Alþýðublaðið - 30.12.1987, Page 4
4
Miðvikudagur 30. desember 1987
INNLENDUR
FRÉTTAANNÁLL
Mikið um verkföll
Strax i byrjun ársins 1987
skullu yfir nokkur verkföll.
Undirmenn á farskipum hófu
verkfall 5. janúar og lauk því
ekki fyrr en 16. janúar. Var þá
orðið allslæmt ástand á ýms-
um stöðum, fiskbirgðir vorú
komnar í þrot þannig að mikil
hætta var á að íslendingar
misstu viðskipti við erlendar
þjóðir. Alþingi var kallað sam-
an 12. janúar og var þá m. a.
íhugað að setja lög til að af-
létta verkfalli. Til þess þurfti
þó ekki að koma.
Hið íslenska kennarafélag
samþykkti 4. febrúar að und-
irbúa allsherjaratkvæða-
greiðslu um verkfall sem
hefjast átti 16. mars. Samn-
ingaviðræður hófust upp úr
því og vonuðust menn fram-
an af aö ekki þyrfti til verk-
falls að grípa. Samningar
náðust ekki og hófst því boð-
að verkfall á miðnætti 16.
mars. í kjölfar þess boðuðu
fleiri félög verkfall þ. á m.
BSRB, hin ýmsu félög í
sjúkrahúsgeiranum, fóstrur,
félagsráðgjafar o. fl. Kennara-
deilan leystist ekki fyrr en
aðfaranótt 30. mars og hafði
þá staöið í tvær vikur. Skóla-
starf komst í samt lag og var
í mörgum skólum kennt í
páskafríi og um helgar.
Háskólamenntaðir hjúkrun-
arfræðingar hófu verkfall 19.
mars. Strax sama dag Var far-
ið að rýma landlæknis- og
lyflæknisdeild á Landspítala.
Eftir þvi sem á leið verkfallið
komst á neyöarástand í
spítölunum, fjölmargir sjúkl-
ingar voru sendir heim og
hlutu bæði þeirog aðstand-
endur þeirra af því mikil
óþægindi. 1. apríl tóku upp-
sagnir hjá ríkisspítölum gildi
og voru það yfir þrjú hundruð
manns sem sögðu upp. Búist
var við algjöru neyðarástandi
á spítölum og hefði svo oröiö
ef starfsmenn hefðu ekki
samþykkt að fresta uppsögn-
unum í þrjá daga.
Póltiík
Kosningabaráttan hófst
strax á nýju ári og í þetta
sinn voru þær þann 25. apríl.
Jafnframt var lögfest að hér
eftir skyldu kosningar alltaf
fara fram aðra helgi f maí.
Kosningabaráttan fór ekki
átakalaust fram frekar nú en
endranær og þegar upp var
staðið höfðu tveir stjórnmála-
flokkanna klofnað, nýr flokk-
urstofnaður, Borgaraflokkur
og fram kom eitt sérframboð.
Framsóknarflokkurinn í Norð-
urlandi-eystra klofnaði end-
anlega á fundi á Hótel KEA
17. mars er Páll Pétursson,
formaður þingflokks Fram-
sóknar neitaði að taka við
bréfi frá stuðningsmönnum
Stefáns Valgeirssonar. Þrátt
fyrir tilraunir Steingríms Her-
mannssonar að koma á sátt-
um milli Stefánsmanna og
þingflokksins og fór því
Stefán Valgeirsson fram með
sérframboð í alþingiskosn-
ingunum.
Um miðjan mars var Albert
Guðmundsson ásakaður um
meint skattsvik. Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæö-
isflokksins kallaði til sögu-
legs blaðamannafundar í Al-
þingishúsinu eftirað Helgar-
pósturinn hafði skrifað um
hin meintu skattsvik og út-
skýrði mál Alberts. Albert var
þá staddur erlendis og hlaut
Þorsteinn nokkrar ákúrur fyrir
fundinn. Nokkrum dögum
síðarympraði Þorsteinn á því
I sjónvarpsviðtali að Albert
gæti ekki orðið aftur ráðherra
Sjálfstæðisflokksins og urðu
þau ummæli endanlega til
þess aö Albert tiuðmunds-
son sagði af sér ráðherra-
dómi og sagði sig úr Sjálf-
stæðisflokknum og stuðn-
ingsmenn hans undir forystu
dóttur hans, Helenu stofnuðu
Borgaraflokkinn. Þegar að
kosningum kom var þessi nýi
flokkur því aðeins búin að
starfa í mánuð en kom samt
sjö mönnum inn á þing. Sum-
ir létu þó í veðri vaka að
meirihluti kjósenda Bogara-
flokksins hafi látið stjórnast
af tilfinningum.
