður, hafi mátt vita
að þurft hafi samþykki
beggja ráðuneyta.
Ólafur Björnsson.
„Ekkert okkar áttaði sig á
því að hennar heimild skipti
ekki máli. í bréfinu til okkar
þegir hún um neitun fjár-
málaráöuneytisins, sem hún
hafði þegar undir höndum.
í heimildargrein fjárlagafrum-
varpsins.
Um gagnrýni Ólafs sagði
Ragnhildur ennfremur: „I
mínu bréfi er ekkert loforö
um peninga. Hvernig á mönn-
um að detta í hug að þeir
sem stjórna opinberum
stofnunum og forsvarsmenn
sveitarfélags viti ekki að
opinbert fé kemur fjárlaga-
ráðuneytinu við.“
Aðspurð hvort ekki hefði
verið eðlilegt að geta neitun-
ar fjármálaráðuneytisins
sagðist Ragnhildur gera ráð
fyrir þvl að þeir hafi fengið
afrit af því. — Þeir hafi vitað
af bréfinu áður. „Ég vissi það
að ýmsir þarna syðra vissu af
Ragnhildur Helgadóttir.
neitun fjármálaráðuneytisins.
Það lá alveg Ijóst fyrir.“
Ólalfur segir að lántöku-
heimildin hafi óspart verið
notuð í kosningabaráttunni.
Ragnhildur sagði að sér væri
ekki kunnugt um það. „En
auövitað nota menn sér það í
kosningabaráttu, að þeir ætli
að byggja elliheimili. Það var
t.d. ekki svo lítiö áhugamál
alþýðuflokksmannanna sem
eru þarna í bæjarstjórn og
sjúkrahússtjórn, — enda er
það nauösynlegt þarna suður
frá. Ég gat ekki látið mér
detta í hug, að þegar ég
hætti að vera ráðherra, hættu
þeir að berjast fyrir þessu
gagnvart fjármálaráðuneyt-
inu,“ sagði Ragnhildur Helga-
dóttir.
□ 1 2! 3 n 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
n 12
13 □ □
• Krossgátan
Lárétt: 1 mynduðu, 5 fen, 6 hjón,
7 belti, 8 angaði, 10 eins, 11
þræll, 12 framkvæma, 13 stækk-
aða.
Lóðrétt: 1 drabb, 2 ramma, 3 ör-
vita, 4 hárið, 5 landsvæði, 7
strax, 9 lokaorð, 12 umdæmis-
stafir.
Lausn á síöustu krossgátu.
Lárétt: 1 brest, 5 þrái, 6 joð, 7 SA,
8 akarns, 10 kk, 11 jós, 12 sópa,
13 raula.
Lóðrétt: 1 brokk, 2 ráða, 3 ei, 4
trassa, 5 þjakar, 7 snópa, 9 rjól,
12 SU.
• Oengfð
Gengisskráning 15. desember 1987
Kaup Sala
Bandarikjadollar 36,200 36,320
Sterlingspund 66,633 66,854
Kanadadollar 27,708 27,799
Dönsk króna 5,7731 5,7922
Norsk króna 5,6976 5,7165
Sænsk króna 6,1169 6,1372
Finnskt mark 9,0196 9,0495
Franskur franki 6,5675 6,5893
Belgiskur franki 1,0631 1,0667
Svissn. franki 27,3890 27,4798
Holl. gyllini 19,7928 19,8584
Vesturþýskt mark 22,2701 22,3439
itölsk líra 0,03020 0,03030
Austurr. sch. 3,1630 3,1734
Portug. escudo 0,2718 0,2727
Spanskur peseti 0,3287 0,3298
Japanskt yen 0,28493 0,28587
• Ljósvakapunlttar
• StöJ 2
Fólk kl. 21.30 Bryndís
Schram ræðir við fólk af ó-
líku og fjarlægu þjóöerni
sem b>ý;r á Islandi.
• Stjaman
Stjörnutiminn hefst kl. 19.00.
Gullaldartónlist kynnt í eina
klukkustund.
• Rás 2
„Á milli mála“ kl. 12.45. Meö-
al efnis er söguþátturinn þar
sem tíndir eru til fróðleiks-
molar úr mannskynssögunni
og hlustendum gefinn kost-
ur á að reyna sögukunnáttu
sína. Umsjónarmaður er
Snorri Már Skúlason.
• Bylgjan
„Bylgjukvöld" hefst kl. 19.00.
Anna Björk Birgisdóttir sér
um þáttinn.
U