Alþýðublaðið - 30.12.1987, Síða 2
2
Miövikudagur 30. desember 1987
MÞYÐUBLM9
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Umsjónarmaður
helgarblaðs: Þorlákur Helgason
Blaðamenn: Haukur Hólm, Ingibjörg Árnadóttir
og Sigrlður Þrúður Stefánsdóttir.
Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12.
Áskriftarslminn er 681866.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60
kr. um helgar.
KVOTAFRUMVARP
í KLÍPU
Kvótafrumvarp Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráö-
herra er komið í klípu. Frumvarpið er lent í tímahraki milli
deilda Alþingis og Ijóst er að það verður ekki afgreitt fyrir
áramót þegar núverandi lög um stjórnun fiskveiða renna
úr gildi. Það er fyrst og fremst vegna óhagganleika og
stirðbusaháttarsjávarútvegsráðherraað frumvarpið hefur
nú strandað og næst ekki á flot fyrir áramót. Bæði stjórn-
arliðar og stjórnarandstaóan hafa krafist gagngerra
breytinga á frumvarpinu; að breyta eða fella úr gildi 10.
grein frumvarpsins sem fjallar um smábátana. Við bætist
að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi eru mjög ósammála
frumvarpi Halldórs Ásgrímssonar.
Frumvarp Halldórs Ásgrímssonar um stjórnun fiskveiða
er raunasaga. Það er raunasaga vegna þess að þaó felur
ekki í sér þá nýbreytni sem krefst við breyttar aðstæður í
sjávarútvegi en tekur mið af gamla frumvarpinu og svo-
nefndu viðmiðunarárum í byrjun hluta þessa áratugar. Við
gerð stjórnarsáttmálans í sumar var sérstaklega fjallað
um skipun stjórnarnefndar sem endurskoðaði fiskveiði-
stefnuna. Sú nefnd varskipuð en lagði aldrei fram neinar
afgerandi breytingar við gamla frumvarpið. Þetta mátt-
leysi nefndarinnar nýtti sjávarútvegsráðherra sér til að
leggja fram frumvarp sitt sem f meginatriðum var gamla
frumvarpið um stjórnun fiskveiða óbreytt. Við þá af-
greiðslu gat Alþýðuflokkurinn ekki sætt sig og knúði fram
nokkrar grundvallarbreytingar á frumvarpinu. Alþýðu-
flokkurinn gat ekki sætt sig við ríkjandi lénsskipulag
sjávarauðlindanna þar sem hafinu í kringum ísland og
þeim fengsælu veiðisvæðum sem þar liggja væri skipt
með reglustrikuákvörðun ráðuneyta og embættismanna.
Auðlindir hafsins tilheyra öllum landsmönnum. Kvóta-
kerfið sem upphaflega var sett til verndunar fiskistofnum
hefur fengið allt annað hlutverk í dag og skiptir byggða-
lögum í forréttindasvæði og ölmususvæði, skipstjórum i
kvótakonunga og kvótakotunga, í kvótaflaggskip og
kvótadalla. Eitt af aðalstefnumálum Alþýðuflokksins fékk
því framgengt þrátt fyrir hótanir Framsóknarflokksins og
sjávarútvegsráðherra um stjórnarslit að samþykktar voru
þrjár breytingartillögur við frumvarp Halldórs Ásgríms-
sonar. í fyrsta lagi kom inn í lagatextann að fiskistofnarnir
væru eign þjóðarinnar allrar, í öðru lagi að ákveðin væri
nefnd sem mótaði framtíðarstefnu í fiskveiðistjórnun og
mótaði tillögur um breytingar á lögunum og gildistíma
þeirra eftir því sem tilefni er til, meðal annars kanna áhrif
laganna á afkomu og hagkvæmni I sjávarútvegi og skyn-
samlegri nýtingu fiskistofna. Nefndinni bereinnig að at-
huga tilhögun veiðiheimilda, meðal annars heimilda sem
ekki séu bundnarvið skip. í þriðja lagi tókst Alþýðuflokkn-
um að fá inn I staðnað frumvarp sjávarútvegsráðherra
ákvæði um heimild til þess að færa aflamark milli skipa
sömu útgerðareðaskipasem gerðeru út frásömu verstöð
eftir því sem hlutaðeigandi útgerðaraðilar koma sér
saman um. En þrátt fyrir ný ákvæði Alþýóuflokksins var
Ijóst að þau ein nægðu ekki til að flikka upp á þessa gömlu
skjólflík Framsóknarflokksins. Það var Ijóst frá upphafi að
frumvarp Halldórs Ásgrímssonar um stjórnun fiskveiða
sem gengur vanalega undir heitinu kvótafrumvarpið, var
það gallað að mikill styrr myndi standa um það í þingsöl-
um. Alþýðublaðið kallaði þetta plagg sjávarútvegsráð-
herra „frumvarp stöðnunar" I leiðara sem birtist I blaðinu
í lok nóvember. í Ijós hefur komið að það er réttnefni.
FRÉTTIR
URBÆTUR I SJUKRA-
HÚSMÁLUM Á ÍSAFIRDI
— fjármálaráðherra heimilt að ábyrgjast lán sem kann að verða
tekið á næsta ári vegna byggingar sjúkrahússins á ísafirði. Þar með
hillir undir að starfsemi verði hœtt í gamla sjúkrahúsinu.
Samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu veröur fjármálaráð-
herra heimilt að ábyrgjast
með einfaldri ábyrgð lán sem
kann að verða tekið á næsta
ári vegna byggingar sjúkra-
hússins á ísafirði. Lánið á að
fara til búnaðar- og tækja-
kaupa i þeim tilgangi að flýta
fyrir þvi að legudeild sjúkra-
hússins verði tekin í notkun
og starfsemi hætt í gamla
sjúkrahúsinu.
Liö þessa efnis var bætt
inn í 6. grein, heimildargrein
fjárlagafrumvarpsins, sam-
kvæmt breytingartillögu fjár-
veitingarnefndar. Ríkissjóður
mun endurgreiða lánið á fjár-
lögum 1989-1991.
Ástand gamla Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði hefur
um árabil þótt óviðunandi.
Þar hafa 32-35 sjúklingar ver-
iö vistaðir á tveimur hæðum (.
lyftulausu húsi. Starfsfólkið ’
hefur þurft að bera sjúklinga
á höndum sér milli hæða.
Skolherbergin hafa þótt illa
þefjandi og engir fataskápar
eru á 12 sjúkrastofum. Slysa-
skipti- og göngudeildarstofa
ásamt biðstofu eru inni á
miðri bráðlegudeild. Sfmstöð-
in er ónýt.
Þannig er gamla sjúkrahús-
inu m.a. lýst í umfjöllun í Al-
þýðublaðinu í lok október,
sem vakti mikla athygli.
Hluti af starfsemi sjúkra-
hússins er fluttur i nýju bygg-
inguna, en fyrsta skóflu-
stungan var tekin við hátíð-
lega athöfn 1975. Með
heimildinni í fjárlagafrum-
varpinu er vonast til að hægt
verði að taka ( notkun legu-
deild nýja sjúkrahússins. Þar
með yrði starfsemi að öllu
hætt í gamla sjúkrahúsinu.
I gær afhenti Grétar Þorsteinsson, formaður T. R., forsvarsmönnum Steintaks viðurkenningu fyrir aðbúnað
starfsmanna. A—mynd/Róbert.
Trésmiðafélag Reykjavikur:
STEINTAK VERDLAUNAÐ
FYRIR G0ÐAN AÐDUNAD
— Aðbúnaður á vinnustöðunum er víða óviðunandi að mati
Grétars Þorsteinssonar formanns T.R.
í gær veitti Trésmiðafélag
Reykjavíkur fyrirtækinu
Steintak hf. viðurkenningu
fyrir góðan aðbúnað starfs-
manna á vinnustað. Þetta er í
þriðja sinn sem Trésmiðafé-
lagið veitir viðurkenningu af
þessu tagi. Að sögn Grétars
Þorsteinssonar, formanns
T.R., voru nokkur fyrirtæki
skoðuð eftir að ábendingar
höfðu verið gefnar. „Það kom
í Ijós að vinnustaðirnir hjá
Steintak voru bestir, að þeim
frátöldum sem þegar hafa
fengið viðurkenningu, en þeir
hafa staðið sig mjög vel og
viðhaldið góðum aðbúnaði,“
sagði Grétar.
Aðbúnaður almennt á
vinnustöðum f byggingariön-
aði er hins vegar sorgarsaga,
að mati Grétars. „Að vísu er
undantekning ef aðbúnaður
er ekki sæmilega viðunandi
hjá stærri vinnustöðunum,
en á þeim smærri hefur að-
búnaður Ktið breyst síðustu
áratugi."
Grétar sagðist binda vonir
við þá breytingu sem orðið
hefur á viðhorfum félags-
manna í T.R. Hann sagði að
þeir hefðu sig meira frammi á
vinnustöðum um að aðstaða
Við afgreiðslu á fjárlaga-
frunvarpinu var samþykkt
breytingartillaga frá mennta-
málanefnd sem fól í sér tölu-
verða hækkun á heiðurslaun-
um listamanna. Heiðurslaun-
in verða 7,5 milljónir í stað
6,9. Upphæðin skiptist jafnt
á milli 15 listamanna.
Á fjárlögum þessa árs voru
16 listamenn ( heiðurslauna-
flokknum, en einn þeirra
Snorri Hjartarson lést f lok
slðasta árs.
væri í lagi. „Það er auðvitað
hneyksli fyrir hverja atvinnu-
grein ef ekki er búið þokka-
lega að starfsmönnum,"
sagði Grétar Þorsteinsson.
Þeir sem fá úthlutað lista-
mannalaunum samkvæmt
fjárlögum 1988 eru: Árni
Kristjánsson, Finnur Jóns-
son, Guðmundur Daníelsson,
Halldór Laxness, Hannes
Pétursson, Indriði i. Þor-
steinsson, Jóhann Briem,
Jón Nordal, Jón úr Vör, María
Markan, Matthlas Johannes-
sen, Ólafur Jóhann Sigurðs-
son, Stefán íslandi, Svavar
Guðnason og Valur Gíslason.
Alþingi
HEIÐURSLAUNIN HÆKKUÐ
Fimmtán listamenn fá 500 þúsund hver.