Úrslit kosninganna urðu
óvenjuleg, svo ekki sé meira
sagt, Alþýðubandalag og
Sjálfstæðisflokkur töpuðu
miklu fylgi og eftir kosning-
arnar 25. apríl hafði Sjálf-
stæðisflokkurinn minnkað
fylgi sitt um tæp 12%. For-
ystuhlutverk flokksins var því
ekki lengur sjálfsagt i ís-
lenskum stjórnmálum. Al-
þýðuflokkurinn gat hrósað
sigri því nú var hann orðinn, í
fyrsta sinn, stærri en Alþýðu-
bandalagið. Steingrímur Her-
mannsson mátti fagna per-
sónulegum sigri og Fram-
sóknarflokkurinn naut í heild
góðs af því. Kvennalistinn
tvöfaldaði þingkvennatölu
sina og sérframboð Stefáns
Valgeirssonar bar þann
árangur að hann komst inn á
þing. Svo virtist að kjósendur
hefðu sett spurningarmerki
við það flokkakerfi sem ráðið
hafði ríkjum á íslandi fram að
þessu því aðeins tveir að
gömlu flokkunum gátu unað
kosningaúrslitunum en fylk-
ingar Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðubandalagsins riðluð-
ust eftirminnilega.
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar missti meiri-
hluta sinn á þingi í kosning-
unum og baðst hann því
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Ekkert nýtt stjórnar-
mynstur var sjálfgefið og sat
því ríkisstjórn Steingrims enn
um hríð, að forminu til.
Mönnum var Ijóst að til
þess að ná meirihluta á Al-
þingi þyrfti að koma meira til
en tveir flokkar. Steingrímur
Hermannsson fékk fyrstur
umboð til stjórnarmyndunar í
hendur. Ekki tókst honum að
mynda stjórn og gekk því á
fund forseta 13. mai og skil-
aði af sér umboðinu. Næsti
umboðsmaður var Þorsteinn
Pálsson en þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir tókst honum ekki
heldur að mynda stjórn. 4.
júní hófust loks formlegar
stjórnarmyndunarviðræður
Alþýðuflokks, Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks
undir verkstjórn Jóns Bald-
vins Hannibalssonar. Oft virt-
ist ætla að bregða til beggja
vona en allt kom fyrir ekki,
29. júní skilaði formaður Al-
þýðuflokksins af sér umboð-
inu. Átti þá aðeins eftir að
reka smiðshöggið á myndun
ríkisstjórnar Sjálfstæðis-,
Framsóknar- og Alþýðuflokks
og kom það í hlut Þorsteins
Pálssonar að Ijúka því verki í
byrjun júlí komust flokkarnir
að samkomulagi og ný
þriggja flokka ríkisstjórn var í
höfn. Ríkisstjórnin tók nú
strax til starfa en heldur
þykir ágreiningur um hin
ýmsu mál vera í hærri kantin-
um. Um miðjan desember
biðu um 23 frumvörp af-
greiðslu og i stað hins hefð-
bundins mánaða leyfis
er þingmenn hafa ængið um
jól, var þingað á milli jóla og
nýárs til að koma sem flest-
um frumvörpum í gegn fyrir
áramót.
Helginaö.—8. nóvember
Umsjón:
Sigríður Þrúður
Stefánsdóttir
Ný rikisstjórn Alþýöuflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
var mynduð i júlibyrjun eftir krappan menúett.
í kosningunum í apríl fékk Alþýðu-
flokkurinn undir forystu Jóns
Baldvins Hannibalssonar 15,2%
og varð i fyrsta skipti stærri en
Alþýðubandalagið.
