Alþýðublaðið - 30.12.1987, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 30. desember 1987
5
milljónir króna og fjármála-
ráðherra þurfti þvl að skrifa
upp á aukafjárveitingu sem
þessu nam.
Stærsti kostnaðarliðurinn
var löggæsla en aðrir liðir
fólust I gistingu og húsa-
leigu. Áætlaður kostnaður
var um 28 milljónir og fór þvl
7 milljónir fram yfir áætlun.
„Kók“
Ávana- og f(kniefnalögregl-
an í Reykjavlk gerði upptækt
eitt mesta magn af Kókaíni
frá upphafi, 17. október. Um
var að ræða 450 gr. og voru
það brasillsk hjón sem höfðu
efnið í fórum sinum. Talið var
að hjónin hefðu komið með
efnið frá Luxemborg og haft
með sér i farangrinum. Þau
höfðu dvalið um nokkurn
tima á höfuðborgarsvæðinu
en slðan einn dag í Hvera-
gerði er lögreglan lagði hald
á þau. Brasillsku hjónin voru
strax sett I gæsluvarðhald en
konunni var slepþt nokkru
síöar.
Kjötleitin mikla
Mikil leit var gerð um miðj-
an október að 700 tonnum af
kindakjöti sem ekki komu
fram við umfangsmikla
birgðatalningu sem afurða-
deildir Landsbankans,
Búnaðarbankans og Sam-
vinnubankans gerðu I sam-
einingu. Kjötið reyndist vera
1700 tonn en ekki 2387 tonn
eins og áætlun búvörusamn-
ings gerði ráð fyrir. Fram-
leiðsluráó landbúnaðarins og
framkvæmdastjóri búvöru-
deildar SÍS töldu óhikað að
kjötið ætti eftir að koma I
leitirnar, sem og það gerði
þvl eftir mikla leit kom loks
kjötið I leitirnar, það er að
segja þaö var aldrei týnt.
Sambandið og
húsakaup
Um miðjan september
keypti rikissjóður húseignir
og lóðir Sambands (slenskra
samvinnufélaga viö Sölvhóls-
götu og Lindargötu. Sam-
bandshúsiö mun verða notað
undir starfssemi Stjórnarráðs
íslands, en hún er dreifö viða
um borg.
Eftir kaupin voru miklar llk-
ur á að samkomulag tækist
um kaup Sambandsins á
Smárahvammslandi ( Kópa-
vogi undir starfssemi slna,
og það varð úr þann 9. októ-
ber. Ekki flutti Sambandið þó
höfuöstöðvar slnar I Kóþa-
vog, eins og margir höfðu
ætlað, heldur festu kaup á
eignarhluta Ögurvlkur hf. út
úr hlutafélaginu Kirkjusandur
hf. Fiskvinnsla leggst þvi nið-
ur á Kirkjussandi og I stað
hennar koma höfuðstöðvar
Sambandsins.
Forsvarsmenn I bæjar-
stjórn Kóþavogs lýstu yfir
miklum vonbrigðum vegna
þess þvl þó að Sambands-
menn hefðu engu lofaö hafði
bæjarstjórn Kóþavogs verið
farin að gæla við þá hug-
mynd að með tilkomu Sam-
bandsins I kauþstaðinn
myndu tekjur hans aukast að
miklum mun.
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
Nýja flugstööin, Flugstöð
Leifs Eirlkssonar, var vlgð af
forseta íslands, Vigdlsi Finn-
bogadóttur, þann 14. aprll.
Fjöldi gesta, bæði erlendra
og innlendra, voru viöstaddir
vlgsluna. Með tilkomu nýju
flugstöðvarinnar voru mörkuð
tlmamót bæöi hvað varðar
aðkomu farþega að landinu
og svo var byggingin talin
marka tlmamót I sögu
(slenskrar byggingarlistar.
En er á leið kom I Ijós að
Leifsstöö var I raun ekki tll-
búin til notkunar. Allt það
sem snéri að farþegum var jú
til sóma en starfsfólkiö mátti
vinna við slæma aðstöðu.
Flugstöð Leifs Eirikssonar var vigð þann 14. april — 11 dögum fyrir kosningar — og bakreikningurinn kom sið-
ar á árinu og hljóðaði upp á 871 milljón króna.
Sumsstaðar var ekkert loft-
ræstikerfi og margt versl-
unarfólk var óánægt meö að-
stöðuna. Benslnleiðslurnar I
Leifsstöð voru heldurekki til-
búnar til notkunar og var þvl
eldsneyti ekið I bllum til flug-
vélanna.
í byrjun seþtember kom
svo I Ijós hve kostnaður við
flugstöðina var glfurlegur.
Samanburður við byggingu
nýlegrar flugstöðvar I Harris-
burg I Bandarlkjunum sýndi
að Leifsstöð kostaöi nær
helmingi meira á fermetrann.
Fermetrinn I Harrisburg kost-
aði um 71.660 Isl. kr. en
113.880 Isl. kr. I Leifsstöð.
Að ósk fjármálaráðherra
tók nú Rikisendurskoðun að
rannsaka byggingarkostnað
flugstöóvarinnar. Að lokinni
rannsókn kom I Ijós að
kostnaður haföi fariö um 870
milljónir framyfir áætlun. Aö
viðbættum fjármagnskostn-
aði, kostnaöi vegna listaverka
utan húss o.fl. varö mismun-
urinn 1.049 milljónir króna.
