Alþýðublaðið - 30.12.1987, Page 1
Sigurður Snœvar hjá Þjóðhagsstofnun:
HÓPAR MED YFIR 300
ÞÚSUND KRÓNUR Á MÁNUDI
— Tífaldur launamunur kemur okkur ekki á óvart, segir Þröstur Ólafsson framkvœmdastjóri Dagsbrúnar.
Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Dagsbrunar: „Ég held að launa-
munurinn sé á bilinu 40 þúsund tii 400 þúsund krónur á mánuði.
Laun yfir 300 þúsund krón-
ur á mánuði eru ekki óalgeng
á íslandi í dag. Sigurður
Snævar hagfræðingur hjá
Þjóðhagsstofnun telur að
hópur manna í þjóðfélaginu
hafi þessar tekjur. Og þaðan
af hærri. Heimildir Alþýðu-
blaðsins herma að í þessum
milljóna flokki séu forstjórar,
viðskiptafræðingar hjá einka-
fyrirtækjum, endurskoðend-
um, læknar, tannlæknar og
fleiri hópar.
Allt bendir til þess að
launamunur sé mikill I þjóð-
félaginu þó að ekki veröi full-
yrt að hann hafi aukist á síð-
ustu árum. Sigurður Snævar
tjáði blaðinu að þegar verð-
bólgan varð mest hér á árun-
um 1983—1984 hafi launa-
munurekki aukist, en tölur
um siðustu ár liggi enn ekki
fyrir.
Þjóðartekjur Islendinga eru
taldar hafa aukist um 9,3% á
þessu ári. íslendingar eru í
hæsta flokki tekna og búa
fáar þjóðir að meiri tekjum.
Enginn veit hvernig þessar
tekjur skiptast niður á fjöl-
skyldur og einstaklinga í
landinu. Þó er Ijóst að meðal-
tekjur 1987 á hvern einstakl-
ing sem á annað borð hefur
haft tekjur á árinu eru um
700 þúsund krónur. 148 þús-
und manns teljast hafa haft
launatekjur á árinu 1987.
Samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Snævars hagfræð-
ings hjá Þjóðhagstofnun hafa
eiginmenn haft að meðaltali
1100 þúsund króna árstekjur
en eiginkonur 400 þúsund
krónur. Vitað er að atvinnu-
þátttaka er misjöfn, og er
ekki tekið tillit til þess í
þessum tölum.
Mánaðarlaun félaga í ASÍ
voru á miðju ári um 65 þús-
und krónur að því er Sigurður
Jóhannesson hjá Kjararann-
sóknarnefnd tjáði Alþýöu-
blaðinu. Sjómenn eru ekki
með í úrtaki Kjararannsóknar-
nefndar.
„Þessi launamunur kemur
okkur í verkalýðshreyfingunni
ekki á óvart,“ sagöi Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri
Dagsbrúnar i viðtali við Al-
þýðublaðið. „Ég held að
launamunurinn sé á bilinu 40
þúsund til 400 þúsund. Það
eru til laun sem eru 400 þús-
und krónur á mánuði. Það er
alveg klárt.“
Kvótafrumvarpið
EKKI ÚTILOKAD AÐ
SAMKOMULAG TAKIST
Þingfundir standa að líkindum fram að hádegi á gamlársdag, þannig að ólík-
legt er að allir þingmenn af landshyggðinni komist heim til sin á gamlárskvöld.
í gærkvöldi var óljóst um
afgreiöslu mála á þinginu fyrir
áramót. Stjórnarflokkarnir
leggja höfuðáherslu á að fá
söluskattsfrumvarpiö afgreitt,
en litiö miöaöi i gær. Hins veg-
ar virtist ekki útilokað aö sam-
komulag næöist um kvóta-
frumvarpið. Aö ööru leyti stóð
allt fast.
Á fundi i gærmorgun gerðu |
stjórnarflokkarnirog stjórnar-
andstaöan með sér samKomu-
lag um að slíta fundi í neöri
deild klukkan fjögur. Það virð-
ist eina samkomulagið sem
tekist hefur á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu í þeim miklu
önnum sem verið hafa í þing-
inu síðustu vikur.
Sjávarútvegsnefnd og fjár-
hags- og viðskiptanefnd neðri
deildar voru aö störfum í gær-
kvöldi og talið var að fundir
stæðu fram eftir kvöldi.
Ef að líkum lætur verða
þingfundir fram á hádegi á
gamlársdag. Þing verður síðan
kallað saman 4.janúar.
K0NUR
TIL
SÖLU?
6
SB HMM
ÆRA INNLENDUR
STEFÁNS FRÉTTA-
JÓHANNS ANNÁLL '87
13 4-5
HHHBDBHnni