Albert Guðmundsson sagði af sér
ráðherradómi og gekk úr Sjálf-
stæðisflokknum og stofnaði
Borgaraflokkinn ásamt stuön-
ingsmönnum sínum.
Utvegsbankinn gekk hvorki til SÍS eöa KR-ingana því Jón Sigurösson
viðskiptaráðherra kippti sölu hlutabréfa ríkisins í bankanum til baka í
desember.
fór fram kosning um formann
Alþýðubandalagsins og það
voru þau Ólafur Ragnar
Grímsson og Sigríður
Stefánsdóttir sem bitust um
formannssætið.
Fyrir landsfundinn var mik-
ið stríð milli frambjóðend-
anna tveggja og stuðnings-
manna þeirra og var erfitt að
sjá fyrir hvor hefði betur. Þau
voru bæði sigurviss og lýstu
því ósjaldan yfir. Kosninga-
dagurinn rann upp, 7. nóvem-
ber, og í herbúðum, bæði
Ólafs og Sigríöar ríkti mikil
spenna. Þegar upp var staðið
var það Ólafur Ragnar sem
hreppti hið eftirsótta for-
mannssæti. Atkvæðamunur-
inn varð meiri en búist var
við, hlutföllin urðu u.þ.b. 60 á
mót 40 Ólafi í vil.
Eldsvoðar
Allmikill eldur kom upp í
húsi Lystadúns þann 12. maí.
Allt tiltækt skökkvilið var
kallað til en ekki tókst þó að
bjarga húsinu né innviði
þess. Er eldurinn kom upp
var fólk við vinnu inni í hús-
inu en , því tókst að bjarga
áöur en húsið varð alelda. Öll
tæki og vélar eyðilögðust og
tjónið nam þvi tugum millj-
óna króna.
Mikil eiturgufa myndaðist í
lofti og var nærliggjandi göt-
um því lokað meðan ástandið
var sem verst. Einnig var
mikil hætta á að húsið hryndi
til grunna og var öllum mein-
aður aðgangur i húsið sólar-
hring á eftir. Upptök elds-
voðans voru ekki að fullu
kunn en eigandi Lystadúns,
Kristján Sigmundsson lands-
liðskappi, rakti þau þó til
svampskurðtækja sem
neista, en eldurinn kom upp
þar sem verið var að ganga
frá dýnum.
Þrátt fyrir þetta lagði
Lystadún ekki ekki upp laup-
ana heldur hóf fljótlega starf-
semi sína í nýju leiguhús-
næöi um miðjan maí.
Annar stórbruni varð í
Kópavogi þegar Málning hf.
brann til kaldra kola 13. júlí.
Eldsupptök voru á neðstu
hæð hússins en breiddist
síðan út á svipstundu.
í húsinu fór fram öll fram-
leiðsla Málningar hf. auk
þess sem þar var hráefna-
lager, skrifstofur og mötu-
neyti. Mesta eldhættan var
vegna hráefna er lágu á
lagernum. Þau voru mjög
eldfim enda fór það svo að
þakið á lagernum var það
fyrsta sem hrundi.
Reykurinn sem kom frá
eldinum var eitraóur og þvf
mjög hættulegur og vegna
þess var slökkvistarfið erfitt.
Allt sem brunnið gat brann
og var tjónið metið á um 80
milljónir króna.
Natófundur í
Reykjavík
Utanríkisráðherra Atlants-
hafsbandalagsrikjanna hélt
fund í Reykjavík jjann 11.
júní. Fundurinn var haldinn í
Háskólabíói og lauk daginn
eftir. Fyrir fundinn bundu
menn vonir við að ráðherrarn-
ir gætu náð samkomulagi um
brottflutning Evrópueldflaug-
anna. Sú von brást ekki því á
fundinum náöist munnlegt
samkomulag um að veita '
Ronald Reagan vilyrði fyrir
því að halda áfram samninga-
viðræðum við Sovétmenn um
upprætingu meðaldrægra og
skammdrægra kjarnorku-
flauga í Evrópu. í byrjun októ-
ber kom í Ijós að kostnaður
vegna fundarins var um 35