Stefán Jóhann
í nóvember kom fram i
frétt Rlkisútvarpsins að
bandarlskar skýrslur sýndu
að Stefán JÓhann Stefáns-
son, forsætisráðherra
1947—49 hefði unnið meö
bandarlsku leyniþjónustunni
CIA. Komu þessar upplýsing-
ar fram I skjölum sem norsk-
ur sagnfræðingur, Dag
Tangen, aflaði sér úr skjala-
safni Harry Trumans, banda-
rikjaforseta, að sögn fréttarit-
ara útvarþsins I Oslo. Atti
Stefán Jóhann m.a. að vera
þeirrar skoðunar að þörf væri
á að fá hingað bandarlskt
herliö, til að kveða niður
hugsanlega upþreisn
Rikissjóöur keypti á árinu húseignir SÍS við Sölvhólsgötu og Lindargötu
— SÍS þóttist flytja i Smárahvammslandiö i Kópavogi — en kom aftan
að öllum með því að kaupa húseignir og lóðir Kirkjusands i Reykjavík.
Um miðjan október var gerð mikil leita af 700 tonnum af kindakjöti sem
ekki komu fram við birgðatalningu afurðadeilda þriggja banka.
„kommúnista.“
Nokkru seinna, eða þann
13. nóvember boðaði Stein-
grlmur Hermannsson, utan-
rlkisráðherra, til blaðamanna-
fundar þar sem hann greindi
frá skýrslum íslenska sendi-
ráðsins I Oslo. Þar sagði að
að sögn Tangens sé hvergi
minnst á Stefán Jóhann, en
hins vegar hafi hann séð bréf
I Truman-safninu þar sem
fram komi að SJS, forsætis-
ráðherra, hafi verið „Contact"
maður Bandarikjanna á ís-
landi. Sagði Steingrimur mál-
inu hér með lokið nema að
sendiráð íslands myndi fylgja
þessu ettir í Washington.
Ríkisútvarpiö dró frétt slna til
baka og baðst afsökunar á
henni.
r
Utvegsbanki
Fyrrverandi viðskiptaráð-
herra auglýsti, áður en hann
lét af embætti, hlutabréf til
sölu I Útvegsbankanum.
Auglýsti hann bréfi'n tvisvar
og lengi vel bjuggust menn
við að einhverjir sjávarútvegs-
menn keyptu hlutabréfin. Það
varð þó ekki og öllum á óvart
bauð Samband (slenskra
samvinnufélaga um miðjan
ágúst I hlutabréfin. Gerði
Sambandið bindandi kauptil-
boð i 67% af heildarhlutafé
bankans á grundvelli útboðs
ríkisins.
Nokkrum dögum seinna
var ráðherra afhent nýtt til-
boð og stóðu að því 33 aðilar
undir forystu Kristjáns
Ragnarssonar formanns LÍÚ.
Það tilboð var nokkru hærra,
eða 760 milljónir.
Hófst nú mikill styr um
bankann og þaö var Ijóst að
stjórnarsamstarfið var I
hættu hvort sem ráðherra
tæki tilboði SÍS eða hinna
svokölluðu KR-inga. Sam-
bandsmenn voru með lægra
tilboð en töldu sig eiga rétt á
kaupunum því þeir hefðu
boðið í hlutabréfin sam-
kvæmt skilmálum og höfðu
auk þess borgað fyrstu
greiðslu.
En viðskiptaráöherra gerði
ekki upp hug sinn og I
desember hætti hann við að
selja hlutabréfin. Sagði ráð-
herra að þau yrðu boðin til
sölu á ný þegar fyrir lægi
mat á eiginfjárstöðu við
stofnun hlutafélagsbankans
og eftir aö fyrsti arsreikning-
ur Útvegabanka íslands h.f.
hefði verió lagður fram.
Ráðhúsið í
Tjörninni
Verðlaun voru afhent i
samkeppninni um byggingu
ráðhúss, I Borgarleikhúsinu.
þann 12. júní. Fyrstu verðlaun
hlutu tveir ungir arkitektar
þau Margrét Harðardóttir og
Steve Christe. Ráðhúsinu var
ætlaö að rlsa við hornið á
Vonarstræti og Tjarnargötu.
1. október samþykkti
borgarstjórn að ráðhúsið yrði
byggt og skyldi byggingunni
Ijúka innan tveggja ára.
Margir voru þó andvfgir bygg-
ingunni og þá sérstaklega
staösetningunni Menn ótt-
uðust að I(fríki Tjarnarinnar
yrði hætt ef fariö væri að
byggja þarna hús. Stofnuö
•voru þvl óformleg samtök
sem beittu sér fyrir verndun
Tjarnarinnar. Samtökin voru
algjörlega ópólitlsk og höfðu
þann eina tilgang að vernda
Tjörninaog llfrlki hennar.
Kjörorö samtakanna var
„Tjörnin lifi.“ Héldu samtökin
útifund 15. nóvember og
mættu allt að þrjú þúsund
manns á hann.
Þrátt fyrir mótmælafund
þennan og alla þá umræðu
sem ráðhúsið hefur hlotið
hefur borgarstjóri, Davlð
Oddsson, lýst þvl yfir að
ekkert komi I veg fyrir að ráð-
húsið verði I Tjörninni, þ.e.a.s.
á horni Vonarstrætis og
Tjarnargötu.